Morgunblaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 27
ins þegar afmælisárið gengur í
garð. Það er þó ekki hrist fram úr
erminni að gera nýjan golfvöll. Jón
Ásgeir segist einhvern tímann hafa
heyrt töluna 150 milljónir króna, en
líklegra sé að kostnaðurinn við
slíka framkvæmd sé um 300 millj-
ónir. Þrátt fyrir mikinn kostnað
hafi nýr golfvöllur verið tekinn í
notkun í Fnjóskadal og vellir
stækkaðir á Hellishólum í Fljóts-
hlíð, Mosfellssveit, Grindavík og
Sandgerði. Þá er framundan gerð
níu holu vallar til viðbótar hjá GR
á Korpúlfsstöðum og fleira er á
döfinni.
„Það er orðin mikil þörf á höf-
uðborgarsvæðinu fyrir nýja velli en
ásóknin á golfvellina þar hefur ver-
ið gríðarleg. Þannig voru sumir
vellir bókaðir frá því klukkan sjö
að morgni fram til átta að kvöldi.
Klúbbarnir hafa ásamt GSÍ reynt
að mæta þessari miklu eftirspurn
með því að leggja áherslu á að
kylfingar spili hratt og þannig náist
betri nýting á golfvellinum.“
Benda má á að nái ráshópur að
flýta leik um eina mínútu á hverri
holu flýta þeir leik um tæpar 20
mínútur á hringnum, sem kemur
öllum til góða.
Golfsambandið stendur fyrir
mótaröð bestu kylfinga landsins, en
lætur ekki þar við sitja. Yngri
keppendur keppa sín á milli á sér-
stakri mótaröð og sérstök áskor-
endamótaröð var sett á laggirnar.
Unglingastarfið hefur margfald-
ast og blómstrað sem aldrei fyrr og
fullbókað var í öll unglingamót á
okkar vegum í sumar. Við byrj-
uðum því með þessa áskor-
endamótaröð fyrir þá sem eru á
mikilli uppleið, en vantar þó herslu-
muninn upp á að keppa við þá allra
bestu í sínum aldursflokki. Þessi
mót hafa verið haldin vítt og breitt
um landið. Við höfum ekki látið þar
við sitja því að í ár var byrjað með
sérstök mót á vegum GSÍ fyrir 12
ára og yngri.
Sveitakeppnir GSÍ hafa verið vel
sóttar í ár og fyrirséð að við þurf-
um að bæta við 5. deildinni fyrir
næsta sumar til að svara þeirri eft-
irspurn sem er fram komin varð-
andi þátttöku í sveitakeppnunum.
Það sem er svo sérstakt við golf
á Íslandi er að þetta er íþrótt fyrir
alla. Alls ekki bundið við aldur, kyn
eða fjárhag eins og víða annars
staðar. Aukningin er af hinu góða
og Golfsambandið, klúbbarnir, ríki
og sveitarfélög þurfa öll að leggjast
á árar við enn frekari uppbyggingu
á næstu árum. Áhuganum virðast
lítil takmörk sett. Þetta virðist
bara vera endalaust,“ segir Jón Ás-
geir Eyjólfsson.
sinni
Ljósmynd/Páll Ketilsson
Forsetinn GSÍ þurfti að draga sam-
an seglin eftir bankahrunið, en á
golfvöllum landsins var meira spilað
en nokkru sinni áður.
Daglegt líf 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009
Haustið heilsar Sunnlendingum á
sama ljúfa mátann og sumarið kveð-
ur. Einstök veðurblíða og fegurð
landsins nýtur sín í haustbirtunni,
litir skýrast og dýptin eykst. Þegar
undirrituð leit á hitamælinn síðdegi
nokkurt í vikunni stóðu hitamælar í
sautján gráðum og ekki getur það
talist slæmt á þessum árstíma. Sum-
arið hefur verið með eindæmum
gott þrátt fyrir nokkrar kaldar næt-
ur sem gerðu usla í kartöflurækt-
inni.
Íbúar í Rangárþingi eystra fagna
haustinu með því að halda haust-
hátíð, Kjötsúpuhátíðina. Hún verður
haldin 2. og 3. október og eru menn
nú á fullu að vinna við undirbúning-
inn. Á kjötsúpuhátíðinni gera menn
sér margt til gamans og segja má að
leiðarljósið sé að þeir skemmta sér
best sem skemmta sér sjálfir. Fjöl-
breytt og mikil dagskrá er í undir-
búningi. Má þar nefna fjölbreytt
keppnisatriði eins og hreystikeppni,
ljósmyndasamkeppni, teikni-
samkeppni, berjaréttakeppni og
ljósaskreytingakeppni. Þá verða
tónlistaruppákomur, dýragarður,
markaður, blysganga og varðeldur
að ógleymdu sameiginlegu grilli
allra íbúa í sveitarfélaginu á gamla
róluvellinum á Hvolsvelli.
Kjötsúpuhátíðin í Rangárþingi
eystra er skemmtileg hefð sem sýn-
ir að margt skemmtilegt er hægt að
gera án þess að kosta miklu til, hafi
menn hugkvæmni, sköpunarmátt og
samvinnu að leiðarljósi. Það þarf
ekkert endilega að kaupa lands-
fræga skemmtikrafta til að láta þá
sjá um að skemmta sér.
Framkvæmdir við Landeyjahöfn
ganga vel og reyndar vonum framar.
Vestari varnargarðurinn er nú kom-
inn í fulla lengd og nú er verið að
hækka garðinn og von bráðar verður
hann kominn í endanlega mynd.
Sandfok getur orðið óvinur ferða-
langa og til að hefta hann hefur verið
sáð í sandinn melgresi. Sáningin hef-
ur gengið mjög vel í sumar og er nú
hvanngrænt yfir að líta þar sem áður
var svartur sandur. Vonandi fer vet-
urinn mildum höndum um sáninguna
svo að á henni megi byggja frekari
uppgræðslu.
Ferðalöngum sem skoða framkvæmd-
irnar finnst mikið til koma og undrast
í raun það stórvirki sem þarna á sér
stað. Áætlað var að framkvæmdirnar
myndu kosta um 10 milljarða króna.
Einu sinni fannst Íslendingum þetta
há fjárhæð, en í dag er þetta bara
smotterí miðað við gjaldþrot og af-
skriftir ýmissa skúffufyrirtækja og
-félaga. Til samanburðar fékk eitt
fyrirtækja Finns Ingólfssonar, Lang-
flug, 14 milljarða afskrifaða ef ég man
rétt og ekki flaug það félag nú langt.
Landeyjahöfn á eftir að breyta að-
stöðu fjölda Sunnlendinga. Í raun
myndast alveg nýtt mynstur í
byggðamálum sem gefur tækifæri til
að skoða samvinnu og ýmsa nýja
möguleika bæði fyrir fyrirtæki og
sveitarfélög.
Heilmikið vandræðamál varð undir
haustið þegar ráða átti nýjan skóla-
stjóra við Hvolsskóla. Það mál endaði
með því að einn var ráðinn og hætti sá
við. Þetta vandræðalega mál ætti að
kenna hlutaðeigandi að það borgar
sig ekki að draga afgreiðslu slíkra
mála á langinn. Eðli málsins sam-
kvæmt eru mannaskipti í skólum á
vorin og því mest framboð á skóla-
fólki á þeim tíma. Nú er áætlað að
auglýsa aftur um áramót þannig að
þeir sem ætla að sækja um þetta
spennandi starf ættu að fara að setja
sig í stellingar.
HVOLSVÖLLUR
Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Framkvæmdir Vestari varnargarðurinn á Landeyjahöfn er kominn í fulla
lengd og nú er unnið við að hækka garðinn. Stutt er í að verkið klárist.
Björn Stefánsson sendirVísnahorninu eintak af
Suðurnesjatíðindum frá 12.
desember árið 1975, en þar er
birt kvæði Steins Steinars með
formála undir yfirskriftinni: „Það
vinnur enginn sitt dauðastríð“.
Birni finnst aðdragandi kvæðisins
og efni „eiga svo undra vel við
um samskipti okkar við Breta, og
raunar aðrar svonefndar „vina-
og frændþjóðir“ okkar að
undanförnu.“
Í blaðinu segir: „Pétur
Guðmundsson flugvallarstjóri
flutti kvæði á síðasta fundi og
sagði að sér hefði fundist vel til
fallið að flytja okkur kvæði Steins
Steinars, „Imperium
Britannicum“ vegna innrásar
herskipaflota Breta um þessar
mundir. Kvæðið er gott og þó
auðvitað margir lesendur þekki
bæði þetta kvæði Steins eins og
fleiri þá fannst mér tilvalið að
birta það nú til upprifjunar á
skoðunum skáldsins um
heimsveldishugmyndir Breta og
framtíð þeirra:
Þín sekt er uppvís, afbrot mörg og
stór,
og enginn kom að verja málstað þinn,
ó, græna jörð, þar Shakespeare
forðum fór
til fundar við hinn leynda ástvin sinn.
Þú brennur upp, þér gefast engin grið,
og geigvænt bál þú hefur öðrum kynt.
Ó, lát þér hægt, þótt lánist stundarbið.
Að lokum borgast allt í sömu mynt.
Og jafnvel þótt á heimsins nyrztu nöf
þú næðir þrælataki á heimskum lýð,
það var til einskis, veldur stuttri töf.
Það vinnur aldrei neinn sitt dauðastríð.
Magnús frá Sveinsstöðum las að
viðskiptaráðherra ætlaði sér að
anda með nefinu:
Eflaust gerast ýmsir menn
uppgefnir á þrefinu.
En viðskiptaráðherra ætlar enn
að anda hægt með nefinu.
Þá Helgi Zimsen:
Eftir stanslaust þrugl og þref
þá er gott að anda um nef,
á því mikið álit hef.
Undanskilið, - stífli kvef.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af Bretum og stríði
Að búa við góða almennaheilsu á að sjálfsögðueinnig við góða tann-heilsu. Sömu áhættuþætt-
ir ógna tannheilsu og almennri
heilsu og ástæða þykir til að vekja
sérstaka athygli þar á. Alþjóðleg
samtök tannlækna (FDI) hafa því
ákveðið að 12. september ár hvert
skuli vera alþjóðlegur tann-
heilsudagur (World Oral Health
Day).
Tannskemmdum og bólgnu tann-
holdi hafa flestir fullorðnir (90%)
kynnst af eigin raun. Krabbamein í
munni er í áttunda sæti yfir algeng-
asta krabbamein. Viðhorf til tann-
heilsu í Evrópu er víða annað en á
Norðurlöndum og tannheilsan
versnar eftir því sem farið er sunnar
og austar í álfuna. Aðgangur að
tannlæknisþjónustu er einnig mis-
munandi en einn tannlæknir hefur
um 1.000 einstaklinga til meðferðar í
Bretlandi og Þýskalandi en 900.000
á ákveðnum svæðum í Afríku.
Til að hvetja alla til umhugsunar
um mikilvægi góðrar tannheilsu
ákváðu Alþjóðleg samtök tannlækna
að þörf væri á árlegum alþjóðlegum
tannheilsudegi og varð 12. sept-
ember fyrir valinu. Að þessu sinni er
gefið út vandað rit ,,The Oral Health
Atlas“ sem er aðgengilegt í net-
útgáfu.
Tannverndarvika á Íslandi
Mikið hefur áunnist í tannvernd-
armálum en betur má ef duga skal.
Með góðri munnhirðu og hollu mat-
aræði leggjum við grunninn að góðri
tannheilsu. Hér á landi beinist at-
hyglin að tannverndinni fyrstu dag-
ana í febrúar en næsta tannvernd-
arvika er fyrirhuguð 1.-5. febrúar
2010.
Hollráð um heilsuna
Tólfti september –
alþjóðlegur
tannheilsudagur
Morgunblaðið/Heiddi
Hólmfríður Guðmundsdóttir, tann-
læknir og verkefnisstjóri tann-
verndar hjá Lýðheilsustöð.
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
Efling-stéttarfélag
Fulltrúakjör
til
reglulegs þings Starfsgreinasambands Íslands
og
ársfundar Alþýðusambands Íslands
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við kjör fulltrúa á reglulegt
þing Starfsgreinasambands Íslands sem haldinn verður á Hótel Selfossi
dagana dagana 8. og 9. október 2009 og ársfund Alþýðusambands
Íslands sem haldinn verður í Reykjavík dagana 22.og 23. október 2009.
Tillögur vegna reglulegs þings Starfsgreinasambands Íslands með
nöfnum 52 aðalfulltrúa og jafnmörgum til vara ásamt meðmælum 120
fullgildra félagsmanna skulu hafa borist skrifstofu Eflingar-stéttarfélags
fyrir kl. 16.00 föstudaginn 18. september 2009.
Tillögur vegna ársfundar Alþýðusambands Íslands með nöfnum 43
aðalfulltrúa og jafnmörgum til vara ásamt meðmælum 120 fullgildra
félagsmanna skulu hafa borist skrifstofu Eflingar fyrir kl. 16.00 föstu-
daginn 18. september 2009.
Kjörstjórn
Eflingar-stéttarfélags