Morgunblaðið - 09.09.2009, Síða 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
8 9
3 2 4
1 7 5
5 1
4 7 2 5 6
6 3 7
4 6
8 3
2 7 4
9 6 1
5 4 7
6 8
3 2 1 7
7 5 9 3
1 2
3 4
6
1 3 9
8 1
9 6 2 8
5 3 4
2 7 4 9
8 5 7 1
2 4 8
5 1 3
2
6
8 3 2 7 4 1 6 5 9
1 5 7 2 6 9 8 3 4
9 6 4 5 8 3 2 7 1
3 1 5 6 7 8 4 9 2
7 8 6 4 9 2 5 1 3
4 2 9 3 1 5 7 6 8
5 7 8 1 3 4 9 2 6
2 4 3 9 5 6 1 8 7
6 9 1 8 2 7 3 4 5
1 3 7 5 8 9 4 2 6
5 9 4 3 6 2 8 7 1
8 2 6 4 7 1 3 5 9
4 1 3 8 9 5 2 6 7
9 6 5 2 3 7 1 8 4
7 8 2 1 4 6 9 3 5
6 4 1 7 2 3 5 9 8
2 7 8 9 5 4 6 1 3
3 5 9 6 1 8 7 4 2
3 8 2 7 9 6 4 5 1
7 9 5 3 1 4 8 2 6
4 1 6 8 5 2 9 3 7
5 2 7 4 8 3 6 1 9
9 3 4 6 7 1 5 8 2
1 6 8 9 2 5 7 4 3
2 7 9 5 3 8 1 6 4
8 4 1 2 6 7 3 9 5
6 5 3 1 4 9 2 7 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 9. september,
252. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar
himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.)
Blaðamenn eiga nú yfir höfði sérað verða sóttir til saka vegna
fréttaflutnings og yfirvöld rannsaka
hvaðan blaðamönnum berast upplýs-
ingar. Í liðinni viku kærðu Björgólfs-
feðgar og Karl Wernersson frétta-
stjóra og fréttamann Stöðvar 2 vegna
fréttar um millifærslur þeirra á pen-
ingum. Björgvin Guðmundsson,
fréttastjóri viðskipta á Morg-
unblaðinu, skrifar pistil í blaðið í gær
þar sem hann rifjar upp hvernig
reynt var að villa um fyrir honum og
afvegaleiða í umfjöllun um skulda-
bréf, sem bankarnir gáfu út í sjálfum
sér og lögðu að veði fyrir lánum á
krónum í Seðlabanka Íslands. Björg-
vin spurði Sigurjón Þ. Árnason,
bankastjóra Landsbankans, hvort
bankinn hefði fengið lán gegn veðum í
ríkistryggðum skuldabréfum í Seðla-
banka Evrópu í Lúxemborg. Sig-
urjón neitaði því, en sannleikurinn er
að Seðlabanki Evrópu situr uppi með
íbúðabréf og ríkisskuldabréf að and-
virði 85 milljarða króna vegna hruns
Landsbankans. Sigurjón var ekki að-
eins að svara Björgvini, hann var að
ávarpa alla lesendur Morgunblaðsins.
x x x
Staðreyndin er sú að máttar-stólpum fjármálalífsins líkaði
ekki umfjöllun um athafnasemi
þeirra fyrir bankahrunið og þeim lík-
ar hún ekki heldur eftir hrunið. Þeir
eru tilbúnir til að nota dómstóla til að
sýna fjölmiðlum að þeir skuli stíga
varlega til jarðar í umfjöllun sinni.
Pukrið er hins vegar ein af ástæð-
unum fyrir því að á Íslandi fór allt á
annan endann í fyrrahaust. Þess
vegna verður að tryggja það að eðli-
leg bankaleynd verði ekki skálkaskjól
til að fela hæpna fjármálagjörninga.
Krafan um gagnsæi á ekki bara við
um stjórnmálalífið, hún nær líka til
fjármálalífsins.
x x x
Ámorgun fer fram ráðstefna umbankaleynd á vegum við-
skiptaráðuneytis og lagadeildar Há-
skóla Íslands. Athygli vekur að meðal
ræðumanna er enginn frá fjölmiðlum
og er þó líklegt að birting á upplýs-
ingum í fjölmiðlum verði á dagskrá.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 tvístígur, 4
snauð, 7 giftast aldrei, 8
afturkalla, 9 rödd, 11
skrifaði, 13 verkfæri, 14
kindurnar, 15 falskur, 17
mjög góð, 20 illgjörn, 22
huldumaður, 23 illkvittið,
14 út, 25 hirða um.
Lóðrétt | 1 hörfar, 2 taki
snöggt í, 3 sefar, 4 flutn-
ing, 5 spjald, 6 lyftitæki,
10 hótar, 12 hreinn, 13
ósoðin, 15 ríki, 16 heims-
hlutinn, 18 varkár, 19
blaðra, 20 spaug, 21 at-
laga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 merkilegt, 8 lifur, 9 ræpan, 10 lóð, 11 karra, 13
illur, 15 bossa, 18 gatan, 21 sær, 22 lærin, 23 espir, 24
fagnaðinn.
Lóðrétt: 2 elfur, 3 kurla, 4 lærði, 5 gepil, 6 slök, 7 knýr,
12 rós, 14 lóa, 15 bóls, 16 sorta, 17 asnann, 18 greið, 19
túpan, 20 næra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. f4 e6 4. Rf3 d5 5.
Bb5 Rf6 6. e5 Rd7 7. Bxc6 bxc6 8. d3
Dc7 9. O-O Be7 10. b3 O-O 11. Ba3 f6
12. De1 fxe5 13. fxe5 Hf5 14. Ra4 Ba6
15. c4 Haf8 16. De2 Rxe5 17. Rxe5
Hxe5 18. Hxf8+ Bxf8 19. Dg4 He3 20.
Hf1 De5
Staðan kom upp á Skákþingi Ís-
lands, landsliðsflokki, sem fer fram
þessa dagana í Bolungarvík. Stór-
meistarinn Henrik Danielsen (2473)
hafði hvítt gegn Guðmundi Gíslasyni
(2348). 21. d4! De4 22. Dxe4 dxe4 23.
Bxc5 Bxc5 24. Rxc5 Bc8 25. Kf2! Hc3
26. He1 og svartur gafst upp. Guð-
mundur tapaði þessari skák í fyrstu
umferð en vann svo þrjár í röð og varð
efstur ásamt Henrik og Braga Þor-
finnssyni eftir fjórar umferðir.
Hvítur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Upphaf og endir.
Norður
♠KD872
♥Á105
♦1074
♣D3
Vestur Austur
♠5 ♠64
♥KDG76 ♥–
♦KG5 ♦D98632
♣KG107 ♣98654
Suður
♠ÁG1093
♥98432
♦Á
♣Á2
Suður spilar 4♠.
A-V fara ágætlega út úr fimm í lág-
lit, en í sannleika sagt fann austur
enga afsökun til að blanda sér í sagn-
ir. Suður vakti á 1♠, vestur kom inn á
2♥ og norður stökk í 4♠. Og varla
getur austur lokið upp munni sínum
við slík skilyrði. Auk þess ber ekki á
öðru en að 4♥ tapist: hjartakóngur út,
ásinn trompaður og lauf til baka. Er
þetta rétt?
Það er rétt að spilið tapast EF
sagnhafi setur upp ♥Á í fyrsta slag.
En því skyldi hann gera það? Sagn-
hafi veit tvennt: að vestur á fimmlit í
hjarta og mjög líklega laufkónginn.
Þess vegna dúkkar hann ♥K og líka
næsta háhjarta, sem kemur í kjölfarið.
Austur trompar ♥Á í þriðja slag, en
þá er vörninni líka allri lokið – ♥98
heima sjá um annað laufið í borði.
Í upphafi skyldi endirinn skoða.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ekki er ólíklegt að fyrrverandi
elskhugar verði á vegi þínum á næstunni.
Stutt ferðalag gæti orðið þér til ánægju.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú hefur það á tilfinningunni að
samstarfsmenn þínir efist um hæfileika
þína. Allt sem þú gerir er úthugsað fyrir
vissa stefnu.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Nú þarft þú að taka þér tak og
byggja þig vandlega upp því krefjandi
tímar eru framundan. Sorgarsögur ganga
hringinn, magnast og virðast óumflýj-
anlegar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert vinsæll núna og þér verður
kannski hrósað fyrir það sem þú átt ekki
heiðurinn að. Bjóddu vinum að slást í för
með þér er þú spáir í duttlungafullar hug-
myndir þínar og langsóttar áætlanir.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ekki bregðast harkalega við, þótt
þér þyki tilboð vinnufélaga þíns út í hött.
Hann langar jafnvel til þess að fegra
ásýnd heimilis síns og stuðla að jafnvægi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú hefur orðið fyrir dularfullri lífs-
reynslu. Farðu þér hægt í erfiðum málum
því flas er ekki til fagnaðar.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hamingjan bíður þín á næsta leiti en
þú þarft að sýna dirfsku en um leið þol-
inmæði til þess að finna hana. En allt hef-
ur sinn tíma og þú verður að sinna starfi
þínu af kostgæfni.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er óhjákvæmilegt að liðin
atvik skjóti upp kollinum þegar þú þarft
að fara í gegnum pappíra frá fyrri tíð.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er ekki við neinn að sakast
nema sjálfan þig, ef það mál, sem þú berð
svo mjög fyrir brjósti, gengur ekki upp.
Eitthvað sem þú býst við, annaðhvort í
símtali eða pósti, fyllir þig krafti.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Allt í einu uppgötvar þú að það
sem þú hélst að væri leyndarmál er á allra
vitorði. Með því að vera þögull áhorfandi
ertu í bestu aðstöðunni til þess að meta
hvað er rétt.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér vegnar vel ef þú vinnur
undirbúningsvinnuna þína. Slakaðu á og
reyndu að komast í samband við alheims-
greindina.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Himintunglin varpa ljósi á und-
irstöðurnar. Hún hefur náð tökum á ein-
hverju og ætlar sér alla leið með það.
Dagurinn í dag er góður til þess.
Stjörnuspá
9. september 1877
Þingeyrakirkja var vígð. Ás-
geir Einarsson alþingismaður
lét reisa hana og var hún
veglegasta hús sem nokkur
maður „hafði byggt af eigin
efnum“, sagði í Annál
nítjándu aldar.
9. september 1904
Kennslu í grísku var hætt í
Latínuskólanum í Reykjavík
og kennsla í latínu minnkuð
mikið, samkvæmt reglugerð
sem gefin var út þennan dag.
Jafnframt var nafni skólans
breytt í „Hinn almenni
menntaskóli“ og stúlkum
heimiluð skólavist.
9. september 1954
Með reglugerð um sölu og
veitingar áfengis voru „bann-
aðar allar vínveitingar á mið-
vikudögum“ en heimilt var þó
að veita borðvín með mat.
Bann þetta gilti í marga ára-
tugi.
9. september 2005
Fáskrúðsfjarðargöng voru
formlega tekin í notkun. Þau
styttu leiðina milli Fáskrúðs-
fjarðar og Reyðarfjarðar um
30 kílómetra.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Salka Kristinsdóttir og Nanna
Guðrún Sigurðardóttir úr Flata-
skóla í Garðabæ héldu tombólu og
gáfu Rauða krossinum ágóðann,
3.070 kr.
Hlutavelta
ÞÓTT afmælisdagurinn sé ávallt sérstakur fyrir
afmælisbarnið er hann alveg einstakur nú fyrir El-
ínu Ósk Björnsdóttur þar sem hún fagnar 9 ára af-
mæli sínu í dag, 09/09/09. Enda segir hún að tals-
vert hafi verið rætt um þennan sérstaka dag meðal
bekkjarfélaganna en Elín er í 4. bekk í Höfðaskóla
á Skagaströnd.
Líkt og alltaf á afmælisdaginn ætlar Elín að
halda upp á áfangann og er hún búin að bjóða öll-
um bekknum í veislu. Hún ætlar að bjóða upp á
pizzur og köku sem hún fær að skreyta sjálf. Hún
segist ekki hafa verið með óskalista þegar kom að
afmælisgjöfum og grunar ekki einu sinni hvað foreldrar hennar ætla
að gefa henni. Uppáhaldsfag Elínar er stærðfræði og segist hún vera
best í að leggja saman tölur. Hún hefur æft píanóleik síðan í 1. bekk en
í fyrra tók hún upp á því að læra á trompet. Spurð hvort henni finnist
annað hljóðfærið skemmtilegra en hitt segir hún þau jafnskemmtileg
og ætlar hún sér að halda áfram í tónlistarnáminu um ókomin ár.
Foreldrar Elínar eru Dagný Rósa Úlfarsdóttir og Björn Þormóður
Björnsson og á hún tvo yngri bræður, þá Ásgeir Sigmar og Andra
Snæ, sem henni finnst skemmtilegt að passa. ylfa@mbl.is
Elín Ósk Björnsdóttir er 9 ára í dag
Merkilegur afmælisdagur
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is