Morgunblaðið - 17.09.2009, Side 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
7 2 6
8 5
5 4 9
2 1
7 3 8 1
5 4
5 6 3
1
3 7 1 6 9
3
4 8
5 7 4
7 8 4 6 1
7
3 6
2 9
7 5 9 8 4
6 1 5
5
5 1 4
3 7 9 2
6 9 7
7 3 9
8 2
1
2 7 1 8 9
6 2
4 3 2 6 5 1 9 7 8
6 5 7 8 9 3 1 2 4
8 9 1 2 4 7 3 5 6
3 4 5 7 1 8 2 6 9
1 6 8 9 2 4 5 3 7
7 2 9 5 3 6 8 4 1
5 8 4 1 6 2 7 9 3
9 1 3 4 7 5 6 8 2
2 7 6 3 8 9 4 1 5
5 6 3 8 4 1 9 7 2
7 4 2 9 6 3 5 1 8
8 9 1 2 7 5 4 6 3
4 8 5 7 9 6 3 2 1
3 1 6 5 8 2 7 9 4
9 2 7 1 3 4 8 5 6
2 3 4 6 5 7 1 8 9
6 7 8 4 1 9 2 3 5
1 5 9 3 2 8 6 4 7
6 3 1 9 8 4 7 2 5
4 5 2 3 7 1 9 6 8
7 9 8 5 2 6 3 1 4
3 2 9 1 6 5 8 4 7
5 8 6 7 4 2 1 3 9
1 4 7 8 9 3 2 5 6
9 1 5 6 3 8 4 7 2
8 6 4 2 1 7 5 9 3
2 7 3 4 5 9 6 8 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 17. september,
260. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Sækist eins og nýfædd
börn eftir hinni andlegu, ósviknu
mjólk, til þess að þér af henni getið
dafnað til hjálpræðis. (1Pt. 2, 2.)
Víkverji gladdist ógurlega yfirsumarauka þeim sem hann upp-
lifði síðastliðna helgi norður í landi.
Lengi vel hefur Víkverji fussað yfir
veðurspám því þær hafa staðist svo
illa, en nú brá svo við að veðurspáin
stóðst og sumarið kom aftur í öllu
sínu veldi á Norðurlandi eystra – þó
ekki væri nema í tvo daga. Fréttir af
góðviðri á Austurlandi bárust líka,
enda hafði Veðurstofan spáð því.
Sumarauki sem þessi gefur miklu
meira en hita í kroppinn. Hann gefur
af einhverjum ástæðum von um betri
tíð og bjartari framtíð. Þar sem Vík-
verji stóð uppnuminn í blíðunni í af-
skaplega fagurri norðlenskri sveit gat
hann ekki annað en hugsað sem svo:
þetta fer allt vel. Hvort fréttir dags-
ins tónuðu saman við þessa líðan Vík-
verja skal ósagt látið.
x x x
Hins vegar þykir Víkverja ljóst aðhægt er að tala – og hugsa – í
sig vanlíðan. Fjölmiðlar hafa allflestir
staðið vaktina eftir bankahrun og
flutt ötullega fréttir af kreppu, vanlíð-
an og fátækt fólksins í landinu, fólks-
flótta og já, öllu því sem aflaga hefur
farið og getur farið. Þjóðin tekur
þetta allt saman inn – og er í öngum
sínum fyrir vikið. Fjölmargir hafa
komið að máli við Víkverja og spurt
hvort ekki sé kominn tími til að ein-
beita sér núna að því að segja góðar
fréttir og eflaust hafa fleiri blaða- og
fréttamenn en Víkverji orðið varir við
slíka umleitan.
x x x
Þó er línan sem dansa þarf eftiransi mjó, því ekki vilja Íslend-
ingar aftur fljóta sofandi að feigð-
arósi. Nú ætlar fólk sér að fylgjast
með og taka eftir þegar halla fer und-
an fæti. Rannsóknir hafa sýnt að
endalausar fréttir af hruninu og
kreppunni hætta að lokum að berast.
Ekki vegna þess að fólk hlustar ekki
lengur heldur vegna þess að það
heyrir ekki lengur. Mannskepnan
getur nefnilega ekki tekið við nema
takmörkuðum upplýsingum í einu,
sérstaklega ekki ef „sama fréttin“ er
tuggin upp aftur og aftur.
Og þá er gott að fá góðan sum-
arauka. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 slyngir, 4
galdra, 7 vindhviðum, 8
kvendýrið, 9 samkoma,
11 ójafna, 13 röskur, 14
rækta, 15 bera illan hug
til, 17 geð, 20 stefna, 22
truflar, 23 svikull, 24
gripdeildin, 25 heyið.
Lóðrétt | 1 versna, 2
bert, 3 sterk, 4 gangur, 5
óvildin, 6 hinn, 10 hættu-
laust, 12 vætla, 13 frost-
kemmd, 15 höfuðföt, 16
blásturshljóðfærið, 18
forræði, 19 skepnurnar,
20 tímabilið, 21 autt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 handaskol, 8 skráp, 9 golan, 10 ugg, 11 kækur,
13 sefur, 15 svell, 18 slúta, 21 átt, 22 lagið, 23 aftan, 24
harðfisks.
Lóðrétt: 2 afrek, 3 dapur, 4 seggs, 5 oflof, 6 ósek, 7
knár, 12 ull, 14 ell, 15 sýll, 16 eigra, 17 láðið, 18 stapi, 19
úrtak, 20 asni.
1
7
11
15
22
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
13
17
5
18
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e6 2. Rf3 d5 3. Rc3 d4 4. Re2 Rf6
5. Rg3 c5 6. Bc4 Rc6 7. a3 Bd6 8. d3
Dc7 9. O-O h5 10. c3 Rg4 11. He1 f6 12.
cxd4 Rxd4 13. Rxd4 cxd4 14. Bd2 Rxh2
15. Hc1 Db8
Staðan kom upp á Skákþingi Ís-
lands, landsliðsflokki, sem lauk fyrir
skömmu í Bolungarvík. Alþjóðlegi
meistarinn Dagur Arngrímsson (2396)
hafði hvítt gegn Ingvari Þór Jóhann-
essyni (2323). 16. e5! fxe5 hvítur hefði
einnig staðið til vinnings eftir
16…Bxe5 17. Hxe5! Dxe5 18. f4. 17.
Re4 Rg4 18. Db3 Kf7 19. Bxe6+! Bxe6
20. Rg5+ Kg6 21. Dxe6+ Rf6 22. Df7+
Kf5 23. Re4 h4 24. g4+ hxg3 25.
Rxg3+ Kg4 og svartur gafst upp um
leið enda óverjandi mát.
Hvítur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ljóngrimmir.
Norður
♠ÁD765
♥ÁK5
♦74
♣G76
Vestur Austur
♠K ♠G10932
♥G8 ♥D10742
♦ÁKG653 ♦D92
♣10854 ♣
Suður
♠84
♥963
♦108
♣ÁKD932
Suður spilar 5♣.
Sveit Ljónanna varð bikarmeistari
um helgina, vann Júlíus Sigurjónsson
og félaga 171-99 í 64 spila úrslitaleik.
Ljónin eru Hlynur Angantýsson, Her-
mann Friðriksson, Daníel Már Sig-
urðsson, Ragnar Hermannsson og Ar-
on Njáll Þorfinnsson. Áður höfðu
Ljónin lagt Suðurnesjasveit Munins
naumlega í undanúrslitum og er spilið
að ofan úr þeim leik. Aron Njáll vakti
létt í suður á Standard-laufi, endaði svo
sem sagnhafi í 5♣ eftir að vestur hafði
tvímeldað tígul. Vestur tók á ♦ÁK og
skipti síðan yfir í ♥G.
Aron drap og spilaði laufi heim. Hin
óvænta tromplega afhjúpaði spilið í
heild sinni og Aron sá fyrir sér sígilt
Vínarbragð: hann tók hinn háslaginn í
hjarta (Vínarbragðið), spilaði síðan
trompunum til enda og þvingaði austur
í hálitunum.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú vilt hafa kraft í hlutunum í dag
og velur því frekar rifrildi en yfirborðs-
kennd og innantóm samskipti.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þér hefur tekist að koma fjármál-
unum í rétt horf og hefur því efni á að
verðlauna sjálfan þig. Nærðu huga, lík-
ama og sál með næringarríkum mat.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er sjálfsagt að lífga upp á til-
veruna með léttu gríni ef þú gætir þess
bara að það sé ekki á annarra kostnað.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Láttu þér ekki bregða þótt gömul
mál dúkki upp og þú þurfir að eyða tíma í
að koma þeim á hreint. Mundu að hver er
sinnar gæfu smiður og allir þurfa að
leggja sig fram.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Flýttu þér hægt, það getur forðað
þér frá mörgum mistökum. Smáupplyft-
ing gerir þig bara betur færan um að taka
upp þráðinn aftur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Farðu ákaflega varlega í sam-
skiptum við ókunnuga, sérstaklega ef þau
snúast um fjármál að einhverju leyti.
Seinna muntu líta aftur til dagsins í dag
og hugsa: Gerðist þetta?
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þér finnst sótt of fast að þér úr öllum
áttum og þú þarft að verja sjálfan þig. Allt
sem þú framkvæmir án umhugsunar ein-
kennist af frumleika og nýstárlegheitum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Fegurð orðanna heillar þig.
Gættu þín að vera heiðarlegur við sjálfan
þig í dag því annars verður þú fyrir von-
brigðum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú þarft ekki að breyta svo
miklu til þess að ná athygli fólks. Bog-
maðurinn ver drjúgum tíma í að meta
hvort nýleg ákvörðun hafi verið heilla-
drjúg.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Já, þú ert svo sannarlega hag-
sýnn. Láttu smátíma líða og þá verða allir
tilbúnir að heyra hvað þú hefur fram að
færa.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ef þú freistast til þess að skipta
þér af annarra málefnum skaltu ekki bú-
ast við því að geta sinnt eigin skyldum á
meðan. Taktu ekki fleira að þér á meðan
þú sléttar úr kúfnum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú finnur fyrir spenningi og jafn-
vel taugaveiklun í dag. Líttu á það sem
tækifæri til þess að gera upp fortíðina og
treysta gömul tengsl.
Stjörnuspá
17. september 1896
Íbúar í Landeyjum sáu eld í
hafi þetta kvöld og næstu tvö
kvöld, í stefnu suðvestur af
Hellisey. Eldurinn sást einnig
úr Hvolhreppi og Holtum. Ef
þetta hefur verið neðansjáv-
argos má telja það upphaf gos-
virkni á Vestmannaeyjasvæð-
inu á sögulegum tíma.
17. september 1992
Landsbankinn ákvað að taka
eignir Sambands íslenskra
samvinnufélaga upp í skuldir.
Þar með mátti heita að lokið
væri starfsemi stærsta fyr-
irtækis landsins um áratuga-
skeið.
17. september 2001
José Carreras var vel fagnað í
Laugardalshöll þar sem stór-
tenórinn söng fyrir fullu húsi
ásamt Diddú, kór Íslensku óp-
erunnar og Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Carreras tók fjölda
aukalaga en alls stóðu tónleik-
arnir í tæpa þrjá tíma.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Eva Dögg Vigfúsdóttir, Inga
Steina Steinþórsdóttir og Ylfa
María Lárusdóttir voru með söfnun
í hverfinu sínu á Akureyri og söfn-
uðu 2.200 krónum sem þær styrktu
Rauða krossinn með.
Hlutavelta
„ÞETTA venst, eins og góður vinur minn sagði um
það að eldast,“ segir Ómar Garðarsson, ritstjóri
bæjarblaðsins í Vestmannaeyjum, sem fagnar sex-
tíu ára afmæli sínu í dag, en hann er staddur í
Hamborg. „Þetta verður margra daga afmæli.
Fjölskyldan er dreifð nokkuð víða um heiminn. Af-
mælið byrjaði heima í Vestmannaeyjum með kaffi-
samsæti með syni okkar og fjölskyldu hans, síðan
flaug ég ásamt konu minni til Lúxemborgar þar
sem dóttir okkar býr og þaðan fórum við til Ham-
borgar að heimsækja sonarson okkar og við
drekkum morgunkaffi hjá þeim í tilefni dagsins en
fljúgum aftur til Lúx í kvöld og borðum þar afmæliskvöldverð. Á
sunnudag fljúgum við heim og þá taka dætur okkar Karólína og Vig-
dís Lára á móti okkur en þær ætla að vera tilbúnar með kaffi handa
karlinum. Ég á foreldra austur á Seyðisfirði og karl faðir minn ætlar
að halda málverkasýningu í byrjun október og það verður síðasti í af-
mæli hjá mér.“ Ómar segir að eftirminnilegasti afmælisdagurinn hafi
verið fyrir þremur árum í Tyrklandi. „Það var á sundlaugarbarmi
fyrir fullu tungli og í yndislega skemmtilegum félagsskap. En öll af-
mæli hjá mér hafa verið skemmtileg.“ khk@mbl.is
Ómar Garðarsson er sextugur í dag
Margra daga afmæli
Nýirborgarar
Kópavogur Vilborg
Saga fæddist 28. júlí kl.
4. Hún vó 4.590 g og var
53 cm löng. Foreldrar
hennar eru Sóley Eiríks-
dóttir og Stefán Reyn-
isson.
Reykjavík Baldvin Smári
fæddist 24. ágúst kl.
20.03. Hann vó 3.340 g
og var 50 cm langur.
Foreldrar hans eru Stella
Thors og Jón Halldór
Baldvinsson.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is