Morgunblaðið - 09.09.2009, Qupperneq 31
Weill, Johnny Mercer og tvíeykisins
Sammy Cahn og Jimmy Van Heusen
en þeir síðastnefndu sáu einmitt Si-
natra fyrir margri klassíkinni, þar á
meðal titillagi meistaraverksins Si-
natra Sings For Only The Lonely.
Lögin eru því sígild flestöll og ekki er
undan hljóðfæraleik að kvarta, hon-
um er prýðilega sinnt í hvívetna. Ís-
lenskir textar eru allir nema einn eft-
ir Þorstein Eggertsson og ristir
kveðskapur sá sjaldan djúpt; flestir
fara textarnir þokkalega við músíkina
þó að stöku sinnum leiðist rímið út í
fullmikinn leirburð.
Þegar allt er sett upp á strik er Af
hamingju ég syng þónokkur framför
hjá Geir Ólafs. Mest munar um að
hann hefur skólað sig töluvert í söng,
um leið og rómurinn hefur fullorðnast
nokkuð. Ekki var vanþörf á, en sem
fyrr syngur Geir oftast í of hárri tón-
tegund og það hjálpar flutningnum
ekki vitund. Þá reynir hröð og hávær
sveifla verulega á söngrödd hvers
sem hana syngur og þegar leikar
standa hæst stendur rödd Geirs ber-
skjölduð í áreynslunni, helst til mátt-
lítil og mjó. En Geir er þó ekki alls
varnað, lagið „Meira“ hentar honum
prýðilega með rólyndislegri fingra-
smellssveiflu af þeirri sort sem Raggi
Bjarna hefur gert að listgrein; þar má
segja að hann finni fjölina sína. Meira
af slíku og líklegast myndi Geir hitta í
mark hjá talsverðum hópi fólks. En
því fyrr sem Geir áttar sig á því að
hann mun aldrei verða flytjandi
sem jafnast á við Frank Si-
natra því betra. Með því að
átta sig á því hvar hans sterka
hlið liggur í söng má vel
vera að í næstu at-
rennu bæti Geir sig
enn frekar sem
flytjandi.
Að lokum er
eftir því kallað að
ögn meiri metn-
aður verði næst
lagður í plötual-
búmið sem að þessu
sinni er einkar flatt og
óspennandi.
Geir Ólafs hefur löngum ver-ið Þrándur í götu á eiginframabraut, ef svo má aðorði komast, ekki síst með
þeim yfirlýsta vilja sínum að vera ís-
lenskt ígildi Franks Sinatra. Gervöll
Bandaríkin hafa ekki megnað að ala
af sér annan Sinatra, hvorki fyrr né
síðar, svo Geir gat ekki annað en farið
flatt á tilraunum
sínum til að ná
hinu ókleifa tak-
marki sínu. Þess
utan réð rödd
hans hér áður fyrr
engan veginn við
sveifluslagara að
hætti Sinatra. Frank heitinn ávann
sér snemma viðurnefnið „Röddin“
sakir hinnar hljómmiklu raddar sinn-
ar og framan af var Geir ljósárum frá
átrúnaðargoði sínu í flutningi. Fyrir
bragðið hlaut hann oft heldur slaka
dóma fyrir viðleitni sína þó að engum
dyldist að einlægur áhugi – ef ekki
ástríða – byggi að baki. Talsvert vatn
hefur runnið til sjávar síðan
fyrsta útgáfa Geirs leit dags-
ins ljós og það verður að segj-
ast eins og er að hann er nokk-
uð að sækja í sig veðrið sem
flytjandi.
Á nýju plötunni er Geir
við sama heygarðshornið í
lagavali; honum er sveiflan
frá 6. áratugnum hug-
leikin og lögin eru nær öll
af því taginu, allt frá seið-
andi léttu swingi yfir í
dúndrandi stórsveit-
arkeyrslu. Lögin eru
sótt í smiðju ýmissa
stórlaxa frá öldinni sem
leið, svo sem Kurt
Geir færist fetið
Geisladiskur
Geir Ólafs – Af hamingju ég syng
bbnnn
JÓN AGNAR ÓLASON
TÓNLIST
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009
„Á ÉG AÐ GÆTA SYSTUR MINNAR“
44.000 manns í aðsókn!
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK STIEG LARSSON
42.000 manns í aðsókn!
FRÁ LEIKSTJÓRA
QUENTIN TARANTINO
KEMUR HANS
MAGNAÐASTA, VILLTASTA
OG STÓRKOSTLEGASTA
ÆVINTÝRI TIL ÞESSA.
FRÁ LEIKSTJÓRA
QUENTIN TARANTINO
KEMUR HANS MAGNAÐASTA,
VILLTASTA OG STÓRKOSTLEGASTA
ÆVINTÝRI TIL ÞESSA.
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
HHHHH
- H.G.G,
Poppland/Rás 2
HHHHH
„Besta Tarantino-myndin
síðan Pulp Fiction og
klárlega ein af betri
myndum ársins“
T.V. - Kvikmyndir.is
HHHHH
„ein eftirminnilegasta mynd ársins
og ein sú skemmtilegasta“
S.V. - MBL
HHHH
„Gargandi snilld
allt saman bara.“
Þ.Þ – DV
HHHHH
- H.G.G,
Poppland/Rás 2
HHHHH
„Besta Tarantino-myndin
síðan Pulp Fiction og
klárlega ein af betri
myndum ársins”
T.V. - Kvikmyndir.is
HHHH
„Gargandi snilld
allt saman bara.“
Þ.Þ – DV
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG
Magnað og blóðugt
framhald af Halloween
sem Rob Zombie
færði okkur
fyrir tveimur árum.
Hinn stórhættulegi og
snargeðveiki raðmorðingi
Michael Myers heldur
áfram að myrða fólk á
hrottalegan hátt!
Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is
Þú færð 5%
endurgreitt
í Smárabíó
ð Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓÍ OG BORGARBÍÓI
Halloween 2 kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.16 ára Karlar sem hata konur kl. 5 - 8 B.i.16 ára
Inglorious Bastards kl. 5 - 8 - 10:30 B.i.16 ára Ísöld 3 3–D (ísl. tal) kl. 3:45 LEYFÐ
Inglorious Bastards kl. 5 - 8 Lúxus Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:40 LEYFÐ
Taking of Pelham 123 kl. 5:40 - 8 B.i.16 ára
Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10
Sýnd kl. 8Sýnd kl. 5:40 og 10:10
Sýnd kl. 7 og 10
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
SIGRÍÐUR Thorlacius og Heiðurs-
piltar fagna útkomu Á Ljúflingshól
í Austurbæ í kvöld. Platan er sam-
ansafn laga Jóns Múla Árnasonar,
við texta bróður hans, Jónasar
Árnasonar, og kemur í búðir í dag.
„Þetta leggst mjög vel í mig,
platan er voða sæt og fín en ég býst
ekki við neinu, hugsa bara um að
klára þessa tónleika með prýði,“
sagði Sigríður spurð hvernig legðist
í hana að senda frá sér sína fyrstu
sólóafurð.
Hún segir tónleikana í kvöld eiga
að vera ljúfa og frjálslega. „Ég og
strákarnir ætlum að fá til liðs við
okkur ágæta vini okkar sem spiluðu
inn á plötuna og aðra sem spiluðu
ekki. Svo verður hún Guðrún Ás-
mundsdóttir leikkona með okkur og
segir sögur á milli laga. Hún þekkti
vel til þeirra bræðra, Jónasar og
Jóns Múla, og því fannst okkur
kjörið að fá hana til liðs við okkur.
Við vonumst líka til þess að
Ragnheiður Ásta, þula og ekkja
Jóns Múla, mæti. Hún hringdi í mig
sérstaklega eftir að hafa heyrt lög
af disknum til að þakka mér fyrir.
Mér þótti mjög vænt um það, álit
fárra skiptir meira máli en hennar,“
segir Sigríður.
Óvænt afmælisgjöf
Sigríður er þekktust sem söng-
kona hljómsveitarinnar Hjaltalín og
dvelur einmitt löngum stundum í
hljóðveri um þessar mundir við
upptökur á næstu plötu sveit-
arinnar. Á Ljúflingshól er hennar
fyrsta sólóverkefni og segir hún það
hafa komið til á óvenjulegan hátt.
„Þetta var ekki beint mín hug-
mynd frá upphafi. Það var kona
sem kom að máli við okkur og fékk
okkur til að gera þetta sem afmæl-
isgjöf fyrir foreldra hennar. Hún
heitir Ragnhildur Zoëga og gefur
plötuna út í samvinnu við Borgina.
Hugmyndin kemur frá henni og í
samráði ákváðum við að taka fyrir
Jón Múla, því það er tónlist sem
höfðar til foreldra hennar, auk þess
sem okkur fannst þetta skemmtileg
tónlist sem við vorum tilbúin að
grúska í. Platan kom til Íslands á
afmæli pabba Ragnhildar í lok
ágúst og þau hjónin voru voðalega
glöð,“ segir Sigríður sem hafði svo-
sem ekki í huga að gefa út svona
sólóplötu.
„Auðvitað hafði ég hugsað ým-
islegt, en veit ekki hvort ég hefði
endilega gert svona plötu. En ég er
heppin að fá svona tækifæri og
frjálsar hendur og þurfa ekki að
berjast fyrir því að gefa hana út
sjálf.“
Sigríður virðist heldur betur hafa
hitt naglann á höfuðið því platan
hefur þegar vakið mikla athygli og
fékk m.a. fjórar stjörnur af fimm
mögulegum í dómi í Morg-
unblaðinu.
Tónleikarnir í Austurbæ hefjast
kl. 21 og er miðaverð 2.500 kr.
Miðasala fer fram í verslunum Skíf-
unnar og á midi.is.
Ljúft og frjálslegt
Útgáfutónleikar Á Ljúflingshól í Austurbæ í kvöld
Platan kom til með óvenjulegum hætti
Morgunblaðið/Heiddi
Sigríður „Það var kona sem kom að máli við okkur og fékk okkur til að
gera þetta sem afmælisgjöf fyrir foreldra hennar,“ segir hún um plötuna.