Morgunblaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009 Elsku amma Vallý, nú er komið að kveðju- stund. Með reisn og virðingu kvaddir þú þennan heim. Það var þín ósk að þú fengir að kveðja heima á Laugarás- veginum. Þar voru nánast allir í fjöl- skyldunni og þó svo að maður hafi undirbúið sig var maður ekki viðbú- inn. Óhætt er að segja að þú hafir verið einstök kona, falleg, hjartahlý og hafð- ir yndislega nærveru. Mér fannst allt- af, og finnst ennþá, að þú værir besta amma sem hugsast getur. Það má eig- inlega segja að þú værir skólabókar- dæmi um það hvernig ömmur eiga að vera. Meira að segja börn sem ekki tengdust þér fjölskylduböndum litu á þig sem ömmu sína. Alltaf jafngóð við alla krakka sem komu í nálægð við þig. Minningarnar eru svo margar þeg- ar maður hugsar til baka. Allar skemmtilegu stundirnar sem við átt- um á Hagamelnum og síðar á Laug- arásveginum. Á Hagamelnum áttum við okkar bestu stundir saman. Alltaf var mikil tilhlökkun að koma þangað í pössun eða heimsókn. Þú sást alltaf til þess að maður fengi gott að borða og síðan gafstu mér 10 krónur til að kaupa frostpinna. Þegar ég fékk að gista hjá ykkur afa á Hagamelnum sá Haukur afi til þess að við hefðum nóg af gosi og nammi fyrir kvöldið. Ekki má gleyma öllum góðu stundunum sem öll fjölskyldan átti saman á Haga- melnum þegar þið afi buðuð í sunnu- dagssteikina. Þótt plássið hafi verið í minni kantinum var oft glatt á hjalla, mikið hlegið og allir fengu meira en nóg að borða. Þú hafðir meira að segja alltaf aukaskammt af bökuðum baun- um fyrir litla prinsinn (mig). Síðan þegar þið afi fluttuð á Laugarásveginn var nú aðeins meira pláss fyrir fjöl- skylduna að hittast og borða saman. Var það óneitanlega gott að geta kom- ið þangað til að spjalla um heima og geima. Þá var líka gott að vita að mað- ur gæti komið á Laugarásveginn þeg- ar maður missti af síðasta Landleiða- vagninum sem fór í Garðabæinn. Það sem var ánægjulegast við að ræða málin við þig var hversu hrein- skilin þú varst í þínum skoðunum og varst ekkert að skafa af utan af því. Þegar ég kynntist eiginkonu minni, Raggý, var það að sjálfsögðu mitt fyrsta verk að koma með hana í heim- sókn til þín og afa. Auðvitað tókst þú henni með þinni einstöku hlýju sem og þú gerðir gagnvart öllum þeim sem komu í fjölskylduna. Við Raggý mun- um um ókomna tíð minnast þess þeg- ar þú komst síðast í þakkargjörðar- kalkúninn okkar í nóvember á síðasta ári. Áttum við ógleymanlega stund þar sem við borðuðum á okkur gat eins og vanalega. Það verður tómlegt í öllum fjöl- skylduboðunum í framtíðinni þegar þín nýtur ekki við. Ég er afskaplega þakklátur að börnin mín Rakel og Örn náðu að kynnast þér og þinni hlýju. Þótt missir okkar sé mikill er missir afa enn meiri því þið hafið verið svo samrýnd í öllu sem þið hafið gert í gegnum tíðina. Veittu afa styrk til að komast í gegnum sorgina sem hann tekst á við í dag. Nú ert þú komin á betri stað þar sem verkirnir munu ekki hindra þig í að dansa. Elsku amma Vallý, takk fyrir allar yndislegu minningarnar, ég mun alltaf geyma þig í hjarta mínu. Arnar Haukur Ottesen. Það eru svo margar minningar sem koma upp í hugann á þessari stundu, þegar elsku amma Vallý er fallin frá eftir hetjulega baráttu við veikindi sín. Allt frá því ég var barn þá var alltaf sérstakt samband á milli mín og Valgerður Júlíusdóttir ✝ Valgerður Júl-íusdóttir fæddist 13. ágúst 1925 í Smiðshúsinu í Póst- hússtræti 15, Reykja- vík. Hún lést á heimili sínu, Laugarásvegi 30, 2. september sl. Útför Valgerðar fór fram frá Áskirkju 9. september sl. ömmu, ég gat talað við hana um allt enda var ég mikið hjá ömmu og afa öll mín æskuár. Allar ferðirnar þegar ég gekk Laugarásveg- inn til þeirra eftir skóla renna mér seint úr minni því það var allaf svo gott að sækja þau heim. Eitt aðalmálið var að fá einhverja vin- konuna með heim til þeirra til að sýna þeim baðherbergið á neðri hæðinni sem var með glerspeglum og marmarabaðkari, það var flottasta baðherbergi sem ég hafði augum litið og er óhætt að segja að vinkonunum fannst það sama. Þær voru ófáar ferðirnar sem ég fór með fjarkanum út á Hagamel í Háskólabíó þar sem amma vann í mötuneytinu fyrir Landsbankann. Þar sem ég fékk bestu kakósúpu í heimi, þar sem ég fékk að skúra með henni í stóra saln- um í bíóinu, þar sem hún fékk lánaðar vídeóspólur í fyrsta skipti löngu áður en vídeóleigur tóku til starfa. Við áttum endalausar stundir sam- an og ein þeirra var þegar amma bauð mér í Laugarásbíó til að sjá ET. Ég var sjö ára og man ég hvað við áttum báðar hrikalega erfitt því við grétum alla myndina og svo alla leiðina heim líka en fengum svo hláturskast þegar við komum heim þar sem það mátti ekki sjá hvor okkar hafði grátið meira. Þessa minningu rifjuðum við upp í sumar þegar ég sagði henni að ég hefði eignast myndina fyrir tilviljun og ætluðum við að horfa á hana saman. Það er einmitt það sem amma var svo dugleg við, að rifja upp gamlar minn- ingar. Hún gat endalaust sagt manni sögur og núna þegar ég hugsa til þess þá eru allar sögustundirnar svo dýr- mætar minningar. Amma var ein besta og gjafmildasta kona sem ég hef kynnst. Allar gjafir voru henni svo hug- leiknar, hvort sem það voru afmælis- eða jólagjafir þá vildi hún alltaf gefa en lítið þiggja sjálf. Hún var ákveðin og staðföst og með eitt það stærsta hjarta sem til er. Hvort sem það var fjölskyldan eða vinir þá vildi hún alltaf allt fyrir alla gera. Því fékk Birgir maðurinn minn að kynnast skömmu eftir að leiðir okkar lágu saman. Þar sem hann missti ömmur og afa sína snemma þá þótti honum mjög vænt um að fá að kynnast ömmu Vallý og afa Hauki, sérstaklega þar sem þau tóku honum sem sínu eigin barna- barni og hann hefur svo oft talað um það að þau séu honum sem amma og afi. Þegar við eignuðumst Hauk og Andreu þá var ekki að spyrja að því að hún vildi allt fyrir þau gera líka. Það var alltaf svo mikil gleði þegar við komum á Laugarásveginn með krakk- ana og þótti þeim einstaklega vænt um langömmu sína. Aðalmálið var að fá að fara í kexskápinn í eldhúsinu og alltaf pössuðu amma og afi að eiga nóg af kexi svo þau kæmu ekki að tómum skápnum. Það eru forréttindi að hafa átt ömmu sem eina af mínu bestu vin- konum, minningin um einstaka konu lifir áfram í hjarta mínu. Elsku afi minn, pabbi, Erla og Örn, missir ykkar og fjölskyldunnar er mikill og bið ég Guð um að styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Ester. Elsku amma Vallý, ég er svo glöð að hafa þekkt þig. En þú varst orðin mik- ið veik og núna kveð ég þig, elsku langamma. Þú varst alltaf svo góð við mig, þess vegna elskaði ég þig. Það er þér að þakka að ég er til, þegar ég hugsa um það þá fæ ég yl. Ég fann alltaf hjá þér yl. Takk fyrir allt. Þín langömmustelpa, Klara. Í Smiðshúsi (varðveitt í Árbæjar- safni) var sumarið 1925 von á frum- burði Magneu og Júlla skó. Hina verð- andi móður dreymdi í tvígang samskonar draum, opnaði augun dag einn, sagði manni sínum að í draumn- um hefði telpuskott líkust engli, ljós yfirlitum, skælbrosandi, hoppað og skoppað á leiði, þar sem stóð skýrum stöfum á legsteini „Valgerður“! „Nafnið er ákveðið ef barnið verður stúlka“! Júlla hlýnaði um hjartarætur, þetta var eftir öllum merkjum leiði fóstru hans, dóttur sína skyldi hann glaður nefna eftir henni. Telpunni, sem síðar varð ung kona, móðir, amma, langamma og vinur vina sinna, verður best lýst eins og barninu í draumnum kát, brosmild, jákvæð, nægjusöm, vel gerð og góðum gáfum gædd og tók brosandi móti því sem líf- ið færði henni í fang, gleði þess og sorgum í meðbyr og mótlæti, í raun gangandi engill í mannsmynd. Vallý var gælunafnið, okkar fyrstu kynni urðu í kaffistofu Háskólabíós, þar var hún við frumstæðar aðstæður að færa mat á diska starfsfólks Vest- urbæjarútibús, því beðið var eftir nýju kaffistofunni sem verið var að endur- gera fyrir bankann, ég á mínum fyrsta degi síðust í mat, hún gaf sér tíma, settist hjá stelpu, spurði eins og Ís- lendinga er siður um uppruna. Þarna var grunnur lagður að vináttu okkar sem ég með fáeinum línum ætla að þakka fyrir af veikum mætti, seinna uppgötvaði ég að Vallý þekkti að minnsta kosti annan hvern Íslending, hún þekkti pabba minn sem hafði unn- ið með Svavari litla bróður hennar, auk þess sem hún var svo vinamörg og ættrækin, að ef einhverstaðar átti að efna til teitis af minnsta tilefni var öruggt að Valgerður Júlíusdóttir væri á gestalista. Haukur og Vallý hittust í Steindórs- prenti, fyrsta stefnumótið: Lækjar- torg, hún komin hálfa leið upp í strætó á leið heim, þegar piltur kom á hlaup- um, þarna gat hurð hafa skollið nærri hælum, það blessaðist, þau hreiðruðu um sig í skjóli Jósafats föður Hauks, fluttu síðar á Hagamel, Örn sá prúði, Erla perla, og Haukur sá baldni komu í heiminn hvert af öðru, fjölskyldan undi glöð við sitt en hugurinn stóð til að byggja í félagi við Jón bróður henn- ar á æskustöðvunum í Laugardalnum. Skipulag borgarinnar veitti ekki fyrr en eftir 20 ára umhugsunartíma leyfi til að byggt yrði tvíbýli. Langlundar- geð húsmóðurinnar var einstakt, ung- arnir hennar flognir, hún að venja sig við titilinn „besta“ amma í veröldinni, þá loksins var flutt inn, þar leið þeim vel hjónakornunum nánast á sama bletti og Sólheimatunga stóð áður. Vallý var eins og sagt er gangandi kraftaverk í veikindum sínum undan- gengin ár. Nafna hennar Gísladóttir heitin, vinnufélagi okkar, sagði oft þegar Vallý kom uppábúin í sínu fínasta, „Heyrðu Vallý, er jarðarför í dag? „Já, hvernig dettur þér það í hug ? „Þú ert svo flott, alltaf eins og drottning“! Til hinstu stundar bar Vallý virðingu fyr- ir samferðafólki sínu. Elsku Haukur minn, ættingjar og vinir, nú kveðjum við einstakan mann- vin, konu sem vert er að sakna. Blessuð sé minning Valgerðar Júl- íusdóttur. Jóhanna B. Magnúsdóttir. Elsku amma Vallý. Ég tel mig vera afskaplega lánsam- an að hafa átt þig að í gegnum tíðina. Fólk mótast einna mest af þeim sem standa því næst í lífinu. Það var því ekki amalegt fyrir mig að eiga svona vandaða og skemmtilega konu fyrir ömmu. Mér þótti alltaf gaman að tala við þig, þú hafðir góðan húmor og varst með eindæmum hláturmild. Það fór einstaklega gott orð af þér amma mín. Enda voru allir jafnir fyrir þér og þú dróst fólk ekki í dilka. Þú varst jafnan í liði með þeim sem minna mega sín og í þér áttu þeir sér ein- stakan bandamann. Umhyggju þinni fyrir náunganum verður ekki lýst með orðum og þú veittir okkur barnabörn- unum miklu meira en lífstíðarbirgðir af væntumþykju og ástúð. Fyrir það er ég þér endalaust þakklátur. Þú varst mikill karakter og hafðir sterkar skoðanir á þjóðmálunum. Þessar skoðanir þínar voru oftar en ekki byggðar á tilfinningu fremur en skýr- um rökum. Ég og fleiri rökræddum því oft við þig um menn og málefni, en þú varst staðföst og gafst þig ekki sama hversu góð rök við töldum okkur hafa fram að færa. Mér finnst merki- legt að til lengri tíma litið hafðir þú oftar en ekki rétt fyrir þér. Tilfinning þín sigraði rökin okkar. Þá minnist ég með söknuði allra jólaboðanna sem þú hélst á Laugarásveginum. Þar varst þú í essinu þínu. Á seinni árum veiktist þú tvisvar af illvígum sjúkdómi. Þú barðist við veik- indi þín með ótrúlegri eljusemi, já- kvæðni og æðruleysi. Það má segja að sú barátta hafi endað með jafntefli, þú hafðir betur í fyrra skiptið en sjúk- dómurinn í því síðara. Lífsviðhorf þitt á þessum tíma var einstakt, alltaf stóðstu upprétt sem klettur í lífsins ólgusjó. Því ertu mér og öðrum mikil hvatning og fyrirmynd á erfiðum tím- um. Mér þykir afar vænt um að hafa getað verið við hlið þér á lokastundu þinni hér á jörðu og ég mun sjá til þess elsku amma mín að staðið verður við loforðið sem ég gaf þér áður en þú kvaddir. Í ferðalagi lífsins verða á vegi manns óteljandi einstaklingar með alla sína kosti og galla. Margir sem maður kemst í kynni við eru ósköp venjulegir, hafa enga afgerandi kosti og enga afgerandi galla. Þú varst ekki þannig elsku amma mín, þú varst ekki venjuleg. Sumt fólk sem maður hittir hér á jörð geislar af svo mikilli lífsgleði að öllum líður vel í návist þess, þú varst þannig. Einhverjir sem á vegi manns verða eru gæddir svo mikilli manngæsku að þeir fylla mann von og trú á hið góða í manninum, þú varst þannig. Nokkrir sem maður kynnist á lífsleiðinni eru svo þrautseigir og dug- miklir að þeir veita öðrum kjark og þor þó að á móti blási, þú varst þannig. Fáir í lífinu hafa svo mikinn lífskraft að þeir geti gefið öðrum hugrekki og styrk þegar mest á reynir, þú varst þannig. Einstaka manneskjur í heim- inum eru svo umhyggjusamar að þær geta breytt svartnætti í bjartan dag, þú varst þannig. Ætla mætti að allir þessir ofangreindu kostir gætu ekki komið saman í einni og sömu persón- unni. En þeir gerðu það samt í ein- stakri konu, sem varst þú elsku amma mín. Minning þín mun lifa um ókomna tíð. Þinn Haukur Ingi. Elsku Vallý mín. Nú ertu horfin sjónum okkar, en þú munt lifa í hjört- um okkar allra á meðan við erum hér á jarðskorpunni, ekki síst í mínu hjarta og huga, eins og það hefur verið hjá okkur síðustu 76 árin og aldrei borið skugga á. Við áttum saman mjög góða æsku, síðan gekkst þú í hjónaband með Hauki þínum og börnin ykkar yndislegu komu til sögunnar. Ég fór á flakk, svo um tíma fækkaði samveru- stundunum en vinskapurinn hélst óbreyttur. Eftir að ég hætti flakkinu og þið Haukur fluttuð heim, eða í Laugarásinn, þar sem við ólumst upp og sem er eini staðurinn sem við köll- um heima, fjölgaði samverustundun- um á ný. Þú skilur eftir þig mikinn auð hér sem þú skópst þínum yndislega manni, en það eru að sjálfsögðu börnin ykkar og öll þeirra börn og makar – hvert öðru yndislegra. Vallý mín, þakka þér fyrir yndislega vináttu í 76 ár og að fá að þekkja alla þína fjölskyldu sem þú átt hér í dag og ekki síður fjölskylduna í æsku okkar. Guð blessi þig og alla þína um ókomna framtíð. Hittumst uppi. Þín vinkona, Ólína. Elsku amma. Mig langar að þakka þér fyrir stundirnar sem við höfum átt saman í gegnum árin, með því að rifja upp tvær af mínum uppáhalds- minningum. Önnur þeirra er um allar ferðirnar til ykkar afa á Hlíðargötuna í lok skóla- dags til þess eins að fá appelsínu með sykurmola. Þú varst þeim eiginleika gædd að vilja ávallt vera að gefa manni eitthvað og linntir yfirleitt ekki látum fyrr en maður hafði sagt já. Svona varstu alveg fram í lokin. Þegar ég kom með Dag til ykkar gat hann ávallt stól- að á að hjá ömmu Lóló væri annað- hvort brjóstsykur eða íspinni í boði. Annað sem situr mér svo fast í minni er þegar við afi spiluðum saman fyrir þig Litlu fluguna, afi á píanóið sitt og ég á þverflautuna mína og þú sast fyrir framan okkur og hlustaðir. Einhverra hluta vegna spiluðum við alltaf þetta lag og þú virtist aldrei fá leiða á að hlusta á það aftur og aftur. Þess vegna langar mig að spila það fyrir þig einu sinni enn. Lækur tifar létt um máða steina, lítil fjóla grær við skriðufót. Bláskel liggur brotin milli hleina, í bænum hvílir íturvaxin snót. Ef ég væri orðin lítil fluga ég inn um gluggann þreytti flugið mitt, og þó ég ei til annars mætti duga, ég eflaust gæti kitlað nefið þitt. (Sigurður Elíasson.) Elsku amma. Við munum hlúa vel að afa, hann verður umvafinn stórri fjöl- skyldu. Mér finnst gott að vita að nú ertu ekki kvalin lengur og ég veit að nú líður þér vel. Eflaust muntu hafa nóg að gera við að fylgjast með stóru fjöl- skyldunni þinni. Hvíldu í friði, elsku amma. Þín Helga Kristín. Ólöf Ólafsdóttir ✝ Ólöf Ólafsdóttirfæddist á Siglufirði 24. september 1925. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað laugardaginn 29. ágúst sl. Útför Ólafar var gerð í kyrrþey frá Norðfjarðarkirkju 5. september sl. Elsku amma. Þótt vitað væri að hverju stefndi hjá þér síðustu daga lífs þíns þá vorum við systur ekki tilbúnar að kveðja þig. Vildum hafa þig aðeins lengur hjá okkur en vissum jafnframt að það var eigingirni af okkar hálfu því þú varst tilbúin og þráðir hvíld- ina. Ótal minningar hrannast upp þegar hugsað er til baka frá æskuárunum í Neskaupstað þar sem komið var við hjá ömmu og afa á Hámundarstöðum nánast á hverjum degi. Mjúkur faðmur ömmu alltaf til staðar og ætíð kvatt með kossi. Minning um fallega og góða ömmu sem gat alltaf mettað litla kroppa sem komu hungraðir í heimsókn. Heitt vatn og mjólk með sykri lærðum við að drekka hjá þér og kökurnar þínar alltaf svo gómsætar. Þú sást til þess að eng- inn fór svangur frá Hámundarstöðum og hugsaðir ávallt fyrst og fremst um alla aðra en sjálfa þig. Minning um litlar dótturdætur sem horfa agndofa á ömmu sína sem kunni frábæran fingragaldur þar sem fing- urinn virtist fara af hendinni. Hvað þú varst þolinmóð þegar við suðuðum um galdurinn aftur og aftur þangað til við uppgötvuðum hvernig hann var fram- kvæmdur. Minning um þegar við systur og Dæja fengum að fara með þér á dag- heimilið þegar þú varst að skúra. Það var svo gaman því þá mátti leika sér að öllu dótinu, bara ef við löguðum til að leik loknum. Amma, þú hefur verið fastur punkt- ur hjá okkur systrum í um 40 ár og ver- ið okkur svo hjartfólgin að það er erfitt að hugsa til þess að nú sé komið að kveðjustund. Þetta er víst lífið. Elsku hjartans amma, við viljum þakka þér fyrir alla þá elsku sem þú hefur sýnt okkur systrum og fjölskyld- um okkar og þá gleði sem þú hefur veitt okkur alla tíð. Við skulum passa upp á afa sem nú sér á eftir elskunni sinni til 63 ára. Elsku amma Lóló, hvíl í friði. Þínar dótturdætur Inga Sif, Ólöf (Lóló) og Helga Hafdís.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.