Morgunblaðið - 20.09.2009, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.09.2009, Blaðsíða 24
24 Kynbombur MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009 Bardot og Loren hafa hvor sína hug- myndina um það. „Vandamálið við kyntákn er að við viljum ekki að þau breytist,“ segir Dennis Northdurft, forstöðumaður tísku- og vefnaðarsafnsins í Lund- únum. „Við sköpum kyntákn, múl- bindum þau í tíma og viljum ekki sleppa af þeim hendinni.“ Fáar konur, alltént sem komn- ar eru á áttræðisaldur, hafa staðið betur undir þessum væntingum en Sophia Loren – með ráðum og dáð. Öðru máli gegnir um Bardot. Hún hefur satt best að segja gefið hugmyndinni um eilíft líf kyn- táknsins fing- urinn. „Brigitte Bardot yfirgaf sviðið, hafnar lýtaaðgerðum og hefur ekki gert tilraun til að viðhalda fegurð sinni,“ segir Northdurft. „Það er upplífgandi vegna þess að það er raunsætt. Hún hefur valið að eldast á sínum forsendum í stað þess að kaupa sig inn í kerfið. Sophia Loren hefur aftur á móti lagt sig í líma til að vera aðlaðandi og kynæsandi eldri kona. Og hún lítur frábærlega út.“ Bardot var og er eðlileg Listsalinn James Hyman, sem sýnir ljósmyndir af Bardot í gall- eríi sínu í Lundúnum í tilefni af afmælinu, bendir á, að hún hafi í raun ekkert breyst – bara elst. Hún hafi alltaf verið andstæðan við hina verksmiðjuframleiddu kvikmyndastjörnu síns tíma. „Hún var eðli- leg, berfætt, greiddi sér ekki, notaði ekki snyrtivörur og gekk í flatbotna skóm. Hún var hold- gervingur Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Á sjötta og sjöunda áratugnum var leitun að kynþokkafyllri konum en Brigitte Bardot og Sophiu Loren. Þær voru sjóðheitar, eft- irsóttar kvikmyndastjörnur og fegurðardísir af guðs náð – hvor með sínum hætti. Loren hin ítalska var þessi klassíska fegurð, dökkhærð og bar sig af öryggi og þokka. Bardot hin franska var ljóshærð, óút- reiknanleg og villt – hin upprunalega kisulóra. Síðan skildi leiðir. Loren hefur allar götur lagt ofuráherslu á útlit sitt og hefur fram á þennan dag viðhaldið ímynd sinni sem kyn- tákn og draumadís milljóna manna. Bardot sagði á hinn bóginn skilið við glanslífið laust fyrir fertugt og gerðist harðsnúin baráttukona fyrir réttindum málleysingja. Í meira en 35 ár hefur hún látið sér útlitið í léttu rúmi liggja. Vægt til orða tekið. Fyrir þremur árum, þegar hún var 72 ára, náðist ljósmynd af Bardot á leið á fund Nicolas Sarkozys, þáverandi innanríkisráðherra Frakklands, til að ræða um ósvífni manna í garð kanadískra sela. Gamla þokkagyðjan var svartklædd og áberandi hölt vegna eymsla í mjöðm. Kjálkinn var siginn og hún hafði ber- sýnilega gleymt að greiða sér um morguninn. Grátt hárið dinglaði fyrir vindi. Gæti einhver snúið páfanum … Sama ár hélt Loren upp á 72 ára afmæli sitt með því að sitja hálfnakin fyrir á dagatali ásamt nokkrum öðrum fyrirsætum sem voru ekki hálfdrættingar á við hana – hvorki í aldri né fegurð. Þar sem starfsmaður Páfagarðs virti myndina fyrir sér varð honum að orði að fengi einhver páfa til að skipta um skoðun varðandi einræktun í mannheimum væri það Sophia Loren. Það er eflaust ómaklegt en í ljósi þess að Loren og Bardot verða báðar 75 ára síðar í þessum mánuði (Loren í dag og Bardot þann 28.) hafa menn verið að bera þær stöllur sam- an, m.a. blaðamaðurinn Elizabeth Day í skemmtilegri grein í breska dagblaðinu The Guardian. Hún varpar m.a. fram spurning- unni: Hvernig á kyntákn að eldast? frelsis, æsku og gleði. Hún var ósvikin, sjálf- stæð og frjáls. Þetta var femínismi þess tíma; að hegða sér eins og karlar gerðu og taka sér elskhuga.“ Það var engin tilviljun að Bardot var eitt fyrsta dálæti „papparassanna“. „Hún var kæn og skildi mikilvægi papparassa og blaða- ljósmyndara,“ segir Hyman. „Papparassarnir áttu snaran þátt í því að gera hana að stjörnu. Þetta voru ekki uppstilltar stúdíómyndir og rímuðu við tíma þegar þess var krafist að ljós- myndir af stjörnum væru einlægari en áður.“ Loren hefur alla tíð nálgast þetta með gjör- ólíkum hætti og aldavinur hennar, kvikmynda- leikstjórinn Michael Winner, upplýsir að hún óttist fátt meira en að vera einhvern tíma illa fyrirkölluð á opinberri ljósmynd. „Hún hefur alltaf verið treg til að láta mynda sig op- inberlega af ótta við að „vonda myndin“ náist, líkt og getur komið fyrir okkur öll,“ segir hann. Brjóstin komu bara vel út Fyrir þrjátíu árum vakti Loren athygli Winners á því að í franska vikuritinu Paris Match væru tíu síður með ljósmyndum af henni berbrjósta í sólbaði á Antigua. „Ætti ég að höfða mál?“ spurði Loren. „Tja Sophia, hvernig koma dúllurnar á þér út á myndunum?“ spurði Winner. „Ágætlega, satt best að segja.“ Þá kom lokasvar frá Winner: „Fyrst þannig er í pottinn búið, sendu þeim þá þakkarbréf.“ Ólíkt hafast þær að á 75 ára afmælinu, gyðj- urnar. Bardot er vakin og sofin yfir réttindum dýra en hefur líka látið til sín taka á fleiri svið- um. „Íslömun“ Frakklands, eins og það er kall- að, hefur t.a.m. farið fyrir brjóstið á henni og hefur hún fimm sinnum verið dæmd fyrir að kynda undir kynþáttafordómum. Eðli málsins samkvæmt hafði Bardot lítinn smekk fyrir hinu skotglaða varaforsetaefni repúblíkana í Bandaríkjunum á liðnu ári og í opnu bréfi sakaði hún Söruh Palin um að vera konum til „háborinnar skammar“. Kvikmyndir og kattarölt Loren vinnur á hinn bóginn enn fyrir sér sem leikkona og er um þessar mundir við tök- ur á söngleiknum Nine ásamt Daniel Day- Lewis. Sem frægt er þakkar hún mataræðinu lögulegar línurnar. „Það sem þú sérð er spag- hetti að þakka.“ Michael Winner dregur muninn á stöllunum saman: „Sophia er fagmanneskja fram í fing- urgóma. Hún er enn að leika og veit að útlitið skiptir máli í bransanum. Birgitte Bardot sér- hæfir sig á hinn bóginn í því að bjarga köttum og maður þarf ekkert endilega að líta vel út meðan maður er að hirða upp villiketti.“ Á hann kollgátuna? Er ekki á endanum mik- ilvægast að vera sjálfum sér samkvæmur – og iða ekki af óþægindum í eigin skinni. Eða hvað finnst þér, lesandi góður? Hvor hugnast þér betur á 75 ára afmælinu, Brigitte Bardot eða Sophia Loren? Úfin Bardot leggur lítið upp úr því að hafa sig til í seinni tíð. Kettir eiga hug hennar allan. Glæsileg Loren þykir hafa viðhaldið þokka sínum betur en flestar konur. Fegurð sem (aldrei) fölnar Bomba Brigitte Bardot var fræg fyrir náttúrulega og óþvingaða feg- urð sína. Fáguð Sophia Loren var stór- glæsileg ung kona sem lét sér annt um útlitið. Tvær af helstu kynbombum kvikmyndasögunnar fagna 75 ára afmæli sínu í þessum mánuði. Önnur hefur lagt sig í framkróka um að viðhalda æskuljóm- anum meðan hin hefur í seinni tíð látið sér útlitið í léttu rúmi liggja. Virðingarvert hvort á sinn hátt hjá þeim Sophiu Loren og Brigitte Bardot?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.