Morgunblaðið - 20.09.2009, Side 29
Ljósmyndir: Árni Sæberg
Texti: Freysteinn Jóhannsson
tók saman
Þ rídrangar standa um10 km vestur afHeimaey og eru íraun fjórir; Stóri-drangur eða Hái-
drangur, Þúfudrangur og Klofa-
drangur og sá fjórði nafnlaus.
Í Sögu Vestmannaeyja nefnir
Sigfús M. Johnsen sölvatekju við
Þrídranga. Á Heimaslóð segir að
Eyjamenn hafi ekki farið oft út í
Þrídranga sökum þess hve langt er
að fara, en Austur-Landeyingar
fóru gjarnan þangað til þess að nýta
söl og stunda selveiði. Brezkir tog-
arasjómenn nefndu Þrídranga æv-
inlega „Three Fingers“.
Þrídrangar eru hornsteinn í goð-
sagnalandslagi Rangárhverfis sam-
kvæmt kenningum Einars Páls-
sonar.
Þar slútir bergið framyfir sig
Árið 1938 var lagður vegur upp í
Stóradrang og árið eftir var reistur
þar viti og þyrlupallur nokkrum ár-
um síðar. Í Sjómannadagsblaði
Vestmannaeyja 1966 er grein eftir
Eyjólf Gíslason; Þrídrangaviti og
bygging hans.
Eyjólfur segir að eftir að sókn á
Vestur- og Norðvesturslóðina; vest-
an Einidranga og Þrídranga, jókst
hafi landtakan verið mjög erfið og
hættuleg í dimmviðrum og nátt-
myrkri áður en vitinn kom á Þrí-
dranga.
Eyjólfur vitnar til Árna G. Þór-
arinssonar sem hafði verkstjórn á
hendi með flutninga á efni til vita-
byggingarinnar. Árni segir:
Það fyrsta sem varð að gjöra var
að leggja veg upp í dranginn, því
það var ófært öllum, þó þeir væru
fjallamenn. Til þess voru valdir góð-
ir fjallamenn, þeir voru: Þorsteinn
Sigurðsson Melstað Vestm., Hjálm-
ar Jónsson Dölum og Svavar Þór-
arinsson Suðurgarði, allir Vest-
mannaeyingar. Það var farið með
grjótbora, hamra, keðju og klemm-
ur til að setja keðjuna fasta með.
Þetta höfðu þeir allt með sér og
ströng fyrirmæli um að fara varlega
og bolta sig áfram upp ef með
þyrfti. Svo leggja þeir af stað og
gengur allt vel þar til þeir eru
komnir upp undir brún, þar slútir
bergið framyfir sig og því engin
handfesta og lítil fótfesta. Bjóst ég
nú við að þeir tækju til við að bora
fyrir boltum til þess að hafa þó að
minnsta kosti fast fyrir fæturna, en
þeir voru nú ekki að tefja sig á því,
heldur leggst einn af þeim á fjóra
fætur utan í bergfláann, svo skríður
annar uppá bakið á honum og
stendur með fætur á öxlunum, svo
klifrar sá þriðji upp þessa tvo, sem
búnir voru að stilla sér upp, þá tekst
honum að ná handfestu uppi á brún-
inni og vega sig alveg upp. Ég ætla
ekki að lýsa því hvernig mér leið
meðan þeir voru að þessu glæfra-
spili …
Þriggja ára bið eftir ljósabúnaði
Einn þremenninga, Hjálmar
Jónsson frá Dölum, skrifaði lýsingu
á uppgöngu þeirra félaga: Upp-
gangan gekk frekar greitt. Þegar
við komum upp undir efsta bring-
inn, þá urðum við að styðja hver
annan, þannig að ég stóð neðstur,
Svavar stóð fyrir ofan mig þannig
að hann tyllti öðrum fæti í bergið en
stóð með hinni á öxl minni, svo varð
Þorsteinn að klífa upp bakið á Svav-
ari og komst hann þannig upp á
brún. Hann hafði tó fast við sig, svo
við komumst upp á því strax og
hann var kominn upp.
Síðan fórum við rannsóknaför um
dranginn, þar fundust tvær fall-
byssukúlur, 30 kg þungar, sem við
náðum, og eru þar margar kúlur af
sömu gerð kafreknar í bergið.
Stærð drangsins: Áætluð breidd
17-20 metrar, hallar frá vestri til
austurs, ca. 5-7 metr. halli, lengd
gangfær alls 40-50 metr. ca. 28-34
mtr. hallar suður, ca. 3-4 metr. (
hæð þar sem helzt er vitastæði ca.
30-40 metr.) nyrzt skerst upp
hyrna, sem myndar egg efst, ca. 8-
10 metr. hærri en flötur drangsins,
sú hyrna er ókleif.
Við lögðum járnkeðju ofan af
brún á miðjum drang að vestan og
skáhallt niður að sjávarmáli móti
SV, lengd keðjunnar er ca. 45 metr.,
festum við keðjuna með járnboltum,
sem við urðum að bora fyrir í bergið
og reka þá síðan í holurnar.
Á drangnum er mjög lítill gróður;
dálítið skarfakál, fuglalíf einhliða,
ca. 80-90 fýlungar.
Þetta var 1938 og í júní árið eftir
voru menn, efni og matur flutt í
drangann og allt borið og dregið
upp keðjuna. Bygging vitahússins
tók langt í mánuð, en ljósaútbún-
aður varð innlyksa í Danmörku
vegna hernámsins og varð að fá
annan frá Bretlandi. Sá kom ekki
fyrr en í maímánuði 1942. Í júl-
íbyrjun er búið að ganga frá ljósa-
búnaði og segir Eyjólfur Gíslason:
Það var gleðilegt að sjá vitann
kveðja okkur með ljósmerkjum sín-
um í þessari síðustu ferð í bygg-
ingasögu þessa vita, sem allt hafði
gengið svo vel og slysalaust.
Og Eyjólfur bætir við að vita-
byggingin á Þrídröngum sé senni-
lega ein hin allra erfiðasta sem
framkvæmd hefur verið við Íslands-
strendur.
Fyrsti skerjavitinn
Í bókinni Vitar á Íslandi - leið-
arljós á landsins ströndum 1878-
2002 eftir Guðmund Bernódusson,
Guðmund L. Hafsteinsson og Krist-
ján Sveinsson er Þrídrangavita svo
lýst, að ljóshúsið sé sívalt og sænskt
með eirþaki og veggjum úr járn-
steypu. Vitinn var raflýstur með
sólaorku 1993.
Þrídrangaviti er 4 m há ferstrend
bygging. Á henni er mjótt þakskegg
og yfir því steinsteypt handrið með
ferhyrndum opum. Einar dyr eru á
vitanum og til hliðar við þær gluggi
með hleðslugleri. Vitinn, sem var
húðaður með ljósu kvarsi, var kú-
staður með hvítu þéttiefni 2001.
Þrídrangaviti og Miðfjarðarskers-
viti eru fyrstu skerjavitarnir hér við
land.
KLIFRUÐU
HVER UPP
EFTIR ÖÐRUM
Bygging vitans á Þrídröngum þykir ein erfiðasta
framkvæmd sinnar tegundar við Íslandsstrendur.
Þrídrangar Ekki aðeins kennileiti fyrir sæfarendur heldur einnig goðsögulegur hornsteinn Rangárþings.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009
– meira fyrir áskrifendur
Mannauður
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Verðmætasta auðlind allra
fyrirtækja er mannauðurinn.
Sá sem hefur besta fólkið
stendur best að vígi.
Í sérblaðinu Mannauðurinn
skoðar Viðskiptablað
Morgunblaðsins leiðir til að
bæta starfsandann og styrkja
starfsfólkið.
• Hvernig má efla hópinn á erfiðum tímum?
• Hvað þurfa stjórnendur að temja sér til að
ná því besta úr starfsfólkinu?
• Hvaða námskeið og hópeflislausnir eru í
boði?
• Hvernig getur símenntun og sjálfsstyrking
bætt mannauð fyrirtækisins?
• Hvað í vinnuumhverfi og kjörum skiptir
mestu máli?
• Hvernig má laða að - og halda í - hæfasta
fólkið?
Mannauðsmálin verða krufin til
mergjar í veglegu sérblaði 8. október.
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Hvönn Karlsdóttir
569 1134 - 692 1010 - sigridurh@mbl.is
Auglýsendur!
Auglýsingapantanir eru í síma 569 1134
eða sigridurh@mbl.is til 5. október.