Morgunblaðið - 12.09.2009, Qupperneq 23
Laugardaginn 12. september
Kl. 16:00 Fram - KR Laugardalsvöllur
Sunnudaginn 13. september
Kl. 16:00 Keflavík - Breiðablik Laugardalsvöllur
VISA BIKARINN
2009
NÆSTU LEIKIR
Undanúrslit karla
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009
„ÉG hef ekki eytt einni evru í kynlífs-
þjónustu,“ sagði Silvio Berlusconi,
forsætisráðherra Ítalíu, á blaða-
mannafundi í vikunni. Við hlið hans
stóð spænski forsætisráðherrann,
José Luis Zapatero, og reyndi að
halda andlitinu yfir þessari yfirlýs-
ingu starfsfélaga síns.
En Berlusconi lét ekki þar við sitja
heldur gaf einnig upp af hverju hann
hefði ekki eytt peningum í slíka þjón-
ustu. Það reyndist ekki vera af því að
hann teldi slíkt rangt eða niðrandi
fyrir konur. Þvert á móti virðist
spennan og ánægjan af því að leggja
konur að velli, eins og hann orðar það,
honum svo mikils virði að borgun
myndi spilla fyrir ánægju sigursins.
„Ég segi þetta líka vegna þeirra
sem elska að leggja konur að velli,
ánægjan og yndislegasta fullnæg-
ingin liggur í yfirbuguninni. Hvar
væri sú gleði, spyr ég ykkur, ef greiða
þyrfti fyrir?“ sagði Berlusconi á
blaðamannafundinum.
30 konur fyrir 18 veislur
Þrátt fyrir að Berlusconi hafi neit-
að því að hafa borgað fyrir þjónustu
kvenna játaði hann í fyrsta sinn á
fimmtudag að Giampaolo Tarantini,
kaupsýslumaður sem nú sætir rann-
sóknum vegna eiturlyfja- og vænd-
ismála, hefði komið með „fallegar
konur“ í veislur á vegum forsætisráð-
herrans.
Tarantini sagði rannsóknarlög-
reglumönnum í ítalska bænum Bari,
að sumar kvennanna sem hann hefði
farið með heim til Berlusconi, hefðu
sofið hjá forsætisráðherranum. Ber-
lusconi hefði hinsvegar ekki vitað að
konunum hefði verið borgað fyrir
það. Tarantini sagðist hafa útvegað
30 konur fyrir 18 veislur forsætisráð-
herrans frá september á síðasta ári
fram í janúar.
Ítalska dagblaðið La Repubblica
segir frá því að lögreglan hafi hlerað
um 50 símtöl á milli Tarantini og Ber-
lusconi og þar hafi Tarantini m.a.
sagt: „Í dag mun ég færa þér ljósku
sem þú mátt alls ekki missa af, hún er
mjög falleg.“ jmv@mbl.is
Berlusconi nýtur þess
að leggja konur að velli
Reuters
Í vanda? Staða Berlusconis eftir ítrekuð kvennamál er talin hafa veikst.
Kaupsýslumaður
útvegaði 30 konur
fyrir 18 veislur for-
sætisráðherrans
Reuters
Ung Patrizia D’Addario er meðal
þeirra sem Berlusconi hefur hitt.
Í tilefni af Vísindavöku 2009 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 ára og 10-12 ára.
Efni myndanna skal vera „Vísindin í daglegu lífi“
Myndum skal skilað fyrir 16. september til Rannís, Laugavegi 13, 101 Reykjavík.
Verðlaun verða veitt á Vísindavöku 25. september 2009. Nánari upplýsingar á...
...www.rannis.is/visindavaka
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Vísindavaka
2009
Skilafrestur er
til 16.sept. 2009
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n