Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 22
✝ Halldóra Gunn-arsdóttir fæddist á Steinsstöðum á Akra- nesi 13.7. 1923. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 1. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Gunnar Guð- mundsson vélstjóri og bóndi á Steinsstöðum, f. 10.8. 1897, d. 6.2. 1988, og Guðríður Guðmundsdóttir hús- freyja, f. 10.10. 1899, d. 22.4. 2000. Systkini Halldóru eru: Guðmundur, f. 9.7. 1920, Svava, f. 29.12. 1921, Sigurlín Margrét, f. 16.2. 1927, Sigurður, f. 20.6. 1929, Gunnar, f. 22.12. 1931, d. 3.7. 2002, Ármann, f. 1.10. 1937, Sveinbjörn, f. 7.7. 1939, og Guðrún, f. 10.4. 1942. Hinn 11.11. 1945 giftist Halldóra Einari Árnasyni skipstjóra og út- gerðarmanni frá Sóleyjartungu á Akranesi, f. 19.10. 1921, d. 5.6. 2004. Synir þeirra eru: 1) Árni Sigurðs, f. 23.9. 1945, kvæntur Guðbjörgu Hall- dórsdóttur, f. 30.8. 1945, börn þeirra eru: a) Guðríður Dóra, gift Guðlaugi Elís Jónssyni, sonur þeirra er Jón Steinar, b) Einar, sambýliskona hans er Linda Kolbrún Haraldsdóttir og dóttir þeirra er Sylvía Björg. Fyrir á Einar Írisi Ósk, í sambúð með Gísla K. Gíslasyni, sonur þeirra er Fróði Hrafn, c) Jóhanna, gift Ólafi Páli Sölvasyni, börn þeirra eru Ragnheið- ur, Árni Snær og Ást- rós. 2) Gunnar, f. 10.11. 1951, kvæntur Ragnheiði Jóhönnu Pétursdóttur, f. 26.8. 1952, börn þeirra eru: a) Halldóra, sambýlis- maður hennar er Haf- þór Ólafsson og börn þeirra eru Ragnheið- ur Ólöf og Einar Odd- ur, b) Pétur Emil, dóttir hans er Amelía Rún, c) Einar Örn, sambýlis- kona hans er Stine Laaptch og sonur þeirra er Gunnar. 3) Marteinn Grét- ar, f. 3.8. 1953, kvæntur Guðrúnu Sigurbjörnsdóttur, f. 16.10. 1955, börn þeirra eru: a) Kristrún Dögg, gift Theodóri Frey Hervarssyni, börn þeirra eru Ester Lind, Mar- teinn og Viktor, b) Heiðrún Lind, c) Andri Már. 4) Einar Halldór, f. 14.9. 1961. 5) Guðmundur, f. 19.7. 1963, kvæntur Sóleyju Sævarsdóttur, f. 13.10. 1964, börn þeirra eru a) Rut Berg, sambýlismaður hennar er Daníel Friðjónsson, b) Breki Berg, c) Bjarki Berg. Útför Halldóru fer fram frá Akra- neskirkju í dag, 9. september, og hefst atöfnin kl. 14. Árið 1923 fæddist elskuleg tengdamóðir mín, Halldóra Gunn- arsdóttir frá Steinsstöðum á Akra- nesi. Mæt og góð kona er fallin frá og ríkir mikil sorg og söknuður hjá hennar nánustu. En vissan um að hún var hvíldinni fegin eftir fjög- urra mánaða erfið veikindi veitir nokkra huggun. Þrátt fyrir mikinn trega og söknuð finn ég fyrst og fremst til þakklætis fyrir að hafa átt hana svona lengi sem tengdamóður Hún var lengst af heimavinnandi og gaf drengjunum sínum fimm allan þann tíma sem þeir þurftu vegna fjarveru Einars tengdaföður míns sem stundaði sjó allan sinn starfsaldur. Uppeldið lenti þess vegna að mestu á henni, umhyggju og virðingu til hennar vegna alls sem hún áorkaði ein í uppeldinu hafa þeir sýnt svo vel með þakk- læti til hennar. Komu þeir til henn- ar á hverjum degi ef þeir áttu fría stund til að njóta samverustunda með henni. Tengdamóðir mín hafði flest á valdi sínu sem prýðir góða hús- móður. Matseld, bakstur, sauma- skapur og prjón var allt svo létt og auðvelt í hennar höndum og áhugi á að kynna sér nýjar matarvenjur og læra bútasaum orðin áttræð var bara sjálfsagt og eðlilegt. Tengdamóðir mín var sátt og ánægð með lífið og tilveruna og hafði orð á því hvað henni liði vel í litla húsinu sínu á Höfðagrundinni. Hún elskaði að geta bakað góðgæti og veitt vinum og ættingjum veit- ingar þegar þeir komu í heimsókn. Heimsóknir til hennar voru miklar og margar vegna þess að alltaf var tekið á móti öllum með svo mikilli hlýju og alúð. Smáir sem stórir í fjölskyldunni hittust iðulega hjá henni á laugardags- morgnum og þótt þrek færi minnk- andi var iðulega á borðum heima- bakað góðgæti og síðan sjálfsögð virðing að fylgja öllum til dyra þegar farið var. Í þrjátíu og sjö ár hefur hún reynst mér einstaklega góð, skiln- ingsrík og hjálpsöm í öllu sem ég hef þurft að leita til hennar. Undi mér strax vel með þessari góðu og glaðværu konu hvort sem setið var yfir kaffibolla, lagað slátur, notið gleðistunda í sumarbústað, tekið í spil, ferðast um landið og að ekki sé minnst á einu utanlandsferðina hennar, allar þessar samveru- stundir eru perlur í minningasafn mitt. Halldóra eða Dóra eins og hún var kölluð var einstaklega hlý og barngóð kona og fundu börnin mín og barnabörnin ómælda hlýju og skjól hjá henni og sóttu í að vera í samvistum við hana eins oft og þau höfðu tök á. Hún var miðpunktur okkar allra og til hennar lá stöðugur straumur, allir vildu votta henni virðingu og þakklæti fyrir ástúð hennar og um- hyggju. Að leiðarlokum þakka ég vin- áttu, gæsku og velvild. Blessuð sé minning hennar. Guðrún Sigurbjörnsdóttir. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur hug þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahlil Gibran/Gunnar Dal.) Elsku amma mín, þá er komið að kveðjustund. Mikið er ég heppin að hafa átt þig að. Frá því ég var lítil stelpa hef ég alltaf sóst eftir nærveru þinni. Það var svo gott að vera í kringum þig, þú varst svo hlý og gefandi manneskja. Við gátum rætt saman um allt milli himins og jarðar. Heima hjá þér var alla daga gestkvæmt. Þar hittist fjöl- skyldan oft í viku og alltaf áttir þú eitthvað heimabakað með kaffinu. Mikið á ég eftir að sakna þeirra stunda sem við áttum saman. Þú sast aldrei auðum höndum og hafð- ir alltaf eitthvað fyrir stafni hvort sem það var að baka, sauma, prjóna, spila við vinkonur þínar, taka á móti gestum eða halda heimilinu fínu. Þrátt fyrir að hafa verið orðin 86 ára gömul þá leist þú alltaf svo vel út og varst ætíð smekkleg til fara. Þér var mjög annt um fjölskyldu þína, afa Einar, strákana þína, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn. Þú hlúðir vel að öllum og í raun öllu í kringum þig. Elsku amma, þú verður alltaf mín fyrirmynd og minningarnar sem ég á um þig mun ég varðveita á góðum stað í hjarta mínu. Ég mun sakna þín óendanlega mikið. Þín Kristrún. Elsku amma Dóra. Á þessum erfiða tíma er erfitt að finna orð sem geta lýst tilfinning- um og söknuði sem ég upplifi þessa daga. Hetja okkar allra, alltaf svo yndisleg. Það koma margar ynd- islegar minningar upp í huga mér á svona stundu. T.d. Brekkubraut- in, tanngómar sem voru allt of stórir, allar ferðirnar í Heyholt, ferðalagið með ykkur afa hringinn í kringum landið, sígaunakonan á Vestfjörðum, mannýg naut, afmæl- ið mitt fyrir tveimur árum o.fl. Ég gæti haldið endalaust áfram. Þess- ar minningar koma til með að ylja mér og fjölskyldu minni um hjarta- rætur í framtíðinni. Loks ertu búin að fá hvíld og komin til afa Einars. Það verður mjög skrítið að hafa þig ekki á meðal okkar, ég á eftir að sakna þín mikið. Elsku amma Dóra, takk fyrir allt, þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu. Hvíldu í friði. Kveðja, Jóhanna. Kveðjuorð til þín. Elsku amma Dóra, takk fyrir all- ar góðu stundirnar sem við áttum með þér. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Saknaðarkveðjur, Ragnheiður, Árni Snær og Ástrós. Amma mín var stórkostleg kona. Þetta er það fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég leita í huganum að orði sem myndi lýsa henni best, en þau eru mörg lýsingarorðin, ástrík, hlý, sterk, ákveðin og svo mætti lengi telja. Sveitastelpa frá Steinsstöðum sem varð ástfangin af sjómannin- um og skipstjóranum Einari og ól upp fimm góða drengi. Allir voru drengirnir englar í hennar augum þótt við barnabörnin höfum heyrt Halldóra Gunnarsdóttir sögurnar af prakkarastrikumþeirra í gegnum tíðina, en þannig var það bara, þeir dýrkuðu og elsk- uðu mömmu sína og hún þá. Vand- fundnir eru drengir sem hugsuðu jafnvel um mömmu sína. Þegar afi greindist með alzheimer var það mikið áfall fyrir fjölskylduna, en amma annaðist hann af kostgæfni í veikindum hans þar til hann féll frá í júní 2004. Amma var ákaflega dugleg kona og málaði húsið til að mynda sjálf að utan síðasta sumar, bar á pall- inn, bakaði, saumaði og gerði allt sem henni datt í hug og það á ní- ræðisaldri. Myndarskapur hennar lýsti sér í öllum hennar gjörðum og ekki lét hún veikt hjarta stoppa sig í því sem hún ætlaði sér. Betri fyr- irmynd er ekki hægt að hugsa sér og bar ég mikla virðingu fyrir henni ömmu minni. Heimili þeirra afa, fyrst á Brekkubraut og síðar Höfðagrund, var mjög gestkvæmt og þangað leituðum við öll fjöl- skyldan. Ávallt gekk maður inn í hlýjan faðm, fékk gott í munn og amma hafði alltaf tíma fyrir okkur krakkana. Fyrstu skrefin á prjóna- brautinni leiddi hún unga sex ára snót. Afraksturinn varð dökkbrúnt stykki með nokkrum götum, en rosalega vorum við stoltar af árangrinum. Allar bústaðaferðirn- ar með henni og afa í Heyholtið. Sérstaklega er mér minnisstæð ferð sem við fórum um páskana 1987. Við létum snjó ekki stoppa okkur, rændum skóflu við fjárhús- in næst veginum og mokuðum okk- ur leið að bústaðnum. Helginni eyddum við svo í rólegheitunum, ég að læra fyrir samræmdu prófin, afi að hlusta á veðrið á ýmsum tím- um og amma framleiddi góðgæti ofan í okkur öll þrjú, auk annarra fjölskyldumeðlima sem komu í heimsókn yfir páskana. Mikið er- um við búin að hlæja að þessari ferð í gegnum árin og minnast mokstursins upp að bústaðnum. Þegar Fjölbrautaskólaárin tóku við bættust við heimsóknir á Brekku- brautina í hádeginu og eldaði þá afi ofan í okkur ömmu fiskbollur í dós og annaðhvort bleika eða gula sósu. Síðari árin, þegar börnin mín voru komin til sögunnar, fannst þeim alltaf jafngaman að heim- sækja ömmu á Höfðagrundina. Þá var dótapokinn sóttur og dunduðu þau sér við leik á meðan spjallað var við ömmu eða aðra fjölskyldu- meðlimi um heima og geima. Í vor veiktist amma og þurfti að leggjast inn á spítala. Þar sem annars stað- ar í lífi hennar sýndi sig ákveðni og lífsviljinn og var hún allt fram á síðustu vikuna á leiðinni heim, en guð ætlaði henni aðra leið og ég veit að hún er nú komin í faðminn til afa. Amma mín, ég elska þig og sakna þín. Hvíl í friði. Þín Halldóra. Jæja elsku amma Dóra. Þá er komið að kveðjustund hjá okkur. Ég vil þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman, ofarlega í huga mér er hveitikökubaksturinn. Þú hafðir bakað hveitikökur handa öllum fyr- ir jól, síðan fór ég að koma til þín og hjálpa þér við baksturinn, við gerðum þetta í sameiningu í mörg ár, þetta voru góðar og heilagar stundir hjá okkur, það var nú ekki hægt að halda veislu nema vera með hveitikökur frá þér. Svo kom maður alltaf við og fékk kaffi og heimabakað brauð með mysuosti, mysuost fékk maður sér aldrei nema hjá þér. Þá verð ég að minn- ast aðeins á buddurnar sem þú saumaðir fyrir mig og fleiri í fjöl- skyldunni. Þú sagðir við mig þegar þú gafst mér fyrstu budduna: „Ekkert vera að sýna budduna því hún er bara úr saumaafgöngum frá mér og ekkert merkileg.“ En þess- ar buddur eru mjög flottar og vin- sælar í fjölskyldunni. Elsku amma Dóra, takk fyrir allt. Hvíldu í friði. Kveðja, Guðríður. 22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009 ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför systur okkar, ÁSTU JÓSEPSDÓTTUR frá Pálshúsum. Guðjón Jósepsson, Ester Helgadóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU HALLDÓRSDÓTTUR frá Vörum í Garði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Garðvangs fyrir allan þeirra hlýhug og góða umönnun. Þórður Kr. Kristjánsson, Ásta Guðmundsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför okkar elskulega SIMON DE HAAN vélstjóra, Merkilandi 10, Selfossi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahjúkrunar og starfsfólk hand- og lyflækningadeildar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Jafnframt viljum við þakka kærlega Karlakór Selfoss og Kvennaklúbb Karlakórsins fyrir þeirra framlag. Aðalheiður Guðmundsdóttir, Erna Sólveig og Sigurjón, Akke og Frank, Matthías Örn, Sigurveig og Böðvar, Judith og Ate og barnabörn. ✝ Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, LEIFUR EIRÍKSSON kennari frá Raufarhöfn, til heimilis á dvalarheimilinu Hrafnistu, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu þriðjudaginn 1. september á 103. aldursári. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 11. september kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarsjóð krabbameinssjúkra barna í síma 588 7555 eða á heimasíðu félagsins www.skb.is. Eysteinn Völundur Leifsson, Ína Sigurlaug Guðmundsdóttir, Rannveig Lovísa Leifsdóttir, Ingibjörg Fríður Leifsdóttir, Jón Guðmundur Sveinsson, Erlingur Viðar Leifsson, Arndís Jóna Gunnarsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.