Dægradvöl - 14.01.1932, Qupperneq 23
DÆGRADVÖL
23
Frímerki og glæpir.
Margir hafa gaman af að safna
frímerkjum, og gera sumir sér það
að atvinnu, enda mun það vera góð
atvinna ef safnað er þeim merkjum,'
sem eru í sæmilegu verði. En stund-
um rekur frímerkjaágirndin menn
út í öfgar, eins og reyndar öll á-
girnd gerir. —
Nýlega var í Berlín heil fjölskylda
myrt út af einu frímerki. Morðing-
inn hafði fyrst viljað kaupa það og
viljað borga fyrir það offjár, en
þegar fjölskyldan vildi ekki selja
það náði hann því með valdi og
myrti alla fjölskylduna (þrjá menn).
Mun frímerki þetta hafa kostað ná-
lægt 40 þúsund krónur. Er það mik-
il upphæð fyrir eitt frímerki, en
þau merki munu vera til, sem virt
eru á 150 þúsund og jafnvel 200
þúsund krónur.
Þetta er að sögn ekki í fyrsta
skiftið, sem morð hafa verið fram-
in út af frímerkjum. Árið 1910 var
negri einn í Höfðaborg í Afríku,
sem hafði verið þjónn hjá frægum
afríkönskum frímerkjasafnara. Dag
nokkurn sá hann í búðarglugga
spjald eitt með álímdum frímerkj-
um, er voru til sölu. Á meðal þeirra
var eitt mjög gamalt og sjaldgæft
Mauritiusmerki, sem hann vissi að
var í mjög miklu verði, enda eru
ekki til, svo að menn viti, fleiri en
23 stykki af þeirri tegund í heimin-
um, svo að verð þeirra er komið upp
í 80 þúsund krónur. — Negrinn fór
inn í búðina og spurði um verð á
spjaldinu, og vegna þess hve ódýrt
það var, keypti hann það samstund-
is. Um kvöldið lenti hann í drykkju-
krá og fór þá að segja félögum sín-
um hve góð kaup hann hefði gert
og varð það til þess að hann var
eltur heim um nóttina og drepinn.
Þegar svo morðinginn ætlaði að
selja merkið frægum safnara þar í
borginni, var lögreglan búin að gera
honum aðvart, og var morðinginn
tekinn og hengdur.
Seinna komst í ljós við rannsókn
að merkið var ekki egta, heldur mjög
góð eftirlíking af hinu fræga Mauri-
tiusmerki. —
Stærsta frímerkjasafn í heimi er
sagt að sé í París og sé barónsættin
Ferrary eigandi þess. 1 það var
byrjað að safna árið 1865 og eru
nú frímerkin orðin yfir 500 þúsund
að tölu og virt á 12 til 15 milljónir
króna. —
Konungur Englands er ákafur frí-
merkjasafnari og er safn hans virt
á 6 milljónir króna.
Siggi: Segðu þeim allt sem þú
veizt, þú verður ekki lengi að því.
Nonni: Eg segi þeim allt sem við
vitum báðir. Eg verð ekkert lengur
að því.