Morgunblaðið - 12.09.2009, Síða 52

Morgunblaðið - 12.09.2009, Síða 52
LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 255. DAGUR ÁRSINS 2009 Heitast 20°C | Kaldast 10 °C  S og SV 5-13 m/s og léttskýjað eða bjart- viðri A-lands. Skýjað og smá súld V-lands eftir hádegi. »10                        !    " # $ %  %  " &' ("' "  ) *+,-.+ +/.-00 **0-1. +0-+02 +/-1,0 *2-.2, **3-+, *-,43+ *34-2, *1/-4* 5 675 **# 89 6 +//3 *+,-3+ +/.-30 **4-+ +0-,*1 +/-134 *2-2+4 **3-4. *-,.,+ *3.-,* *1*-/+ +,,-.4/0 &  :8 *+0-++ +/2-00 **4-40 +0-,13 +/-34. *2-222 **3-13 *-,.2+ *3.-13 *1*-4, FÓLK» Lindsay vildi vera eins og Britney. »49 Ásgeir H. Ingólfsson ræddi við sænska leikstjórann Mikael Kristersson sem sýnir mynd sína Ljósár í dag. »44 KVIKMYNDIR» Ljósár til Íslands ÚTVARP» Einar Bárðarson er sjálf- ur við hljóðnemann. »44 TÍSKA» Hver er flottastur í Toronto? »45 Fjölmargar hug- myndir að nafni á Tónlistarhúsið hafa komið fram, t.d. Fermata, Skuld og Alþýðuhöllin. »44 Hvað skal það heita? TÓNLIST» Menning 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Þröngar nærbuxur takk! 2. Fjölskylda Semenya bregst … 3. Anna Kristine þjófkennd í verslun 4. „Allir lækir eins og stórfljót“  Íslenska krónan veiktist um 0,3% DANSKI blokk- flautuleikarinn Michala Petri kemur til Íslands eftir helgi og leik- ur á tónleikum ásamt eiginmanni sínum Lars Hanni- bal gítarleikara í Norræna húsinu á miðvikudagskvöld og í Hömrum á Ísafirði á fimmtudags- kvöld. Michala Petri skipaði sér fyrir löngu í röð bestu tónlistarmanna sam- tímans og plötur með leik hennar eru á milli 45 og 50 allt frá árinu 1975. Petri og Hannibal hafa vakið sér- staka hrifingu fyrir skemmtilegt verkefnaval á tónleikum. „Við veljum oft verk sem hafa þjóð- legan svip, og alltaf verk sem við höf- um gaman af að spila. Við höfum haldið mörg þúsund tónleika út um allan heim, og viljum spila tónlist sem höfðar til breiðs hóps fólks; ekki bara þeirra sem alla jafna sækja klassíska tónleika,“ segir Hannibal. Tónleikarnir eru haldnir í sam- vinnu Félags íslenskra tónlistar- manna við Dansk Solist-forbund með styrk frá Norræna menningar- sjóðnum og Dansk-íslenska sam- starfssjóðnum. | 43 Michala Petri á Íslandi Michala Petri Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is EINS og fram hefur komið heldur Ian Anderson tvenna góðgerðar- tónleika hér á landi nú í september. Þeir fyrri voru í gærkvöldi, en þeir seinni verða í kvöld. Það bar til tíð- inda í gærkvöldi að tónlistarkonan Bryndís Jakobsdóttir, Dísa, kom fram með Anderson og hljómsveit hans, söng tvö lög með honum af eig- in plötu og síðan eitt lag af einni af sólóplötum hans. Ian Anderson fór sjálfur fram á það við Dísu að hún myndi troða upp með honum, en hann rakst á lög með henni á vefsetri YouTube þegar hann var að kynna sér íslenska tón- list. Dísa segir að það hafi óneitan- lega komið flatt upp á sig þegar Anderson leitaði til hennar um sam- starf, enda er hún að fást við allt aðra gerð tónlistar. „Mér fannst því sjálfsagt að verða við þessu í ljósi þess að þetta eru góðgerðartón- leikar,“ segir Dísa og bætir við að það sé alltaf lærdómsríkt að vinna með öðrum tónlistarmönnum. „Ég hef ekkert hlustað á Jethro Tull eða Ian Anderson svo þetta verður mjög spennandi. Hingað til hef ég bara unnið með fólki sem er að fást við svipaða hluti og ég, þann- ig að ég á eftir að læra mikið af því að taka þátt í þessu,“ segir Dísa, en þess má geta að Ian Anderson lét þau orð falla í viðtali við blaðið að hann byggist einmitt við því að hann myndi læra sitthvað af því að starfa með Dísu, en hann valdi sjálfur lögin sem Dísa syngur með hljómsveit- inni. Allur ágóði af tónleikum Ians Andersons í Háskólabíói í gærkvöldi og í kvöld rennur til fjölskyldna Vildarbarna og Fjölskylduhjálpar Íslands að hans ósk. Uppselt er á hvoratveggju tónleikana. Datt niður á Dísu á vefsetri YouTube Bryndísi Jakobsdóttur boðið að syngja með Ian Anderson Í HNOTSKURN »Bryndís kom fram með IanAnderson á tónleikum í gærkvöldi, og gerir það svo aftur í kvöld. »Hún segist hvorki hafahlustað á Ian Anderson né Jethro Tull.Bryndís Jakobsdóttir Ian Anderson FÓLK Í FRÉTTUM»  Reykvíska rokk- tríóið Dynamo Fog réð nýverið til sín nýjan bassaleikara. Sá heppni heitir Sindri Eldon og er sonur Bjarkar Guðmunds- dóttur. Sindri tekur við bassanum af Axel „Flex“ Árnasyni sem yfirgaf sveitina í sumar. Sindri hefur átt bassagítar til margra ára og er sagð- ur munu koma til með að bæta hljóm sveitarinnar til muna. Sveitin er annars í ströngum æfingabúðum og mun heiðra Iceland Airwaves- hátíðina með nærveru sinni. Í fram- haldi af því mun hún svo hefja upp- tökur á nýrri breiðskífu. Sonur Bjarkar til liðs við Dynamo Fog  Og meira af rokk- tónlist. Hljómsveitin Mammút með Katrínu Mogensen í broddi fylkingar hefur gert það gott að undan- förnu. Önnur breið- skífa sveitarinnar, Karkari, kom út fyrir rétt rúmu ári, en síðan þá hafa fjögur lög af plötunni komist í tölu- verða spilun á útvarpsstöðvum. Hvað mesta spilun hefur sveitin fengið á rokkstöðinni X-inu 977, en þar hafa lögin öll komist í efsta sæti X-Dominos-listans. Lögin sem um ræðir eru „Svefnsýkt“, „Geimþrá“, „Rauðilækur“ og „Gun“. Platan var endurútgefin fyrr á þessu ári í nýj- um umbúðum og með aukalagi. Í lok október heldur Mammút annars í mánaðarlangan Evróputúr. Mammút gerir það gott  Guðjón Már Guð- jónsson, sem oft er kenndur við OZ, hefur verið valinn í hóp þeirra 10 einstaklinga sem JCI (Junior Chamber Inter- national) viðurkennir á heimsþingi sínu í nóvember sem „Outstanding Young People“. Guðjón fær viður- kenningu í flokki viðskipta og frum- kvöðla. Guðjón er annar framúr- skarandi ungi Íslendingurinn sem kemst í 10 manna hóp á heimsþingi JCI frá því að JCI á Íslandi fór að taka þátt í keppninni. Í ár voru tilnefningarnar á þriðja hundrað frá tæplega 100 löndum en innan JCI eru starfandi 200 þúsund félagar í um 120 þjóðlöndum. Framúrskarandi Íslendingur SJÖUNDA plata teknótríósins GusGus, 24/7, kemur út á mánudaginn. Í tilefni útgáfunnar hafa þeir félagar blásið til útgáfutónleika í bak- garðinum við Laugaveg 56 hinn 26. september næstkomandi. Í viðtali í Lesbókinni í dag ræðir Birgir Þórarinsson, einn meðlima tríósins, meðal annars um nýju plötuna, brotthvarf Urðar Há- konardóttur úr sveitinni, velgengnina erlendis og alvöru töffaraskap. | Lesbók Morgunblaðið/Eggert „Fólk í öllum heimshornum hefur heyrt af okkur“ Teknótríóið GusGus fagnar nýrri plötu með garðtónleikum við Laugaveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.