Morgunblaðið - 20.09.2009, Blaðsíða 55
Menning 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
KVIKMYNDIN Stúlkan sem lék
sér að eldinum, sem byggð er á sam-
nefndri bók eftir Stieg Larsson í sk.
Millennium-þríleik, er lakari en
fyrsta myndin í þríleiknum, Karlar
sem hata konur, að því er fram kem-
ur í dagblaðinu Politiken. Í þrí-
leiknum segir af rannsóknarblaða-
manninum Mikael Blomkvist og
hinni bráðsnjöllu Lisbeth Salander
sem getur hakkað sig inn í hvaða
tölvu sem er. Saman leysa þau hin
dularfyllstu glæpamál.
Framleiðendur kvikmyndarinnar
fóru fram á það við danska fjölmiðla
að þeir skrifuðu enga gagnrýni um
myndina fram að frumsýningu, þó
svo búið væri að halda margar for-
sýningar á henni tíu daga þar á und-
an með gríðarlegri aðsókn.
Kvikmyndagagnrýnandi Politiken
hefur kveðið upp sinn dóm, segir
Stúlkuna sem lék sér að eldinum
ósvikinn krimma og mikið lagt í
framleiðsluna en í samanburði við
fyrstu myndina vanti eitthvað upp á,
myndin hefji sig ekki upp yfir hina
stöðluðu krimmaformúlu. Mynd
númer tvö sé ekki eins öflug og
dramatísk og sú fyrsta. Hún gefur
myndinni þó fjórar stjörnur af sex
mögulegum. Þeir sem vilji sjá æsi-
lega bílaeltingaleiki, ástaratlot
tveggja kvenna og hefnd fái sinn
skammt.
Kvikmyndin var frumsýnd í gær í
Danmörku og segir Politiken gagn-
rýni annarra blaða í samræmi við
sína. Ekstra bladet telur myndina
lakari en þá fyrstu en er þó sátt;
Kristeligt Dagblad (Dagblað krist-
inna?) segir upplifunina svipaða því
að fá jólapakka sem maður veit hvað
inniheldur. Christian Monggaard í
Information er afar ósáttur og kallar
myndina „uppblásna sjónvarps-
mynd“ og kollegi hans á MetroX-
press/Cinemazones, Jacob Ludvig-
sen, segir myndina mun lakari en þá
fyrstu.
Hvað sem þessum dómum líður
verður aðsóknin án efa góð í Dan-
mörku, líkt og hún hefur verið hing-
að til, og engin ástæða til að búast
við öðru en góðri aðsókn hér á landi.
helgisnaer@mbl.is
Önnur myndin
lakari en sú fyrsta
Stúlkan Noomi Rapace í hlutverki Salander. Fyrsta myndin þykir góð, önnur lök. Hvað ætli verði þá með þá þriðju?
Framhald hinnar vinsælu Karlar sem
hata konur fær misjafnar undirtektir
JÆJA, sjöunda plata hinnar mik-
ilhæfu sveitar Jeff Tweedy, Wilco,
heggur nokkurn veginn í sama kné-
runn og sú síðasta, Sky Blue Sky.
Þar gíruðu menn sig niður í væru-
kæran, dægiljúf-
an og eiginlega
flauelsmjúkan
gír, þar sem
áhlýðilegheit
voru tekin fram
yfir þá súrrandi
tilraunastarfsemi
sem einkenndi plöturnar tvær á und-
an. Plata sú skipti aðdáendahópnum
upp og persónulega var ég svona
sæmilega hrifinn, svo ekki sé nú
meira sagt. Mér líður eins með þessa
plötu. Þetta er of rennislétt fyrir
minn smekk, það er öllu haldið til
haga og allt það en það vantar meira
„mojo“ eins og Austin Powers myndi
orða það. Manni finnst hreinlega
eins og það sé ekki verið að nýta alla
þá krafta sem þessi eðalsveit býr yf-
ir til fulls.
Hápunktar eru hið undurfagra
„You and I“, þar sem Tweedy og
Feist syngja samsöng, og svo „Bull
Black Nova“, súrkálsrokkandi
stemma og eina lagið sem fer í smá
skógarferð út fyrir hið hefðbundna
lagaform sem Wilco hjakka annars í
að mestu á þessari blessuðu plötu.
Það er dálítið skringilegt að skrifa
svona dóm, því að ég er ekki í nokkr-
um vafa um að Wilco sé besta hljóm-
sveit í heimi nú um stundir. Þannig
að, hér höfum við að sjálfsögðu stór-
kostlega plötu í höndunum. Stór-
kostlega plötu – sem er samt líka
pínu leiðinleg.
Arnar Eggert Thoroddsen
Pabbarokk
Wilco – Wilco (The Album)