Morgunblaðið - 17.09.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.09.2009, Blaðsíða 28
28 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009 Fólk NÚ styttist óðum í elleftu Iceland Airwaves- tónlistarhátíðina og er miðasala í fullum gangi á heimasíðu hátíðarinnar og í Smekkleysubúðinni, Laugavegi 35. Aldrei hefur miðasalan byrjað jafnvel og í ár og er nú rúmur helmingur miða seldur, og það á innan við viku sem mun vera met. 56 íslenskar hljómsveitir hafa bæst við dag- skrána, en umsóknir frá íslenskum böndum hafa aldrei verið fleiri. Athygli vekur að í ár munu 25 íslenskar hljómsveitir koma fram á Airwaves í fyrsta skipti, sem er því mikil viðbót frá árunum áður. Á meðal fjölmargra íslenskra sveita sem koma fram á hátíðinni má nefna Agent Fresco, Bróður Svartúlfs, Diktu, Dr. Spock, FM Belfast, Ghostigital, GusGus, Hjaltalín, Jeff Who?, Lea- ves, Retro Stefson, Sudden Weather Change og Sykur. Á meðal erlendra listamanna sem boðað hafa komu sína má nefna teknódrottninguna JoJo De Freq sem mun spila á Bugged Out- kvöldi hátíð- arinnar, en Bugged Out heldur úti nokkrum af stærstu klúbbakvöldunum í London, Manchest- er, Barcelona og víðar. Þeir hafa unnið með listamönnum á borð við Justice, Daft Punk, Boyz Noize, Crookers og Chemical Brothers svo fáein- ir séu nefndir. Önnur erlend bönd sem staðfest hafa komu sína eru Danirnir í Choir Of Young Believers sem hafa notið mikilla vinsælda í heimalandinu undanfarinn misseri. Einnig mun hljómsveitin Abby koma fram, en hana skipa fimm ungir herramenn frá Þýskalandi. Allar frekari upplýsingar um hátíðina má finna á heimasíðu hennar, icelandairwaves.is. 56 íslenskar sveitir bætast við dagskrá Airwaves Morgunblaðið/Eggert GusGus Spila að sjálfsögðu á Airwaves.  Ómar Ragnarsson, bloggari og umhverfisverndarsinni með meiru, bloggaði í fyrradag um andlát leik- arans Patricks Swayze. Ómar seg- ist hafa farið með konu sinni og dætrum á Dirty Dancing á sínum tíma. „Ég minnist þess æ síðan hvernig ég sökk æ dýpra niður í sætið í vaxandi minnimáttarkennd eftir því sem leið á myndina. Hví- líkur gaur var þessi maður og skelf- ing var maður nú eitthvað lítilfjör- legur í samanburðinum! Ekki var hann síður heillandi í myndinni Ghost og æ síðan hef ég haft sér- stakt dálæti á glæsileik þessa manns, sem seint verður þó talinn hafa verið snoppufríður,“ segir Ómar og greinir einnig frá því að hann hafi verið að skoða myndskeið á YouTube af Michael Jordan. Hvort það tengist Swayze er óljóst. Swayze vakti með Óm- ari minnimáttarkennd  Frægðarsól Sigur Rósar ytra hefur hækkað jafnt og þétt und- anfarin ár. Þetta sýnir sig m.a. í áhuga safnara en nýverið fór tólf- tomma með fjórum lögum af end- urhljóðblöndunarplötunni Von brigði á 100.000 krónur íslenskar á ebay. Platan var pressuð á grænan vínyl, í 100 eintökum. Gangi ykkur nú vel að róta í bíl- skúrnum, hún hlýtur að vera þarna einhvers staðar… Sigur Rósar-plata selst á 100.000 kr. á ebay Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA hefur gerst mjög hratt, fyrsta uppkast var gert fyrir svona tíu árum,“ segir Þorsteinn Guð- mundsson, leikari og handritshöf- undur, um kvikmyndina Okkar eigin Osló sem nú er í bígerð. „Maður hef- ur þurft að uppfæra hlutverkalistann – fyrst fjallaði hún um ungan mann en núna er þetta orðinn miðaldra maður með skallablett,“ segir Þor- steinn í léttum dúr um aðalsögu- persónuna. Tilurð myndarinnar má rekja til þess þegar Þorsteinn starfaði fyrir Ríkisútvarpið fyrir nokkrum árum. „Ég skrifaði á sínum tíma pistla fyrir Síðdegisútvarpið sem fjölluðu um mann sem var formaður í sum- arhúsafélagi. Upp úr því skrifuðum við Sigurjón Kjartansson fyrsta upp- kast að kvikmyndahandriti. Síðan þá hefur þetta farið í marga hringi – ég tók við þessu þegar Sigurjón fór að huga að öðrum málum, og svo er þetta komið á flug núna eftir að hafa fengið vilyrði frá Kvikmyndamiðstöð, þannig að við ætlum að skjóta mynd- ina á næsta ári,“ segir Þorsteinn sem heldur svo áfram að útskýra hvernig hugmyndin kviknaði. „Þessi maður sem ég lék í pistl- unum var hálf-geðveikur, þóttist sjá Dorrit og svona. Hugmyndin að myndinni kviknaði í kringum hann og Sigurjón hjálpaði mér að koma þessu af stað. Við fórum meðal annars upp í sumarbústað og áttum rómantískar stundir með ritvélinni. Það var mjög fallegt,“ segir Þorsteinn og hlær að minningunni. Öllum líður vel með Reyni Auk þess að skrifa handritið að myndinni mun Þorsteinn sjálfur leika aðalhlutverkið. „Það hefur einhvern veginn alltaf legið fyrir, en kannski þorir bara eng- inn að reka mig,“ segir leikarinn og hlær, en bætir því svo við að fleiri leikarar hafi ekki enn verið ráðnir til starfa. Prufur muni hins vegar fljót- lega fara fram, og hann og Reynir Lyngdal, leikstjóri myndarinnar, séu þegar búnir að setja saman óskalista hvað leikarana varðar. „Reynir er frábær og við höfum unnið mikið saman, meðal annars að áramótaskaupinu 2006 sem ég skrif- aði með honum,“ segir Þorsteinn um leikstjórann. „En svo höfum við gert auglýsingar og fleira og erum fínir vinir. Það líður öllum svo vel í kring- um Reyni, það er frábær andi í kring- um hann og ég hef mikla trú á hon- um.“ Þorsteinn hefur ekki leikið í mörg- um myndum hingað til, en hann lék þó nokkuð stórt hlutverk í myndinni Maður eins og ég sem Róbert Dou- glas gerði árið 2002, auk þess sem hann fór með minni hlutverk í Stóra planinu (2008), Stellu í framboði (2002) og Sporlaust (1998). Þekkt- astur er hann þó trúlega fyrir kostu- leg hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Fóstbræðrum, að ógleymdum At- vinnumanninum og Svalbarða. Auk Kvikmyndamiðstöðvar Ís- lands munu samstarfsaðilar frá Norðurlöndunum koma að fjár- mögnun Okkar eigin Osló, en það er Ljósband sem framleiðir. Stefnt er að tökum næsta sumar og frumsýningu fyrir jólin 2010. Gera gamanmynd í Noregi  Þorsteinn Guðmundsson leikur aðalhlutverkið í Okkar eigin Osló, gaman- mynd sem nú er í bígerð  Leikstjóri myndarinnar verður Reynir Lyngdal Morgunblaðið/RAX Reynir og Þorsteinn „Myndin fjallar samt ekkert um Osló, þá miklu gleði- og partíborg,“ segir Þorsteinn. Aðspurður segir Þorsteinn að Okk- ar eigin Osló beri nafn með rentu, upp að ákveðnu marki að minnsta kosti. „Þetta er eiginlega rómantísk gamanmynd sem fjallar um tvær manneskjur sem reyna að verða ástfangnar. Þetta eru sem sagt tveir Íslendingar sem kynnast á ferðalagi í Osló, þau ná saman þar. Myndin fjallar samt ekkert um Osló, þá miklu gleði- og partí- borg,“ segir Þorsteinn, en myndin verður tekin í Osló og á Íslandi, bæði í Reykjavík og í sumarhúsa- hverfi úti á landi. Fjallar ekkert um Osló Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ÁSTRALINN Ben Frost hefur verið búsettur hérlendis um alllangt skeið og hefur verið virkur í tónlist- arsamfélaginu/útgáfunni Bedroom Community ásamt þeim Valgeiri Sigurðssyni og Nico Muhly. Hann vakti mikla athygli fyrir plötu sína Theory of Machines árið 2007 en er nú snúinn aftur með nýtt verk, By The Throat, en eins og titillinn gef- ur til kynna leitar hann fanga í óhljóðum og orgi, jafnvel ógeði. Hlustandanum er þrýst fast upp að vegg með áleitnu, öfgafullu tón- streymi, sem rennur engu að síður ískalt og rökfast í gegn. Platan kemur út 19. október næstkomandi en í fyrradag birtist tilkynning þar um á vefsíðu Bedro- om Community (www.- bedroom- community.net). Þar er nú hægt að hala niður lagi af smíðinni endur- gjaldslaust, og heitir það „The Car- pathians“ (önnur lög af vænt- anlegri plötu bera dulúðug heiti eins og „Killshot“ og „O God Pro- tect Me“). Einnig var birt stór- glæsilegt umslag plötunnar, hrein- asta listaverk sem er fullkomlega í takt við innihaldið (sjá meðfylgj- andi mynd). Samkvæmt upplýs- ingum frá Bedroom Community var ljósmyndin tekin í næturhúmi á ónefndri eyju, norðaustanverðri. Listræn stjórnun var í höndum Frost og vopnaframleiðandans Sruli Recht, um ljósmyndun sá Bjarni Gríms og um álagabundna eftirvinnslu sá Rebeca Mendéz. Plötuna vann Frost með ólíkum listamönnum, eins og hefur verið lenska hjá þeim Svefnherberg- isfélögum, en Borgar Magnason bassaleikari, strengjakvartettinn Amiina, Jeremy Gara úr Arcade Fire og sænska öfgarokksveitin Crowpath koma við sögu, auk tón- skáldsins Nico Muhly. Plötuna er hægt að forpanta núna, og þeir sem það gera fá tvö lög aukreitis sem ekki eru fáanleg annars staðar. Skorinn á háls Óttalegt Svona lítur umslag plötunnar ógurlegu út. Ný plata frá Ben Frost kemur út 19. október næstkomandi  Þær voveiflegu fréttir bárust í gær að Bergur Ebbi Benedikts- son hefði sagt skilið við Sprengjuhöllina til að sinna öðrum verkefnum. Í júlí greindi Þor- móður Dagsson trommari frá því að hann hefði ákveðið að segja skilið við tónlistina í bili til að geta einbeitt sér að námi í um- hverfis- og auðlindafræði við Há- skóla Íslands. Hver skyldi hætta næst? Geir Ólafs? Fyrst Þorri, nú Bergur, hver hættir næst?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.