Morgunblaðið - 20.09.2009, Page 1
2 0. S E P T E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
255. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
AÐ EILÍFU
Hug-
leiðingar
um stöðu
hjóna-
bandsins
HVERNIG ELD
AST
KYNBOMBUR
?
STYR
Emmanuel
Adebayor í
klípu
GENGISVÍSITALA
ÍSLENSKRA GAMANMYNDA
SUNNUDAGUR
MORÐ SKEKUR YALE»8MANNLEGT AÐ SKJÁTLAST»6 GLÆPASAMTÖK EÐA EKKI »4
Hvort sem vítisenglar fá skilgreininguna skipulögð glæpa-
samtök hér á landi eða ekki verður því alla vega seint neitað að
þar séu skipulögð alþjóðleg samtök á ferð með fjölda fyrir-
tækja á sínum snærum. Húðflúrstofurnar House of Pain, sem
finna má víða um heim, eru t.a.m. í eigu samtakanna. Það eru
líka verslanirnar Route 81, sem m.a. selja fatnað, sem og Hells
Angels Motorcycle Corporation, sem á réttinn að þeim merkj-
um sem vítisenglar ganga með.
Töluvert utanumhald er einnig um mótorhjólaklúbbana.
Þannig eru alþjóðasamtök englanna staðsett í Bandaríkjunum
og hver einasti klúbbur, sama hvar hann starfar í heiminum,
greiðir tiltekið gjald til þeirra. Í Evrópu fer síðan hollenski
klúbburinn með stjórn Evrópumála, dönsku samtökin halda utan um Norðurlöndin
og norski klúbburinn sér um Ísland.
Eru Hells Angels ótínd glæpa-
samtök eða eitthvað annað?
Heimsókn Hells
Angels á Íslandi.
Finnski lögfræðingurinn Juha Turunen
ákvað að fara ekki hefðbundnar leiðir til
að ráða bót á fjárhagsvanda sínum.
Hann rændi 26 ára gamalli dóttur einn-
ar auðugustu konu Finnlands upp á eig-
in spýtur og krafðist lausnargjalds, átta
milljóna evra. Það var greitt en Tur-
unen var ekki lengi í Paradís, því hann
var tekinn höndum fáeinum dögum
síðar. Hann gæti fengið tíu til þrettán
ára fangelsi.
Í ljós hefur komið að Turunen hefur
einnig stundað fölsun og fjárdrátt
enda þótt sakaskráin sé hrein.
Fégráðugur
mannræningi
Morðið á Annie Le, dokt-
orsnema við Yale-háskóla
í Bandaríkjunum, hefur
vakið mikinn óhug en lík
hennar fannst milli þils
og veggjar í einni
byggingu skólans.
Búið er að handtaka
starfsmann á til-
raunastofu í skól-
anum, Raymond
Clark, sem grun-
aður er um að hafa
kyrkt Le.
Fannst látin í
Yale-háskóla
SAUÐFÉ er víðast hvar komið til byggða eftir sumardvöl á fjalli. Ljósmyndari Morgunblaðsins keyrði fram á þessi sællegu lömb á bökkum Vatnsdalsár í
Húnavatnssýslu á fallegu haustkvöldi í vikunni. Ekki verður annað séð en þau hafi haft nóg að bíta og brenna. En til þess er víst leikurinn gerður.
Morgunblaðið/Golli
SÆLLEGT SAUÐFÉ Í HEIMAHAGA
„ÞAÐ býr minnihluti innra með okk-
ur öllum,“ segir Kimberly Reed, sem
kallar sig Kim, leikstjóri Efnispilta
og einn frummælenda á ráðstefnu
um kvikmyndir og minnihlutahópa í
Norræna húsinu kl. 14 í dag. En
myndin er sýnd á Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík.
„Í myndinni er horft á heiminn
með augum sögumanns sem hefur
leiðrétt kyn sitt og skilur hvað í því
felst. Um leið er mikilvægt að átta sig
á því, að myndin er ekki bara um
minnihlutahópa eða gerð fyrir þá,
heldur hefur hún breiðari skírskotun
og tekur á málum eins og togstreitu í
fjölskyldum og geðrænum vanda-
málum.“
Allt skapar þetta flóknar kring-
umstæður og segir Kim að á margan
hátt eigi fólk auðveldara með að setja
sig í þau spor. „Enda tilheyrum við
öll minnihluta sem einstaklingar. Öll
förum við að heiman og breytumst,
þó að ég hafi breyst á róttækari hátt
en flestir. Sjálfsmynd mín breyttist
og síðan bróður míns er upplýst var
um skyldleika hans við Orson Well-
es.“
En áhrif myndarinnar felast ekki
síst í því, að sögn Kim, að fólk spyr
sig hvernig það er skilgreint af kyni
og erfðum og hversu frjálst það er.
„Það þarf ekki að leiðrétta kyn sitt til
þess. Bæði kynin fæðast inn í stöðluð
hlutverk, en þrátt fyrir það erum við
einstaklingar, og sem slík göngum
við gegn því almenna – erum í and-
stöðu við það. Við erum því sífellt að
reyna að átta okkur á samhengi
minnihlutans sem við tilheyrum og
þess stóra óskilgreinda sem fylgir því
að vera „venjulegur“.“| 12
Hversu
frjáls er-
um við?
Málþing um kvik-
myndir og minnihluta
Kim Hvað er að vera „venjulegur“?
Annie Le