Morgunblaðið - 05.11.2009, Side 26

Morgunblaðið - 05.11.2009, Side 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009 ✝ Svala Árnadóttirfæddist á Þórs- höfn á Langanesi 19. ágúst 1951. Hún lést á heimili sínu, Ekrusm- ára 1 í Kópavogi, 29. október 2009. For- eldra hennar voru Árni Þorkels Árna- son, f. 30. desember 1917, d. 29. nóvember 1997, og Helga Gunn- ólfsdóttir, f. 1. ágúst 1925, d. 8. október 2004. Systkini Svölu eru 10: 1) Drengur Árnason, f. 9. apríl 1943, d. 28. ágúst 1943, 2) Gunnlaug Eyfells, f. 30. júní 1945, gift Halldóri Magnússyni, f. 4. ágúst 1942, 3) Sævar, f. 10. ágúst 1946, kvæntur Hildi Ellertsdóttur, f. 3. október 1952, 4) Árný Kristbjörg, f. 19. júlí 1948, gift Kristjáni S. Rafnssyni, f. 9. júlí 1948, d. 3. júlí 1996, 5) Gunnólfur, f. 18. júní 1950, kvæntur Fanneyju Bjarnadóttur, f. 24. maí 1953, 6) Hreiðar, f. 22. júlí 1953, 7) Helga, f. 31. október 1956, gift Sigurjóni Hreiðarssyni, f. 5. Davíð Þórarinsson, f. 3. febrúar 1985. Svala eyddi æskuárum sínum á Þórshöfn á Langanesi. Hún dvaldi einn vetur, ’60 -’61, hjá móðursystur sinni í Vestmannaeyjum. Fjölskylda hennar fluttist á Suðurnesin þegar Svala var 12 ára gömul. Hún kynnt- ist, Birni, eftirlifandi eignmanni sín- um, árið 1975. Þau hófu búskap í Keflavík og bjuggu þar til ársins 1986, þá fluttu þau til Reykjavíkur. Í millitíðinni bjuggu þau í Mosfellsbæ í tvö ár. Síðastliðin tvö ár voru þau búsett í Ekrusmára í Kópavogi. Svala vann ýmis verslunarstörf og við móttöku á Heilsugæslustöð Suð- urnesja. Lengstan hluta starfs- ævinnar sem læknaritari á Lækna- stöðinni Uppsölum og nú síðustu ár á Augnlæknastöðinni í Kringlunni þar sem hún lét af störfum í janúar síðastliðnum vegna veikinda. Svala hélt alltaf sterkum tengslum við Þórshöfn og var virk- ur þátttakandi í Þingeyingafélagi Suðurnesja og starfaði þar í stjórn og skemmtinefnd um árabil. Útför Svölu fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag, 5. nóv- ember, kl. 15. Jarðsett verður í Kópavogs- kirkjugarði. desember 1952, 8) Ómar, f. 16. mars 1958, kvæntur Ingi- björgu Á. Blomster- berg, f. 5. desember 1960, 9) Árni Þór, f. 12. september 1959, kvæntur Ástu Þór- arinsdóttur, f. 19. júní 1961, og 10) Skjöldur Vattnar, f. 13. maí 1963, kvæntur Krist- ínu L. Sveinsdóttur, f. 18. september 1967. Svala giftist 26. júní 1976 Birni Pálssyni byggingameistara, f. 23. maí 1957. Foreldrar hans eru Páll Pétursson, f. 28. ágúst 1937 og Margrét Erla Björnsdóttir, f. 4. maí 1938. Svala og Björn eignuðust þrjú börn sem eru: 1) Margrét Erla kennari, f. 4. janúar 1977, gift Sverri Guðmundssyni verkfræðingi, f. 26. nóvember 1968. Synir þeirra eru Bjarki Rúnar, f. 28. júní 1999, og Björn Þór, f. 8. desem- ber 2004. 2) Björn Fannar nemi, f. 25. apríl 1981. 3) Sandra Dögg nemi, f. 19. mars 1988, unnusti Hafþór Elsku besta mamma mín, mikið svakalega sakna ég þín mikið. Lífið er stundum svo óréttlátt og á tímum sem þessum finnur maður hve van- máttug manneskjan er. Líklega mun ég aldrei jafna mig á því að missa þig en eins og margir segja þá mun ég læra að lifa með sársaukanum, ég vona að það sé rétt. Síðustu daga hafa margar minningar komið upp í hugann og þá fyrst og fremst um hversu góð mamma þú varst, ynd- isleg amma og mikil vinkona mín. Þú varst einstök kona; ljúf, góð, skemmtileg, gjafmild og hugulsöm. Hugsaðir alltaf fyrst um aðra og síð- an um sjálfa þig. Ef einhvern vantaði aðstoð varst þú fyrst mætt á staðinn til að rétta hjálparhönd. Hægt er að telja upp ótal atriði en gott dæmi er þegar fjölskyldumeðlimur þurfti tíma hjá lækni, þá var hringt í Svölu frænku og þú bjargaðir því á auga- bragði. Alls staðar vaktir þú athygli fyrir hversu falleg og glæsileg kona þú varst. Allt var svo fallegt sem þú komst að og vildir þú hafa mikið af fólki og fallegum hlutum í kringum þig. Þú varst fagurkeri, ,,glingur- kona“ og meira jólabarn er vart hægt að finna. Þú byrjaðir að und- irbúa jólin í október. Einn og einn jólasveinn fékk að koma upp úr kass- anum og setjast á hillu þar til allt heimilið var undirlagt af fallegu jóla- skrauti og ljósum. Stundum sagði ég við þig að þetta væri allt of mikið og yfirdrifið en þú gafst ekki mikið fyrir það og hélst bara áfram að skreyta. Þetta sýndi sig einnig í útilegum þegar þú fylltir fellihýsið af alls kyns blómum, styttum og dóti. Oft fannst mér nóg um en svona varst þú og nú sé ég hversu mikils virði þessi smá- atriði eru og allir þeir hlutir sem fylgdu þér og einkenndu. Allt þetta vekur upp minningar sem ylja mér um hjartarætur. Strákarnir mínir eða prinsarnir þínir eins og þú kallaðir þá alltaf, sakna þín mikið og þeirra missir er mikill. Ég er ótrúlega þakklát fyrir að þeir hafa fengið að kynnast þér. Ég mun hjálpa þeim að varðveita fal- legu minningarnar um þig um ókomna tíð, minningu um bestu ömmu í heimi. Þú varst viðstödd fæðingu þeirra beggja sem markaði örugglega ást þína á þeim enda áttir þú alveg fullt í þeim. Þú varst alltaf svo stolt af þeim sama hversu smá- vægilegir hlutirnir voru. Betri amma er vanfundin. Þú veiktist í lok janúar á þessu ári. Eftir það tókst þú á veikindum þín- um með ótrúlegri baráttu og æðru- leysi eins og þér var einni lagið. Það hjálpaði okkur mikið hversu jákvæð og vongóð þú varst, alveg fram undir það síðasta. Pabbi stóð við hlið þér eins og klettur og lagði sig allan fram við að annast þig. Það var fallegt að sjá hversu vænt þér þótti að hafa hann hjá þér í veikindum þínum og þar kom berlega í ljós hve heitt þú elskaðir hann. Þú hélst mikið upp á lög með Björgvini Halldórssyni og því finnst mér tilvalið að láta fylgja með fal- legan texta, Ég elska þig svo heitt, sem hann hefur sungið: Í fyllingu tímans, við finnumst á ný þó fjarlæg mér virðist þín augun hlý. Og ef að þú bíður uns aftur ég sný verður allt eins og forðum – ég lofa því. Þó árin áfram streymi ég aldrei gleymi þér. Ásjónu þína ætíð ég geymi innst við hjartað í mér. Hvað sem síðar verður, veit ég það eitt sem vert er að nefna – hvað ég elska þig heitt. (Bragi Valdimar Skúlason.) Takk fyrir að vera besta mamma í heimi. Þín Margrét Erla. Ó, elsku besta mamma mín. Það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar á að fara að skrifa minningagrein um þig. Ég skil ekki að þú sért farin frá okkur. Þegar ég hugsa til þín og allra stundanna sem við höfum átt saman geri ég mér ekki grein fyrir þessu. Mér finnst eins og þú hafir farið í ferðalag og að ég muni sjá þig bráðlega aftur. Þú varst nú ekki há í loftinu, þú varst fremur fíngerð og falleg kona með mjög stóran og sterkan per- sónuleika. Þú varst allt í öllu og vildir komast alls staðar að, ef einhvern vantaði hjálp varst þú mætt á stað- inn. Er það mér mjög ofarlega í huga hversu mikið þú hefur hjálpað mér í gegnum lífið og staðið alltaf eins og klettur við hlið mér. Ég sakna þess og á eftir að finna fyrir þeirri vöntun að þú sért ekki hér til þess að stjórn- ast í mér þó svo að það hafi stundum farið svolítið í pirrurnar á mér hversu mikið þú vildir stjórna mér. En nú sé ég hversu mikils virði það er þegar ég lít til baka og mjög svo krúttlegt. En minningarnar okkar lifa áfram og ég mun aldrei gleyma þér, mamma mín. Jólin eru að koma og þú sem varst svo mikið jólabarn og byrjuð að skreyta í lok október. Að koma heim til mömmu og pabba var eins og að koma inn í jólahúsið á Ak- ureyri en bara mun fallegra var það hjá þér, mamma mín. Þú greindist með krabbamein í endaðan janúar á þessu ári og við sem vorum svo sterk, ætluðum okkur að sigrast á þessum óboðna gesti. Þessi barátta endaði á allt annan hátt en við vild- um og ég sem var búinn að stimpla það inn í undirmeðvitund mína að við kæmumst í gegnum þetta. En bar- áttan endaði hinn 29. október þar sem þú fékkst að losna undan þess- ari ömurlegu baráttu. Hvað er að deyja. Ég stend á strönd og horfi á skip sigla í morgunblænum út á hafið. Það er falleg smíði og ég stend þar og horfi á það unz það hverfur sjónum mínum út við sjóndeildarhring. „Það er farið!“ Farið! Hvert? Farið úr minni augsýn. Það er allt og sumt. Það er þó enn jafnstórt í möstrum, bol og siglutrjám og þegar ég sá það og getur flutt jafnmikinn farm og mannfjölda á ákvörðunarstað. Minnkandi stærð og hvarf þess úr minni augsýn er í huga mér en ekki í því. Og einmitt þegar einhver nálægur segir; „Það er farið!“ Þá eru aðrir, sem horfa á það koma og aðrar raddir heyrast kalla; „Þarna kemur það!“ Og þannig er að deyja. (Brent biskup.) Kveðja, þinn einkaprins, Björn Fannar Björnsson. Elsku mamma mín. Mikið er sárt að þú ert farin frá mér. Þú sem áttir eftir að upplifa svo margt með mér. Þú varst yndisleg og besta mamma í heimi með sterkan persónuleika og alltaf til í að hjálpa öllum og bjarga öllu. Ég sakna þín hræðilega mikið og mun alltaf gera. Það mun allt verða svo öðruvísi án þín eins og bara núna um jólin. Þú varst svo mikið jóla- barn. Í endaðan október fór ég að taka eftir því að þegar ég kom heim úr vinnunni varst þú byrjuð að skreyta húsið. Þú byrjaðir að lauma einum og einum jólasveini í gler- skápinn og á hillur, það var svo nota- legt að koma heim. Ég er svo fegin að hafa fengið að eyða með þér sumarfríi á Tenerife í tvær vikur árið 2007. Þar átti ég notalega tíma með þér og pabba. Ég á margar yndislegar minningar um þig og geymi ég þær í hjarta mínu. Mér finnst leiðinlegt að börnin mín sem ég mun eignast í framtíðinni fá ekki að kynnast þér. Ég mun segja þeim hversu góð manneskja þú varst og halda minningu þinni lifandi. Þú varst alltaf jákvæð og sterk í þínum veikindum sem hjálpaði okk- ur fjölskyldunni mjög mikið. Hugs- unin um það að ég geti ekki talað við þig eða hlegið með þér er hræðilega sár en ég veit að þér líður betur núna og ert komin til ömmu og afa. Þú munt vera hjá mér í öllu sem ég geri. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Ég elska þig, mamma. Þín dóttir, Sandra Dögg. Elsku tengdamamma, nú er þinni erfiðu baráttu gegn illvígum sjúk- dómi lokið. Allan þann tíma sem þú barðist við sjúkdóminn neitaðir þú staðfastlega að gefast upp; sýndir óbilandi baráttuvilja allt fram að síð- ustu stundu. Þetta endurspeglar þann mikla styrk sem þú bjóst yfir og sýnir vel hve staðföst og ákveðin þú varst. Allt það sem þú tókst þér fyrir hendur gerðir þú með krafti og stæl. Þú varst falleg kona, kraftmikil persóna með óvenju sterka nærveru, hreinskilin með frjálslegt fas og framkomu og naust þín best innan um fólk og í fjölmenni; það hreinlega gustaði af þér hvar sem þú komst. Svona upplifði ég þig. Ég vil þakka þér fyrir þá miklu væntumþykju, vináttu og traust sem þú sýndir mér og fyrir að vera mér einstaklega góð og velviljuð tengdamóðir. Þú lagðir þig mjög fram við að vera stoð og stytta okkar Margrétar og umfram allt strákanna okkar Bjarka Rúnars og Björns Þórs sem voru svo sann- arlega þín yndi. Þú hafðir óvenju gott lag á að sýna væntumþykju og umhyggju, varst hjálpsöm og fórn- fús með eindæmum og alls þessa fengum við Margrét og strákarnir okkar ríkulega að njóta. Þitt mikil- væga framlag við uppeldi drengj- anna okkar hefur án efa mótað þá mikið og mun verða þeim gagnlegt veganesti. Það er ósanngjarnt að þú sem umfram allt lagðir þig fram við að hlúa að börnum þínum og barna- börnum, stuðla að samheldni fjöl- skyldurnar og að styrkja vináttu- bönd, fáir ekki að njóta afrakstursins til fullnustu. Þú kvaddir allt of snemma. Þín verður sárt saknað. Þinn tengdasonur, Sverrir Guðmundsson. Elsku amma, við söknum þín ótrú- lega mikið. Þú varst svo skemmtileg og góð. Vildir alltaf passa vel upp á okkur og hafa nálægt þér, þú kall- aðar okkur ömmuprinsana þína. Þegar við fórum í ferðalög þá sagðir þú við mömmu og pabba að passa að ekkert kæmi fyrir okkur. Við mun- um alltaf muna eftir jólunum með þér, fallegu gjöfunum, útilegunum og skemmtilegum heimsóknum til þín og afa. Við vissum alltaf að í tösk- unni þinni var að finna rauðan ópal sem við máttum fá. Þú sýndir alltaf hvað þér þótti vænt um okkur, t.d. með faðmlögum og hve miklum tíma þú eyddir í að tala við okkur og segja sögur af þér, afa, Söndru, Bjössa og mömmu. Þú kenndir okkur svo margt. Eitt af því var Faðir vorið: Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort daglegt brauð, og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen. Við vitum að núna ert þú hjá Guði og hann geymir þig. Þínir ömmuprinsar Bjarki Rúnar og Björn Þór. Elsku litla systir mín. Hetjulegri baráttu þinni við illvíg- an sjúkdóm er lokið. Þú varst ekki ánægð með að vinna ekki þá baráttu. Þú varst þekkt fyrir allt annað en að gefast upp. Þú varst örugglega búin að vera með hann margfalt lengur en nokkur vissi, og hefur það án efa tek- ið mikið á hjá þér þótt þú hafir ekki látið vita af því. Þú hafðir miklar áhyggjur af öðrum og vildir að aðrir þér nákomnir létu fylgjast með sér en gleymdir kannski þér sjálfri. Það þekkti ég af eigin raun. Við Svala vorum fimmtu og sjöttu í röðinni af ellefu systkinum og aðeins 14 mánuðir á milli okkar. Minningin um þessa yndislegu systur er sterk. Fyrst fyrir norðan á Þórshöfn þar sem við ólumst upp til 11 og 12 ára aldurs. Sterkasta minningin er þeg- ar þessi litla, fallega, ljóshærða hnáta sem alltaf var syngjandi stóð uppi á síldartunnum og söng fyrir fólkið með sinni engilfallegu rödd. Það barðist leynt stolt í mínu litla hjarta og þessi mynd festist í minni mínu og er auðvelt að kalla hana fram í dag. Við fluttum suður í Keflavík og vorum þar í gagnfræðaskóla. Það var margt brallað á þeim árum þar sem við ólumst upp á Vallargötunni sem geymist í minningunni og gott er að minnast á þessum tíma. Svala kynntist yndislegum manni, Birni Pálssyni, þegar hún var á Vall- argötunni og var hann ástin í lífi hennar. Þau eignuðust yndislegt og fallegt heimili. Heimilið, fjölskyldan, foreldrar og systkini voru hennar ær og kýr. Svala var í ljónsmerkinu og var í mínum huga ljónynja. Hún varði fjölskyldu sína og systkini með kjafti og klóm út á við en hún gat tek- ið mann í bakaríið þegar maður var einn með henni og hundskammaði mann og þá var betra að hafa hægt Svala Árnadóttir ✝ Ástkær móðir okkar og amma, JÓHANNA HERDÍS SVEINBJÖRNSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, Borgarholtsbraut 20, Kópavogi, lést á Landspítala Landakoti sunnudaginn 25. október. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 6. nóvember kl. 15.00. Ríkharður H. Friðriksson, Jóhanna Vigdís Ríkharðsdóttir, Kristín Helga Ríkharðsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi, sonur, bróðir, mágur og tengdasonur, JÓHANN MÁR JÓHANNSSON, Heiðardal 1, Vogum, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 1. nóvember. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju miðvikudaginn 11. nóvember kl. 14.00. Ragnhildur B. Svavarsdóttir, Íris Ósk Jóhannsdóttir, Kristján Guðbrandsson, Helga Dögg Jóhannsdóttir, Aron Freyr Kristjánsson, María Jóhannesdóttir, Jóhann Th. Þórðarson, Jóhanna Valdís Jóhannsdóttir, Ingi Karl Ingibergsson, Hermann Freyr Jóhannsson, Bryndís María Björnsdóttir, Anna Bergmann Guðbjörnsdóttir, Guðmundur Waage.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.