Morgunblaðið - 05.11.2009, Síða 6

Morgunblaðið - 05.11.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009 Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „VIÐ erum í raun á vergangi, sex manna fjölskylda. Við búum inni á ættingjum, sem átti bara að vera tímabundið en er núna orðið heilt ár og hvorki hægt að bjóða okkur né velviljuðum vandamönnum upp á lengur.“ Þannig lýsir kona á höfuðborgar- svæðinu stöðu fjölskyldu sinnar eftir bankahrunið. Konan, sem kýs að tala ekki undir nafni, segir fleiri vera í erfiðum málum vegna svip- aðra aðstæðna þótt það sé þögull hópur. Erfiða stöðu fjölskyldunnar má fyrst og fremst rekja til hárra vaxta á lánum sem hún tók í kjölfar kaupa á byggingarlóð í nýju hverfi árið 2006. Auk lóðarláns bauð bankinn upp á sk. brúarlán til byggingar nýja hússins og átti sala þáverandi heimilis þeirra að greiða upp lánið og rúmlega það. Þegar að því kom að selja húsið, í byrjun árs 2008, var fasteigna- markaðurinn hins vegar óðum að lokast og á meðan húsið seldist ekki hlóðust vextirnir af lánunum upp. Varfærnisleg áætlun sem lagt var upp með hefur nú skekkst um 20 milljónir. „Við höfum alltaf verið varkár og ekki staðið í neinu braski. Það var búið að reikna þetta allt saman út og auðvitað gerðum við ráð fyrir að borga ein- hverja vexti, en svo verður þessi of- boðslegi dráttur á að selja, sem enginn gerði ráð fyrir, og þá mynd- ast hálfgert panikkástand að borga niður vextina, sem margfaldast í vaxtabólunni 2008, áður en þeir kæfa mann,“ segir konan. Þegar kaupendur fundust loks að þáver- andi heimili fjölskyldunnar, í sept- ember í fyrra, var tilboðið um 10 milljónum lægra en fasteignamatið sagði til um. Þau þorðu hins vegar ekki annað en að taka því þar sem þeim var svo mikið í mun að losa eignina og greiða upp brúarlánið. Þar með stóðu þau, hjón með fjögur börn, uppi með fokhelda fasteign sem þau gátu ekki búið í, ekki selt og ekki lokið við. Þau voru því í raun á götunni en fengu inni hjá ættingjum við þröngan kost á meðan greiddist úr stöðunni. Síðan er liðið eitt ár, sem konan segir hafa einkennst af endalausri bið. „Við bundum alltaf vonir við að- gerðir fyrir heimilin. Ég hef verið mjög bjartsýn og búist við að það kæmi lausn á okkar málum. En núna þegar heilt ár er liðið og þessi lög komin um skuldavanda heim- ilanna er komið rosalegt óþol í mig að vita að hverju ég get gengið.“ Hún hefur leitað til lögfræðings til að fá aðstoð við að finna leið út úr vandanum en afar óljóst er hvort þær lausnir sem kynntar hafa verið eigi við aðstæður þeirra. Lítið gert úr vandanum Hjá bankanum hefur verið gefið í skyn að þau séu í raun ekki í nógu slæmri stöðu til að fá hjálp. „Okkur er sagt að við séum ekki í svo vond- um málum vegna þess að við gátum selt eignina okkar. Svo er bent á fólkið sem tók myntkörfulán sem hefur tvöfaldast og það skuldi því miklu meira. En við búum hvergi. Félagslega staðan okkar er mun verri en skuldastaðan segir til um.“ Konan segist nú orðið fá kvíða- hnút í magann af tilhugsun um að fara í bankann þar sem hún geti að- eins búist við neikvæðum svörum og óttist jafnvel að semja af sér. „Það er svo erfitt að fara í bank- ann og hafa einhverja rödd, þess vegna hef ég verið að bíða eftir þessum lögum sem við gætum byggt á og eygt von um að eiga ein- hvers staðar heima. En ég er að verða búin með mitt baráttuþrek.“ Morgunblaðið/RAX Fokhelt Fjölskyldan hefur ekki tök á að gera húsið íbúðarhæft og í ofanálag stefnir í að það muni standa í hálfgerðu draugahverfi næstu árin. Fjölskyldan á vergangi  Sex manna fjölskylda hefur búið inni á ættingjum síðan bankahrunið varð  Frost á fasteignamarkaði og háir vextir ollu 20 milljóna skekkju á áætlun „ENN sem komið er get ég ekki séð að ég hafi tapað neinu,“ segir Logi Geirsson, leikmaður þýska handboltaliðsins Lemgo, um fjár- festingar sínar í íbúðum í Þýska- landi, en þýskir fjölmiðlar velta því fyrir sér hvort leikmenn hafi verið plataðir í fast- eignabraski. „Þetta er ekki eins svart og sagt er.“ Logi segir að um 40 til 50 leik- menn í þýska handboltanum hafi lát- ið Benedict Capital sjá um fjárfest- ingar sínar. Fyrirtækið sjái um allt sem viðkomi kaupum á íbúðum, leigu þeirra, endursölu og geri skattaframtöl vegna þeirra. Viðkom- andi gögnum hafi ekki verið skilað aftur til leikmanna og sá sem hafi séð um viðskiptin hafi líka verið er- lendis í um tvo mánuði, en Logi seg- ist eiga fund með honum á morgun. „Ég veit alveg hvað ég hef keypt og er alveg rólegur yfir þessu,“ segir hann. steinthor@mbl.is „Ekki eins svart og sagt er“ Logi Geirsson sefur rólegur vegna eigna Logi Geirsson ALLS hafa um 250 starfsmenn Nýja Kaupþings smitast af nóró- veirunni frá því sl. fimmtudag. Að sögn Guðrúnar Sigmundsdóttur, yfirlæknis á sótt- varnasviði Landlæknis- embættisins, benda fyrstu nið- urstöður til þess að smitið hafi borist með matvælum innan fyrirtækisins. „Frekara smit með matvælum hefur verið stöðvað,“ segir Guðrún og tek- ur fram að sýking af völdum nóró- veirunnar sé vel þekkt á veturna og geti komið upp á bestu bæjum. Að sögn Guðrúnar er handþvottur ár- angursríkasta leiðin til að koma í veg fyrir smit. „Einnig mælum við með því að þeir sem sýkst hafa af veir- unni sýni ábyrgð og haldi sig heima einkennalausir í a.m.k. tvo daga.“ Nóróveiran sýkti um 250 starfsmenn Kaupþing Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is BENSÍNÞJÓFNAÐUR er vaxandi vandamál hér á landi og innheimtur slæmar hjá þeim brotamönn- um sem nást, auk þess sem mannekla hefur áhrif á eftirlit lögreglu. Í Lögbirtingablaðinu var nýlega lýst eftir manni, sem auk fleiri brota, hafði fimm sinnum dælt bensíni á bíl sinn og síðan ekið á brott án þess að borga. Ekki virðist um neitt einsdæmi að ræða, en að sögn Ingunnar Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra neytendasviðs hjá N1, er bensínþjófnaður vaxandi vandamál og verður fyrirtækið fyrir um 500-700 slíkum brotum á ári. Gera má ráð fyrir að Olíu- verslun Íslands og Skeljungur verði ekki síður fyrir barðinu á bensínþjófunum og tjónið því umtalsvert. „Það var gríðarleg aukning í sumar og við urðum fyrir verulegu tjóni þá mánuði,“ segir Ingunn. N1 er með öryggismyndavélar og í sumum til- fellum öryggisverði, en tíðni brotanna er mest á höfuðborgarsvæðinu. Þó að upplýsingar um þjófana séu jafnan sendar til lögreglu eru innheimtur slæg- ar og skaðinn fæst sjaldnast bættur. „Oft eru þjóf- arnir með stolin bílnúmer, en jafnvel þó að þeir ná- ist er þeim sama,“ segir Ingunn. Margir séu með fleiri brot og viti að þeir fái ekki dóm fyrr en eftir 3-5 ár. Flestir sem nást eru eignalausir Fólk af erlendum uppruna sé áberandi í hópi bensínþjófanna og flestir sem nást séu eignalausir. Enn eitt árangurslausa fjárnámið hjá þessu fólki skipti því litlu. N1 skoðar alvarlega þessa dagana að fjarlægja hinn svo nefnda gula takka af bensíndælunum. Við- skiptavinir verða þá að koma inn á bensínstöðina áður en kveikt er á dælunni. „Þetta er í skoðun hjá okkur núna því miður, því þetta skapar vissulega ákveðin óþægindi fyrir þann stóra hóp viðskiptavina sem eru heiðarlegir,“ segir Ingunn. Stuldur á bensíni eykst og þjófunum virðist standa á sama N1 skoðar alvarlega að fjarlægja gula takkann af dælum á bensínstöðvum Morgunblaðið/Frikki www.mbl.is/sjonvarp Miklu bensíni stolið Undanfarið ár hefur verið erfitt í lífi fjölskyldunnar, enda átti hún aldr- ei von á því að áætlanir hennar færu svo úr skorðum. „Þegar fólk lend- ir í erfiðleikum þá er heimilið síðasta vígið sem fellur, því þú gerir allt annað áður en þú missir það að eiga heimili,“ segir konan. „Þú getur ímyndað þér viðbrigðin hjá hvaða venjulegu fjölskyldu sem er þegar henni er kippt út úr sínu umhverfi og sett inn hjá ættingjum í heilt ár.“ Hún segir stöðuna hvað erfiðasta fyrir unglingana á heimilinu sem upplifi mikið tómarúm og rótleysi. Bið foreldranna eftir lögum sem bjóði upp á lausnir veiti unglingunum litla fullvissu og þeir séu þegar orðnir brenndir af þeirri reynslu. „Við erum öll í biðstöðu og á meðan nýtist þetta hvorki okkur né ættingjum okkar sem heimili, þar sem maður hefur sitt rými og fær sína gesti.“ Eina ástæðan fyrir því að hjónin geta staðið við skuldbindingar sínar án þess að fara í vanskil er sú að þau búa endurgjaldslaust inni á öðrum. Leigumarkaðurinn er ekki raunhæfur möguleiki ef ætlunin er að standa við aðrar skuldbind- ingar. Fjárhagsleg og félagsleg staða fjölskyldunnar stendur því og fellur með því að henni verði gert kleift að gera eign sína íbúðarhæfa. Ekki síður félagslegur vandi ÁRNI Johnsen al- þingismaður vill að hafinn verði und- irbúningur að bygg- ingu Þingvallaset- urs sem hýsi a.m.k. 200 herbergja hótel auk ferða- og ráð- stefnuaðstöðu. Hef- ur Árni sent Þingvallanefnd bréf með tillögum sínum og þar leggur hann til að á setrinu verði þingsalur fyrir Alþingi og Þingvallasalur sem helgaður verði sögu staðarins. Árni er varamaður í nefndinni. Árni segir grundvallaratriði að setrið falli að sérstöðu Þingvalla „bæði í hæð og breidd. Gott dæmi um glæsilegt hús sem byggir á nátt- úruímynd er Norræna húsið í Fær- eyjum“. Þess má geta að Hótel Loft- leiðir í Reykjavík er með 220 herbergi. Stórt hótel á Þingvöllum? Árni Johnsen Árni Johnsen kynnir tillögu sína Áhrif kreppunnar á fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.