Morgunblaðið - 20.09.2009, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.09.2009, Blaðsíða 31
sagði að þeir myndu aldrei fá eins hreint blóð og 100% víkingablóð. Þetta féll í góðan jarðveg og mér var kippt inn.“ Demantafrumskógur Magnús segir afar mikilvægt fyrir sig að vera í þessum klúbbi. Hann sé eini Íslendingurinn sem sérhæfi sig í demöntum og í þessum viðskiptum skipti miklu máli að geta selt stóra demanta, hvað sem viðskiptavinir girnist hverju sinni. Það gengi illa án þess að vera í klúbbnum. „Sem með- limur hef ég líka aðgang að besta mögulega verði.“ Til nánari skýringar bendir Magn- ús á að verðið sé hreinn frumskógur, en ákveðin verðskrá gildi og eftir henni fari helstu demantasalar heims. Demantar líti oft eins út vegna þess að þeir séu slípaðir eins. Hins vegar séu þeir mjög misjafnir og séu flokkaðir eftir stærð, hreinleika, lit og öðru. „Þú sérð varla mun á þessum tveimur demöntum en þeir eru mjög ólíkir og þar með verðið líka,“ segir hann um leið og hann bendir á tvo ólíka demanta sem virðast vera eins. Annar kostar um 650 þúsund krónur og hinn um þrjár milljónir. „Það er auðvelt að láta mann kaupa hlut á röngu verði hafi maður ekki nauðsyn- lega þekkingu,“ heldur hann áfram og viðurkennir að hann hafi svo sem verið plataður. „Eftir að ég var kom- inn í klúbbinn tók ég eftir að verið var að bjóða hráa demanta til sölu og þá kom gamli Íslendingurinn upp í mér. „Ég fer bara til Afríku og kaupi þetta sjálfur,“ sagði ég við sjálfan mig. Það eru mestu mistök sem ég hef gert. Ég er alinn upp við heiðarleika og til þess að komast í klúbbinn þarf vott- orðið að vera hreint en ég komst fljótt að ýmsu misjöfnu í Afríku. Ég byrj- aði á því að fara til Namibíu og þar stinga heimamenn í þessum bransa hreinlega úr þér augun. Þeir eru rosalegir. Ég sá nokkra steina sem stóðust allar kröfur og sölumaðurinn byrjaði að pakka þeim inn. Ég fylgd- ist vandlega með en allt í einu brutust út slagsmál við hliðina á okkur og einn maður lenti á borðinu hjá okkur. Ég leit af demöntunum augnablik og til þess var leikurinn gerður því þá skipti sölumaðurinn á pökkum og hélt áfram að pakka eins og ekkert hefði í skorist. En auðvitað var þetta allt skipulagt og þessir menn eru allt- af fjórir eða fimm saman. Ég hef nokkrum sinnum verið plat- aður en hef lært af reynslunni og treysti þessum sölumönnum ekki lengur. Kvikmyndin Blood Diamond lýsir þessum skuggahliðum við- skiptanna vel. Einu sinni hafði ég keypt steina og var með þá inni á hót- elherbergi, hafði reyndar falið þá, þegar barið var að dyrum um klukk- an 11 um kvöld. Þetta var lögreglan sem hafði fengið vitneskju um söluna, sem hún sagði ólöglega, og heimtaði að fá steinana. Ég afhenti þeim varn- inginn en þeir vildu meira og sögðust koma morguninn eftir með hand- tökuheimild. Ég kannaði strax með flug og komst að því að vél færi frá Windhoek eftir klukkutíma. Ég náði í bíl og keyrt var á um 200 kílómetra hraða, en fljótlega tókum við eftir því að okkur var veitt eftirför og skotið var á okkur. Ég komst í vélina og slapp með skrekkinn, en á þessum tíma vissi ég ekki að ólöglegt er að versla með demanta í Namibíu og reyndar í Afríku nema hafa til þess sérstök leyfi.“ Afríka heillar Meðan við spjöllum saman hringir viðskiptamaður frá Lýðveldinu Kongó í Afríku. „Þeir eru alltaf að reyna að selja mér gull,“ segir Magn- ús eftir að hann hefur sagt viðkom- andi að hann sé upptekinn og hringi seinna. „Ég hef oft verið í höfuðborg- inni Kinshasa í Lýðveldinu Kongó. Hún var byggð fyrir 300 til 500 þús- und manns en þar búa rúmlega níu milljónir og þar er um 70 til 80% at- vinnuleysi. Ferðamenn eru sjaldséðir og þegar ég kom þangað fyrst var ég eini hvíti maðurinn í vélinni. Lög- reglumenn með hríðskotabyssur tóku á móti mér og gerðu mér ljóst að það væru þeir sem réðu um leið og vegabréfið var tekið af mér. Þarna eru drepnar þúsundir manna á ári, jafnvel tugþúsundir, en það þykja engar fréttir. Ástæða þess að ég fer til Kóngó er að þar er ég að setja upp aðstöðu til þess að kaupa gull. Það tekur tíma að fá öll leyfi en ég er að vinna í málinu. Þetta er flókið kerfi og tímafrekur undirbúningur, en maður verður að gera allt á löglegan hátt því annars er voðinn vís.“ Peningar og viðskipti Meðan umræðan snýst um Afríku stendur ekki á sögunum hjá Magn- úsi. „Einu sinni hitti ég fjóra menn sem vildu selja mér gull í Kinshasa. Þar eru tvö boðleg hótel og á öðru þeirra, sem ég bjó á, kostaði hálfur kjúklingur 100 dollara, meira en mánaðarlaun innfæddra. Ég varð að bjóða fjórmenningunum í mat en fannst ótækt að eyða 400 dollurum í kjúkling handa þeim, um 50 þúsund krónum á núverandi gengi. Því stakk ég upp á að fara eitthvað ann- að og nefndi pizzustað í nágrenninu. Meðan við vorum að bíða eftir af- greiðslu tók ég eftir manni sem var að skera niður grænmeti. Í sömu mund sá ég mús skjótast eftir gólf- inu hjá honum og önnur fylgdi rétt á eftir. Reyndar var allt morandi í músum þarna á þessum virta pizzu- stað. Ég vakti athygli mannanna á þessu en mýsnar röskuðu ekki ró þeirra. Allt í einu sá ég að maðurinn, sem var að skera sveppina í pizz- urnar okkar, stökk skyndilega til hliðar og sprengdi eina músina. Síð- an tók hann hana upp og fleygði henni út í horn en hélt síðan áfram að skera sveppina. Ég sleppti því að borða pizzu þetta kvöldið.“ Magnús og Margrét eiga hús á Flórída og eru nágrannar margra þekktra atvinnukylfinga. Hann hefur kynnt þeim framleiðsluna og segir að þegar þeir eigi leið um Belgíu líti þeir gjarnan inn og kaupi skartgripi eftir sig. „Þeir hafa verið góðir við- skiptamenn,“ segir Magnús. öndunum Pottur Gullið sett í bræðslupottinn.Demantagreinir Magnús greinir demanta. Bræddur málmur Gullinu helt í deigluna eftir bræðslu.Fljótandi Gull í um 1.100 til 1.200 gráðu hita. 31 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009 MAGNÚS Steinþórsson á margar skemmtilegar minningar frá Manor House Hotel. „Einu sinni leigði íhaldsflokk- urinn hótelið og John Mayor, þá- verandi forsætisráðherra, mætti með fríðu föruneyti. Þetta var á þeim tíma þegar Írarnir voru hvað harðastir við að sprengja í London og því var mjög öflug örygg- isgæsla í kringum forsætisráð- herrann. Eftir einhvern fundinn komu ráðherrarnir inn á barinn og Mayor spurði mig hvað hann ætti að fá sér að drekka. „Það er bara einn drykkur sem þið eigið að fá ykkur, strákar mínir, og það er Ice- landic Black Death,“ svaraði ég. Ég var með nokkrar flöskur í frysti og hellti í glösin hjá þeim þessum þykka, ískalda vökva. Ég fékk mér líka til að undirstrika orð mín og skálaði í botn. Þeir voru ánægðir með drykkinn en sögðust ekki finna neinn mun og báðu um meira. Svo fór að þeir fengu sér fjóra tvöfalda og þá vildi einn fara í bað. Hann fór upp í herbergi sitt, skrúfaði frá vatninu í baðinu og ákvað að leggja sig á meðan baðið var að fyllast en sofnaði. John Ma- yor var í herbergi á hæðinni fyrir neðan og þegar leið á nóttina fór að leka úr loftinu hjá honum. Loft- plötur losnuðu og duttu niður með miklum látum og öryggisverðirnir voru sannfærðir um að einhver hefði hent sprengjum inn í her- bergi forsætisráðherrans. Allt fylltist af lögreglumönnum, ég var rifinn á fætur og fljótlega komst ég að því hvað hafði gerst, en ríkisstjórnin bað ekki um meira ís- lenskt brennivín.“ Giftingarveislur voru tíðar á Manor House og man Magnús sérstaklega eftir einni. „Ríkasti maðurinn í Torquay átti aðeins eina dóttur,“ rifjar Magnús upp. „Hún var hrifin af manni, sem faðir hennar kunni engan veginn við, en skoðun hans breytti því ekki að þau gengu í hjónaband. Um 250 manns voru í veislunni og ekkert til sparað. Þegar allir voru sestir niðri í sal átti þjónninn að kalla á brúðhjónin, sem áttu þá að ganga niður stigann og inn í sal- inn. Brúðguminn vildi sýna tengdaföður sínum að hann væri meiri maður en hann héldi og ætl- aði að flytja ræðu því til staðfest- ingar. Hann var á tauginni og var búinn að marglesa ræðuna fyrir mig. Ég reyndi að styðja hann og sagði að ræðan væri fín, hann þyrfti engu að breyta. Hann bað mig um snafs og ég lét hann fá ís- lenskt brennivín. Hann sagðist ekki finna nein áhrif og bað um annan. Hann hafði ekkert borðað og ég sagði honum að það væri ekki gott fyrir hann að drekka meira og allra síst á fastandi maga. Neitaði honum um drykk. Þá sagðist hann ætla að kaupa annan og ég gæti ekki bannað honum það. Ég varaði hann við en hann gaf sig ekki og svo fór að hann fékk sér nokkra snafsa, því gestirnir voru svo lengi að koma sér fyrir við borðin. Loksins þegar þjónninn kom og sagði brúðhjón- unum að nú gætu þau gengið nið- ur í salinn var vinurinn orðinn frekar drukkinn. Hann gekk að há- borðinu, settist við hliðina á tengdaföður sínum og skömmu síðar missti hann höfuðið ofan í súpudiskinn. Í kjölfarið var hann borinn í gegnum salinn og upp í brúðarsvítuna en fyrir vikið missti hann af veislunni. Enn eitt dæmið um að nenn eiga að fara varlega og ekki drekka brennivín á fast- andi maga.“ Brennivín á fastandi maga Morgunblaðið/Kristinn Manor House Hotel Veislusalurinn neðst og móttakan með barnum á jarðhæðinni. Morgunblaðið/Kristinn Barinn Engu var til sparað á Manor House Hotel og barinn vinsæll.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.