Morgunblaðið - 20.09.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
Sunnudagurinn 13. september,
dagurinn sem lík hennar fannst,
átti ekki að vera neinn venjulegur
dagur í lífi Annie Le. Hún ætlaði
að ganga að eiga unnusta sinn,
Jonathan Widawsky. Að sögn
kunnugra gat hún varla beðið eft-
ir stóra deginum.
Widawsky og Le höfðu verið
saman um nokkurt skeið en hann
leggur stund á framhaldsnám í
hagnýtri eðlisfræði og stærð-
fræði við Columbia-háskóla.
Annie Le fæddist í Placerville,
Kaliforníu, 3. júlí 1985. Hún var af
bandarísku og víetnömsku for-
eldri en ólst upp hjá frændfólki
sínu. Le var afbragðsnemandi og
dúxaði í miðskóla. Þaðan lá leið
hennar í Rochester-háskóla í New
York, þaðan sem hún lauk BS-
prófi í líffræði með láði vorið
2007. Það var í Rochester sem
hún kynntist Widawsky.
Ritaði grein um glæpi
Le ritaði grein um glæpatíðni í
New Haven í skólablað í Yale í
febrúar síðastliðnum en ekkert
benti til þess, að sögn vina henn-
ar, að hún óttaðist um líf sitt.
„Hefði hún gert það hefði hún tal-
að um það við einhvern, kærast-
ann sinn, fjölskyldu eða vini,“
sagði vinkona hennar, Jennifer
Simpson, á sjónvarpsstöðinni
CBS. Vinir Annie Le lýsa henni
sem metnaðarfullri og glaðlyndri
ungri konu.
Simpson segir hana hafa verið
afar mannblendna og lífsglaða.
„Það er ótrúlegt að einhver skuli
hafa viljað vinna Annie mein.“
Lík hennar fannst
á brúðkaupsdaginn
Reuters
Lífsglöð Annie Le meðan allt lék
í lyndi. Henni gekk allt í haginn.
Tveir aðrir Yale-stúdentar en
Annie Le hafa verið myrtir und-
anfarna tvo áratugi. Hvorugur þó í
húsakynnum skólans.
Árið 1991 var nítján ára piltur,
Christian Haley Prince, skotinn til
bana á leið heim af næturlífinu.
Veski hans hafði verið rænt. Ræn-
inginn náðist en ekki tókst að sanna
morðið á hann. Umsóknum um
skólavist í Yale fækkaði tímabundið
vegna málsins.
Árið 1998 var 21 árs gömul stúd-
ína, Suzanne Nahuela Jovin, stung-
in til bana á götu úti að kvöldlagi í
New Haven. Henni hafði hvorki
verið nauðgað né hún rænd. En
sautján stungusár voru á líkinu.
Þrátt fyrir ítarlega leit gengur
morðinginn ennþá laus.
Tvö önnur morð framin
undanfarin átján ár
Í haldi Raymond Clark fyrir rétti.
Morðið á Annie
Le hefur vakið
mikla athygli í
Bandaríkjunum
og raunar um
heim allan. Sum-
um hefur þótt
nóg um áhuga
fjölmiðla, þeirra
á meðal Jack
nokkrum Shafer, sem deilir hugs-
unum sínum með lesendum vef-
tímaritsins Slate. „Nær allir fjöl-
miðlar fylgja eftirfarandi
þumalfingursreglu: Þrjú morð í há-
skóla í miðvesturríkjunum jafn-
gilda einu morði í Yale eða Har-
vard.“
MariAn Gail Brown, dálkahöf-
undur í Connecticut Post, tekur í
svipaðan streng og fullyrðir að fjöl-
miðlar hafi mestan áhuga á morð-
um njóti fórnarlambið velgengni í
lífinu. „Ekki spillir fyrir hafi það
verið fjörugt og aðlaðandi.“
Óeðlilegur áhugi fjöl-
miðla á málinu?
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
A
ð morgni þriðjudagsins
8. september sl. fór
Annie Le að heiman og
hélt sem leið lá að
Sterling Hall, lækna-
garði Yale-háskóla í Bandaríkj-
unum, þar sem hún lagði stund á
doktorsnám í lyfjafræði. Örygg-
ismyndavélar staðfesta að hún fór
inn í aðra byggingu á háskólalóðinni,
við Amistad-stræti, þar sem til-
raunastofa nemenda er til húsa,
laust eftir klukkan tíu um morg-
uninn.
Þegar Le skilaði sér ekki heim um
kvöldið hafði ein fimm meðleigjenda
hennar samband við lögreglu. Við
eftirgrennslan kom í ljós að hún
hafði skilið veski sitt, síma og fleiri
persónulega muni eftir á skrifstofu
sinni í Sterling Hall. Öryggismynda-
vélar, alls 75 talsins, sýndu hana aft-
ur á móti ekki yfirgefa bygginguna,
þar sem tilraunastofuna er að finna.
Byggingunni lokað
Það vakti grunsemdir og lögregla
lét þegar í stað loka byggingunni.
Lögreglan í New Haven, ríkislög-
reglan í Connecticut og Alrík-
islögreglan (FBI) tóku saman hönd-
um við rannsóknina sem varð
snemma umfangsmikil. Enda þótt
leitað væri dyrum og dyngjum í
byggingunni fannst hvorki tangur
né tetur af Annie Le. Það var engu
líkara en jörðin hefði gleypt hana.
Það var ekki fyrr en á sunnudag-
inn var, fimm dögum eftir að hún
hvarf, að lögreglan fann lík Annie Le
vandlega falið milli þils og veggjar í
kjallara byggingarinnar við Am-
istad-stræti. Hún hafði verið kyrkt.
Le var lágvaxin, rétt tæpir 150
sentímetrar á hæð, og grönn.
Kjallarinn, þar sem hún fannst,
hýsir nagdýr, einkum mýs, sem not-
uð eru í tilraunaskyni í skólanum.
Starfsfólk og nemendur við Yale
voru eðli málsins samkvæmt felmtri
slegin yfir ódæðinu. Lögregla reyndi
þegar í stað að draga úr ótta þeirra
með yfirlýsingu þess efnis að ekkert
benti til þess að Le hefði verið myrt
af handahófi. Morðinginn hefði að
öllum líkindum ætlað að bana henni.
„Það er enginn annar í hættu,“ sagði
talsmaður lögreglunnar þegar á
mánudag.
Innanbúðarmaður grunaður
Ekki lægðu þau ummæli öldurnar
að neinu marki.
„Ég er hætt að ganga ein um há-
skólasvæðið að kvöldlagi,“ hafði
sjónvarpsstöðin NBC eftir Natoya
Peart, 21 árs nema frá Jamaíku.
„Þetta getur komið fyrir hvern sem
er, hvar sem er, hvenær sem er.“
Michael Vishnevetsky, 21 árs
nemi frá New York, kvaðst ekki vera
öruggur þegar hann færi á tilrauna-
stofuna sína lengur – enda þótt hún
væri í allt annarri byggingu. „Mér
líður allt öðruvísi nú en áður,“ sagði
hann áhyggjufullur.
Enginn kemst inn í bygginguna
við Amistad-stræti nema hafa að-
gangskort og lögreglu grunaði fyrir
vikið strax að innanbúðarmaður ætti
í hlut.
Böndin beindust strax á mánu-
daginn að tæknimanni á tilrauna-
stofunni, Raymond Clark að nafni.
Lögregla yfirheyrði hann og þótti í
kjölfarið ástæða til að setja hann í
lygapróf. Clark féll á því. Þá vakti
það grunsemdir lögreglu að hann
var skrámaður á bringunni. Það var
þó ekki fyrr en að fengnum nið-
urstöðum úr DNA-prófi að lögregla
tók Clark höndum, síðastliðinn
fimmtudag. Var hann leiddur burt í
járnum og lögreglustjórinn í New
Haven, James Lewis, upplýsti við
það tækifæri að fleiri lægju ekki
undir grun í málinu. Hann bætti því
við að margvíslegar sannanir lægju
fyrir.
Lewis skilgreindi morðið sem
„vinnustaðaglæp“ sem mun vera
vaxandi vandamál vestra.
Clark, sem er 24 ára gamall, hafði
starfað um skeið á tilraunastofunni
en ekki liggur ennþá fyrir hvort eða
hvernig þau Le þekktust.
Þegar Clark var leiddur fyrir
dómara tók hann ekki afstöðu til
ákærunnar en trygging var ákveðin
þrjár milljónir Bandaríkjadala.
Nemendur við Yale hafa minnst
Annie Le með kyrrðarstundum í vik-
unni og kveikt á kertum í virðing-
arskyni við hina látnu.
Reiknað er með að skólastarf
verði með eðlilegum hætti í næstu
viku en öryggisgæsla verður hert.
Morð skekur Yale
Annie Le, doktorsnemi við Yale-háskóla, hvarf sporlaust á þriðjudegi og á sunnudegi
fannst lík hennar milli þils og veggjar í kjallara byggingar sem hýsir tilraunastofur
Reuters
Fórnarlambið Myndin sem öryggismyndavélar náðu af Annie Le fara inn í
húsakynnin við Amistad-stræti. Hún kom ekki út úr byggingunni á lífi.
Ævintýraleg og spenn-
andi saga af ánauð
og frelsun sterkrar
konu. Steinunn setur
Tyrkjaránið og hugar-
heim forfeðra okkar,
nyrðra og syðra, í
spennandi samhengi í þessu heillandi
skáldverki. Skyldueign á hverju heimili.
Metsölubók Steinunnar Jóhannesdóttur
um ævi Guðríðar Þorbjarnardóttur
er loksins fáanleg að nýju.
Loksins fáanleg aftur