SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Side 2
2 25. október 2009
18 Emilíana Torrini
Danmörk, Finnland, Bretland, Belgía, Frakkland, Pólland, Þýskaland,
Tyrkland, Slóvakía, Svíþjóð, Ítalía, Holland, Ungverjaland, Sviss,
Lúxemborg, Austurríki. Portúgal í kvöld. Evróputúrnum að ljúka.
16 Loftslagsklúður í Danaveldi?
Stemma á stigu við gróðurhúsaáhrifum á umhverfisráðstefnunni
í Kaupmannahöfn. Er það raunhæft?
26 Tengsl: Mæðgin í myndlist
„Mamma er alls ekki þessi klassíska íslenska ömmutýpa,“
segir Þórarinn Leifsson um Ingu Huld Hákonardóttur.
36 Kvikmyndir: Zombieland
Viðtöl við ungu stórleikarana Abigail Breslin ogJesse Eisenberg.
Lesbók
52 Fyrsta bókin
Margrét Örnólfsdóttir styður sjálfstæðisbaráttu krakka.
54 Frá Agöthu á Öldugötu
Ragnar Jónasson slæst í hóp glæpasagnahöfunda.
50 Veflistakonan
Hildur Bjarnadóttir notar íslenska ull og íslenskar jurtir í liti.
Efnisyfirlit
20
E
nn er rætt um Icesave.
Á meðan stofnanavæðist bús-
áhaldabyltingin. Um það má lesa á mót-
mælaspjaldi á Austurvelli:
„Mótmælendur krefjast aðstöðu við Austurvöll
fyrir veturinn. Skýli með gashitara, kaffiaðstöðu,
með því og ruslafötu.“
Allt lífsgæði sem eru til staðar inni í Alþingishús-
inu. Nokkrir mótmælendur meikuðu það inn í
hlýjuna og horfa nú út um gluggana á gamla félaga
norpa úti í kuldanum.
Á Alþingi er rætt um Icesave eins og vant er; mál
sem rænir hvaða bjartsýnismann sem er húm-
ornum. Það er fimmtudagur. Og í hádeginu sló í
brýnu með Steingrími J. Sigfússyni og Bjarna Bene-
diktssyni. Lætin voru slík að sjónvarpsáhorfandi
hringdi og kvartaði undan hávaða í þingsalnum.
„Þetta var falleg replikka,“ segir Helgi Hjörvar.
„Það sést best á því að Steingrímur velti Bjarna upp
úr því sem hann sagði í meirihluta og Bjarni velti
Steingrími upp úr því sem hann sagði í minni-
hluta.“
Pétur H. Blöndal lendir í matsalnum, sveiflar
gleraugunum eins og flugvélahreyflum, og segir:
„Ég sé þetta samþykkt. Þetta er skelfilegt.“
Kaffivélin tekur þátt í samsærinu. „Coffee Spout
Missing“. Engar málamiðlanir þar. Hún er á mála
hjá Bretum.
Davíð Stefánsson, Vinstri grænum, er dottinn inn
á þing. Ekki lítið í húfi fyrstu dagana. „Ég kem beint
í Icesave og skuldavanda heimilanna,“ segir hann.
– Viltu ekki bara hlaupa héðan út? spyr blaða-
maður.
„Nei,“ svarar hann og setur sig í stellingar. „Axla
ábyrgð.“
Í þingsalnum lafir íslenski fáninn að baki Ástu
Ragnheiði Jóhannesdóttur þingforseta og munn-
vikin á henni lafa líka.
Enn er rætt um Icesave.
Ragnheiður Elín Árnadóttir stendur í pontu og
talar um leikhús fáránleikans. Steingrímur og Jón
Bjarnason stinga saman nefjum í hliðarsal. Þeir eru
nauðalíkir, brúnn jakki og sama hárgreiðslan. En
Jón er með gleraugu.
Þegar Steingrímur sest er hann með svarta bók,
sem á stendur gylltum stöfum: „Saga Íslands“. Svo
skilur hann svarta Sögu Íslands eftir á borðinu þeg-
ar hann stendur upp til andsvara, en tekur hvítan
penna með sér í pontuna. Þannig vill hann skrifa
söguna.
Ragnheiður Elín er á öðru máli og svo fer að þau
hnakkrífast í þingsal, hvorugt í pontunni. Stein-
grímur sakar hana um að saka sig um landráð, en
hún sakar hann um að saka sig um að saka hann
landráð, nokkuð sem hún hafi aldrei sakað hann
um. „Fyrirgefðu, er ég að ónáða þig,“ segir hún
snúðugt.
Ekki eru margir vitni að orðasennunni. Flestir
stólar auðir. Á nokkrum borðum liggur Bænda-
blaðið. Sumt breytist aldrei. pebl@mbl.is
Svipmynd frá setningu Alþingis. Þar ganga ekki allir í takt þessa dagana. Enn er rætt um Icesave.
Morgunblaðið/Golli
Sumt breytist aldrei
Laugardag 24. október:
Litrík menning í dag og á morgun í
Gerðubergi frá kl. 13 til 17 um er-
lend áhrif á menningarlífið hér á
landi. Flóamarkaður og dagskrá
fyrir börn, m.a. Sóla á sögubílnum
Æringja báða dagana kl. 14. Einn-
ig taka þátt Fitore Berisha, lista-
kona frá Kosovo, Vadim Fedorov,
tónlistarmaður frá Rússlandi, og
salsakennarinn Edna Mastache
frá Mexíkó!
Sunnudagur 25. október
Gamanóperan Ástardrykkurinn eft-
ir Donizetti frumsýnd í Íslensku óp-
erunni. Garðar Thór Cortes og Dís-
ella Lárusdóttir leika elskendurna
ungu, Bjarni Thor Kristinsson er
kuklarinn sem bruggar drykkinn og
Ágúst Ólafsson er keppinauturinn
Balcore.
Þriðjudagur 27. október
Hádegistónleikar ÓP-hópsins og
Valgerðar Guðnadóttur í Íslensku
óperunni. Aríur, dúettar, tríó og
samsöngvar úr óperum frá ýmsum
tímum. Og kaupa má samlokur og
drykki til að seðja hungrið.
Föstudagur 30. október
Leikritið Fjölskyldan frumsýnt í
Borgarleikhúsinu, epísk saga í
anda sígildra verka 20. aldarinnar
frá verðlaunahöfundinum Tracy
Letts. Ættfaðirinn hverfur spor-
laust, fjölskyldan safnast saman á
óðalinu og smám saman leita
gömul leyndarmál og heitar ástríð-
ur upp á yfirborðið
Föstudagur 30. október
Heimildarmyndin This Is It um
Michael Jackson frumsýnd í
Smárabíói. Þar eru meðal annars
upptökur af undirbúningi tónleika-
ferðarinnar sem aldrei varð.
.
Við mælum með...
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Umsjón Barnablaðs: Signý
Gunnarsdóttir, signyg@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir,
Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Skapti Hall-
grímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
Á vettvangi
GERÐU
FRÁBÆR
KAUP
ILVA Korputorgi, Blikastaðvegi 2-8 112 Reykjavík
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
2
0
0
9
LAGERSALA
laugardag og sunnudag
L ÍTIÐ ÚTLITSGÖLLUÐ
HÚSGÖGN OG
SMÁVARA
Forsíðumyndina tók Hörður Sveinsson af Emilíönu Torrini.