Morgunblaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 22
22 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009
TVEGGJA ára gömul ígúana-eðla í Bangkok með leikfangagítar situr fyrir
í hægindastól. Eigandinn, Santisak Dulapitak, er 53 ára gamall Taílend-
ingur og hefur hann um tveggja áratuga skeið þjálfað dýr til að koma fram
í auglýsingum og kvikmyndum.
Reuters
NÆSTI CLAPTON?
FYRRVER-
ANDI forseti Ta-
ívans, Chen Shui-
bian, og eig-
inkona hans, Wu
Shu-chen, hafa
verið dæmd í lífs-
tíðarfangelsi fyrir
spillingu. Chen
var ákærður fyrir
að draga sér 13,5
milljónir dala, jafnvirði nærri 1,7
milljarða króna, og þiggja níu millj-
ónir dala í mútur er hann var forseti
á árunum 2000-2008.
Dómurinn var kveðinn upp af
þriggja manna héraðsdómi í höf-
uðborginni Taípei í gær en málinu
verður áfrýjað til hærra dómstigs.
Chen segir að um sé að ræða póli-
tískar ofsóknir, runnar undan rifjum
Ma Ying-jeou, eftirmanns síns. Mál-
ið gegn Chen hefur valdið heift-
arlegum deilum og mörg hundruð
stuðningsmanna hans stóðu utan við
dómhúsið með fána og borða í gær,
hrópuðu slagorð og kröfðust þess að
hann yrði látinn laus.
Chen er 58 ára gamall og var
fyrsti frambjóðandi utan hins gamla
valdaflokks landsins, Kuomintang,
til að verða forseti. Hann hafði þá
áratugum saman verið í forystu
þeirra lýðræðisafla sem ógnuðu
veldi Kuomintang sem var flokkur
Chiang Kai-Cheks, er kommúnistar
hröktu frá völdum á meginlandinu
árið 1949. Fyrstu áratugina ríkti Ku-
omintang í krafti einræðis en efnt
var til lýðræðislegra kosninga árið
1996.
Chen var umdeildur vegna stefnu
sinnar gagnvart Pekingstjórninni en
hann reyndi að þoka Taívan í átt til
sjálfstæðisyfirlýsingar eftir að
kommúnistastjórnin hafði vísað
sáttahugmyndum hans á bug.
Kommúnistar líta á Taívan sem hér-
að í Kína og Kuomintang er einnig á
móti formlegri sjálfstæðisyfirlýs-
ingu. kjon@mbl.is
Forseta-
hjón í
fangelsi
Chen-hjónin á Taívan
sökuð um spillingu
Chen Shui-bian
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
LÍKURNAR á því að Vladímír Pútín,
sem nú gegnir embætti forsætisráð-
herra Rússlands en var áður forseti í
átta ár, taki aftur við forsetaembætt-
inu þykja hafa aukist til muna. Hann
ávarpaði í gær hóp erlendra og rúss-
neskra háskólamanna og frétta-
manna í Moskvu. Sagði Pútín að hann
og Dímítrí Medvedev, núverandi for-
seti, myndu taka sameiginlega
ákvörðun þegar þar að kæmi en kjör-
tímabil Medvedevs rennur út árið
2012.
„Var einhver samkeppni [milli
hans og Medvedevs] árið 2007? Nei.
Þá mun það ekki verða 2012,“ sagði
Pútín. Hann brosti breitt að sögn The
Guardian og bætti við: „Við munum
verða sammála af því að við erum ná-
kvæmlega sömu gerðar.“ Hann sagði
að þeir myndu íhuga öll atriði þegar
kosningar nálguðust, persónuleg
áform hvors um sig, álit flokksins
sem þeir styðjast við, Sameinaðs
Rússlands. Hann ræður mestu á
þingi og styður undantekningarlaust
tvímenningana.
Pútín varð að víkja 2008 vegna laga
sem útilokuðu að sami maður gæti
verið lengur forseti en átta ár sam-
fleytt. En stjórnarskránni hefur verið
breytt og sá sem kjörinn verður for-
seti 2012 mun geta setið í sex ár og
síðan önnur sex verði hann endur-
kjörinn.
Medvedev hefur almennt verið álit-
inn hlýðinn skjólstæðingur Pútíns og
oft er fullyrt að hinn síðarnefndi ráði
enn í reynd nær öllu bak við tjöldin.
Samt hafa verið vangaveltur um að
Medvedev, sem almennt tekur undir
með Pútín, hygðist reyna að tryggja
sér sinn eigin valdagrundvöll. Hann
hefur öðru hverju gefið óljóst í skyn
að hann væri ekki sáttur við allt sem
Pútín gerir og segir.
Tekur Pútín
við 2012?
Gefur í skyn að hann muni semja við
Medvedev um að verða forseti á ný
Reuters
Félagar? Pútín og Medvedev ræða
saman í Sotsí við Svartahafið.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
GORDON Brown, forsætisráðherra
Bretlands, harmaði í gær þá meðferð
sem stærðfræðingurinn Alan Turing
hlaut á sínum
tíma en hann var
dæmdur sekur
um „stórfellda
ósiðsemi“ árið
1952, eftir að hafa
viðurkennt að
eiga í sambandi
við annan karl-
mann, og van-
aður. Turing var
sá sem átti einna
mestan þátt í að ráða dulmál Þjóð-
verja í seinni heimsstyrjöld, hina
svonefndu Enigma-vél.
Tölvufræðingurinn John Graham-
Cumming, rithöfundurinn Ian
McEwan og fleiri áhrifamenn beittu
sér fyrir því að beðist yrði afsökunar
á meðferðinni á Turing. „Hann var
svo sannarlega einn af þeim ein-
staklingum sem við getum nefnt og
áttu þátt í að snúa við gangi stríðsins
með frábæru framlagi sínu,“ sagði
Brown í grein í The Telegraph.
Turing hefði í reynd verið sak-
felldur fyrir að vera samkyn-
hneigður. „Hann fékk þann hræði-
lega dóm – og hann gat valið milli
þess og að fara í fangelsi – að vera
vanaður með því að dælt var í hann
kvenhormónum. Hann fyrirfór sér
tveim árum síðar,“ sagði Brown.
„Farið var hryllilega með Alan og
þúsundir annarra samkynhneigðra
karla sem fengu sama dóm og hann,
meðan lögum sem einkenndust af
hatri á samkynhneigð var beitt.“
Undanfarar tölvanna
Enigma-vélin þótti afburðasnjöll,
eintak af henni var í hverjum kaf-
báti. Reyndist nauðsynlegt að beita
gegn henni reiknivélum sem sagðar
eru hafa verið undanfarar síðari tíma
tölva. Turing og hópur annarra karla
og kvenna vann að ráðningunni á
sveitasetrinu Bletchley Park. Í
hópnum voru m.a. brids-spilarar.
Bretar voru ekki sjálfum sér nógir
um matvæli og fengu auk þess mikið
af hergögnum frá Bandaríkjunum.
Ráðning Enigma olli straumhvörfum
í baráttunni gegn þýsku kafbát-
unum. Bretar hleruðu fjarskipta-
sendingar og gátu nú fylgst með
hreyfingum kafbátaflotans í smáat-
riðum og breytt siglingaleiðum
skipalesta í samræmi við upplýsing-
arnar. Um hríð hafði virst sem Þjóð-
verjum myndi takast að stöðva að
mestu sjóflutninga til Bretlands með
kafbátahernaði.
Harma meðferð á stærð-
fræðingnum Turing
Samkynhneigður snillingur átti mestan
þátt í að ráða dulmál Þjóðverja í stríðinu
Setrið Bletchley Park þar sem dul-
mál Þjóðverja var loks ráðið.
Í HNOTSKURN
»Kafbátar Þjóðverja sökktu íseinni heimsstyrjöld fjölda
skipa með hergögn og ýmsar
birgðir á leið til Múrmansk í Sov-
étríkjunum.
»Skipin sigldu frá Norður-Ameríku um hafið í grennd
við Ísland og komu gjarnan við í
Hvalfirði. Þar var mikil bresk og
síðar bandarísk herskipahöfn.
Alan Turing
Er Medvedev ósammála Pútín?
Ef til vill, fyrr í þessari viku birti hann
t.d. grein á Gazeta.ruv, vefsíðu frjáls-
lyndra afla í landinu og fór þar hörð-
um orðum um ástandið. Hann
gagnrýndi óskilvirkt efnahagskerfi,
samfélag sem enn væri hálf-sovéskt,
veikt lýðræði, fólksfækkun í landinu
og óstöðugleika í Kákasus.
Er víst að um deilur sé að ræða?
Alls ekki, Medvedev gæti verið að
blekkja. Valdaklíkur í fyrrverandi sov-
étlýðveldum bregða oft yfirskini lýð-
ræðis á kerfið. Þótt kosningatölur
séu oft falsaðar fær leiðtoginn t.d.
ekki 99% atkvæða eins og í tíð
kommúnista, talan er höfð lægri svo
að hún virðist sennilegri.
S&S
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins.
Nánari upplýsingar og tillögur um breytingar á samþykktum
eru á heimasíðu sjóðsins, www.almenni.is.
Sjóðfélagafundur
Almenni lífeyrissjóðurinn boðar til sjóðfélagafundar
mánudaginn 28. september 2009 á Grand Hótel
Reykjavík kl. 17:15.
DAGSKRÁ
1. Fundarsetning.
2. Skýrsla stjórnar um rekstur og afkomu
Almenna lífeyrissjóðsins.
3. Tillaga og ákvörðun um sameiningu Almenna lífeyris-
sjóðsins og Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis banka hf.
4. Tillögur um breytingar á samþykktum.
5. Önnur mál.
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R