Dægradvöl - 14.01.1932, Side 10

Dægradvöl - 14.01.1932, Side 10
10 DÆGRADVÖL fyrir löngu aíöan hefði gefið frænda sínum, er hafði verið leikbróðir henn ar í æsku. Daginn eftir hafði hún farið, og Robert hafði ekki séð hana síðan. En hann vissi, að hún bjó hjá föð- ur sínum, námueigandanum, Fre- derick Thompson, sem hafði á leigu þrjár stærstu og auðugustu gull- og koparnámur landsins. Hann vissi þess vegna, að Thompson og fjöl- skylda hans hlaut að vera á „svarta listanum“, og var hann því hissa, er hann sá, að hún var að fara með lestinni. Hann hafði haldið, að hún og fað- ir hennar hefðu farið í bíl yfir landa- mærin, sem voru miklu nær höllinni en höfuðborginni. „Ungfrú Thompson“, mælti hann. „Er það ekki misráðið hjá yður að fara með lestinni? Þér vitið, í hvaða áliti faðir yðar er hjá uppreisnar- mönnunum". „Ef til vill er það misráðið", svar- aði hún alvarlega, „en hvað átti eg að gera? Faðir minn fór til Eng- lands í verzlunarerindum í síðastliðn- úm mánuði, og þegar byltingin skall á, tók þjónustufólkið báða bílana og ók út til landamæranna. Eg fór með lestinni til borgarinnar, til þess að vita, hvort eg gæti komist með þess- ari lest út úr landinu; hvað gat eg annað gert?“ „Já, en hvernig fenguð þér far- seðil?“ spurði Robert hissa. „Þér vitið þó vel, að faðir yðar er einn af þeim efstu á „svarta listanum“. „Farseðil? Eg hefi engan farseðil. Eg beið þar til lestin fór af stað, þá hljóp eg fram hjá verðinum, og þér hjálpuðuð mér upp í. En eg hefi þó nokkuð af peningum, og eg hélt að ef til vill gæti eg mútað þeim, sem taka við farseðlunum". Robert varð alvarlegur, lagði hönd sína á handlegg hennar og sagði: „Það er ekki hægt, ungfrú Tomp- son. Það er einn af liðsforingjum uppreisnarhersins, sem tekur á móti farseðlunum, en ekki hinir vanalegu lestarþjónar. Og þegar hann kemst að því, að þér hafið ekki farseðil, tekur hann yður fasta, og engin pen- ingaupphæð getur freistað hans“. Stúlkan sá þegar í hendi sér, að hann hafði rétt að mæla, og hún vissi, að ekkert annað en — dauðinn — beið hennar, ef hún yrði tekin föst fyrir að ætla að flýja úr landi án farseðils. Það fór hrollur um hana. „Bíðið þér augnablik", sagði Ro- bert og fór út úr klefanum. Hann kom bráðlega inn aftur með far- seðil sinn í hendinni. „Gjörið þér svo vel“, mælti hann brosandi, „hafið þennan farseðil, en reynið eins og þér getið, að láta. ekki liðsforingjann sjá aftan á hann. Og þér verðið að muna, að láta sem þér þekkið mig ekki, þangað til við erum komin út úr Mexiko“.

x

Dægradvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dægradvöl
https://timarit.is/publication/771

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.