Morgunblaðið - 20.09.2009, Page 18
18 Kvikmyndir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
frumsamda handritið árið 2007
(Juno).
Funny People
Leikstjóri: Judd Apatow. Aðalleik-
arar: Adam Sandler, Seth Rogen,
Leslie Mann, Eric Bana.
George (Sandler) er vinsæll
uppistandari sem fær að vita að
hann á ekki eftir langt eftir ólifað.
Ira (Rotgen) er að berjast við að ná
fótfestu í listgreininni en gengur
hvorki né rekur fyrr en leiðir mann-
anna tveggja liggja saman.
OKTÓBER
Stúlkan sem lék sér að eldinum/
Flickan som lekte med elden /
The Girl Who Played With Fire
Leikstjóri Daniel Alfredson. Aðal-
leikarar: Noomi Rapace, Michael
Nyquist, Per Oscarsson, Lena
Endre.
Metsölubækurnar kenndar
við Millennium gera það ekki
síður gott í kvikmyndaútgáfu.
Sú fyrsta, Karlar sem hata kon-
ur, hlaut metaðsókn í sumar og
nú er mynd númer tvö í sjónmáli.
Stúlkan sem lék sér að eldinum
segir áfram frá blaðamanninum
Mikael Blomkvist og vinkonu hans
og hjálparhellu, pönkaða tölvuhakk-
aranum Lisbeth Salander. Þeir sem
sáu fyrstu myndina renna örugglega
grun í hvað þessi hefur að geyma,
það er aðeins óhætt að fullyrða að
hún veldur engum vonbrigðum,
æsispennandi, hröð og
grimm eins og bæk-
urnar. Þriðja og
síðasta
myndin í
þrennunni,
Luftslottet
som
Eftir Sæbjörn Valdimarsson
saebjorn@heimsnet.is
Þ
að sem í fljótu bragði ein-
kennir myndirnar sem
verða frumsýndar í haust
og fyrripart vetrar er
mikil fjölbreytni. Auðvit-
að er mikið af hefðbundnu efni en inn
á milli er sægur verka af óvenjulegri
meiði og ótrúlegur fjöldi íslenskra
mynda mun stytta okkur stundir í
allan vetur.
SEPTEMBER
District 9
Leikstjóri: Neill Blomkamp. Aðalleik-
arar: Jason Cope, Nathalie Boltt
Allt frá því að Orson Welles
hræddi líftóruna úr milljónum
manna með War of the Worlds árið
1938 hefur almenningur haft yndi af
því að láta kvelja sig með óhugnaði
yfirvofandi innrásar geimvera. Hin
suðurafríska District 9 er sú nýjasta
í þessum hópi, lítil og ódýr en
áhrifarík og hitti beint í mark.
Jennifer’s Body
Leikstjóri: Karyn Kusama. Aðalleik-
endur: Megan Fox, Amanda Seyfried,
Adam Brody.
Megan Fox (Transformers) er ein
heitasta kvenstjarnan í dag, Jenni-
fer’s Body getur því flokkast undir
hinar lokkandi hrollvekjur með kyn-
þokka. Jennifer er aðalaðdrátt-
araflið í gaggó í litlum bæ, og eins
og það eitt sé ekki nóg til að rogast
með er hún andsetin blóðþyrstum
djöfli. Gerir hún sér dælt við auð-
trúa drengstaula, tælir þá á afvikna
staði og sýgur úr þeim blóðið. Gæti
verið skemmtileg viðbót við formið,
því handritið skrifar Diablo Cody,
óskarsverðlaunahafinn fyrir besta
sprängdes, verður frumsýnd
skömmu eftir áramót.
The Surrogates
Leikstjóri: Jonathan Mostow. Aðal-
leikarar: Bruce Willis, Radha Mitch-
ell, Rosamund Pike, Boris Kodjoe.
Bakhjarlar Terminator 3 kanna
framtíðina í vísindafantasíu um
mannkyn sem býr í einangrun og
fullkomin vélmenni annast
öll tjáskipti manna í mill-
um. Willis leikur alrík-
islögreglumann sem
lendir í bragðvondu
máli og verður að
yfirgefa öryggi
heimilisins til að leysa ískyggilega
morðgátu.
Fame
Leikstjóri: Kevin Tancharoen. Aðal-
leikarar: Paul Iacono, Kristy Flores,
Naturi Naughton, Kay Panabaker,
Kherington Payne.
Endurgerð samnefndrar myndar
frá 9. áratugnum, fjallar sem fyrr
um hóp efnilegra lista-
skólanema. Þeir sökkva
sér niður í dans, laga-
smíðar, leiklist, í von
um að slá í gegn.
Verða stjarna, fyrr
en síðar.
Haunting In Conn-
ecticut
Leik-
stjóri:
Peter
Cornwell. Aðal-
leikarar: Virginia
Madsen, Kyle Gallner,
Elias Koteas, Martin
Donovan.
Víðar er reimt en á
Kili, Connecticut er
frægt draugabæli,
a.m.k. á tjaldinu. Að
því komast Campbell-
hjónin (Madsen, Do-
novan) þegar þau
flytja inn í hrörlegt
leiguhúsnæði í ríkinu.
Ástæðurnar eru eink-
um þær að húsnæðið á
sér ljóta sögu, var m.a.
frægt pútnahús á kreppuár-
unum og vafra gamlir kúnnar
um ganga og haga sér dólgslega.
Byggð á „sönnum“ atburðum.
9
Leikstjóri: Shane Acker. Teiknimynd.
Aðalraddir: Elijah Wood, Jennifer
Connelly, Christopher Plummer.
Teiknimyndin 9 kemur úr smiðju
Tims Burtons sem framleiðir en
leikstjórn er í höndum Shanes Ac-
kers. Hún er í fullri lengd en byggð
á stuttmynd Ackers sem færði hon-
um Óskarinn árið 2004. Að hætti
Burtons er 9 heldur dökk ásýndum,
framtíðarsýn sem á að gerast á
næstu árum. Vélbúnaður á jarðríki
hefur rottað sig saman og er kominn
í stríð um heimsyfirráð við mann-
kynið, sem hann er búinn að koma í
uppnám. Myndin verður sýnd með
ensku og íslensku tali.
Julie and Julia
Leikstjóri: Nora Ephram. Aðalleik-
arar: Meryl Streep, Amy Adams,
Stanley Tucci
Streep leikur hinn heimskunna
matreiðslusnilling og metsölukokka-
bókahöfund Juliu Child og annar
stórleikari, Tucci, leikur mann henn-
ar. Þriðji gæðaleikarinn, Adams, fer
með hlutverk bloggarans Julie Pow-
ell, sem gerði garðinn frægan fyrir
nokkrum árum þegar hún eldaði alla
rétti frú Child. Sannkölluð kvenna-
mynd og leikstýrt af einum helsta
kvenleikstjóranum í dag, Noru
Ephron (You’ve got Mail, Sleepless
in Seattle). Byggð á sögum Júlíanna
beggja; Julie and Julia, eftir Powell,
og My Life In France eftir Child.
Michael Jackson This is It
Leikstjóri: Kenny Ortega. Heim-
ildamynd um Michael Jackson o.fl.
Undir mánaðamótin okt./nóv.
verður frumsýnd um heim-
inn ný heimildamynd um
poppgoðið Michael Jack-
son. Eins og flestir vita
er hann nýfallinn frá
og var þá í miðju kafi
að æfa dagskrá með
nýjum dönsum og tón-
list. Myndin fjallar um
þennan annars lítt
Fjölbreyttar og óvenju-
legar myndir á leiðinni
Frægð! Enn dreymir unga listaskólanema um
frægð og frama. Núna í endurgerðri mynd.
Bella og blóðið Sagnabálkurinn sem kenndur er við ljósa-
skiptin heldur áfram. Áfram er hermt af ástarævintýri.
Nían Lítil og ódýr mynd um geimverur, en
hittir í mark. Hún er heldur dökk ásýndum.
Michael Konungur poppsins, Michael Jackson, var að undirbúa tón-
leika þegar hann lést. Heimildarmyndin fjallar um undirbúninginn.
Staðgenglar Bruce Willis verður að yfirgefa öryggi heim-
ilisins til að leysa ískyggilega morðgátu í framtíðartrylli.
Kolsvart grín Efnafræðiprófessor á í basli með
konuna sína, bróðurinn, soninn og dótturina.
Kassinn Cameron Diaz fær dularfullan kassa,
en böggull fylgir skammrifi sem kostar líf.
Við erum að sleppa út úr því árvissa tímabili þegar
sumarsmellirnir eru að lognast út af en metnaðarfullar
haust- og vetrarmyndir að koma sér í startholurnar.
Kíkjum nánar á bíómyndaúrvalið til jóla.
Kokkurinn Meryl
Streep er Helga Sig-
urðar Bandaríkja-
manna, eða Julia Child.