Morgunblaðið - 17.09.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Í MÍNUM huga eru hjúkrunar-
heimilin bara geymslur og ég get
ekki sagt að þau hafi komið til móts
við okkur á neinn hátt,“ segir Fann-
ey Proppé Eiríksdóttir, en eigin-
maður hennar, sem er 63 ára alz-
heimerssjúklingur, hefur verið á
Skógarbæ í tæplega þrjú ár.
Fanney segir að það sé mikið áfall
að fá staðfestingu á því að makinn
sé með alzheimer. „Það er ekkert
framundan og sjúklingurinn missir
allt. Á hvergi stoð í lífinu. Maðurinn
minn hafði misst vinnuna vegna
þess að vinnuveitandi hans hafði
orðið gjaldþrota og hann vildi fara
aftur út á vinnumarkaðinn en gerði
sér ekki grein fyrir því að hann gat
ekki unnið lengur. Það þarf að taka
á aðstæðum sjúklinga við þessar að-
stæður áður en kemur að dagþjálf-
uninni og hjúkrunarheimilunum.
Það myndi lengja „góða“ tímabilið
og leyfa sjúklingunum að lifa lengur
með svolítilli reisn.“
Biðsalur dauðans
Eiginmaður Fanneyjar var 56 ára
þegar hann greindist með alzheim-
er. „Það er engin sérmeðhöndlun
fyrir yngra fólk með heilabilun,“
segir hún og vísar til þess að þegar
hann hafi fyrst komið í dagþjálfun í
Hlíðabæ hafi hann bara hitt eldra
fólk. „Það var talað við hann eins og
níræðan karl sem væri kominn
þarna til þess að syngja og dansa
klukkan þrjú á daginn, en það var
ekki beint hans stíll.“
Fanney segir að sér hafi verið
sagt að á Skógarbæ væri sérdeild
fyrir yngra fólk með heilabilun, eina
hjúkrunarheimilið sem byði upp á
slíka deild, „en hann var settur inn á
lokaða deild fyrir fólk með heilabil-
un þar sem næsti maður í aldri var
18 árum eldri. Þetta er bara elli-
heimili, biðsalur dauðans. Á þessum
tæplega þremur árum sem hann
hefur verið þarna hafa 13 manns dá-
ið á þessari 13 manna deild.“
Vill fámennari deildir
„Deildir fyrir yngra fólk með
heilabilun þurfa að vera minni en
þær eru,“ segir Fanney. „Ég vildi að
deildirnar væru heimilislegri og
biðu upp á meiri umönnun og þjálf-
un. Umhverfið þarf ekki síst að taka
vel á móti aðstandendum, því þeir
eru líka fársjúkir. Þeir eru ekki sátt-
ir við þessa stöðu í lífinu og heldur
ekki sáttir við að þurfa í mörg ár að
horfa upp á ættingja eða maka vesl-
ast upp og týnast. Sjúklingum og
aðstandendum þarf að líða vel á
þessum deildum. Það þurfa að vera
góðir stólar, litir og hreyfing, eitt-
hvað annað en sjónvarpsskjár. Í
Skógarbæ voru þrír hægindastólar,
erfðagripir eftir dána sjúklinga, en
tveimur hefur verið hent og því má
segja að sjúklingarnir sláist um stól-
inn.“
Erindið þaggað niður
Fyrir tæplega tveimur árum var
Fanney beðin um að halda erindi á
fundi hjá fagdeild öldrunarhjúkr-
unarfræðinga. „Það á enginn 60 ára
gamall maður að þurfa að þola það
að missa svona reisn sína, æru og
tilgang,“ sagði hún í byrjun erind-
isins og lýsti síðan tímanum frá því
maður hennar greindist með alz-
heimer árið 2002. Hún greindi frá
erfiðleikunum sem fylgdu því að
hafa manninn heima og árs langri
baráttu við að koma honum inn á
hjúkrunarheimili. Sótt var um í
Skógarbæ „af því þeir gáfu sig út
fyrir að sinna yngra heilabiluðu
fólki“ og vonbrigðunum með vistun-
ina þar.
„Það datt allt í dúnalogn,“ segir
hún um viðbrögðin við erindinu, „og
það merkilega var að annað starfs-
fólk mátti ekki fá að vita hvað ég
hafði talað um. Nokkrir hjúkrunar-
fræðingar þökkuðu mér fyrir og
sumir sögðu að umræðan væri þörf
en aðeins einn úr þessum þakkláta
hópi var úr Skógarbæ.“
Fanney segir að síðan hafi ekkert
verið gert til þess að bæta ástandið.
Til að byrja með segist hún hafa
fundið að það andaði köldu gagnvart
sér og þegar kvartað hafi verið yfir
matnum hafi verið sagt að allt væri í
himnalagi. Með kaffinu á daginn
væri boðið upp á eina litla kökusneið
eða litla kleinu. „Þetta er allur mat-
urinn sem sjúklingar fá frá því
klukkan 12 til klukkan 20 mínútur
yfir sex. Við myndum öll horast á
þessu fæði og þó að þetta nægi
kannski fyrir nírætt fólk er þetta
ekki nóg fyrir sextugan mann. Mað-
urinn minn er orðinn eins og beina-
grind sem ráfar bara um.“
Sjúklingar slást um stólinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Erfiðleikar Fanney Proppé Eiríksdóttir segir að taka þurfi á aðstæðum sjúklinga sem greinast með alzheimer áður
en kemur að dagþjálfuninni og hjúkrunarheimilunum. Þá gætu sjúklingarnir lifað lengur með svolítilli reisn.
Engin sérmeðhöndlun fyrir ungt fólk með alzheimer Þarf að lengja „góða“ tímabilið og leyfa
sjúklingunum að lifa lengur með svolítilli reisn Vantar fámennari og heimilislegri deildir
Jónbjörg Sigurjónsdóttir, hjúkrunarforstjóri í Skógarbæ, segir að að-
staðan á hjúkrunarheimilinu sé nokkuð góð og ekki hafi þurft að gera
breytingar í grunnmönnun. Alltaf megi gera betur en til þess vanti meira
fjármagn. „Mér skilst að það sé ekki á döfinni að veita meira fjármagn
eða auka fjárveitingu til hjúkrunarheimila.“
Hjúkrunarfræðingur var ráðinn í hlutastarf í Skógarbæ í gær. Jónbjörg
bendir á að fyrir um þremur árum hafi Íslendingar ekki fengist í störf á
hjúkrunarheimilum og þá hafi erlendir starfsmenn verið fengnir til starfa
og þeim boðið á íslenskunámskeið „Ég held að ég megi segja að það sé
enginn starfandi hjá okkur í dag sem ekki talar íslensku. En það er ekki
nóg að fólk tali íslensku og það er helst menningarmunur milli erlendra
starfsmanna og okkar sem við þurfum að aðlagast.“ Hún bætir við að
lægstu launin séu of lág og þau þurfi líka að hækka. Að sögn Jónbjargar
er erfitt að gera svo öllum líki og mismunandi hvað henti hverjum og ein-
um, en flestir aðstandendur séu mjög ánægðir með allan aðbúnað og
umönnun. Kannað hefur verið hvort leyfi fengist til að vera með deild fyrir
yngra fólk með alzheimer en það hafi ekki enn fengist.
Ekki þurft að breyta mannahaldi í Skógarbæ
FUNDAÐ verður í iðnaðarnefnd
Alþingis á næstu dögum og verið að
leita að heppilegum tíma, að sögn
Skúla Helgasonar, formanns nefnd-
arinnar. Í gær óskaði Gunnar Bragi
Sveinsson, þingflokksformaður
framsóknarmanna og fulltrúi þeirra
í nefndinni, eftir því að nefndin yrði
kölluð saman til að fara yfir aðkall-
andi mál, m.a. stöðu orkumála og
orkuöflunar.
Skúli segir nefndina ekki hafa
fundað frá þinglokum enda tíðkist
nefndarfundir venjulega ekki á
meðan þing er í fríi, nema eitthvað
„sérstakt“ komi upp. Þrátt fyrir
það hafi raunar verið á teikniborð-
inu að boða til fundar um orkumál
og hafi hann verið búinn að leggja
drög að því að fá forsvarsmenn
orkufyrirtækjanna á fund. Á fund-
inum er áætlað að fara yfir stöðuna
í málaflokknum.
Munu funda
um orkumál
Iðnaðarnefnd Al-
þingis kölluð saman
Gunnar Bragi
Sveinsson
Skúli
Helgason