Dægradvöl - 14.01.1932, Blaðsíða 22
22
DÆGRADVÖL
hárinu, sera var alblóðugt, og fann
þrjá smásteina, sem setið höfðu fast-
ir í því, af því að það var mjög
hrokkið. Hann skoðaði þá og ætlaði
að fara að kasta þeim, en hætti við
það og stakk þeim í vasa sinn.
Westman reis á fætur.
„Þetta eru verk mannætanna,
Mac, það er auðsjáanlegt af þessum
djúpu skurðum í enninu, þeir eru
hefndarmerki þeirra. En eitthvað
hefir fælt þá snögglega í burtu, ann-
ars hefðu þeir ekki skilið eftir annað
ein's sælgæti eins og höfuðið, nema
því að eins, að það eigi að vera eins-
konar viðvörun. Þeir hljóta að hafa
drepið hann snemma í morgun“.
Macrae ætlaði að fara að segja
eitthvað, en Kilimi, sem hafði ver-
ið að skoða höfuðið og leita í gras-
inu umhverfis þá, stóð nú snögg-
lega á fætur og var auðsjáanlega
í geðshræringu.
„Bwana!“ mælti hann skjálfandi,
„Aniotos! Watu wabaya! — 111-
mennin, sjáðu bwana!“
Hann sýndi þeim, það sem hann
hafði fundið. Var það áhald úr
járni, svipað mannshendi í lögun,
með stuttu skafti. Voru á því fimm
mislangar álmur, sem mintu á fing-
ur, og voru þær oddhvassar sem nál-
ar og bognar í endann.
„Þetta er morðtól Iturimannæt-
anna“, mælti Westman er hann tók
við þessu ljóta vopni og sýndi Mac-
rae.
Wambubasvertinginn horfði ótta-
sleginn á vopnið, muldraði fyrirbæn-
ir fyrir munni sér og ranghvolfdi
augunum af hræðslu. Sjálfur Kil-
imi var lafhræddur og sneri West-
man sér því að honum og sagði:
„Ert þú hræddur Kilimi? Þú átt
ekki að vera hræddur við óvini þína.
Wambubasvertingjarnir eru hrædd-
ir; ef til vill hlaupa þeir í burtu.
Farðu til þeirra' Kilimi og segðu
þeim að vera ekki hræddir við óvini
sína“.
Þetta hafði góð áhrif á svertingj-
ann. Hann rétti úr sér og þandi út
brjóstið.
„Nei, bawana, Kilimi er ekki
hræddur. Kilimi hleypur ekki burtu“,
sagði hann.
Hann gekk reiðilega til svertingj-
anna, ávítaði þá fyrir hræðsluna, og
sagði þeim að það væri skammar-
legt að vera hræddur við óvini sína.
Smám saman fór hræðslan af þeim,
en hann stappaði í þá stálinu og
urðu þeir rólegir. Nú var haldið
af stað aftur, og bað Westman þá
að halda vel hópinn.
„Hvernig hefir þú náð svo miklu
valdi á Kilimi?“ spurði Macrae og
lét í ljósi undrun sína.
Framh.
Kennarinn: Hvað er vindur?
Nonni litli: Vindur er loft, sem er
að flýta sér.