Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 252. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Það má búast við
skemmtilegum fyr-
irlestri í hádeginu á
morgun hjá VR, en þá
ætlar Heiðar Jónsson
snyrtir að fræða fé-
lagsmenn verkalýðs-
félagsins „um hvernig við getum
bætt sjálfstraustið, gefa okkur góð
ráð varðandi förðun, fas, framkomu
og síðast en ekki síst daður“.
Heiðar getur án efa gefið fé-
lögum í VR góð ráð um fas og
framkomu enda býr hann að mikilli
þekkingu á því sviði. Kannanir sem
VR hefur staðið fyrir sýna að
framkoma getur skipt miklu máli
þegar launamenn biðja um launa-
hækkun eða sækja um starf. Það
er því kannski ekki óeðlilegt að fé-
lagið bjóði upp á fræðslu á þessu
sviði.
Heiðar kennir daður hjá VR
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-,.
+/0-/0
**0-1+
+,-+
+*-/+2
*3-030
**4-40
*-12/,
*.2-.1
*4/-*3
5 675 4# 89
6 +//.
*+,-3.
+/0-20
**0-00
+,-+3*
+*-/43
*3-3+4
**.-*.
*-12,1
*.0-2*
*4/-03
+11-0210
&:8
*+2-/.
+/3-/0
**3-/
+,-1,+
+*-*,.
*3-34
**.-2+
*-124+
*.3-/.
*4*-*3
Heitast 15° C | Kaldast 7° C
Suðvestlæg átt, 3-10
m/s, og skýjað með
köflum en dálítil rign-
ing suðvestan- og vest-
anlands. » 10
Wolfgang Schiffer
vinnur að bók um
fimm íslensk at-
ómskáld sem kemur
út í Þýskalandi sum-
arið 2011. »27
BÆKUR»
Atómskáldin
á þýsku
TÓNLIST»
Þónokkur framför hjá
Geir Ólafs. »31
Saga af samkyn-
hneigðum pilti er
þvílík tilfinninga-
vella að erfitt er að
vita hvort hlæja skal
eða gráta. »30
BÆKUR»
Gráta eða
hlæja?
FÓLK»
Tvöfalt brúðkaup Kylie
og Danni Minogue. »35
TÓNLIST»
Anderson styrkir íslensk
góðgerðarsamtök. »28
Menning
VEÐUR»
1. Guðrún fallegust á EM
2. Brjóstasýning í sjónvarpi
3. Dæmdir til dauða í Kongó
4. Jóhanna biðst afsökunar
Íslenska krónan styrktist um 0,38%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Í Lesbók Morg-
unblaðsins á laug-
ardaginn birtist já-
kvæður dómur
Steinunnar Ingu Ótt-
arsdóttur um nýtt
smásagnasafn Þór-
arins Eldjárns, Alltaf sama sagan.
Steinunn benti þó á meinlega villu í
einni sögunni þar sem aðalpersónan
heitir Sigurgeir, en heitir svo Sig-
urjón á einum stað. Ástæða þessa
mun vera sú að upphaflega nefndi
höfundurinn persónuna Sigurjón, en
svo ákvað hann að breyta nafni hans
í Sigurgeir. Einhverra hluta vegna
tókst ekki að breyta nafninu á einum
stað og fór það framhjá yfirlesurum.
Nú er bara spurning hvort bókin
selst upp svo nýtt upplag verði
prentað með réttu nafni.
Sigurjón og Sigurgeir
Auðunn Arnórsson,
blaðamaður og sér-
fræðingur í Evrópu-
málum, hefur verið
ráðinn til breska sendi-
ráðsins. Auðunn mun
einkum fjalla um Evr-
ópumál. Eins og kunnugt er hefur
Ísland sótt um aðild að Evrópusam-
bandinu og má leiða að því líkur að
sendiráðið vilji með ráðningu Auð-
unar styrkja þekkingu sína á
áherslum stjórnvalda í Evrópu-
málum. Auðunn hefur ritað mikið
um Evrópumál og í vor kom út bók
eftir hann, Inni eða úti? Aðild-
arviðræður við Evrópusambandið.
Auðunn til sendiráðsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Líður vel Fyrir einu ári kom Manal Aleed, ásamt þremur börnum sínum, beint úr flóttamannabúðum til Íslands.
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
ÞESSA dagana situr Manal Aleedi
mest heima við í blokkinni sem hún
býr í á Akranesi og æfir sig í að
skrifa íslensku. Þar sem það er ram-
adan, þ.e. föstumánuður, hefur hún
ekki jafnmikið fyrir stafni utan
heimilisins og venjulega.
„Þegar ramadan lýkur ætla ég á
kaffihús með íslenskum vinkonum
mínum og ég ætla þá líka að fara í
leikfimi,“ segir Manal og hlakkar
greinilega mikið til.
Nýr kafli í lífinu
Fyrir nákvæmlega einu ári hófst
nýr kafli í lífi Manal. Hún kom þá til
Akraness ásamt sjö öðrum palest-
ínskum konum og 21 barni frá Al
Waleed-flóttamannabúðunum í Írak.
Eiginmaður Manal var tekinn af
lífi árið 2006. Hún var þá 27 ára og
móðir þriggja ungra barna.
Nú ganga börnin, Sara, sem er 9
ára, Maryam, sem verður 8 ára í
næstu viku, og Mohammed, sem er 6
ára, í skóla og leikskóla á Akranesi.
„Stelpurnar eru í fimleikum og
strákurinn er í fótbolta. Ég fer og
horfi á þau,“ segir Manal stolt.
Ísland er svo fallegt land
Sjálfri þykir henni gaman að hjóla
um bæinn og fara niður á Langa-
sand. Hún hefur líka skoðað sig um
fyrir utan bæinn ásamt íslenskum
vinum sínum.
„Í sumar fór ég með vinum mínum
í útilegu og ég er búin að sjá Gullfoss
og Geysi. Þetta var mjög skemmti-
legt. Ísland er svo fallegt land,“ seg-
ir Manal.
Hún kveðst alls staðar mæta afar
góðu viðmóti þar sem hún kemur.
„Það eru allir Íslendingar svo góðir
við mig. Mér líður vel hérna. Ég er
miklu rólegri en ég var.“
Sjálf bauð hún vinahópi sínum í
veglega matarveislu þegar hún varð
þrítug í sumar. „Svo bauð ég upp á
tertu sem ég fékk að gjöf,“ segir Ma-
nal á ótrúlega góðri íslensku.
Hún keppist við að læra enn meira
í málinu og gluggar í námsbækur
barnanna.
„Ég les en skil ekki allt. Krakk-
arnir mínir eru að kenna mér en ég
þarf að læra miklu meira. Mig lang-
ar til þess að fá vinnu hérna. Það er
ekki gott að sitja heima og gera ekki
neitt.“
„Mér líður vel hérna“
Eitt ár síðan nýr
kafli hófst í lífi
Manal Aleedi
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA var alls ekki vel borgað,
tímarit borga yfirleitt ekki vel. En
það er rosalega gott að hafa þetta í
bókinni sinni,“ segir Matthildur
Lind Matthíasdóttir, tvítug fyrir-
sæta sem situr fyrir í ágústhefti
bandaríska tímaritsins Marie
Claire. Matthildur prýðir tíu síður í
blaðinu, og sýnir þar fatnað frá
mörgum af helstu hönnuðum
heims. Ljóst er að um mikið afrek
er að ræða hjá fyrirsætunni ungu,
enda Marie Claire afar útbreitt
tímarit. Matthildur á þó eftir að
láta ljós sitt skína enn frekar því í
febrúar verður kynnt ný galla-
buxnaherferð Diesel þar sem hún
er ein af fyrirsætunum. Það þýðir
að andlit hennar mun prýða tímarit
og auglýsingaskilti í um 70 löndum.
„Fólk heldur að þetta sé ekkert
mál, módel þurfi bara að sitja og
vera sæt. En þetta er spurning um
aðeins meira en það,“ segir Matt-
hildur. | 32
Glæsileg Matthildur á einni af ljós-
myndunum í Marie Claire.
Situr fyrir í Marie Claire
og í herferð fyrir Diesel
ÍSLENSKA U-21 ára lið karla í
knattspyrnu vann í gærkvöld stór-
sigur á Norður-Írum á útivelli í und-
ankeppni Evrópumótsins. Íslensku
strákarnir fóru hreinlega á kostum
og gjörsigruðu N-Írana, 6:2. Þeir
lögðu grunninn að sigrinum í fyrri
hálfleik með því að skora fjögur mörk
án þess að heimamenn næðu að svara
fyrir sig. Rúrik Gíslason skoraði tvö
mörk og þeir Aron Einar Gunn-
arsson, Jóhann Berg Guðmundsson,
Bjarni Þór Viðarsson og Alfreð Finn-
bogason eitt mark hver. | Íþróttir
Strákarnir í
miklu stuði
Hvar eru Al Waleed-flótta-
mannabúðirnar?
Þær eru á landamærum Íraks og
Sýrlands.
Hver er uppruni Palestínumanna í
Al Waleed-flóttamannabúðunum?
Þeir eru afkomendur Palest-
ínumanna sem flúðu til Íraks þegar
Ísraelsríki var stofnað.
Palestínumenn nutu verndar í stjórn-
artíð Saddams Husseins, fyrrverandi
Íraksforseta, en þeir voru ríkisfangs-
lausir.
Hvers vegna eru þeir í
flóttamannabúðum?
Margir sjítar sögðu þá styðja upp-
reisnarmenn súnníta.
Palestínumennirnir sættu þess
vegna ofsóknum og neyddust til að
flýja heimkynni sín í Írak. Greint hef-
ur verið frá grimmilegu ofbeldi sjíta
gegn flóttamönnunum.
S&S