Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009 ✝ Ingvi S. Ingvars-son fæddist 12. desember 1924 í Reykjavík. Hann lést á Landspítalanum 26. ágúst sl.Foreldrar Ingva voru Guðrún Jónasdóttir, hús- freyja, og Ingvar Ingvarsson, bón- di.Eiginkona Ingva er Hólmfríður Guðlaug Jónsdóttir. Dóttir þeirra er Bergljót Kristín, uppeldis- fræðingur og kenn- ari, gift Einari Kristmundi Guð- mundssyni. Barnabörnin eru Ingvi, Hólmfríður Guðlaug, Ástríður Guð- rún, Guðni Grétar og Guðfinna Anna. Langafabarnið og nafni er Ingvi Sigurður Ingvason.Ingvi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1945 og stundaði nám við viðskiptadeild Háskóla Ís- lands. Hann lauk MA-prófi í hag- fræði frá Háskólanum í Glasgow 1949 og framhaldsnámi frá London School of Economics.Ingvi starfaði hjá Skattstofunni í Reykjavík, Sendiráði Bandaríkjanna og hjá Skipaútgerð ríkisins áður en hann var ráðinn fulltrúi í utanríkisráðuneytinu 1956. Þá hófst ferill hans í utanríkisþjón- ustunni og gegndi Ingvi mörgum trún- aðarstörfum í henni. Hann var m.a. sendi- ráðsritari í Moskvu, sendiráðunautur í Washington D.C., varafastafulltrúi NATO í París og í Brussel og skrif- stofustjóri í utanrík- isráðuneytinu. Ingvi var sendiherra og fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum og sendi- herra í Svíþjóð, Danmörku og Bandaríkjunum og hjá þjóðum sem undir sendiráðin heyra. Þá var hann ráðuneytisstjóri utanrík- isráðuneytisins 1982-1986. Ingvi var um tíma formaður Félags Sam- einuðu þjóðanna á Íslandi. Hann hlaut stórriddarakross Fálkaorð- unnar með stjörnu 1982 og stór- krossa frá þjóðhöfðingjum sex er- lendra ríkja.Útför Ingva fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 9. sept- ember, og hefst athöfnin kl. 15. Meira: mbl.is/minningar Elsku afi minn, ég sakna hans svo sárt, þetta er enn svo óraunverulegt. Ég vil minnast hans sem hrausta og yndislega afa míns. Hann var til í að gera allt fyrir okkur, allt sem við báð- um um var sjálfsagður hlutur. Það er nú ekki það eina sem hann gaf okkur, hann gaf okkur líka alla ástina og um- hyggjuna og allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Ég mun alltaf muna eftir ferðunum þar sem við keyrðum á gamla Buicknum til Ak- ureyrar og vorum þar í nokkra daga og fórum og horfðum á útskriftina hjá stúdentunum í MA. Síðan var það líka ferðin þar sem við fórum öll fjölskyld- an saman til Flórída í tilefni af 80 ára afmæli hans. Ég hef ekki tölu á því hversu oft við fórum í minigolf hand- an við götuna með honum afa úti á Flórída, það var æðislegt! Síðan fór- um við saman til Spánar í tilefni af 50 ára afmæli mömmu minnar, það var nú bara í 10 daga en var samt sem áð- ur mjög gaman. Auðvitað má ekki gleyma tveggja vikna ferðalaginu í sumar, þar sem við fórum í viku til Akureyrar og keyrðum síðan öll sam- an á Stykkishólm. Ég er svo ánægð að hafa fengið að njóta þessara stunda með afa. Þótt við höfum ekki verið á fullu allan daginn þá var það bara svo gott að geta verið saman. Að sitja og sauma með ömmu á meðan afi las blaðið eða var í golfi. Hann, pabbi og yngri bróðir minn fóru alloft í golf á morgnana. Síðan bauð afi okkur í sjó- stangaveiði þar sem við veiddum um 30 þorska. Afi veiddi stærstu fiskana og við eigum mynd af honum með aflann. Þetta er það seinasta sem við gerðum með afa af viti þar sem hann fór sama dag heim með ömmu en við vorum áfram í eina nótt. En það var sko ekki bara að fara eitthvað svona sem var skemmtilegt, heldur bara að fara til þeirra og vera hjá þeim. Sitja heima hjá þeim í stofunni og horfa á sjónvarpið eða borða vöfflur með rjóma. Ég mun minnast afa fyrir öll stóru og smáu atriðin. Ég mun alltaf geyma hann í hjarta mér og hann mun aldrei víkja þaðan. Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir. Þegar faðir minn lá þungt haldinn á spítalanum hallaði ég mér að honum með tárin í augunum og hvíslaði: „Pabbi, gerðu það fyrir mig, láttu þér batna.“ Hann kreisti höndina mína, brosti og hristi höfuðið. Hann andað- ist daginn eftir og ég grét eins og barn. Ég veit að ef hann hefði fengið einhverju um það ráðið hefði hann gengið stálsleginn út af spítalanum. Hann hefði sest inn í gamla bílinn sinn og farið í golf fyrir allar aldir með félögunum, síðan heim til mömmu í hádagismat, í útréttingar eftir hádegi, horft á fréttir og e.t.v. góðan fótbolta- leik um kvöldið. Það átti ekki við pabba að liggja í rúminu og hann mátti aldrei vera að því að vera veik- ur. Ég vil ekki minnast sjúkralegunn- ar. Ég vil muna eftir manninum sem fór til Manchester í vor sem leið í fót- boltaferð. Manninum sem fór með fjölskylduna í sjóstangaveiði í sumar. Manninum sem keypti blóm handa mömmu um verslunarmannahelgina í tilefni af 63 ára brúðkaupsafmælinu. Manninum sem var búinn að panta sér golfferð til Þýskalands í haust. Ég vil muna manninn sem var fullur af orku, sem naut lífsins, sem elskaði og var elskaður. Minningin lifir. Takk fyrir allt og allt elsku pabbi minn. Ég sakna þín. Bergljót Kristín Ingvadóttir. Látinn er í Reykjavík mikill og góð- ur samverkamaður og vinur til fjölda ára, Ingvi S. Ingvarsson. Hann var stúdent að norðan en ég úr MR. Hann var með hagfræðinám að baki en ég lögfræði. Saman náðum við svo um miðjan sjötta áratug síðustu aldar í utanríkisráðuneytinu og störfuðum þar báðir næstu fjörutíu árin. Á árunum 1967-1971 unnum við Ingvi S. Ingvarsson saman í Brussel. Við vorum báðir fulltrúar Íslands gagnvart Norður-Atlantshafsráðinu (NATO) en stofnunin og starfslið NATO var flutt frá Frakklandi til Belgíu, 1. september 1967. Við Ingvi fengum það hlutverk ásamt góðri vin- konu okkar, Svanhildi Sigurgeirs- dóttur, að opna nýtt íslenskt sendiráð í höfuðstað Evrópu, Brussel, en auk NATO og Belgíu fylgdumst við vel með afgreiðslum og ákvörðunum Efnahagsbandalags Evrópu. Fjöl- breytt starf í Brussel á þessum árum var góður undirbúningur og reynsla fyrir Ingva, sem síðar gegndi fjölda ábyrgðarstarfa í okkar utanríkisþjón- ustu, eins og embætti ráðuneytis- stjóra, fastafulltrúa í New York og sendiherra í Stokkhólmi, Washington og Kaupmannahöfn. Fáir starfsmenn utanríkisþjónustunnar hafa átt jafn farsælan feril og Ingvi en við náðum aftur að vinna saman heima í ráðu- neytinu á árunum 1982-84. Einnig minnist ég þorskastríðsáranna, þegar við áttum góða samvinnu um lausn landhelgismálsins, hann í New York og ég í London. Árangur Ingva við úr- lausn verkefna líðandi stundar var eftirtektarverður enda ávallt unninn með því hugarfari að tryggja hags- muni Íslands og íslensku þjóðarinnar erlendis. Það var framkoma, atorka og rökfærsla Ingva er kom til leiðar hagstæðari niðurstöðu fyrir Íslend- inga í samskiptum við erlenda aðila en ella. Oft er rætt um að menn njóti virðingar í starfi og eitt er víst að Ingvi var virtur í hinum „diplómat- íska“ heimi, jafnt hér heima meðal samstarfsmanna og erlendis meðal kollega og fulltrúa gestaríkja. Ingvi var maður sem setti sterkan svip á umhverfi sitt hvar sem hann fór. Hann var mjög samviskusamur og vandvirkur starfsmaður. Hann var hávaxinn og hafði fas hins trausta „diplómats“ en sú meðfædda list sem verður vart numin, er fáum útvöldum gefin. Hólmfríður Jónsdóttir, eigin- kona Ingva, stóð ávallt sem klettur við hlið hans með mikilli prýði og Ís- landi til sóma. Votta ég frú Hólmfríði og dóttur þeirra, fjölskyldu, vinum og vanda- mönnum samúð mína og fjölskyldu minnar. Blessuð sé minning Ingva. Niels P. Sigurðsson Góður Íslendingur og tryggur vin- ur hefir yfirgefið þennan heim eftir farsælt ævistarf. Leiðir okkar Ingva lágu fyrst saman 1956/57, þegar hann var fulltrúi í viðskiptadeild utanrík- isráðuneytisins með aðsetur á efri hæð stjórnarráðshússins við Lækjar- torg. Skrifstofa hans var undir súð og má segja, að hann hafi alltaf orðið að ganga um hálf boginn, því hann var stór maður. Undirritaður var nýbakaður full- trúi hjá SÍS og vann m.a. við útflutn- ing á frystum fiski til Sovétríkjanna, en á þeim árum voru þau bjargvættur sjávarútvegsins og keyptu skipsfarm eftir farm af frystum fiski. Meðal út- flutningsskjala var svokallað orm- avottorð, sem kaupendur heimtuðu að væri undirritað af fulltrúa utanrík- isráðuneytisins. Þar var vottað, að enga hringorma væri að finna í þeim hundruðum tonna af fiskflökum, sem væru í farmi viðkomandi skips. Oft á tíðum hljóp ég yfir Arnarhólinn með slíkt vottorð fyrir Ingva að undirrita. Spauguðum við oft með þetta og ég spurði, hvort hann væri ekki skelk- aður um það, að KGB myndi sýna sig, ef einhver Sovétborgari myndi finna orm í þorskflaki. Fannst mér Ingvi svaka kaldur að þora að skrifa undir þessi vottorð og horfði ég á hann með virðingu, þegar hann mundaði sjálf- blekunginn. Vegna samskiptanna út af ormavottorðunum tókst með okkur vinátta, sem entist ævilangt. Ferill Ingva í utanríkisþjónustunni var glæsilegur. Í ein 13 ár var hann fulltrúi í sendiráðunum í Moskvu, Washington og París. Sendiherra varð hann 1973, fyrst hjá Sameinuðu þjóðunum en síðan í Stokkhólmi, Washington og Kaupmannahöfn. Allt í allt var hann um rúm 30 ár erlendis á vegum Íslands. Svo vann hann líka í utanríkisráðuneytinu nokkur ár og var m.a. ráðuneytisstjóri í 5 ár. Ingvi hafði allt til brunns að bera til að vera glæsilegur fulltrúi Íslands. Hann var hávaxinn, laglegur, vel gef- inn og menntaður heimsmaður. Hæg- látur var hann og yfirvegaður eins og diplómatar eiga að vera. Við vorum eitt sinn í sendiherrabústaðnum í Washington á ræðismannaþingi og man ég, hve hreykin við vorum af hin- um glæsilegu sendiherrahjónum, Ingva og Hólmfríði. Þau voru landi og þjóð til sóma. Margar góðar stundir áttum við með þessum heiðurshjónum, flestar í henni Ameríku, í New York, Wash- ington og Flórída. Við vorum í fer- tugsafmæli Ingva, þegar hann var sendifulltrúi hjá Thor Thors, sendi- herra í Washington, en svo hélt hann bæði upp á sextugs- og áttræðis-af- mælin í Flórída. Þegar við kveðjum þennan farsæla mann og góða dreng sendum við Ingvi S. Ingvarsson                                       ✝ Yndislegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN GESTUR FINNBOGASON fyrrv. lögregluvarðstjóri, Hrafnistu Reykjavík, áður Háaleitisbraut 151, andaðist sunnudaginn 30. ágúst. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 10. september kl. 15.00. Hallfríður Ásmundsdóttir, Finnbogi Grétar Kristinsson, Ásmundur Kristinsson, Svava Loftsdóttir, Kristinn Finnbogason, Snædís Kjartansdóttir, Friðrik Heiðar Ásmundsson, Hildur Helga Sævarsdóttir, Loftur Ásmundsson, Bergdís Heiða Eiríksdóttir, Eva Katrín Friðriksdóttir. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ERLA SVEINA H. JÓRMUNDS, Jökulgrunni 25, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum fimmtudaginn 3. september. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. september kl. 13.00. Bogi Jóh. Bjarnason, Bjarni J. Bogason, Kolbrún J. Snæfeld, Guðný Bogadóttir, Þórður Bogason, Elín H. Ástráðsdóttir og barnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, INGIBJÖRG VALGEIRSDÓTTIR, Svalbarði 9, Höfn, andaðist á hjúkrunarheimilinu á Höfn fimmtudaginn 3. september. Útför hennar fer fram frá Hafnarkirkju laugardaginn 12. september kl. 14.00. Jón Bjarnason, Guðrún Vigfúsdóttir, Geir Bjarnason, Valgerður Leifsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRARINN JENS ÓSKARSSON húsasmíðameistari, Skúlagötu 20, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 4. september. Útförin fer fram frá Seljakirkju fimmtudaginn 17. september kl. 15.00. Gunnar Þórarinsson, Steinunn Sighvatsdóttir, Ágúst Þórarinsson, Sigríður Hanna Jóhannesdóttir, Sæmundur Þórarinsson, Kristjana Daníelsdóttir, Katrín Þórarinsdóttir, Haukur Ingason, Sigrún Þórarinsdóttir, Stefán Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Maðurinn minn, faðir og bróðir, ÞORGRÍMUR JÓNSSON tannlæknir, lést laugardaginn 5. september. Hulda Jósefsdóttir, Anna Þorgrímsdóttir, Jóhanna Jónsdóttir, Bjarni Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.