Morgunblaðið - 20.09.2009, Blaðsíða 47
Menning 47FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
• Lítil en rótgróin bílaleiga. Auðveld kaup.
• Þekkt skyndibitakeðja.
• Rótgróin heildverslun með gjafavörur. Auðveld kaup.
• Lítil heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 80 mkr. Hentar vel til
sameiningar.
• Þjónustufyrirtæki sem selur um 600 fyrirtækjum þjónustu sína.
Ársvelta 100 mkr.
• Vinsælt veitingahús. Ársvelta 230 mkr.
• Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að þjónustu- og innflutningsfyrirtæki.
Ársvelta áætluð um 200 mkr. Ágætur hagnaður.
• Heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 170 mkr. Mjög skuldsett.
• Meðeigandi óskast að nýju framleiðslufyrirtæki.
Reiknað er með 30-35% árlegri ávöxtun eigin fjár næstu árin.
• Sérverslun með fatnað á góðum stað. Ársvelta 150 mkr. Góð framlegð.
• Iðnfyrirtæki í matvælaframleiðslu með mikinn og vaxandi útflutning.
Ársvelta 240 mkr.
• Rótgróið iðnfyrirtæki. Ársvelta 450 mkr.
• Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki í byggingariðnaði. Ársvelta 400 mkr.
Hagstæðar skuldir.
• Rótgróið innflutnings- og framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 130 mkr.
• Þekkt innflutningsfyrirtæki með eigin verslanir. Ársvelta 240 mkr.
EBITDA 35 mkr. Hagstæðar skuldir.
– má nýta kreppuna t i l auk ins kynja jafnré t t i s?
Kvenréttindafélag Íslands
Kyn og kreppa sf
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
FLESTIR þekkja eflaust svokall-
aðar þrívíddarmyndir, en þá starir
fólk á tvívíða mynd þar til hún verð-
ur þrívíð. Ferðalangar rekast títt á
slíkar myndir á göngugötum úti í
heimi og það ku vera vinsælt að
senda slíkar myndir manna á milli í
tölvupósti.
Sú var tíðin að öll börn áttu leik-
fang til þess að skoða þrívíðar
myndir, View-Master, með hring-
laga myndskífum. Þar voru hliðr-
aðar myndir settar saman og fyrir
vikið birtist í græjunni þvívíð mynd.
Þrívíðu myndirnar sem hér koma
við sögu eru allt annars eðlis, þ.e.
þær eru þrívíðar, en til þess að sjá
þær verða menn að beita augunum
á sérstakan hátt, horfa á viðkom-
andi mynd nánast úr fókus og bíða
þolinmóðir þar til rétta myndin
birtist. Myndirnar sem View-
Master birtir eru kallaðar „stereog-
ram“ upp á ensku, en þær myndir
þar sem þrívíða myndin er „falin“
kalla menn yfirleitt „autostereog-
ram“ eða „Single Image Random
Dot Stereogram“, SIRDS (sem eru
þó ekki alveg það sama). Ef menn
leita eftir SIRDS á Google finna
þeir tugi þúsunda mynda svo það er
nóg við að vera. Ekki þarf þó lengi
að leita til að átta sig á að flestar
bestu myndirnar eru eftir einn og
sama manninn, náunga sem kallar
sig 3Dimka.
3Dimka á myndasögn víða um
netið en eitt það besta er á vefsetr-
inu deviantART, www.deviant-
art.com, sem er frábær vettvangur
fyrir ýmiskonar jaðarlist. Síða
3Dimka á deviantART er á slóðinni
3dimka.deviantart.com og þar er að
finna grúa mynda hans, þar á meðal
þá mynd sem fylgir þessari grein.
Leikar æsast
Myndefnið er fjölbreytt, víst eru
dónamyndir á sínum stað, eins og
svo víða á deviantART, en fjölmarg-
ar myndir eru bara með hefðbundið
myndefni, jarðarber, fiðrildi, texta
og ýmis þrívíð form. Leikurinn tek-
ur þó að æsast þegar komið er út í
þrívíðar hreyfimyndir þar sem
bregður fyrir ýmislegum tann-
hjólum og vélum, taflborði sem er á
sífelldi hreyfingu og svo hlaupandi
hesti. Leikirnir eru svo annað mál
og enn magnaðra; hægt er að spila
Tetris í þrívídd, en þeir sem það
gera ættu að gæta sín á því að spila
ekki of lengi, til að forðast höf-
uðverk. Inni í leikjunum er líka ein-
falt tól til að búa til þrívíðar myndir
sem menn geta dundað sér við, en
það tól er líka aðgengilegt á öðrum
stað.
Þeim til huggunar sem sjá svo
ekkert, sama hvað þeir stara, má
geta þess að 3Dimka bjó til lítið for-
rit til að hjápa fólki að sjá SIRDS-
myndir.
Tvívíðar þrívíðar myndir
SIRDS-mynd/3dimka
Þrívídd Ef myndin prentast vel sést íkorni þegar rýnt er í hana. Ef hún
prentast illa þá má sjá íkornann og fleiri þrívíð fyrirbæri á vefsetri 3dimka.
VEFSÍÐA VIKUNNAR: 3DIMKA.DEVIANTART.COM»
ÍSLANDSVINIRNIR í Rammstein
gefa út nýja plötu í október, Liebe
Ist Für Alle Da. Þegar kemur að því
að hneyksla, hræra í viðteknum við-
miðum og varpa upp spurningum
um hvað má og hvað ekki má eru
Rammstein-liðar nokkurs konar
völundar. Og mögulega hafa þeir
toppað sjálfa sig í þetta skipti.
Fyrsta smáskífa plötunnar, sem ber
hið fróma og settlega nafn „Pussy“,
kom út rétt fyrir helgi og meðfylgj-
andi myndband hefur vakið mikla
athygli, líkt og reyndar flest þau
sem sveitin hefur látið frá sér.
Í mjög svo glúrinni markaðs-
setningu var það frumsýnt á klám-
vef, og þurfti væntanlegur áhorf-
andi að staðfesta aldur sinn líkt og
tíðkast með síður af þeim toga.
Myndbandið hefst svo með leik-
rænum tilþrifum í kringum ásta-
leiki meðlimanna með hinum ólík-
ustu konum, allt á ljósbláu
nótunum, en rétt undir lokin breyt-
ist sú áferð skyndilega – og mynd-
bandið verður dökkblátt. Vel dökk-
blátt meira að segja.
Það þarf ekki að koma á óvart að
frétt þessa efnis er ein sú vinsæl-
asta á fréttagáttinni eyjan.is. Mann-
skepnan er söm við sig, hvatvíst dýr
inn við beinið en vangaveltur um
þann þátt eru nokkuð sem Ramm-
stein-menn hafa m.a. hent á loft
margsinnis á sínum á ég að segja
„glæsta“ ferli?
arnart@mbl.is
Strippalingar Hvað getur maður sagt um þessa meistara?
Rammstein fer alla leið