Morgunblaðið - 20.09.2009, Blaðsíða 11
Æ, æ,æ, æ María Kristjánsdóttir leiklist-
argagnrýnandi var ekki hrifin af Fridu.
’
„Það er ýmislegt sem hrærist inn-
an í manni núna þegar þetta er
loksins í höfn. Maður finnur fyrir
einhverjum tilfinningum sem mað-
ur átti eiginlega ekkert von á og
núna labba ég bara um í lausu
lofti.“
Andri Marteinsson, þjálfari Hauka,
eftir að lærisveinar hans tryggðu sér sæti í efstu
deild í knattspyrnu.
„Ég verð nú að segja eins og er, mér finnst líf mitt
þessa hálfa öld hafa verið ágætis ævintýri.“
Kristján Már Unnarsson fréttamaður sem varð fimm-
tugur í vikunni.
„Hver maður verður að ráða sinni lífsstefnu sjálf-
ur.“
Jón Böðvarsson íslenskufræðingur.
„Vel heppnaður desert bjargar ekki miðlungs mál-
tíð.“
Arnar Eggert Thoroddsen í dómi í Morgunblaðinu um
tónleika Jethro Tull í Háskólabíói.
„Æ, æ, æ, æ“
Fyrirsögn leikdóms Maríu Kristjánsdóttur um Frida …
viva la vida í Þjóðleikhúsinu.
„Ég trúi því staðfastlega að ábyrgð á glæp liggi
hjá þeim sem kjósa að fremja hann, en ekki hjá
þeim sem verða fyrir honum.“
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, höfundur bókarinnar Á
mannamáli, sem fjallar um kynbundið ofbeldi á Ís-
landi.
„Taylor, ég samgleðst þér virkilega og ætla að
leyfa þér að ljúka ræðunni, en myndband Beyoncé
er eitt það besta sem nokkurn tíma hefur verið
gert.“
Rapparinn Kanye West sem tók hljóðnemann af söng-
konunni Taylor Swift í miðri þakkarræðu á MTV-
verðlaunahátíðinni í New York. West fékk almennt
bágt fyrir.
„Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn og
taka þessari stöðu með opnum huga. Ég hef haft
það að leiðarljósi að vera jákvæður og ekki
svekkja mig yfir hlutunum. Maður fær ekki vinnu
með því.“
Helgi Einarsson sem verið hefur án atvinnu frá ára-
mótum.
„Ég verð farinn að rífa kjaft á frönsku eftir nokkr-
ar vikur.“
Eiður Smári Guðjohnsen, nýr leikmaður Mónakó í
frönsku úrvalsdeildinni. Hann er annálaður tungu-
málamaður.
„Og þó naktar í neyðinni séum við, íslensku kon-
urnar, þá spinnum við enga brók á hórkarla fjall-
konunnar. Ekki svo lengi sem í mér rennur blóð
Hallgerðar langbrókar.“
Aldís Baldvinsdóttir á opnum fundi Hagsmuna-
samtaka heimilanna.
„Guð skapaði mig eins og ég er og ég er sátt við
það.“
Suðurafríska hlaupadrottningin Caster Semenya en
styr hefur staðið um kyn hennar.
Ummælin 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
Björn Már Ólafsson, nemandi á nátt-
úrufræðibraut í Menntaskólanum í
Reykjavík, fékk viðurkenningu fyrir
bestu ritgerðina í ritgerða-
samkeppni í framhaldsskólum sem
efnt var til á degi fjármálalæsis. Rit-
gerðin fer hér á eftir.
Fyrir 20 árum þótti kynlíf hið
mesta feimnismál. Fyrir þann tíma
þóttu þeir sem ræddu opinskátt um
kynlíf „uppreisnarseggir“ og var oft-
ast reynt að þagga niður í þeim og
skoðununum sem þeir tjáðu öðrum.
Síðan var eins og tímarnir breyttust
og aðstæður í heiminum urðu frjáls-
lyndari. Gerð voru kennslu-
myndbönd til kynfræðslu í skólum
og alls staðar fór að ríkja sam-
félagsleg sátt um að í lagi væri að
ræða kynlíf opinskátt. Þessi þróun
virðist því miður ekki hafa átt sér
stað í fjármálum og er það greini-
lega að koma í ljós á tímum sem
þessum. Af hverju er „tabú“ að ræða
fjármál opinskátt? Alvarleg vanda-
mál geta komið upp hjá ungu fólki
jafnt í fjármálum sem og í kynlífi og
er ein helsta forvörn beggja mála
opin umræða þar sem unglingurinn
sjálfur fær að tjá skoðanir sínar.
Einnig eru bæði tilvik vandamál sem
snerta ekki einungis unglinga heldur
fólk á öllum aldri. Allir einstaklingar
eiga að hafa þann rétt að geta lært á
eigin fjármál á sem flestum mennta-
og atvinnustigum og framboðum af
fjármálanámskeiðum verður aldrei
ofaukið.
Eitt aðalvandamálið við kynlíf
unglinga fyrir 20 árum var fáfræðsl-
an.
Lítil kennsla var í skólum og upp-
lýsingar um kynlíf var erfitt að nálg-
ast.
Á heimilunum var kynlíf „tabú“ og
því lítið hægt að fræðast um hættur
og áhættur kynlífs þar. Afleiðing-
arnar af þessu voru ótímabærar
þunganir og kynsjúkdómar. Lýsing-
unni á þessu ástandi svipar mjög til
ástands fjármálalæsis í dag. Engin
kennsla er í skólum, ekki má ræða
fjármál á heimilunum og um afleið-
ingarnar af þessu má lesa í dag-
blöðum á degi hverjum. Fólk á öllum
aldri eyðir um efni fram, skuldsetur
sig langtum meira en æskilegt er og
sýnir óábyrga hegðun í fjármálum.
Af hverju eru fjármál „tabú“ á heim-
ilunum? Laun og skuldsetning eru
mál sem foreldrar vilja sem minnst
tala við börnin sín um, en þetta
þagnarbindindi skapar fleiri vanda-
mál en það leysir. Einhvers staðar
verður fólk að læra hversu mik-
ilvægur sparnaður og ábyrgðarfull
lántaka er og hvernig hún getur skil-
að sér til frambúðar.
En hvar skal hefjast handa? Alveg
eins og með kynfræðslu er nauðsyn-
legt að kenna fólki ábyrga hegðun
áður en því er hent út í djúpu laug-
ina. Að hefja kennslu fjármálalæsis
á framhaldsskólastigi er til dæmis of
seint, því þá hafa flestir krakkar
þegar fengið smjörþefinn af því
hvernig er að hafa pening á milli
handanna í gegnum unglingavinnu.
Alveg eins á kynfræðsla að hefjast
áður en unglingar verða kynþroska,
ekki eftir. Að sama skapi verða for-
eldrar að gera börnin sín meðvit-
aðari um peninga, útgjöld og eyðslu
auk þess sem að allir unglingar ættu
að læra að lesa á sinn eigin launa-
seðil því þótt ótrúlegt sé eru fjöl-
margir unglingar sem kunna það
ekki! Stutt leit á netinu sýnir að einu
stofnanirnar sem reglulega halda
fjármálanámskeið fyrir unglinga eru
bankarnir. Sömu bankarnir og gáfu
fólki fjármálaráðleggingar fyrir
hrun sem hafa komið mörgum heim-
ilum í vandræði. Þykir fólki allt í lagi
að bankarnir séu þeir einu sem
kenna ungu fólki á fjármál eftir
þeirra hagsmunum? Kennsla í fjár-
málalæsi verður að færast á breiðari
grundvöll, heimili verða að aflétta
þögninni, skólar verða að koma því á
námskrána og samfélagið verður að
viðurkenna vandamálið: Fjármál eru
ekki feimnismál!
Morgunblaðið/Heiddi
Verðlaun Björn Már Ólafsson, nemandi á náttúrufræðibraut í MR, fékk
verðlaun fyrir bestu ritgerðina í ritgerðarsamkeppni sem fram fór á Degi
læsis. Það var Breki Karlsson sem afhenti Birni viðurkenninguna.
Fjármál eru ekki
feimnismál
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
www.rannis.is/visindavaka
Menntamálaráðuneytið
Iðnaðarráðuneytið
...kl. 20.00 – 21.30 hvert kvöld
21. 22. 23. & 24. september...
Vísindakaffi á Súfistanum í Reykjavík:
Mánudagur 21. september
Sturlunga: Handbók fyrir ráðvillta nútímaþjóð
Dr. Guðrún Nordal forstöðumaður Árnastofnunar fjallar um hvernig fíkn
ungra karlmanna í völd og fé réði miklu um fall í íslensku samfélagi í tíð Sturlunga. Þetta
þykir mörgum ríma óþægilega við atburði nútímans. Alvarlegt málefni með léttum undirtóni!
Þriðjudagur 22. september
Veistu hvað þú vilt? - neytendasálfræði og markaðssetning matvæla.
Dr. Valdimar Sigurðsson frá viðskiptadeild HR fjallar um greiningu og mótun neytenda-
hegðunar í verslunum. Er hægt að breyta verslun í tilraunastofu? Er eitthvað að marka
neytendur?
Miðvikudagur 23. september
Harðsnúin klíka föðurlandssvikara
Magnús Árni Magnússon forstöðumaður Félagsvísindastofnunar HÍ fjallar um umræður
um ESB aðild Íslands og rökin sem notuð eru í henni af fylgjendum og andstæðingum.
Umræðan er borin saman við umræðuna á Möltu og skoðað hvað er líkt og ólíkt með
umræðunni á eyjunum tveimur.
Fimmtudagur 24. september
Forvarnir í læknisfræði - Góðmennska á villigötum?
Dr. Jóhann Ágúst Sigurðsson yfirlæknir Þróunarstofu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og
Dr. Linn Getz trúnaðarlæknir á LSH og dósent við læknadeild NUST, velta upp gildi forvarna
og heilsuverndar og hvort of mikið sé gert úr sölu á þjónustu til hinna frísku á kostnað þeirra
veiku og þannig gert meira úr vandamálum en efni standa til.
Vísindakaffi á Norðurlandi:
Í ár verður einnig boðið upp á Vísindakaffi á Norðurlandi sem hér segir:
Fimmtudagur 24. september. Friðrik V. á Akureyri.
Mun Eyjafjörður gera okkur að ríkasta fólk í heimi?
Spekingarnir sem hefja spjallið koma frá Háskólanum á Akureyri, Hreiðar Þór Valtýsson
lektor, Jón Þorvaldur Heiðarsson lektor og Steingrímur Jónsson
prófessor. Pétur Halldórsson útvarpsmaður stýrir.
Fimmtudagur 24. september. Kaffi Krókur, Sauðárkróki.
Er vit í vísindum á landsbyggðinni?
Hvert er förinni heitið? Háskólinn á Hólum og Rannís boða til
umræðna um hlutverk vísinda og rannsókna á landsbyggðinni.
Umræðum stýrir Þórarinn Sólmundarson,
Byggðastofnun.
Í aðdraganda Vísindavöku er hellt upp á hið sívinsæla Vísindakaffi, þar sem
fræðimenn munu kynna rannsóknir sínar fyrir almenningi
Vísindakaffi 2009
Kaffistjóri er Davíð Þór Jónsson
Allir velkomnir. Láttu sjá þig!