Morgunblaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 43
Menning 43FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009 Ef popparar lands- ins færu að snúast gegn mér yrði ég kannski sár … 44 » GRÆNLENSKI kórinn Er- innap Nipaa frá Qaqortoq á Suður-Grænlandi heldur þrenna tónleika hér á landi á næstunni. Þeir fyrstu verða í Seltjarnarneskirkju annað kvöld kl. 20. Á mánudag verða tónleikar kórsins í Norræna húsinu kl. 20 og daginn eftir í Tónlistarhúsinu á Akranesi kl. 15. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Í Erinnap Nipaa eru fimmtán söngvarar og stjórnandi er Jens Adolfsen. Með kórnum kemur einnig hinn 73 ára gamli trommudansari, Jerimias Sanimuinaq, sem sýna mun listir sínar. Kórinn mun einvörðungu flytja grænlenska söngva. Tónlist Grænlenskur kór á þrennum tónleikum Einn kórfélaga. Á SÝNINGUNNI Blik, sem verður opnuð á Kjarvals- stöðum í dag, er varpað ljósi á op-listina og þau áhrif sem hún hefur haft á íslenska listamenn frá miðjum sjöunda áratug síð- ustu aldar til dagsins í dag. Sýningin hverfist um myndlist- arkonuna Eyborgu Guðmunds- dóttur (1924 -1977) sem lítið hefur borið á í íslensku listalífi. Auk verka Eyborgar eru sýnd ný og eldri verk Arnars Herbertssonar, verk Jóns Gunnars Árnasonar, teikningar eftir Ólaf Elías- son og verk Helga Þorgils Friðjónssonar. Einnig eru til sýnis verk eftir Hrein Friðfinnsson, Hörð Ágústsson og pop-op verk eftir JBK Ransu. Myndlist Op-listin og áhrif hennar á listamenn Helgi Þorgils Friðjónsson ELSA Björg Magnúsdóttir opnaði í gær sýningu á Mokka á ljósmyndum sem teknar voru á árunum 2007 til 2009. Mynd- irnar eru ævintýralegar og oft á mörkum hins raunverulega og óraunverulega. Þær til- heyra heimi sem Elsa kallar Draumveruleika, en sá heimur er öllu óháður nema ímynd- unaraflinu. Kræfar kisur, hvít- ir hestar og fræknir fuglar leika stórt hlutverk í Draumveruleikanum, enda kynngimagnaðar verur. Elsa tekur persónulega þátt í þessum ímyndaða heimi og notar sjálfa sig sem myndefni í mörgum myndanna. Aðgangur að sýningunni er ókeypis. Ljósmyndun Ævintýralegar myndir á Mokka Ein myndanna á sýningunni. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „ÉG er að klára heimildamynd með Veru Sölvadóttur leikstjóra, um óvenjulega ökuferð til Búrkína Fasó í Vestur-Afríku,“ segir Þor- steinn J. Vilhjálmsson kvikmynda- gerðarmaður, sem vinnur nú að tveimur heimildamyndum og sú þriðja er í farvatninu. „Þessi mynd heitir Burkina Faso, 8600 KM, og er um hjónin Hinrik og Gullý, sem stóðu fyrir því að kaupa tvo notaða jeppa um leið og kreppan skall á og gengið hrundi, koma þeim í skip til Rotter- dam og keyra ásamt fylgd- armönnum 8600 kílómetra leið til Búrkína Fasó. Tilgangurinn var sá að afla fjár fyrir skóla ABC hjálp- arsamtakanna í borginni Bobo- Dioulasso.“ Þorsteinn segir að hann og Vera hafi heillast af þessu framtaki, hvað hægt sé að gera þegar öll sund í samfélaginu eru lokuð. „Þessum heiðurshjónum þykir mikilvægara að 100 börn í Bobo-Dioulasso geti gengið í skóla en að lifa áhyggju- lausu ævikvöldi á Íslandi. Um leið spyrjum við: þarf maður að keyra 8600 KM leið til að gera gagn, hvað með að hjálpa frekar til í krepp- unni á Íslandi? Með í ferðinni auk ökumannanna Ívars og Braga, var líka Paolo, Brasilíumaður búsettur á Hvolsvelli og hann gerði for- vitnilegan samanburð á því hvað kreppa þýðir, annars vegar á Ís- landi og hins vegar í þriðja fátæk- asta landi heims, Búrkína Fasó,“ segir Þorsteinn og kveðst vonast til að myndin verði sýnd í sjónvarpi fyrir áramót. Ferskt, hangið, súrt og saltað oní tjallann Ímyndið ykkur íslenskar stúlkur klæddar stílfærðum, appels- ínugulum mini-þjóðbúingi, reiða fram þjóðlegan íslenskan mat á veitingahúsi í London. „Ég fékk styrk frá Kvikmynda- miðstöð Íslands til að gera mynd um Iceland Food Center, íslenskan veitingastað sem opnaður var í London í janúar 1966. Þessa mynd vinn ég með Sólveigu Ólafsdóttur sagnfræðingi sem fann gögn um staðinn í gagnasafni fjármálaráðu- neytisins. Það sem er forvitnilegt í þessari mynd er vísun í það sem síðar gerðist á Íslandi. Þarna var farið af stað með stórar hugmyndir og byrjað án þess að kannað væri hvort þörf væri á svona stað í London.“ Staðurinn gekk illa frá byrjun en íslenska ríkið átti 65 pró- senta hlut í honum. Þorsteinn von- ast til að hægt verði að sýna báðar myndirnar í sjónvarpi, Burkina Faso fyrir áramót og Iceland Food Center um páskana, Stöð 2 hafi sýnt þessu efni mikinn áhuga. ,,Myndirnar tala báðar rakleitt og á ská inn í umræðuna í samfélaginu og hjálpa okkur að skoða þessar óvenjulegu aðstæður sem við erum í aðeins betur.“ Stórhuga Íslendingar  Þorsteinn J. Vilhjálmsson vinnur að tveimur heimildamyndum sem báðar hafa skírskotun í íslenskt samfélag í dag  Þriðja heimildamyndin er í undirbúningi Ljósmynd/Vera Sölvadóttir Búrkína Fasó „Þessu fólki þykir mikilvægara að hundrað börn í Bobo- Dioulasso geti gengið í skóla en að lifa áhyggjulausu ævikvöldi á Íslandi,“ segir Þorsteinn J. um fólkið í myndinni sinni. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „EF við spiluðum á píanó og fiðlu hefðum við gríðarlegum fjölda tónverka úr að velja frá nær öllum tímum tónlistarsögunnar. Við spil- um hins vegar á tvö hæversk hljóðfæri, gítar og blokkflautu, og þess vegna er enn mik- ilvægara að við veljum vel það sem við spilum á tónleikum, og röðum saman áhugaverðum verkum frá ýmsum tímum, en ekki bara frá barokkinu eins og liggur svo beint við með blokkflautu og gítar,“ segir Lars Hannibal gít- arleikari, en hann og kona hans, blokkflautu- leikarinn heimsþekkti, Michala Petri, halda tónleika í Norræna húsinu á miðvikudag kl. 20. Michala Petri er víðfræg fyrir túlkun sína á flautuverkum barokktímans, en hún hefur líka sinnt tónlist samtímans og semur sjálf tónlist. Á tónleikunum leika þau verk eftir hana, en einnig eftir Piazzolla, Bach og Vivaldi. „Við veljum oft verk sem hafa þjóðlegan svip, og alltaf verk sem við höfum gaman af að spila. Við höfum haldið mörg þúsund tónleika út um allan heim, og viljum spila tónlist sem höfðar til breiðs hóps fólks; ekki bara þeirra sem alla jafna sækja klassíska tónleika. Svo er húmorinn líka nauðsynlegur og Michala notar hann óspart í sínum verkum, eins og í Mads Doss tilbrigðunum sem þið fáið að heyra.“ Hannibal segir að þeim finnist mikilvægt að spjalla við tónleikagesti og segja þeim frá verkunum, það skapi líka betri stemningu og tónleikagestum finnist þeir velkomnari á tón- leikana en ella. Á öldum áður var lútan helsta meðleiks- hljóðfæri blokkflautunnar, en gítarinn er arf- taki hennar. Spurningin er hvers vegna hljóð- færin tvö eiga svo vel saman. „Blokkflautan og gítarinn eiga vel saman á svo margan hátt. Hljómur þeirra passar sam- an, og hljóðstyrkurinn, og kannski er það bara vegna frumeðlis þeirra beggja að vera smíðuð úr tré. Þverflautan, sem smíðuð er úr málmi, á til dæmis alls ekki eins vel við gítarinn. Hljóð- færin eiga líka bæði uppruna sinn í alþýðu- tónlist og það held ég að hafi haft afgerandi áhrif á sameignlegan þroska þeirra. Flautan; titrandi tré, hreint og beint, sem aðeins loft leikur um, og gítarstrengur sem titrar þegar í hann er plokkað yfir tréhljómbotninum. Þetta er ótrúlega einfalt og ákaflega heillandi.“ Petri og Hannibal leika einnig í Hömrum á Ísafirði að kvöldi 17. september. Einfalt og heillandi Michala Petri, einn kunnasti tónlistarmaður samtímans, spilar á Íslandi með Lars Hannibal Ljósmynd/Peter Olsen Michala Petri og Lars Hannibal Húmor og gleði verða á dagskrá tónleika þeirra á Íslandi. EGYPSKI leikarinn Omar Sharif er aftur mættur á hvíta tjaldið. Í fyrra- dag var frumsýnd mynd á Kvik- myndahátíðinni í Feneyjum, þar sem hann leikur eldri mann sem hittir aft- ur konu sem hann var ástfanginn af, ungur maður. Myndin er egypsk og heitir Ferða- langurinn og leikstjóri hennar er Ah- med Maher. Í viðtali við erlenda miðla sagðist Maher hafa verið níu ár að undirbúa myndina og að það hefði alltaf verið draumurinn að fá Omar Sharif í aðal- hlutverkið. Sagan gerist á þrem dögum í lífi hins áttræða Hassans. Hann hittir Nour fyrir tilviljun og dreymir um að verða aftur þátttakandi í hennar lífi. Omar Sharif hlaut heimsfrægð fyrir leik sinn í stórmyndunum Doktor Zhivago og Lawrence of Arabia. Omar Sharif í nýrri mynd BRESKA tón- skáldið Andrew Lloyd-Webber ætlar fljótlega að hefja leit að ungri stúlku sem leika á Dóróteu í upp- færslu á Galdra- karlinum í Oz á West End. Leitin mun fara fram í raunveru- leikaþætti í sjónvarpi, en auk þess að leita að leikkonu verður einnig leitað að hundi til þess að fara með hlut- verk Totos. Leitar að Dóróteu Andrew Lloyd- Webber „Það hefur alltaf verið erfitt að fjármagna verkefni fyrir íslenska fjöl- miðla, hvort sem það eru þættir eða heimildarmyndir, og ég get ekki séð að það hafi gengið neitt betur í góðærinu,“ segir Þorsteinn, spurð- ur um hvernig gangi í miðri kreppu að útvega fé til gerðar heimild- armynda. „Þetta snýst um afstöðu, því það eru aldrei til nógir pen- ingar hvort sem er! Fyrsta setningin sem ég heyrði þegar ég byrjaði í útvarpinu um 1982, var gamall húsgangur: „Það væri gaman að gera þetta, en því miður höfum við ekki efni á því.“ Ef ég hefði alltaf hlust- að á þetta, þá hefði ég í mesta lagi gert þrjá, fjóra þætti um ævina í þáttaröðinni Maður er nefndur.“ Snýst ekki um peninga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.