Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 32
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA tók nú bara einn dag,“ seg- ir fyrirsætan Matthildur Lind Matt- híasdóttir sem situr fyrir á tíu síðum í ágústhefti bandaríska tískutíma- ritsins Marie Claire. Ljóst er að um mikið tækifæri fyrir Matthildi er að ræða, enda tímaritið mjög útbreitt og mikið lesið. „Þetta gerðist mjög hratt. Skrif- stofan mín sendi mig í prufu til aðila sem vinnur fyrir Marie Claire. Í kjölfarið fór ég á skrifstofu þeirra við Times Square og þeim fannst ég æði þannig að ég fór og hitti ljós- myndarann. Hann var rosalega skrítinn og ég vissi ekkert hvort honum líkaði við mig. Hann sagði bara hæ, skoðaði bókina mína, og sagði svo bless. Seinna um daginn var hins vegar hringt í mig og mér sagt að ég þyrfti að fara til Los Ang- eles,“ segir Matthildur, en mynd- irnar voru teknar í gömlu kvik- myndaveri skammt fyrir utan borg englanna. Fékk ekki að eiga föt Á myndunum sýnir Matthildur fatnað frá mörgum af helstu hönn- uðum heims, svo sem Burberry, Armani, Calvin Klein og Gucci. Föt- in eru ekki á hvers mann færi – á einni mynd klæðist hún til dæmis jakka sem kostar 2.795 dollara, eða um 350 þúsund krónur. „Þeir reyna samt alltaf að blanda saman einhverju sem er ekkert rosa- lega dýrt við eitthvað sem er mjög dýrt. En ég fékk annars ekki að eiga neitt,“ segir fyrirsætan og hlær. Aðspurð segir Matthildur að stór og útbreidd tímarit á borð við Marie Claire borgi fyrirsætum ekki vel, þær eigi að líta á það sem tækifæri að fá að sitja fyrir í slíkum blöðum. „Ég var einu sinni í ítalska Vogue og fékk svona 2.000 kall fyrir dags vinnu. Þetta var einhver frægur ljós- myndari og mér var sagt að ég ætti bara að vera heppin að vinna með henni,“ segir Matthildur og bætir því við að hið sama hafi verið upp á teningnum í tilfelli Marie Claire. „Þetta var alls ekki vel borgað, tímarit borga yfirleitt ekki vel. En það er rosalega gott að hafa þetta í bókinni sinni.“ 20.000 dollarar fyrir einn dag Þrátt fyrir að vera aðeins nýorðin tvítug hefur Matthildur verið nokk- uð lengi í bransanum, en hún var kjörin Ford-módel Íslands árið 2005. Síðan þá hefur hún meðal annars unnið í Mílanó og París, en hún býr nú og starfar í New York. Hún segir fyrirsætustarfið skemmtilegt, þótt vissulega geti það verið svolítið erfitt. „Ég er hins vegar orðin nokkuð vön þessu. En þetta er samt alltaf erfitt. Fólk heldur að þetta sé ekkert mál, módel þurfi bara að sitja og vera sæt. En þetta er spurning um aðeins meira en það. Stundum er þetta hins vegar æðislegt. Í fyrra fékk ég til dæmis stærsta verkefnið mitt pen- ingalega séð, það var einhver hár- herferð sem ég sá svo aldrei, en fékk 20.000 dollara fyrir dagsvinnu. Þeir settu strípur í mig, klipptu aðeins í hárið, tóku svo eina mynd og smá- myndband. Það var komið fram við mig eins og prinsessu, en svo þegar maður fer í svona eins og í Marie Claire er manni bara sagt að fara í einhverja alltof litla skó, og svo fær maður bara 2.000 kall fyrir.“ En er ekki erfitt að hafa svona misjafnar tekjur á milli mánaða? „Jú jú, en skrifstofan veit hvernig þetta er. Ef maður á ekki fyrir leig- unni þennan mánuðinn redda þeir manni ef þeir hafa trú á manni – þá gera þeir ráð fyrir að maður hafi meiri tekjur næsta mánuðinn. En ef þeir sjá fram á að maður sé ekki að fara að græða neina peninga senda þeir mann bara heim.“ Þótt verkefnið fyrir Marie Claire hafi verið flott segir Matthildur að það sé ekki hennar stærsta tækifæri hingað til því fyrir skömmu hafi hún setið fyrir á myndum fyrir galla- buxnaherferð Diesel sem kynnt verður í febrúar. Andlit hennar muni því prýða tímarit og auglýs- ingaskilti í um sjötíu löndum eftir nokkra mánuði. Við eigum því eftir að sjá töluvert meira af Matthildi Lind Matthías- dóttur, svo mikið er víst. Íslensk fyrirsæta slær í gegn Veglegt Eins og sjá má er Matthildur afar áberandi á fimm opnum í ágústhefti hins bandaríska Marie Claire. 2005 Matthildur ber sigur úr být- um í Ford-keppninni í Loftkast- alanum fyrir fjórum árum.  Matthildur Lind Matthíasdóttir situr fyrir á tíu síðum í nýjasta hefti Marie Claire  Verður eitt af andlitum gallabuxnaherferðar Diesel  Snýst um annað og meira en að sitja og vera sæt, segir hún Morgunblaðið/Golli MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009 STÆRSTA BÍÓOPNUN Í ÁR! YFIR 47.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU! 20.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU Í REYKJAVÍK SÝND MEÐÍSLENSKU TALI EIN ALLRA BESTA DISNEY- PIXAR MYND TIL ÞESSA TVÆR ÓLÍKLEGAR HETJUR MUNU FINNA TÝNDA VERÖLD, EN STÆRSTA ÆVINTÝRIÐ VERÐUR AÐ KOMAST AFTUR HEIM STÓRKOSTLEGT ÆVINTÝRI SEM ENGIN FJÖLSKYLDA MÁ MISSA AF GAGNRÝNENDUR ERU Á EINU MÁLI “BESTA MYND ÁRSINS” HHHH „SKEMMTILEG, HJARTNÆM OG DREPFYNDINN“ - T.V. KVIKMYNDIR.IS HHHH „HÉR ER ENN EITT MEISTARAVERK FRÁ PIXAR, SEM RYÐUR BRAUTINA Í NÚTÍMA TEIKNIMYNDAGERÐ.“ - ROGER EBERT 100/100 – VARIETY 100/100 – THE HOLLYWOOD REPORTER „MISKU NARLA US SKEMM TUN“HHH ÓTRÚLEGA VEL UNNIN OG SKEMMTILEGUR SVARTUR HÚMOR” T.V. - KVIKMYNDIR.IS HHH „...MARKAR NÝJA SLÓÐ Í ÍSLENSKRI KVIKMYNDAGERГ ÓHT RÁS 2. HHH - AO ICELAND REVIEW “ONE PERFORMANCE BLEW ALL OFTHE OTHERS OUT OFTHE WATER ... HELGI BJÖRNSSON” SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI / ÁLFABAKKA REYKJAVÍK WHALE WATCHING MASSACRE kl. 6 - 8 - 10 16 UP m. ensku tali kl. 8 L REYKJAVÍK WHALE WATCHING MASSACRE kl. 8 - 10 LÚXUS VIP UP m. ensku tali kl. 5:50 LÚXUS VIP INGLOURIOUS BASTERDS kl. 8 - 11 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:503D L DRAG ME TO HELL kl. 8 - 10 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:50 L PUBLIC ENEMIES kl. 10 16 THE PROPOSAL kl. 8 - 10:20 L G-FORCE m. ísl. tali kl. 5:50 L HARRY POTTER 6 kl. 5 10 / KRINGLUNNI BEETHOVEN TÓNLEIKARÖÐ kl. 6 í beinni útsendingu L DIGITAL REYKJAVÍK WHALE WATCHING MASSACRE kl. 8:30 - 10:30 16 UP m. ensku tali kl. 83D - 10:103D L DIGITAL 3D UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:303D L DIGITAL 3D UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:30 L PUBLIC ENEMIES kl. 10:10 16 THE PROPOSAL kl. 8 L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.