Morgunblaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009 Eftir Ágúst Inga Jónsson og Önund Pál Ragnarsson DEILISKIPULAG við Ingólfstorg og Vallarstræti verður tekið upp að nýju og unnið í auknu samráði við borgarbúa, að sögn Júlíusar Vífils Ingvarssonar, formanns skipulags- ráðs borgarinnar. Honum voru í gær afhentar fjölmargar undirskriftir fólks sem leggst gegn nýrri hótel- byggingu við Ingólfstorg og á reitn- um þar sem skemmtistaðurinn Nasa stendur. „...nú er orðið ljóst að margir hafa gert athugsemdir við hana [tillöguna innsk. blm.] og líkar þetta ekki. Okk- ur liggur ekkert á í þessu máli og hljótum að bregðast við athuga- semdum. Við viljum vanda til verka og taka málið upp að nýju, því það er mikilvægt að sem best sátt ríki um mál sem þetta, sagði Júlíus Vífill í tilkynningu til fjölmiðla í gær. Athugasemdirnar sem borist höfðu í gær eru bæði frá ein- staklingum og hópum. Verið er að skrá og flokka athugasemdirnar og er viðbúið að fjöldi athugasemda berist borgaryfirvöldum í pósti eftir helgi, samkvæmt upplýsingum frá skipulags- og byggingarsviði borg- arinnar. Aðalatriði þeirra athugasemda sem hafa borist eru vegna minnk- unar Ingólfstorgs, byggingarmagns á svæðinu, færslu húsa inn á Ingólfs- torg, reksturs hótels á svæðinu og færslu á Nasa. Næsta skref í málinu er að embætti skipulagsstjóra fer yf- ir athugasemdirnar og gerir um þær umsögn sem lögð verður fyrir skipu- lagsráð. Rúmlega tvö þúsund manns höfðu síðdegis í gær sent skipulagsyfir- völdum athugasemdir gegnum heimasíðuna Björgum Ingólfstorgi og Nasa, www.bin.is. Þá höfðu á tólfta þúsund skráð sig á Facebook- síðu aðgerðarhópsins, sem barist hefur gegn fyrirhuguðu skipulagi. Einnig skrifuðu um 700 manns nafn sitt á undirskriftalista sem lágu frammi í fyrirtækjum við torgið. Skipulag við Ingólfstorg verður tekið upp að nýju Morgunblaðið/Heiddi Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is MARGIR þeirra sem flytjast búferl- um og hefja nýtt líf í nýju landi lenda í hremmingum varðandi atvinnu, húsnæði og ýmiss konar þjónustu. Í Noregi kemur þá meðal annars til kasta íslenska safnaðarins og hefur séra Arna Grétarsdóttir haft í nógu að snúast síðustu mánuðina. „Ég hélt að álagstoppnum hefði verið náð síðasta vor, en í ágústmán- uði og það sem af er september, hef- ur verið meira að gera en nokkru sinni frá því að ég kom hingað til starfa 1. október 2007,“ segir Arna í samtali við Morgunblaðið. Aukin sálgæsluþjónusta „Ég er ekki mikið fyrir að kvarta, en álagið var orðið mjög mikið, því margir eiga erfitt með að fóta sig við framandi aðstæður. Við í kirkjunni er- um svo heppin að hjá okkur er öflugt sjálfboðastarf og hafa Gunnar Hólm, formaður safnaðarstjórnar, og Krist- ján Daðason, ritari, skipst á um að veita þá þjónustu. Þeir hafa búið lengi í Noregi og sannarlega hafa þessar hjálparhellur reynst ómetanlegar fyr- ir söfnuðinn. Þeir eru öllum hnútum kunnugir og hafa getað liðsinnt mörg- um, meðal annars í gegnum upplýs- ingasíma kirkjunnar. Svo er minn sími alltaf opinn,“ segir Arna. Hún segir að í sendiráði Íslands í Noregi fái fólk mikilvægan stuðning, en þar hafi ekki verið hægt að bæta við starfsfólki frekar en annars stað- ar í utanríkisjónustunni. Því séu ekki mörg úrræði til að bregðast við auknu álagi. Íslendingafélögin í Nor- egi hafi veitt mikilvæga aðstoð og hefur félagið í Ósló farið af stað með norskukennslu fyrir nýflutta Íslend- inga. Stúdentafélagið FÍSN hefur aðstoðað yngra fólkið þannig að allir hjálpast að við að gera búferlaflutn- ingana sem auðveldasta. „Við erum að fara af stað með aukna sálgæsluþjónustu, en mikil þörf er á slíku,“ segir Arna. „Vanda- málin sem koma upp eru margvísleg og margir koma með þau að heiman. Lítil kunnátta í norsku reynist mörg- um erfið, því fólk á þá erfiðara með að nýta sér þá þjónustu sem norska ríkið býður upp á.“ Samfara fjölgun í íslenska söfnuð- inum hafa athafnir kirkjunnar orðið fleiri og aukning hefur orðið í öllum málaflokkum, að sögn Örnu. Aðspurð um ráð handa þeim sem hyggja á búferlaflutninga sagði Arna lykilatriði að undirbúa flutningana eins vel og nokkur kostur er. Leita eftir hjálp ef illa gengur að fóta sig og missa ekki trúna og vonina. Finna sér uppbyggjandi félagsskap og gæta þess að einangrast ekki. „Ég ráðlegg fólki að flytja helst ekki fyrr en það er komið með húsnæði og at- vinnu og hnýta lausa enda heiman frá Íslandi eins og framast er kostur.“ Dreifing búsetu könnuð Þunginn í starfsemi íslenska safn- aðarins í Noregi er í Osló og ná- grenni. Arna messar einu sinni í mánuði yfir vetrartímann í Osló en tvisvar á vetri í stærstu borgunum. Eins er messað á minni stöðum eða þar sem hún er beðin um. Arna segir að í framhaldi af mikl- um flutningum Íslendinga til Noregs á síðustu tveimur árum sé á döfinni að skoða dreifingu á búsetu Íslend- inga í Noregi. „Það getur verið nauð- synlegt að endurskipuleggja þjón- ustuna með tilliti til þessa. Ef og þegar hægist um þá þurfum við að leggjast í svoleiðis greiningarvinnu,“ segir Arna Grétarsdóttir. Ungir Íslendingar Séra Arna Grétarsdóttir með hópi fermingarbarna. Kirkjulegum athöfnum, sem og öðrum verkefnum, hefur fjölgað mjög í Noregi undanfarin tvö ár enda Íslendingum í landinu fjölgað um tvö þúsund. Nóg að gera hjá Noregspresti Heldur betur hefur fjölgað í ís- lensku fjölskyldunni í Noregi á síðustu tveimur árum. Nú búa um 6.500 Íslendingar í landinu og hefur fjölgað um tvö þúsund manns á tæplega tveimur árum. Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is SAMDRÁTTUR á innflutningi á þessu ári verður meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir og nemur tekjutap Faxaflóahafna 140 milljónum króna miðað við þær áætlanir sem gerðar voru fyrir árið 2009. Að sögn Gísla Gíslasonar hafn- arstjóra er ástæðan fyrst og fremst stórminnkaður innflutningur á byggingarefni. Í ár er reiknað með að flutt verði inn 25 þúsund tonn af byggingarefni en til samanburðar voru flutt inn 65 þúsund tonn í fyrra. Á stjórnarfundi í Faxaflóahöfn- um sf. í gær gerði Gísli grein fyrir rekstrarspá til áramóta og fór yfir þróun inn- og útflutnings. Segir Gísli ljóst að samdráttur í innflutn- ingi verði meiri en gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun og þar af leiðandi verða áætlaðar rekstrar- tekjur undir áætlun. Hafnarstjóra var falið að leggja fyrir næsta fund hafnarstjórnar áætlun um hvernig lækka megi rekstrarkostnað fyrir- tækisins til að mæta eins og kostur er því tekjufalli sem fyrirsjáanlegt er á næstu misserum. Hafnarstjórn samþykkti jafnframt fyrirliggjandi tillögu að breytingu á fjárhagsáætl- un ársins 2009. Að sögn Gísla voru tekjur hafn- arinnar af vörugjöldum í fyrra 920 milljónir króna. Áætlanir fyrir árið í ár gerðu ráð fyrir að tekjurnar myndu dragast nokkuð saman og yrðu 869 milljónir króna. Nú sé hins vegar ljóst að þær verði umtalsvert lægri, eða 728 milljónir króna. Reksturinn verður í járnum Að sögn Gísla var gert ráð fyrir hagnaði af rekstri Faxaflóahafna í ár en nú liggur fyrir að svo verði ekki. Hann reiknar með því að reksturinn muni verða í járnum. Framkvæmdum hefur verið frestað að hluta og gripið verður til aðhalds í rekstrinum. Gísli segir að innflutningur á matvöru hafi verið svipaður í ár og í fyrra, í tonnum talið. Hins vegar veki athygli að vöruflokkum mat- vöru hafi fækkað talsvert. Þá hefur svipað magn verið flutt inn af bens- íni og olíu. Samdráttur í bílainn- flutningi er umtalsverður. Það sem af er þessu ári hefur út- flutningur frá Faxaflóahöfnum ver- ið meiri en í fyrra. Skýrist það fyrst og fremst af auknum útflutningi á sjávarafla. Innflutningur á byggingarefni stórminnkar Tekjutap Faxaflóahafna 140 milljónir Morgunblaðið/Brynjar Gauti Innflutningur Vegna samdráttarins hefur skipaferðum fækkað. Í HNOTSKURN »Faxaflóahafnir sf. eiga ogreka fjórar hafnir, Reykja- víkurhöfn, Grundartanga- höfn, Akraneshöfn og Borgar neshöfn. »Faxaflóahafnir sf. er sam-eignarfélag í eigu fimm sveitarfélaga, Reykjavíkur- borgar, Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar, Skorra- dalshrepps og Borgarbyggð- ar. »Vörugjöld eru hæst fyririnnflutning á matvöru, byggingarvörum, bílum o.fl. Samdráttur í innflutningi á byggingarefni og bílum kem- ur því illa við reksturinn. „Fáir koma hingað án þess að hafa að minnsta kosti einhver sambönd, en of oft hugsar fólk með sér að þetta reddist allt og Íslendingar eru margir þannig,“ segir Arna Grétarsdóttir. „Í sjálfu sér er það gott viðhorf sem felur í sér bjartsýni og von en getur um leið valdið óþarfa álagi. Fólk getur losnað við mik- ið álag með meiri undirbún- ingi.“ Hún bætir við að góður undirbúningur dugi þó ekki allt- af því sumir hafi lent í því að fá ekki vinnu eða húsnæði sem þeir töldu að væri í hendi. Þetta reddast allt                                                       ! "     #   $  %   %      &'"  (  (  ) (    &    *             "       $     + ,  -      ./  0   1"# ,  " "            (    0   ./  2 ./   0  3'   '   0  ,   

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.