Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009 EINN efnilegasti rithöfundur Bandaríkj- anna á nítjándu öld var Stephen Crane sem lést á besta aldri áður en hann náði að kom- ast í hóp þeirra fremstu. Hann var aðeins 29 ára gamall þegar hann féll frá, lést úr berklum á þýsku heilsu- hæli 5. júní árið 1900. Þessi bók Edmunds Whites hefst í þá mund sem líf Cranes er að fjara út; hann býr á Englandi fársjúkur og berst við að ljúka við sína síðustu sögu sem er frásögn af ungum pilti er hann kynntist í New York sem hafði í sig og á með því að selja miðaldra karl- mönnum líkama sinn. Hugmyndin er víst komin frá frásögn samtímamanns Cranes af því að hann hafi einmitt kynnst slíkum pilti og byrjað að semja sögu hans sem hafi týnst en að upphafskaflarnir hafi verið það besta sem hann hefði skrifað um ævina. Þess má geta að Crane-fræðingar draga þessa frásögn mjög í efa, enda stangast hún á við ýmsar staðreyndir, en eins og White lýsir því í eftirmála þá stóðst hann ekki mátið, ekki síst það að velta því fyrir sér hvernig gagnkynhneigður maður eins og Stephen Crane, sem hafði ríka samúð með fólki á jaðri samfélagsins, hefði lýst heimi samkynhneigðra á þeim tíma, á átjándu öld, er þeir gátu sjálfir trauðla lýst honum. Hotel de Dream segir þannig frá síðustu ævidögum Cranes og um leið reynir White að endurskapa söguna eins og Crane hefði skrifað hana. Þetta tekst þó ekki nema miðlungi vel, því þótt Crane nái þokkalega að herma eftir Crane þá er sagan af pilt- inum þvílík tilfinningavella að maður veit ekki hvort maður eigi að hlæja eða gráta. Það má White þó eiga að hann nær að draga upp forvitnilega mynd af New York undir lok nítjándu aldar og lýsingar á lífi samkynhneigðra á þeim tíma eru stór- merkilegar. Tilbúin til- finningavella Hotel de Dream eftir Edmund White. Blooms- bury gefur út. 225 bls. kilja. ÁRNI MATTHÍASSON BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. The Girl Who Played With Fire – Stieg Larsson 2. The Associate – John Grisham 3. New Moon – Stephenie Meyer 4. Eclipse – Stephenie Meyer 5. The Girl With The Dragoon Tattoo – Stieg Larsson 6. Breaking Dawn – Stephenie Meyer 7. Why Iceland? – Ásgeir Jónsson 8. Smash Cut – Sandra Brown 9. The Brief Wondrous Life of Oscar Wao – Junot Diaz 10. Brisingr – Christopher Paolini Eymundsson 1. Alex Cross’s Trial – James Patterson og Richard DiLallo. 2. South Of Broad – Pat Conroy 3. The Help – Kathryn Stockett 4. 206 Bones – Kathy Reichs 5. The White Queen – Philippa Gregory 6. The Girl Who Played With Fire – Stieg Larsson 7. That Old Cape Magic – Richard Russo 8. The Eleventh Victim – Nancy Grace 9. Even Money – Dick Francis og Felix Francis 10. Dead And Gone – Charlaine Harris New York Times 1. The Lost Symbol – Dan Brown 2. The Time Traveler’s Wife – Audrey Niffenegger 3. The Year of the Flood – Margaret Atwood 4. The Secret Scripture – Sebastian Barry 5. A Week in December – Sebastian Faulks 6. The Alchemists Secret – Scott Mariani 7. The White Queen – Philippa Gregory 8. The Other Hand – Chris Cleave 9. Songs of the Humpback Whale – Jodi Picoult 10. The Neighbour – Lisa Gardner Waterstones’s Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is DESPEARTE Romantics er nýleg bók eftir Franny Moyle þar sem hún beinir sjónum að kon- unum í lífi forrafaelítanna svo- nefndu og örlögum þeirra. Bresku forrafaellítarnir sóttu innblástur til ítalskrar málaralistar fyrir daga Rafaels. Blómatími þeirra var um og eftir miðja 19. öld og konurnar í lífi þeirra urðu ofurfyr- irsætur síns tíma. Meðal persóna í þessari bók eru málararnir Dante Gabriel Ros- setti, John Everett Millais og William Morris og fyrirsæturnar Lizzie Siddal og Jan Morris. Það var yfirleitt lítil hamingja í einka- lífi þessa fólks, ástarsambönd voru flókin og bág andleg og lík- amleg heilsa setti mark sitt á lífs- hlaupið. Átröskun og þunglyndi Hin unga hattagerðarkona Liz- zie Siddal er fyrirferðarmikil í bókinni. Hún var ung að árum þegar John Everett Millais hafði hana að fyrirmynd að Ófelíu þar sem hún flýtur látin niður á. Myndin, sem er máluð á tíma- bilinu 1851-52, er ein af þekktustu myndum breskrar listasögu. Liz- zie tók hlutverk fyrirsætunnar al- varlega og lá tímunum saman í ís- köldu baði meðan Millais, sem þá var 22 ára, teiknaði hana. Hún varð fárveik á eftir, hugsanlega af lungnabólgu, og náði sér aldrei fyllilega eftir það. Lizzie bjó með Dante Gabriel Rossetti sem kvæntist henni eftir að þau höfðu verið í sambúð í tæpan áratug en þá var Lizzie orðin afar heilsuveil. Eftir að Lizzie fæddi andvanda dóttur fór heilsa hennar enn versnandi. Hún var háð lyfjum og þjáð af átröskun og þunglyndi. Hún fyrirfór sér 29 ára gömul vegna framhjáhalds eiginmanns síns. Lík grafið upp Rossetti var harmi sleginn vegna andláts hinnar ungu eig- inkonu sinnar. Hann hafði dundað við að yrkja ljóð og setti eina handritið sem hann átti af þeim í gröf eiginkonu sinnar. Seinna sá hann mjög eftir því að hafa verið svo örlátur og lét grafa upp lík Lizzie til að endurheimta ljóða- handritið. Ljóðin komu seinna út í bók sem Rossetti tileinkaði Jane Morris, eiginkonu vinar síns Willi- am Morris, sem hann var þá mjög ástfanginn af. Jane endurgalt til- finningar hans og William Morris leitaði huggunar hjá Georgie, eig- inkonu málarans Edward Burne Jones. Dramatísk bók Þær sögur sem hér hafa verið lauslega raktar eru einungis brot af þeirri ástaróreiðu sem ein- kenndi líf forrafaelítanna. Lesendur Desperate Rom- antics fá gott og dramtískt lesefni í hendur en hætt er við að þeim þyki eigin ævi fremur hvers- dagsleg í samanburði við öll tíð- indin á blaðsíðunum. Forvitnilegar bækur: Ástaróreiða í lífi listafólks Daprar ofurfyrirsætur Lizzie Fyrirmynd að Ófelíu í þessu fræga málverki Millais. SÝNDUR Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI ALLIR ÞEIR SEM FRAMVÍSA LEIKHÚSMIÐA FRÁ HELLISBÚANUM FÁ 25% AFSLÁTT Á BÍÓMYNDINA: theuglytruth FRUMSÝND 18. SEPTEMBER HHH “Með öllum líkindum frumlegasta ástarsaga sem hefur komið út síðustu misseri.” T.V. - Kvikmyndir.is SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓISÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára Magnað og blóðugt framhald af Halloween sem Rob Zombie færði okkur fyrir tveimur árum. Hinn stórhættulegi og snargeðveiki raðmorðingi Michael Myers heldur áfram að myrða fólk á hrottalegan hátt! Bráðskemmtileg heimildarmynd um mestu goðsögn tískuheimsins, Önnu Wintour, fyrirmynd persónu Meryl Streep í myndinni The Devil Wears Prada. Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBOGANU M 750kr. SÝND Í HÁSKÓLABÍÓÍSÝND Í SMÁRABÍÓI Inglorious Basterds kl. 6 - 9 B.i.16 ára The Taking of Pelham 123 kl. 6 B.i.16 ára Time Travelers Wife kl. 8 B.i.12 ára The Goods kl. 10 B.i.14 ára September issue kl. 6 - 8 LEYFÐ Stelpurnar okkar kl. 10 LEYFÐ Inglorious Bastards kl. 6 - 9 B.i.16 á. Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 B.i.16 á. Time Travelers w... kl. 5:30 - 10:20 B.i.12 á. G.I. Joe kl. 5:40 - 8 - 10:20 750 kr B.i.12 ára Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 750 kr. B.i.16 ára The Goods, live hard... kl. 5:50 - 8 - 10:10 750 kr B.i.14 ára Taking of Pelham kl. 5:30 - 10:30 750 kr. B.i.16 ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.