Morgunblaðið - 09.09.2009, Síða 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009
VEGGJAKROTARAR svífast sumir hverjir einskis og hika ekki við að
klifra upp á þök og vinnupalla, og þannig jafnvel stofna lífi sínu í hættu, til
að fremja spellvirkin. Má sjá veggjakrot víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu
en nýlega tókst nokkrum að smeygja sér framhjá hindrunum í hálfkláruðu
skrifstofuhúsnæði við Urðarhvarf og skilja þar eftir sig áberandi ummerki
sem erfitt og kostnaðarsamt verður að losna við. ylfa@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
SVÍFAST EINSKIS Í KROTI
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
„VIÐ erum að reyna að forðast ýs-
una en það gengur ekkert allt of vel,
þótt fiskifræðingarnir finni hana
ekki,“ sagði Gunnar Hannesson,
skipstjóri á Sæbjörgu frá Grímsey, í
gær. Þeir voru þá á dragnót á Skjálf-
andaflóa og hefur afli verið ágætur
síðustu daga. Helstu vandræðin eru
að of mikil ýsa hefur fengist með
þorskinum.
Þó svo að í gær hafi aðeins verið
áttundi dagur fiskveiðiársins er
brostinn á flótti undan ýsunni hjá
mörgum. Ýsukvóti fiskveiðiársins
var skertur um 26 þúsund tonn,
hann var 93 þúsund tonn í fyrra, en
er 57 þúsund tonn í ár. Þá var einnig
mikil skerðing á ufsakvótanum, úr
65 þúsund tonnum í 37 þúsund tonn.
Þeir á Sæbjörgu eiga ekki ýsu-
kvóta og segir Gunnar að bölvanlega
gangi að fá hann leigðan. Hann hafi
látið frá sér skötusel og fengið ýsu á
móti, þannig hafi hann bjargað sér í
nokkra daga. Hann segir marga
vera í sömu sporum. Um þetta leyti í
fyrra hafi verið hægt að fá nóg leigt
af ýsu en staðan sé gerbreytt núna.
Allir símar á fullu
Björn Jónsson hjá kvótamiðlun
LÍÚ segir að þeir sem eigi ekki
kvóta, til dæmis í ýsu, lendi á flótta
frá fyrsta degi.
„Hér eru allir símar á fullu og allir
eru að reyna að ná sér í heimildir.
Núna er staðan bara þannig að þeir
sem eru með heimildir nota þær
sjálfir og veitir ekki af. Skerðingin
var það mikil að það eru allir í vand-
ræðum. Það er ekkert til leigu leng-
ur og menn eru að basla við að
skipta á tegundum. Menn eiga ekki
að róa nema þeir eigi veiðiheimildir
fyrir því sem þeir ætla að veiða.
Gott verð hefur fengist fyrir þorsk
á mörkuðum undanfarið og var verð-
ið 311 krónur fyrir kílóið í gær
Þegar á flótta
undan ýsunni
„Það er ekkert til leigu lengur og menn
eru að basla við að skipta á tegundum“
Morgunblaðið/RAX
Ýsa Ekkert fæst leigt og sumir hafa
verið á flótta frá fyrsta degi.
Kynntu þér lán og aðra
þjónustu Íbúðalánasjóðs
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
Lán til íbúðakaupa
Lán til endurbóta og viðbygginga
Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka)
Úrræði í greiðsluvanda
FORSÆTIS-
RÁÐHERRAR
Bretlands og
Hollands hafa
ekki svarað bréfi
Jóhönnu Sigurð-
ardóttur for-
sætisráðherra,
sem hún sendi
eftir samþykkt
Icesave-málsins á
Alþingi. Þar ósk-
aði hún eftir samráði og samvinnu
við ráðherrana um farsæla lausn
málsins og stakk upp á sameig-
inlegum fundi, ef hann gæti orðið
til þess að liðka fyrir samningum.
Jóhanna segir að embættismenn
hafi unnið áfram í Icesave-málinu í
framhaldi af viðræðum þeirra við
fulltrúa Breta og Hollendinga fyrir
skömmu. Mikilvægt sé að fá niður-
stöðu í málið sem fyrst til þess að
hægt sé að koma öðrum málum í
farveg, eins og til dæmis endur-
skoðuninni varðandi Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn, sem vonir standi til að
hægt verði að ljúka fyrir mánaðar-
lok.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir ljóst að málin
varðandi Icesave og Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn verði að leysa samsíða,
þar sem þau hangi saman.
Engin svör frá Bret-
landi og Hollandi
Jóhanna
Sigurðardóttir
ÞAÐ sem af er árinu 2009 hafa 127
fasteignir verið seldar nauðung-
arsölu hjá sýslumanninum í Reykja-
vík, miðað við lok júlí.
Flestar nauðungarsölur áttu sér
stað síðla vetrar; alls 29 í febrúar,
37 í mars og 20 í apríl, en fæstar í
janúar eða aðeins 6.
Á sumarmánuðum fækkaði nauð-
ungarsölum, 15 urðu í maí, 11 í júní
og 9 í júlí. Að sögn Sigríðar Ey-
steinsdóttur, deildarstjóra hjá
sýslumannsembættinu, skýrist
þetta af því að almennt sé nauðung-
arsölum hætt að sumri til.
Nauðungarsölubeiðnir berast
jafnt og þétt yfir árið og voru orðn-
ar 1.237 vegna fasteigna í lok júlí.
Þá er skráð 561 nauðungarsölu-
beiðni vegna bifreiða frá janúar til
júlí 2009, en rúmlega helmingi
færri eða 248 bílar voru seldir
nauðungarsölu á sama tíma.
Árið 2008 var alls 161 fasteign
seld nauðungarsölu hjá sýslumanni
en skráðar beiðnir 2.277. Seldar
bifreiðar voru þá 491 en nauðung-
arsölubeiðnir 2.019 talsins.
127 fasteignir seldar
nauðungarsölu
STJÓRN Breiðavíkursamtakanna
og stjórnvöld hafa ekki enn komist
að niðurstöðu um bætur til vist-
manna í Breiðavík 1952-1979. Til
stendur að skipa bótanefnd og á
tengiliður vistmanna við stjórnvöld
að starfa með henni.
Í fjáraukalögum fyrir árið 2008
var gert ráð fyrir 125 milljónum
króna í bætur eða um 800 þúsund
kr. að meðaltali á hvert barn.
Stjórn Breiðavíkuramtakanna
hafnaði hins vegar þessu tilboði.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra segir að fundað hafi verið
með stjórnarmönnum samtakanna í
þeim tilgangi að reyna að ná sátt í
málinu. Rætt hafi verið um að víkka
út skilgreiningarnar sem miska-
bæturnar eiga að ná til og skoðað
hvort hægt væri að hækka þær. Að-
alatriðið væri að ná sáttum og
stjórnvöld væru tilbúin að leggja
mikið á sig til þess.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir að stjórnvöld
hafi gert vel í því að láta vinna eins
vandaða úttekt á málinu og raun
ber vitni. Hann segir að enn eigi
eftir að gera upp sambærileg verk-
efni og nefnir m.a. mál sem tengjast
geðfötluðum, þvingaðar vananir,
símhleranir, persónunjósnir og
fleiri skuggabletti á sögunni sem
ástæða sé til að fara yfir með sama
hætti. steinthor@mbl.is
Enn deilt um upp-
hæðir miskabóta
EKKI er sama lægð í sölu notaðra
bíla og nýrra og er úrvalið á bíla-
sölum víða orðið gloppótt að sögn
Özurar Lárussonar, fram-
kvæmdastjóra Bílgreinasambands-
ins. „Það er viss skortur á bílum á
verðbilinu 2-6 milljónir króna,“ seg-
ir Özur og kveður bíla af 2006 ár-
gerð og yngri seljast hvað best.
„Það myndast líka mikið gap í
markaðnum þegar varla selst nýr
bíll.“ Því valdi sá mikli verðmunur
sem sé á milli nýrra bíla, sem háðir
eru tollgengi, og svo notaðra.
Bílgreinasambandið vinnur að
því að öðlast yfirlit yfir markaðinn
með notaða bíla, sem er öllu óljós-
ari en markaður nýrra bíla. Senda
nú öll bílaumboðin og nokkrar bíla-
sölur mánaðarlega inn tölur um
sölu á notuðum bílum til Rannsókn-
arseturs verslunarinnar. Þær upp-
lýsingar eiga svo að veita nokkuð
raunsanna mynd af því hver þróun-
in er. En samkvæmt upplýsingum
yfir þróunina út júlímánuð datt sal-
an niður í apríl, jókst aftur í júní
og hefur haldist nokkuð óbreytt
síðan. Mest er salan í fólksbílum en
aukningin er þó mest í sölu jeppa
og telur Özur aukin ferðalög Ís-
lendinga um eigið land eiga þar
hlut að máli.
„Það hefur alltaf verið góð sala í
jeppum á Íslandi en nú selst ekki
nýr bíll og þá höndlar fólk með not-
aða bíla.“
Nýi markaðurinn
að glæðast
Hann bendir þó á að svo virðist
sem markaðurinn með nýja bíla
virðist vera að glæðast örlítið á ný.
„Nú er 80% samdráttur í stað 90%
áður. Þannig að það er smáhreyf-
ing þótt hún sé varla mælanleg.“
annaei@mbl.is
Jepparnir vinsælastir í endursölu
* ' + )
)
)
!"##
$%&''(
)
$"*('+&
+",- !* ,( -.* % / % !0 !0 Viss skortur er á
notuðum bifreiðum
sem eru á verðbilinu
2-6 milljónir króna