Morgunblaðið - 12.09.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009
-hágæðaheimilistæki
Tilboð kr. 24.950*
Nýja S2120 ryksugan frá Miele er lágvær, létt, kraftmikil og með
stórum poka. Parketbursti að andvirði kr. 9.220 fylgir frítt með.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Sparaðu með Miele
Þú sparar
kr. 9.220
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
*tilboð gildir á meðan birgðir endast.
Það verður að teljast með tals-verðum ólíkindum að Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra
hafi hafnað því að veita viðtal þátta-
gerðarfólki frá frönsku sjónvarps-
stöðinni France24.
ÍMorgunblaðinuí fyrradag
sagði Caroline de
Camaret, ritstjóri
Evrópumála hjá
France24, frá því
hvernig ítrek-
uðum beiðnum
hennar um viðtal
við forsætisráð-
herrann hefði
ekki verið sinnt.
Þetta kallar Einar Karl Haralds-son, upplýsingafulltrúi forsæt-
isráðuneytisins, að ráðherrann
„haldi sig til hlés“ og sinni aðeins því
nauðsynlegasta, eins og undirbún-
ingi ríkisstjórnarfunda og að taka á
móti stækkunarstjóra ESB. Hún hafi
engin viðtöl veitt.
Sjaldan hefur verið mikilvægaraen nú að íslenzkir ráðamenn
komi fram í alþjóðlegum fjölmiðlum
og útskýri málstað Íslands. Það er
nauðsynlegt til að stuðla að farsæl-
um lyktum Icesave-málsins, til að
greiða fyrir umsókninni um aðild að
ESB og til að endurreisa traust við-
skiptalífsins erlendis.
Upplýsingafulltrúar ráðherrannaættu að reyna að koma þeim í
alþjóðlega fjölmiðla, í stað þess að
berja þá burt.
France 24 er alþjóðleg sjónvarps-stöð. Útsendingar hennar nást á
um 100 milljón heimilum í 160 lönd-
um og kannanir sýna að áhorfend-
urnir eru vel menntað fólk með góð-
ar tekjur sem er líklegt til að hafa
áhrif á skoðanir annarra.
Það er furðuleg ákvörðun aðhenda slíku tækifæri frá sér.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Jóhanna heldur sig til hlés
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 10 rigning Lúxemborg 18 heiðskírt Algarve 30 heiðskírt
Bolungarvík 11 rigning Brussel 19 léttskýjað Madríd 30 léttskýjað
Akureyri 13 skýjað Dublin 16 léttskýjað Barcelona 26 léttskýjað
Egilsstaðir 14 rigning Glasgow 18 léttskýjað Mallorca 26 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 12 rigning London 19 skýjað Róm 29 léttskýjað
Nuuk 7 skýjað París 21 heiðskírt Aþena 22 skúrir
Þórshöfn 12 þoka Amsterdam 17 léttskýjað Winnipeg 17 skúrir
Ósló 16 heiðskírt Hamborg 18 skýjað Montreal 16 léttskýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað Berlín 21 léttskýjað New York 16 alskýjað
Stokkhólmur 18 heiðskírt Vín 22 skúrir Chicago 24 léttskýjað
Helsinki 15 skýjað Moskva 19 skýjað Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
12. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5.02 1,2 11.33 3,2 17.59 1,4 6:43 20:06
ÍSAFJÖRÐUR 0.49 1,6 7.15 0,7 13.45 1,8 20.27 0,9 6:45 20:14
SIGLUFJÖRÐUR 3.44 1,1 9.26 0,6 15.58 1,2 22.31 0,5 6:27 19:57
DJÚPIVOGUR 2.00 0,7 8.28 1,8 15.00 0,9 20.45 1,5 6:12 19:36
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á sunnudag
Sunnan 5-13 m/s, hvassast við
V-ströndina og skúrir eða dálítil
rigning S- og V-lands, en ann-
ars léttskýjað eða bjartviðri.
Hvessir vestantil á landinu um
kvöldið. Hiti 12 til 20 stig, hlýj-
ast á N- og A-landi.
Á mánudag
Sunnan 10-18 m/s, hvassast
við V-ströndina og rigning með
köflum, en hægari og bjartviðri
NA-lands. Hiti 10 til 18 stig,
hlýjast á NA-landi.
Á þriðjudag
Suðvestanátt með rigningu eða
skúrum, en lengst af bjart og
þurrt A-lands. Hiti 8 til 13 stig.
Á miðvikudag og fimmtudag
Útlit fyrir ákveðna sunnanátt og
vætusamt, en úrkomulítið NA-
lands. Fremur milt í veðri, eink-
um norðaustantil á landinu.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Sunnan- og suðvestan 5-13
m/s og léttskýjað eða bjartviðri
á austanverðu landinu, en ann-
ars skýjað að mestu og smá-
súld V-lands eftir hádegi. Hiti
10 til 20 stig, hlýjast NA-lands.
TVÖ risastór skemmtiferðaskip eru væntanleg
til Reykjavíkur um helgina með samtals 4.896
farþega. Það verður því í nógu að snúast hjá
þeim, sem annast móttöku ferðamanna í höf-
uðborginni.
Klukkan átta fyrir hádegi í dag er skemmti-
ferðaskipið Constellation væntanlegt. Skipið er
90.280 brúttótonn að stærð og um borð eru 1.923
farþegar. Skipið hreppti slæmt veður og hefur
för þess seinkað aðeins. Snemma á sunnudags-
morgun er Crown Princess væntanleg til hafnar
í Reykjavík. Skipið er 113,651 tonn að stærð og
hið stærsta sem kemur til landsins á þessu sumri.
Um borð eru 2.973 farþegar. Skipið verður á Ak-
ureyri í dag. Bæði skipin munu leggjast að við
Skarfabakka í Sundahöfn. Crown Princess legg-
ur úr höfn klukkan 19 á sunnudagskvöld, ef
menn vilja berja skipið augum.
Mörg stór skemmtiferðaskip koma til Reykja-
víkur nú í september. Að sögn Ágústs Ágústs-
sonar, markaðsstjóra Faxaflóahafna, er ástæðan
sú að þau eru að færa sig frá Evrópu vestur um
haf, þar sem þau munu sigla í vetur, aðallega í
Karíbahafinu.
Fyrir nokkrum dögum var hér á ferð 90 þús-
und tonna skip, Jewel of The Seas. 23. sept-
ember er 92 þúsund tonna skip væntanlegt, Nor-
wegian Jewel. Og 1. október er síðasta skip
sumarsins væntanlegt, Emerald Princess, 11.561
tonn að stærð. sisi@mbl.is
Tvö risaskip eru væntanleg um helgina
Prinsessan Crown Princess er hið glæsilegasta fley.