Morgunblaðið - 05.11.2009, Síða 35

Morgunblaðið - 05.11.2009, Síða 35
Menning 35FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2009 Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „ALLIR menn eru bæði stórir og smáir, hafa bjartar hliðar og skuggahliðar. Það er óhætt að segja að Snorri Sturluson hafi haft óvenju bjartar og magnaðar hliðar, sem handhafi þess menning- arauðs sem hann sat um og jós af,“ segir Óskar Guðmundsson rithöfundur. Hann hefur sent frá sér bókina Snorri, ævisögu rithöfundarins og höfðingjans Snorra Sturlusonar. Þrátt fyrir að Snorri hafi verið einn af mestu höfðingjum mið- alda og orðstír hans lifi í bókmenntaverkum, hef- ur heildstæð ævisaga ekki verið skrifuð fyrr en nú. „Svo margt hefur gerst í miðaldarannsóknum á undanförnum áratugum sem gerir það að verkum að kannski er auðveldara núna en áður að skrifa bók sem þessa,“ segir Óskar. „Ýmislegt hefur ver- ið að gerast í þessum rannsóknarheimi.Til dæmis hið þverfaglega Reykholtsverkefni. Á vegum þess hafa verið skrifaðar tvær bækur og verið haldnar ráðstefnur um Reykholt á miðöldum. Þetta er ein- stigi sem þarf að feta, að skrifa sögu sem er við al- þýðuhæfi, þannig að allur almenningur hafi gam- an af, og hinsvegar að standa fræðilega kröfu. Ég held að svo margt mæli með þessari sögu núna. Hún hittir vel á og tekur okkur eiginlega dálítið í bólinu. Þegar allt er hrunið á Íslandi eigum við þó eitt eftir og það er þessi menning, ekki síst frá 13. öld, þar sem að allt það sígilda úr heimi bókmennta og menningarinnar varð til.“ Óskar segist hafa byrjað að viða að sér efni í bókina fyrir um tíu árum og síðustu ár hefur hann setið við skriftir, en hann býr í Reykholti, þar sem Snorri bjó lengstum og þar sem hann var drepinn árið 1241. Hann segir það hafa hjálpað sér að hafa legið í miðaldarannsóknum í nokkur ár. „Ég skrifaði um þessa tíma í Aldirnar okkar en þá vann ég eins og blaðamaður og því fylgja ákveðnir kostir. Blaðamaður horfir öðrum augum til heimilda og framsetningar en stafkrókamenn gera venjulega. Það hjálpaði mér að búa til mynd- ina. En auðvitað nota ég heimildir við tengingar og sviðsetningar. Minn metnaður var að lesandinn fyndi lykt og skynjaði tón þessarar aldar. Og löng- unin stóð til þess að opna þennan heim betur fyrir nýjum leskynslóðum.“ - Þú ert ekki alltaf ánægður með meðferð Sturl- ungu á Snorra. „Hér áður var stundum sagt að það væri hægt að kynna sér Íslandssöguna með því að lesa Moggann, en við vinstrimenn litum alltaf svo á að þetta kynni að vera rétt en það þyrfti að geta í eyðurnar,“ segir hann og glottir. „Það þurfti að gera ráð fyrir hinu sjónarhorninu. Sturlunga er eins og Mogginn - það þarf að lesa hana krítískt.“ Hann hlær. „Ekki síst vegna þess að sá sem ber ægishjálm yfir aðra höfunda Sturlungu er Sturla Þórðarson, sem setur sig aldrei úr færi að skjóta á frænda sinn, Snorra Sturluson. Ég reyni að draga tjöldin frá því. Sturla er eiginlega eini maðurinn sem ég leyfi mér að karpa pínulítið við.“ Verk Snorra eru mjög pólitísk „Framan af ævi er Snorri Oddaverji,“ segir Óskar. „Hann er menningarlegt pródúkt Odda- verja, heimsborgari. Til að halda um þræðina þurfti að hafa tengsl í báðar áttir, í heim verald- legra sem andlegra höfðingja. Hin pólitíska kúnst Snorra var kannski að vera hvort tveggja. Hann var fulltrúi hins veraldlega valds en líka með ótrú- lega góð sambönd til kirkjuvaldsins. Síðan fer Snorri í hina miklu útrás, þá verður hann enn voldugri og enn auðugri. Það er samt ekki síst merkilegt að Snorri skuli vera friðarins maður á riddaraöld. Hann beitir aldrei sjálfur vopnum heldur víkur undan átökum, ef hann getur, og hann líkist í þessu eins og mörgu áður meira fóstra sínum Jóni Loftssyni í Odda heldur en hinum blóðtengdu baráttuköllum í Döl- unum sem voru alltaf með öxina uppi.“ - Snorri var upptekinn við valdabrölt og pólitík; hafði hann tíma til að skrifa allt sem honum var eignað, og líka Eglu? „Já, vísast. Ég færi fyrir því margvísleg rök að hann hafi skrifað eða látið skrifa þær sögur sem honum eru eignaðar. Verk Snorra eru mjög pólitísk. Hinn kaldhæðni pólitíkus er alltaf á bak við textann. Noregskon- ungasögur Snorra eru þannig um leið og þær eru frelsis- og þjóðasögur Íslendinga og Norðmanna. Enda er engin tilviljun að Norðmenn halda Snorra í hávegum - hann er einhvernvegin þekkt- ari í Noregi en hér.“ - Hefði þetta orðið öðruvísi bók hefðirðu ekki setið heima hjá Snorra í Reykholti og skrifað? „Það að vera í Reykholti var hluti af sköp- unarferlinu. Ég er ekki viss um að bókin hefði orð- ið til nema af því að mér auðnaðist að vinna hana svona mikið á staðnum. Svo er hitt að ég á við þá fötlun að stríða að vera mjög pólitískur. Til þess að geta unnið svona verk þurfti ég að loka mig af, sem var mjög erfitt í hinum stríða söng tímans sem skall á manni meðan á sköpunarferlinu stóð. Samt fann ég samhljóm og endurtekningu þegar ég gægðist inn í samtímann. Þá fannst mér ég sjá eins og skrípamynd af því sem var að gerast í al- vörunni - hjá Snorra.“ Maður friðar á riddaraöld Morgunblaðið/Kristinn Höfundur Snorra „Til þess að geta unnið svona verk þurfti ég að loka mig af, sem var mjög erfitt í hin- um stríða söng tímans,“ segir Óskar. Hann var í áratug að viða að sér efni og þrjú ár að skrifa hana.  Óskar Guðmundsson hefur ritað ævisögu Snorra Sturlusonar  Stefndi að því að rita sögu við alþýðuhæfi sem stæðist samt fræðilega kröfu SÖFN um allt Suðurland og í Vestmannaeyjum bjóða upp á fjölbreytta menningardagskrá nú um helgina, 5. til 8. nóv- ember. Lögð er áhersla á mat og menningu því auk hins sögulega og menningarlega hluta verður minnt á gamlar og nýjar hefðir í matargerðarlist. Samtök safna á Suðurlandi og Matarkista Suðurlands standa að dagskránni með um eitt hundrað aðilum. Auk viðburða í söfnum verð- ur á veitingastöðum boðið upp á það besta í sunn- lenskri matarhefð. Dagskráin er á vefnum www.sofnasudurlandi.is Söfn Fjölbreytt safna- helgi á Suðurlandi Frá Byggðasafninu í Skógum. VITAFÉLAGIÐ - félag um ís- lenska strandmenningu, stend- ur fyrir fyrsta fræðslukvöldi vetrarins í sjóminjasafninu Víkinni í kvöld klukkan 20.00. Fyrirlestrarnir bera yf- irskriftina Á sjó eða brennu? Í erindinu Bátar og brennur fjallar Agnar Jónsson skipa- smiður um trébáta og hvað varð um þann hluta mennning- ararfsins, en síðustu ár hefur verið til siðs að brenna trébáta. Í erindinu Stolt sigli fleyið mitt fjallar Þorsteinn Pétursson síðan um eikarbátinn Húna II sem er stærsta eikarskip á Íslandi sem flýtur. Fræði Menningararfurinn brenndur á báli Agnar Jónsson skipasmiður. MÖGULEIKHÚSIÐ sýnir í kvöld, 5. nóvember, og á morg- un, 6. nóvember, einleikinn Að- ventu, sem byggist á sam- nefndri sögu Gunnars Gunnarssonar, á Austurlandi. Í kvöld er sýnt í Miklagarði á Vopnafirði kl. 20 og í Végarði í Fljótsdal annað kvöld klukkan 21. Á laugardaginn verður síðan haldið í fótspor Fjalla-Bensa á jeppum sem leið liggur um söguslóðir Aðventu og sagan rifjuð upp. Ferðafélag Fljótsdalshéraðs tekur við skráningu á ferdafelag@egilsstadir.is og í síma 863-5813. Leiklist Aðventa sýnd og haldið á fjöll Pétur Eggerz leikur í Aðventu. BRESK auglýsingaherferð fyrir nýjustu kvikmynd Danans Lars von Trier, Antichrist eða Andkrist, særir ekki blygðunarkennd fólks, að mati breskrar eftirlitsstofnunar með aug- lýsingum, Advertising Standards Authority, eða ASA. Auglýsingarnar verða því birtar áfram í breskum fjölmiðlum, þrátt fyrir nokkrar um- kvartanir fólks sem telur þær særa blygð- unarkennd sína og vera klám- fengnar. Umræddar auglýsingar hafa verið birtar í dagblöðunum Times, Guardian og Independent og sýna karlmann og konu hafa mök. Varað er við efni kvikmyndarinnar í aug- lýsingunum, að hún innihaldi „raun- verulegt kynlíf, blóðugt ofbeldi og sjálfslimlestingar.“ Alls bárust stofnuninni sjö kvartanir vegna aug- lýsinganna frá fólki sem taldi þær klámfengnar, móðgandi og ekki birt- ingarhæfar fyrir dagblöð þar sem börn gætu séð þær. Fyrirtækið sem sér um herferðina, Artificial Eye, segir ljósmyndina sem notuð er í auglýsingunum hluta af alþjóðlegri hönnun fyrir myndina og því notaða víðar. Það mun þó ekki nota mynd- ina í auglýsingar fyrir myndina þeg- ar hún kemur út á mynddiski. Andkristur von Triers þykir ein hrottalegasta kvikmynd sem nokkru sinni hefur verið sýnd á kvik- myndahátíðinni í Cannes. Von Trier hlaut kvikmyndaverðlaun Norður- landaráðs fyrir hana. Umdeild Úr kvikmyndinni And- kristi eftir Lars von Trier. Auglýsingar fyrir And- krist leyfðar Innan velsæmis- marka að mati ASA Lars von Trier ÓSKAR Guðjónsson og félagar hyggjast halda tónleika í kvöld á Múlanum þar sem þeir ætla að velta fyrir sér lögum að skapi þess sem gaf staðnum sitt nafn. Að sögn Óskars hafa þeir félagar sett sér það markmið að bygga á til- teknum kjarna í hverju lagi en leyfa andanum síðan að ráða för. „Við ætlum að reyna að búa til kjarna sem er eins lítið undirbúinn og hægt er, ákveðum ekki tempó fyrirfram, eða mood eða tóntegund. Melódían kallar á eitt en ekki annað og flæðið ræður för. Draumurinn er að komast í það algleymi að hugsunin hætti að þvælast fyrir innblæstrinum.“ Óskar leikur á saxófón að vanda, en með honum spila þeir Þorgrímur Jónsson á kontrabassa, Davíð Þór Jónsson á píanó og Matthías Már Davíðsson Hemstock á trommur. Tónleikarnir hefjast kl. 21. Flæði í Múlanum Óskar Guðmundsson hefur skrifað ævisögunaSnorri, viðamikið verk um Snorra Sturluson (1179-1241), mann sem setti meira mark á Ís- landssöguna og menningarsögu í Vestur- Evrópu en flestir einstaklingar. Hann var víð- kunnur rithöfundur en líka klókur stjórn- málamaður. Óskar lagði stund á sagnfræði, bókmenntir og þjóðfélagsfræði í háskólum í Reykjavík, Bremen og Kaupmannahöfn. Um árabil var hann blaðamaður, á Þjóðviljanum, ritstjóri Stúdentablaðsins og Norðurlands, og síðar fréttatímaritsins Þjóðólfs. Í hálfan annan ára- tug hefur Óskar starfað sem fræðimaður og rithöfundur og komið að útgáfu margra bóka. Skrifar um skáldið Enn ein gullnáman var fundin þar, nokkuð fyrir stelpurnar að kjamsa á. 39 »

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.