Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009 Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ÚRSKURÐUR samgöngu- ráðuneytisins, um að greiðslur Landsvirkjunar til Flóahrepps fyrir skipulagsvinnu hafi verið ólögmæt- ar, kemur Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands íslenskra sveit- arfélaga og bæjarstjóra Ísafjarð- arbæjar, verulega á óvart. Sveit- arfélög hafi til þessa talið sig hafa heimild samkvæmt lögum til að krefjast greiðslu þegar einhver framkvæmd breyti gildandi skipu- lagi. Sú vinna sé bæði dýr og tíma- frek. „Mér er kunnugt um sveit- arfélög sem hafa sett um þetta reglur, til dæmis varðandi breyt- ingar á deiliskipulagi. Þeirri reglu hefur verið beitt hér í Ísafjarð- arbæ, þar sem óskað var eftir breytingu á deili- skipulagi svo hægt væri að bæta við sum- arbústað. Þess vegna hef ég tal- ið að Flóahrepp- ur, Skeiða- og Gnúpverjahrepp- ur og fleiri sveit- arfélag, sem hafa lagt í mikla vinnu við skipulag vegna framkvæmda Landsvirkjunar, hafi verið í fullum rétti til að innheimta kostnað sem á þau féll vegna þess,“ segir Halldór. Hann bendir á að samkvæmt 53. grein skipulags- og byggingarlaga komi skýrt fram að sveitarstjórnum sé heimilt að innheimta gjöld fyrir leyfi til framkvæmda sem hafa áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess. Halldór bendir einnig á 6. grein sömu laga þar sem segir m.a.: „Sveitarstjórnum er heimilt við umfangsmiklar framkvæmdir, sem eru matsskyldar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, að skipa í samráði við framkvæmdar- aðila og leyfisveitendur sérstaka eftirlitsnefnd sem hefur eftirlit með því að skilyrðum sem framkvæmd- inni hafa verið sett sé framfylgt. Framkvæmdaraðili ber allan kostn- að af starfi nefndarinnar.“ Hert verði á heimildum til frekari innheimtu kostnaðar Í frumvörpum til nýrra skipu- lagslaga og laga um mannvirki er gert ráð fyrir rýmri heimildum til gjaldtöku en eru í gildandi lögum. Halldór segir að þannig verði skýr heimild til þess að krefja umsækj- endur um byggingar- og fram- kvæmdaleyfi um allan kostnað vegna skipulagsbreytinga sem hljótast af fyrirhugaðri fram- kvæmd, verði þessi frumvörp óbreytt að lögum. „Mögulega hefur úrskurður sam- gönguráðuneytisins einhver áhrif á þessi frumvörp. En að mínu áliti ættu þau áhrif að vera til þess að herða á þessum heimildum eða að sérstakur sjóður verði stofnaður fyrir sveitarfélögin að sækja í. Að mínu mati er einfaldast að löggjöfin heimili þetta og framkvæmdaaðili borgi. Það er ekki hægt að gera ráð fyrir því að sveitarfélög, sér- staklega þau smærri, ráði við kostnað vegna risastórra fram- kvæmda. Það er líka eðlilegt að framkvæmdaaðili standi straum af kostnaði,“ segir Halldór. Í fullum rétti til að innheimta kostnað  Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga telur eðlilegt að framkvæmdarað- ilar greiði fyrir skipulagsvinnu  Skýr lagaheimild sé fyrir innheimtu kostnaðar Halldór Halldórsson FRÉTTASKÝRING Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „NIÐURSTÖÐUR okkar hér og í Breiðavíkurmálinu benda til þess að þarna hafi verið vandamál, að sumu leyti kerfislegt vandamál, varðandi eftirlitsskort með þeim börnum sem eru vistuð á þessum stofnunum,“ segir Róbert Spanó lögfræðingur og formaður nefndar sem í gær skilaði skýrslu vegna starfsemi Heyrnleys- ingjaskólans, skólaheimilisins Bjargs og vistheimilisins Kumb- aravogs. Skýrslan var kynnt í ríkisstjórn í gærmorgun og ákvað stjórnin m.a. á fundi sínum að áfram yrði unnið að því að setja almenn lög um bætur vegna misgjörða á vistheimilum í samráði við samtök fyrrverandi vist- manna og sveitarfélög. Ekki jafn gróft og í Breiðavík Kynferðislegt og annað ofbeldi viðgekkst á vistunarstofnununum á vissum tímabilum starfseminnar þótt ofbeldið hafi ekki verið jafn gróft og viðgekkst í Breiðavík. „Í Breiðavík bættist það við á tímabili að starfsmenn höfðu í frammi mjög alvarlegar ofbeldisathafnir. Það sjáum við ekki með sama hætti hjá þessum þremur stofnunum nema í afmörkuðum tilfellum,“ segir Róbert Spanó. Vegna skýrslunnar voru tekin við- töl við 72 af 231 nemanda stofn- ananna auk þess sem skýrsla var tekin af 24 fyrrverandi starfs- mönnum þeirra. Meirihluti nemenda Heyrnleys- ingjaskólans sem rætt var við var óánægður meðan á náminu stóð og sögðust þeir reiðir og bitrir, skóla- yfirvöld hefðu brugðist þeim. „Upp- lýstu flestir um að hafa haft þá til- finningu að litið væri niður á þá vegna fötlunarinnar og almennt hefði verið talið í skólasamfélaginu að heyrnarlausir væru ekki í stakk búnir til að stunda nám með sama hætti og heyrandi jafnaldrar,“ segir m.a. í skýrslunni. Líkur eru taldar á að nemendur skólans hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi frá samnem- endum, starfsmanni skólans og ut- anaðkomandi aðila þó að ekki séu vísbendingar um kerfisbundið of- beldi. Nefndin telur að kennslustefna Heyrnleysingjaskólans og aðskiln- aður ungra barna og foreldra þeirra hafa verið þeim þungbær. Aðstaðan hafi skert lífsgæði barnanna í ís- lensku samfélagi til framtíðar. Hóp- urinn sem stundað hafi nám í skól- anum sé félagslega einangraður og menntunarstig lægra en annarra. Frásagnirnar trúverðugar Í viðtölum við fyrrverandi vist- menn Kumbaravogs var frásögn meirihluta þeirra jákvæð en minni- hluti hafði neikvæða sögu að segja. Nefndin segir frásagnir þeirra fyrr- verandi vistmanna, sem segjast hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu gestkomandi einstaklings, hafi verið trúverðugar og að í þeim hafi verið samræmi. Ekki sé þó tilefni til að álykta svo að vistmenn heimilis- ins hafi, þegar á heildina er litið, sætt illri meðferð eða ofbeldi af hálfu forstöðuhjóna heimilisins. Vegna skólaheimilisins Bjargs, þar sem einungis voru vistaðar stúlkur, eru líkur taldar á því að ein- hverjar þeirra hafi orðið fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi af hálfu starfs- manna. Allar konurnar sem talað var við lýstu dvölinni sem neikvæðri og voru bitrar og reiðar. Kerf- isbundin ritskoðun af hendi starfs- fólks á Bjargi hafi heft samskipti viststúlkna við umheiminn og hafi verið niðurlægjandi. Það er mat nefndarinnar að skort hafi skipulagt eftirlit með starfsemi Heyrnleysingjaskólans hjá mennta- málaráðuneytinu, þá hafi heilbrigð- iseftirliti verið ábótavant fram til 1971. Varðandi Kumbaravog og Bjarg telur nefndin að eftirliti af hálfu barnaverndarnefnda hafi verið ábótavant. Barnaverndarnefnd Stokkseyrar hafi veitt staðbundnum barnaverndarnefndum sem vistuðu börn á vistheimilinu takmarkaðar upplýsingar um velferð og líðan barnanna sem þar dvöldu. Nefndin telur sömu tillögur til stjórnvalda gilda fyrir þessar stofn- anir og fyrir Breiðavíkurheimilið. Það eru tillögur um hugsanlegar skaðabótakröfur, geðheilbrigð- isþjónustu og gildandi framkvæmd og eftirlit á sviði barnaverndarmála. Kerfið brást börnunum  Könnun vistheimilisnefndar á þremur heimilum sýnir fram á of lítið eftirlit barnaverndaryfirvalda  Kynferðislegt og annað ofbeldi í vistinni var staðfest í viðtölum við tugi fyrrverandi vistmanna Niðurstöður Áður en vistheimilisnefndin lýkur störfum 2011 mun hún taka fyrir Upptökuheimili ríkisins og Unglingaheimili ríkisins auk fleiri vistheimila. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vistheimilisnefnd skilaði nú skýrslu um þrjú heimili. Nefndin skilaði skýrslu um Breiðavík- urheimilið í fyrra og mun skila niðurstöðum um fleiri heimili á næsta ári og lokaskýrslu 2011. Niðurstöður nefndarinnar um starfsemi Heyrnleys- ingjaskólans á árunum 1947-1992 leiða í ljós að kennslustefna skólans og aðskilnaður ungra heyrn- arlausra barna frá for- eldrum sínum hafi verið nemendahópnum þungbær. Félag heyrnarlausra lýsir yfir ánægju með skýrslu nefndarinnar. Sérstaklega beri að þakka fyrir greinargóða skýrslu þar sem dregin sé upp heildstæð mynd af sögu heyrnarlausra nemenda í tæpa fimm áratugi. „Félag heyrnarlausra hvetur stjórnvöld til að fara að tillögum nefndar um vist- og meðferðarheimili þess efnis að tekin verði skýr efnisleg af- staða til framkominna tillagna um úrbætur í málefnum heyrnarlausra sem raktar eru í skýrslunni. Þá hvetur Félag heyrnarlausra stjórnvöld til að standa vörð um réttindi og þátttöku heyrnarlausra í íslensku sam- félagi,“ segir í ályktun frá félaginu. Aðskilnaður heyrnarlausra barna þungbær Halldóri Halldórssyni finnast yf- irlýsingar sumra einstaklinga um mál Skeiða- og Gnúpverja- hrepps, sem fékk líkt og Flóa- hreppur greiðslur frá Lands- virkjun fyrir skipulagsvinnuna, vera yfirlætisfullar og óábyrgar. Þannig hafi t.d. Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, gefið sterklega í skyn að sveit- arstjórnarmenn Skeiða- og Gnúpverjahrepps væru óheið- arlegir og þeim ætti að skipta strax út. „Mér fannst hún sýna með þessu mikið yfirlæti gagnvart sveitarfélögunum og ruddaskap gagnvart þessum sveitarstjórn- armönnum,“ segir Halldór. Þingmaður með yfirlæti og ruddaskap ÞETTA er áframhaldandi svartur blettur á sögu þjóð- arinnar, sagði Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætis- ráðherra um starfsemi þeirra þriggja vistheim- ila sem greint var frá í gær. Fyrir hönd stjórnvalda bað hún vistmenn viðkomandi heimila og aðstandendur þeirra afsökunar á meðferðinni á heimilunum. Forsætisráðherra ræddi skýrsl- una að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Jóhanna sagði að áfanga- skýrsla vistheimilisnefndar sýndi að þó að niðurstöðurnar væru ekki eins alvarlegar og sambærileg nið- urstaða í tengslum við Breiðavík- urheimilið væri ljóst að í mörgum tilfellum hefðu börn á þessum heimil m sætt illri meðferð og kyn- fer islegri misnotkun. „Það er mjög mikilvægt að fá botn í þessi mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir og vísaði til þess að nefndin starfaði áfram og myndi skila áfangaskýrslum 2010 og 2011. steinthor@mbl.is Meðferðin svartur blettur á sögu þjóðarinnar Ekki búið Jóhanna SigurðardóttirMorgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.