Morgunblaðið - 12.09.2009, Side 1
L A U G A R D A G U R 1 2. S E P T E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
247. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«HÉLT TÓNLEIKA MEÐ SENUÞJÓFUNUM
MEGAS ALDREI
VERIÐ BETRI
«ÞORBJÖRN E. GUÐMUNDSSON
Hannar götufatnað
fyrir brettaiðkendur
Að hlusta á Kayu með Bob Marley
and the Wailers gerir það að verk-
um að maður liðast mjúklega um
gólf í reggí-algleymi og ferðast í
huganum til Jamaíka.
LESBÓK
Marley kallar
fram unaðshroll
Gauti Kristmannsson andæfir í fjöl-
miðlapistli sínum skrifum Brynjars
Níelssonar lögmanns í Pressunni,
en þar segir Brynjar marxisma og
kvenréttindi „dellufræði“.
Mansal, lögvísindi
og sannleikur
„Stundum er sagt að skáldskap-
urinn standi nær sannleikanum en
raunveruleikinn,“ sagði A.S. Byatt
á bókmenntahátíð árið 2000.
„[Hann] þykist aldrei vera sannur.“
Frelsi án
sönnunarbyrði
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
MAGNÚS Árni Skúlason, sem situr í banka-
ráði Seðlabanka Íslands fyrir hönd Fram-
sóknarflokksins, hafði samband við stóran
hluthafa í stoðtækjaframleiðandanum Össuri
og starfsmenn lyfjafyrirtækisins Actavis með
það fyrir augum að benda þeim á heppilegan
viðskiptaaðila (miðlara) með gjaldeyri erlend-
is. Um er að ræða breska miðlarafyrirtækið
Snyder, en stjórnendur þess eru vinir Magn-
úsar Árna.
Magnús Árni hafði samband við Actavis fyr-
ir rúmum tveimur vikum til að bjóða þeim
þjónustu Snyder, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Magnús lagði sig því fram
um að koma á viðskiptasambandi milli Snyder
og Actavis og sat fundi milli fyrirtækjanna.
Bauð upp á miðlun og gjaldeyriskaup
Það sem Snyder bauð fyrirtækjunum upp á
var miðlun og sú þjónusta að kaupa gjaldeyri
erlendis inn á reikning, og afhenda krónur hér
á landi, sem eru hefðbundin aflandsviðskipti
(off-shore). Tekjugrundvöllur slíks viðskipta-
sambands eru gjaldeyrishöftin, en það er ein-
mitt m.a. í verkahring Seðlabanka Íslands að
útbúa áætlun um afnám gjaldeyrishafta í
skrefum.
Gegn markmiðum Seðlabanka
Bankaráðsmaður Seðlabanka Íslands hafði samband við útflutningsfyrirtæki til að koma á aflands-
viðskiptum með gjaldeyri Seðlabankinn hafði beðið fyrirtækin að láta af slíkum viðskiptum
Við vitum ekki | 20
Fulltrúar stærstu útflutningsfyrirtækja á
Íslandi, m.a. Össurar og Actavis, voru boðaðir
á sérstakan fund í Seðlabankanum í sumar.
Um var að ræða þau fyrirtæki sem njóta sér-
stakrar undanþágu frá gjaldeyrishöftunum en
það eru fyrirtæki sem eru með yfir 80 prósent
af tekjum sínum í erlendri mynt. Var þess far-
ið vinsamlega á leit við þessi fyrirtæki að þau
létu af aflandsviðskiptum með gjaldeyri, þó
þau væru ekki ólögleg, þar sem þau stríddu
gegn markmiðum reglnanna.
Magnús Árni Skúlason vildi í gær ekkert
láta hafa eftir sér um málið.
Í HNOTSKURN
»Magnús Árni var kjörinn aðalmaðurí bankaráð Seðlabankans af Alþingi
hinn 11. ágúst síðastliðinn.
»Fundur hans og starfsmanna Snydermeð starfsmönnum Actavis var fyrir
rúmum tveimur vikum.
»Ekkert liggur fyrir sem bendir tilólögmætrar háttsemi af hálfu Magn-
úsar Árna.
TÍU fulltrúar frá samtökum rústabjörgunar-
sveita, sem starfa undir hatti Sameinuðu þjóð-
anna, fylgjast með æfingu alþjóðabjörgunar-
sveitar Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem
fram fer á Gufuskálum.
Slæmt veður hefur gert æfinguna mun erfiðari
en ella en gangi allt að óskum hlýtur sveitin vott-
un sem fullgild rústabjörgunarsveit að æfingum
loknum, síðdegis í dag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
RÚSTABJÖRGUNARVERKEFNI Á GUFUSKÁLUM
Íslendingum í
Noregi hefur
fjölgað um tvö
þúsund á tæpum
tveimur árum og
eru þeir nú um
6.500 talsins.
Samfara fjölg-
uninni hefur álag-
ið á séra Örnu
Grétarsdóttur
Noregsprest aukist allverulega. „Ég
hélt að álagstoppnum hefði verið náð
síðasta vor, en í ágústmánuði og það
sem af er september hefur verið
meira að gera en nokkru sinni frá því
að ég kom hingað til starfa 1. október
2007,“ segir Arna.
Hún segir aukið álag aðallega
stafa af því að margir eigi erfitt með
að fóta sig við framandi aðstæður.
„Við erum að hefja aukna sálgæslu-
þjónustu, en mikil þörf er á slíku,“
segir Arna. Hún segir að hugsun-
arháttur margra Íslendinga geti
valdið óþarfa álagi þrátt fyrir að
hann feli í sér bjartsýni og von. „Of
oft hugsar fólk með sér að þetta
reddist allt [...].“ | 6
Mikið álag á
Noregs-
prestinum
Segir þörf á aukinni
sálgæsluþjónustu
Arna Grétarsdóttir
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
„ÉG ætla rétt að vona að við tök-
um okkur á hér í okkar þjóð-
félagi gagnvart löggæslumálum.
Það er óþolandi að þjófagengi
komi hingað til lands og láti
greipar sópa. En við erum að
bjóða upp á það með því að sinna
löggæslumálum af svo miklum
vanefnum sem raun ber vitni, Ég
veit að ef lögreglan hefði tök á
því þá mundi hún geta gert
meira til að leita þeirra gripa
sem stolið var af mínu heimili,“
segir Klara Stephensen en í sum-
ar var brotist inn á heimili henn-
ar og ómetanlegum gripum stol-
ið.
Segir Klara aðkomuna hafa
verið ömurlega. „Ég óska engum
þess að lenda í þessari reynslu.
Þetta er meira en fólk gerir sér
grein fyrir. Það er önnur líðan
fyrir og eftir innbrot.“ | 4
„Það er önnur líðan
fyrir og eftir innbrot“