Morgunblaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu hefur handtekið alls 25 manns,
alla af erlendum uppruna, og gert
nærri 20 húsleitir vegna rann-
sóknar á innbrotum og þjófnuðum í
umdæminu undanfarið. Í gær sátu
átta karlar á þrítugsaldri í gæslu-
varðhaldi í tengslum við rannsókn-
ina. Lagt hefur verið hald á þýfi að
andvirði milljónir króna. Lögreglan
segir ljóst að þýfið sé úr mörgum
innbrotum. Það var endurheimt við
húsleitir á mörgum stöðum. Nú er
unnið að því að koma hinum stolnu
munum til réttra eigenda, en það
er tímafrekt, að sögn lögreglunnar.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið s.l. fimmtu-
dag að kraftur yrði settur í rann-
sóknina. Að henni lokinni yrði
væntanlega gefin út ákæra. Hlytu
menn dóma yrði gerð krafa um að
þeim yrði vísað úr landi að lokinni
afplánun.
Í fyrradag var 31 útlendur rík-
isborgari í afplánun eða gæslu-
varðhaldi hér, samkvæmt upplýs-
ingum frá Fangelsismálastofnun.
Þar af voru 17 í afplánun og 14 í
gæsluvarðhaldi. Nú eru 133 afplán-
unarrými í íslenskum fangelsum.
Útlendir ríkisborgarar fylla því
tæpan fjórðung fangelsisrýma í
fangelsum landsins um þessar
mundir.
Fangelsismálastofnun lætur Út-
lendingastofnun vita af öllum út-
lendingum sem fá óskilorðsbundna
fangelsisdóma hér á landi.
Útlendingastofnun tekur síðan
ákvörðun um hvort þeim skuli vís-
að brott þegar þeir fá reynslulausn.
Útlendir fangar fá allir reynslu-
lausn að afplánuðum helmingi refs-
ingar, að því gefnu að þeim verði
vísað brott.
Páll E. Winkel, forstjóri Fang-
elsismálastofnunar, sagði mun
flóknara ferli ef ætti að vísa brott
fanga meðan á afplánun hans
stendur. Ísland er t.d. með fram-
salssamninga við Norðurlönd og
fleiri þjóðir. Samþykki brotamanns-
ins er áskilið fyrir slíku framsali.
Páll sagði að ákveðin forgangs-
röð gilti þegar kemur að afplánun
dóma. Þeir sem talin er hætta á að
strjúki úr landi njóta t.d. forgangs
og eins þeir sem taldir eru hættu-
legir.
Til eru tvö úrræði ef vísa á fólki
úr landinu. Annars vegar frávísun
og hins vegar brottvísun. Brott-
vísun er meira íþyngjandi og felur
alltaf í sér endurkomubann. Það á
jafnt við um EES-borgara og ann-
að fólk. Rósa Dögg Flosadóttir,
settur forstjóri Útlendingastofn-
unar, sagði lengd endurkomubanns
háða mati. Sumum er meinuð end-
urkoma ævilangt, en öðrum í 10-20
ár eða skemur, þó minnst í tvö ár.
Lengd endurkomubanns fer eftir
alvarleika brotanna.
Bannað að koma aftur
Útlendum föngum sem er vísað brott frá Íslandi að fenginni reynslulausn er
bannað að koma aftur Útlendir ríkisborgarar í fjórðungi fangelsisrýma
Morgunblaðið/Júlíus
Endurheimtir munir Lögreglan hefur haft nóg að gera við að skrá stolna muni sem hafa endurheimst og koma þeim
aftur til réttra eigenda. Það er tímafrekt að hafa uppi á réttum eigendum og er fólk beðið að sýna þolinmæði.
!!
!!
"
#
$
%&
'#
'
(
%
'" Í HNOTSKURN
»64 erlendir ríkisborgararluku hér afplánun í fyrra
eða voru að afplána óskilorðs-
bundna refsingu um síðustu
áramót.
»Þar af höfðu 44 þessaraföngnu erlendu ríkisborg-
ara engin tengsl við Ísland.
»Heimilt er að vísa EES-borgara brott að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum.
Hann fer þá á landsskrá yfir
fólk í endurkomubanni.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
„AÐKOMAN var ömurleg, allt var á
tjá og tundri og búið að opna hvern
einasta skáp og hverja einustu
skúffu í íbúðinni okkar og gramsa í
öllu. Gluggi hafði verið spenntur
upp og greinilegt að viðkomandi
hafði farið út um svaladyrnar með
feng sinn. Við svona innbrot er frið-
helgi einkalífsins algerlega rofin og
sálartetrið verður fyrir miklu áfalli.
Maður fyllist ógeði og mikilli reiði.
Maður er lengi að jafna sig eftir
svona innrás, mér líður enn mjög
illa,“ segir Klara Stephensen en í
sumar var brotist inn á heimili
hennar og eiginmanns hennar í
Þingholtunum og dýrmætum hlut-
um stolið. „Ránið átti sér stað um
hábjartan dag, rétt á meðan mað-
urinn minn brá sér frá í nokkra
klukkutíma, en sjálf var ég stödd
austur á landi. Íbúðin okkar er á
annarri hæð svo þjófarnir þurftu að
hafa þó nokkuð fyrir því að komast
inn. Lögreglan á mikið hrós skilið
fyrir hvað hún brást vel við, hún
kom mjög fljótlega á staðinn eftir að
maðurinn minn tilkynnti innbrotið,
síðan kom sérfræðingur að taka
fingraför og allt var rannsakað.
Tölvan mín hafði verið tekin og því
miður átti ég ekki afrit af gögnunum
sem í henni voru, sem er mjög baga-
legt því þar var öll mín vinna undan-
farin þrjú ár. Ég hef ekki geð í mér
til að bjóða fundarlaun einhverjum
sem hefur tekið mitt dót og vill fá
borgað fyrir að hafa stolið því.“
Einnig var rósaviðarkistill sem
Klara hafði erft frá tengdamóður
sinni horfinn og allir skartgripirnir
sem í honum voru. „Þar á meðal
voru ættargripir, gjafir sem ég hafði
fengið þegar börnin mín fæddust,
gripir frá tengdamóður minni sem
hún hafði erft og annað sem mér er
mjög annt um og hefði gjarnan vilj-
að sjá í eigu afkomenda minna.
Þetta eru ómetanlegir hlutir og
verðmæti þeirra er fyrst og fremst
tilfinningalegt. Það er mjög ljótt og
andstyggilegt að fara inn á annarra
manna heimili og róta þar í dóti,
taka það og selja kannski fyrir slikk
svo viðkomandi geti orðið sér úti um
peninga. Ég á erfitt með að sætta
mig við að þetta skuli viðgangast í
kringum okkur.“
Klara ítrekar ánægju sína með
fagmannleg vinnubrögð lögregl-
unnar. „Þeir hafa haft samband við
mig reglulega síðan þetta gerðist og
ég hef fengið að koma og athuga
hvort ég finni eitthvað af mínum
hlutum í því þýfi sem þeir hafa fund-
ið. Aðeins einn gripur hefur komið
fram, erfðagripur, hjartalaga gull-
nisti sem mér var gefið þegar ég var
barn. En ég lifi í voninni um að eitt-
hvað fleira komi fram síðar. Lög-
reglan mundi gera betur ef hún ætti
þess kost, mér finnst lögreglunni
sýnd mikil vanvirðing með því að
binda hendur hennar með fjársvelti
og undirmönnun. Ótal mörg mál
bíða rannsóknar hjá þeim. Nú þegar
efnahagshrun hefur dunið yfir okk-
ur ætti einmitt að vera eitt af því
fyrsta að efla lögæsluna. Lögreglan
verður að vera sýnileg á svona tím-
um. Þetta fjársvelti löggæslunnar er
líka vanvirðing við okkur öll sem bú-
um í þessu landi.“ Klara segir
ástandið í Þingholtunum hafa versn-
að mjög mikið frá því þau fluttu
þangað fyrir nokkrum árum. „Það
er að verða ólíft í miðbænum fyrir
ágangi og sóðaskap. Þegar hátíðir
eru í bænum þá vílar fólk til dæmis
ekki fyrir sér að gera þarfir sínar í
portinu við húsið okkar.“
Fjársvelti og undirmönnun í löggæslu er vanvirðing við lögreglumenn og landsmenn alla
Ómetanlegum ættargripum stolið
Morgunblaðið/Kristinn
Klara Stephensen „Aðkoman var
ömurleg. Allt var á tjá og tundri.“
Héraðsdómur
Reykjavíkur
hefur úr-
skurðað fjóra
karlmenn í
gæslu-
varðhald
næstu tvær
vikur, eða til
24. sept-
ember, vegna
gruns um að-
ild að innflutningi fíkniefna til
landsins. Þrír mannanna eru á þrí-
tugsaldri og einn undir tvítugu.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hafa þeir ekki komið við
sögu lögreglu áður.
Rannsókn lögreglu beinist að
innflutningi fíkniefna til landsins
frá Danmörku. Litlar sem engar
upplýsingar fengust upp gefnar um
umfang málsins, magn fíkniefna og
gerð en rannsóknin hefur staðið
undanfarnar vikur og er unnin í
samvinnu við dönsk lögreglu-
yfirvöld, tollayfirvöld og önnur
lögregluembætti en höfuðborg-
arsvæðisins.
Í haldi vegna
fíkniefna-
innflutnings
Efni Ekki fást miklar
upplýsingar um málið.
FJÖLMÖRG
sófasett sem
stolið var úr
geymslugám-
um húsgagna-
verslunar-
innar Patta í
Dugguvogi
fyrr í vikunni
komu í leit-
irnar í gær-
dag. Fimm ís-
lenskir karlmenn sem handteknir
voru í tengslum við málið á
fimmtudagskvöld játuðu verkn-
aðinn og bentu lögreglu á þýfið.
Enn á þó eftir að hnýta lausa enda
og er málið enn í rannsókn.
Vel á annan tug sófasetta, að
andvirði rúmlega fjórar milljónir
króna, var stolið úr gámunum. Í
kjölfar frétta af stuldinum bárust
lögreglu vísbendingar um að þau
væri að finna í vöruskemmu í
Hafnarfirði. Lögregla greip í tómt
þegar leitað var í skemmunni en
þó fannst merkimiði af sófasetti
sem benti til þess að þau hefðu
verið geymd þar.
Mennirnir voru í kjölfarið hand-
teknir og vísuðu þeir á sófasettin
eftir yfirheyrslur.
andri@mbl.is the@mbl.is
Stolin sófa-
sett fundin
Sófarnir Sett sömu
gerðar og stolið var.
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ gerði
á sínum tíma samning við Litháen
um að taka við litháískum föngum.
Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsis-
málastofnunar, sagði að þangað
hefðu um fimm fangar verði send-
ir. Páll sagði að ferlið tæki langan
tíma því fangarnir vildu undan-
tekningarlaust afplána hér.
Páll sagði það gilda um fanga
t.d. frá Póllandi, Litháen, Afr-
íkuríkjum og fleiri fjarlægum lönd-
um að þeir vilji afplána refsingu
sína hér. Norrænir, þýskir, breskir
og hollenskir fangar hafa í vissum
tilvikum viljað afplána dóma í föð-
urlandinu. Páll sagði að þá væri
gengið strax í að flytja fangann til
síns heima.
Önnur hlið á þessum samningum
er að Íslendingar eru bundnir af
því að taka við föngum frá þessum
löndum. Þar hallar talsvert á okk-
ur því á síðustu tíu árum höfum við
sent tíu fanga til útlanda en fengið
24 Íslendinga til afplánunar hér.
Skúli Þór Gunnsteinsson, lög-
fræðingur hjá dómsmálaráðuneyt-
inu, sagði að vildi fangi fara heim
og gæfi upplýst samþykki fyrir því
þyrfti að þýða dóminn, hafa sam-
band við viðkomandi ríki og óska
eftir samþykki þess fyrir því að
fanginn kæmi þangað til afplán-
unar. Ferlið tekur nokkra mánuði.
Vilja vera hér