Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009 Eitt af því jákvæða við íslenskastjórnsýslu hefur jafnan verið það góða og auðvelda aðgengi sem allur almenningur, blaða- og frétta- menn hafa haft að æðstu embættis- mönnum og stjórnmálamönnum. Það hefur ekki verið neitt tiltöku- mál að koma nánast beint inn af götunni og óska eftir viðtali við ráðherra eða embættismann.     Því hljóta nið-urlagsorð aðalfréttar á for- síðu Frétta- blaðsins í gær, þar sem m.a. er vitnað til orða Más Guðmunds- sonar, nýráðins seðlabanka- stjóra, á Reuters- fréttaveitunni, að verða mörgum að umhugsunarefni.     Þar segir orðrétt: „Már vildi ekkitjá sig um viðtalið við Frétta- blaðið og vísaði á upplýsingafull- trúa Seðlabankans væri óskað eftir viðtali við hann. „Í engu öðru landi mundi blaðamaður hringja beint í seðlabankastjóra,“ sagði Már.“     Það var og! Þarf ekki seðlabanka-stjóri að átta sig á því að það er einmitt á Íslandi sem hann nú starf- ar? Á Íslandi, þar sem fámennið og smæðin hafa einmitt gert það að verkum að tiltölulega einfalt mál er að ná sambandi við ráðherra, þing- menn, embættismenn og forstjóra stórra fyrirtækja sem smárra?     Hvers konar embættismanna-hroki er það hjá seðlabanka- stjóranum að koma fram með þeim hætti, þegar blaðamaður hefur náð sambandi við hann, að vísa á upp- lýsingafulltrúa sinn þar sem óska beri eftir viðtali? Már Guðmundsson þarf að átta sig á því að það er einmitt á Íslandi sem hann starfar nú um mundir og honum ber að laga sig að þeim sið- um og hefðum sem hér hafa tíðk- ast. Már Guðmundsson Seðlabankastjóri á Íslandi Á ALÞJÓÐLEGUM degi læsis sem var í gær fengu allir nemendur 7. bekkjar Vallaskóla á Selfossi afhent- ar lestrardagbækur, skemmtilega og áhugaverða gjöf. Það voru nokkrar konur á Suðurlandi sem eru áhuga- samar um lestur og læsi og eiga það sameiginlegt að starfa á bókasöfnum sem gáfu nemendum bækurnar. Lestrardagbækurnar eru bækur sem hægt er að færa í upplýsingar og vangaveltur um það sem lesið hefur verið. Fyrir þremur árum var fyrsta útgáfa af slíkri lestrardagbók útbúin og seld á öllum almennings- bókasöfnum landsins. Bókin seldist fljótt upp og hefur nýrrar útgáfu ver- ið beðið með eftirvæntingu. Í þessari útgáfu skrifar Kristín Helga Gunn- arsdóttir rithöfundur formála og Björn Heimir Önundarson, nemandi í Hvolsskóla, Hvolsvelli, teiknaði skemmtilegar myndir í bókina. Menningarráð Suðurlands styrkti út- gáfu bókarinnar, en það gerir útgef- endum kleift að færa öllum nem- endum 7. bekkjar á Suðurlandi eintak af bókinni, en það eru þeir nemendur sem taka þátt í Stóru upplestrar- keppninni. Bækurnar verða afhentar öðrum sjöundubekkingum á næstu vikum. Lestrardagbók er einnig hægt að kaupa í öllum bókasöfnum. Þær sem gáfu bækurnar eru Mar- grét Ásgeirsdóttir og Sigríður Matt- híasdóttir sem starfa við Bókasafn Árborgar, Selfossi, Barbara Guðna- dóttir, menningarfulltrúi Ölfuss, sem starfar fyrir Bæjarbókasafn Ölfuss, Elín K. Guðbrandsdóttir sem starfar á bókasafni FSu, Selfossi, Gunn- hildur Kristjánsdóttir sem starfar á Héraðsbókasafni Rangæinga á Hvolsvelli og Hlíf S. Arndal sem starfar á Bókasafninu í Hveragerði. Börnin hvött til lesturs Morgunblaðið/Jóhann Óli Lestrarhestur Nökkvi, nemandi í 7. bekk, með lestrardagbókina. -hágæðaheimilistæki Tilboð kr. 24.950* Nýja S2120 ryksugan frá Miele er lágvær, létt, kraftmikil og með stórum poka. Parketbursti að andvirði kr. 9.220 fylgir frítt með. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is vi lb or ga @ ce nt ru m .is Sparaðu með Miele Þú sparar kr. 9.220 Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur *tilboð gildir á meðan birgðir endast. Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 13 léttskýjað Lúxemborg 27 heiðskírt Algarve 29 heiðskírt Bolungarvík 8 alskýjað Brussel 28 heiðskírt Madríd 31 léttskýjað Akureyri 8 rigning Dublin 14 skýjað Barcelona 25 léttskýjað Egilsstaðir 9 alskýjað Glasgow 15 skúrir Mallorca 30 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 14 léttskýjað London 26 heiðskírt Róm 29 léttskýjað Nuuk 6 heiðskírt París 29 heiðskírt Aþena 24 léttskýjað Þórshöfn 11 skúrir Amsterdam 27 heiðskírt Winnipeg 18 skúrir Ósló 15 skýjað Hamborg 26 heiðskírt Montreal 23 léttskýjað Kaupmannahöfn 21 heiðskírt Berlín 25 heiðskírt New York 22 léttskýjað Stokkhólmur 19 léttskýjað Vín 22 léttskýjað Chicago 23 alskýjað Helsinki 17 skýjað Moskva 18 skýjað Orlando 29 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 9. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2.41 0,5 8.45 3,8 14.59 0,7 21.01 3,6 6:35 20:16 ÍSAFJÖRÐUR 4.50 0,3 10.43 2,1 17.08 0,5 22.58 1,9 6:35 20:26 SIGLUFJÖRÐUR 1.15 1,3 7.08 0,3 13.29 1,3 19.29 0,3 6:18 20:09 DJÚPIVOGUR 5.58 2,1 12.16 0,5 18.10 1,9 6:03 19:47 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á fimmtudag Suðlæg átt, 3-8 m/s, en suð- vestan strekkingur við suður- og suðausturströndina. Rigning víðast hvar á landinu, en úr- komulítið norðaustanlands. Hiti 8 til 14 stig. Á föstudag og laugardag Suðvestlæg átt og súld eða rigning með köflum um vest- anvert landið, en bjart að mestu austanlands. Hlýnandi veður og hiti 13 til 20 stig á laugardag, hlýjast á Austur- landi. Á sunnudag Stíf sunnanátt vestantil á land- inu og skúrir eða rigning, en annars hægari og bjart veður. Hlýtt í veðri. Á mánudag Suðvestanátt og skúrir, en þurrt norðaustanlands og kóln- andi veður. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestlæg átt, 3-10 m/s, og skýjað með köflum eða létt- skýjað en dálítil rigning eða súld suðvestan- og vest- anlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Austurlandi síðdegis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.