SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Page 16

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Page 16
16 25. október 2009 Á kveða á aðgerðir til að stemma stigu við hlýnun andrúms- loftsins á loftslagsráðstefn- unni, sem haldin verður í Kaupmannahöfn í desember. Vís- indamenn hafa komist að þeirri nið- urstöðu að koma verði í veg fyrir að hita- stigið hækki um meira en tvær gráður á selsíus. Ef marka má orð ráðamanna er brýnt að gripið verði til aðgerða, en engu að síður gengur undirbúningurinn fyrir fundinn hægt. Markmiðið er að í Kaup- mannahöfn líti dagsins ljós sáttmáli, sem á að taka við af Kyoto-sáttmálanum, sem tók gildi árið 1997 og rennur út 2012. Nú er hins vegar gerð krafa um að sett verði skýrari markmið, sem hægt verði að fylgjast með og sannreyna að verði haldin. Málið vandast aftur á móti þegar kemur að útfærslunni og spurt er hverjir eigi að axla byrðarnar og færa fórnirnar. Óttast menn jafnvel að fundurinn í Kaupmannahöfn renni út í sandinn. Ekki auðvelda efasemdir um vísindin málin. Um miðjan mánuðinn birtist frétt á fréttavef BBC um að undanfarin 11 ár hefði engin hækkun orðið á hitastigi í heiminum og hlýjasta ár frá því mælingar hófust hefði hvorki verið 2008 né 2007 heldur 1998. Efahyggjumenn segja þetta renna stoðum undir kenningar þeirra um að finna megi margar náttúrulegar ástæður fyrir hlýnun og kólnun og hlutur mannsins sé hverfandi. Aðrir segja að búast megi við sveiflum. Meginþróun hitastigs sé upp á við, en alltaf megi búast við að hægi á ferlinu og jafnvel kólni tímabundið. Hættulega nærri þrátefli Fyrir hálfum mánuði var haldin ráðstefna á vegum stofnunarinnar Project Syndi- cate, sem er með fjölda dálkahöfunda úr röðum stjórnmála- og fræðimanna á sín- um snærum, undir yfirskriftinni frá Kyoto til Kaupmannahafnar. Við setningu ráðstefnunnar sagði Manuel Barroso, forseti framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, að þrátt fyrir fundahöld í New York, Pittsburgh og Bangkok hefði hann „verulegar áhyggjur út af horfunum á þessu stigi samninganna þar sem við erum hættu- lega nærri þrátefli“ og skoraði um leið á leiðtoga heims að leggjast á árarnar. Lars Løkke Rasmussen, forsætisráð- herra Danmerkur, fjallaði sömuleiðis um hægaganginn í viðræðunum, en kvaðst bjartsýnn: „Ég held að við getum í raun náð samkomulagi. Metnaðarfullu sam- komulagi. Mín tilfinning er sú að heil- brigð skynsemi verði ofan á og við mun- um finna praktískar lausnir á þeim vandamálum, sem eftir eru.“ Kofi Annan, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, dró upp mynd af þeim afleiðingum, sem spáð væri að loftslagsbreytingar gætu haft í för með sér. Á síðasta ári hefðu 20 milljónir manna lent á vergangi vegna hamfara, sem tengdust loftslaginu, og ástandið ætti eftir að versna. „Það er sorgleg kald- hæðni að þau lönd, sem hafa gert minnst til að valda loftslagsbreytingum, líða nú og munu líða mest fyrir afleiðingar þeirra,“ sagði Annan. Hann sagði að sanngirni væri lykilorðið í boðskap sín- um: „Auk þess að vera algilt og metn- aðarfullt verður framtíðarsamkomulag að hvíla á loftslagsréttlæti.“ Réttlæti í loftslagsmálum Réttlæti er einmitt leiðtogum þróunar- ríkja efst í huga í loftslagsmálunum. Graciela Chichilnisky, prófessor í stærð- fræði og hagfræði við Columbia-háskóla í New York, skrifar á vef BBC að þróun- arríki þurfi orku til að draga úr fátækt og staðreyndin sé einfaldlega sú að 89% af orkunotkun heimsins séu bundin við jarðefnaeldsneyti. „Rúmlega 50% íbúa heimsins lifa á undir tveimur dollurum á dag og meira en 1,3 milljarðar manna eru á mörkum þess að komast af og hafa að- eins einn dollara á dag,“ skrifar hún. „80% mannkyns búa í þróunarríkjum, en bera aðeins ábyrgð á 40% losunar- innar á meðan 60% losunar í heiminum eiga sér stað hjá ríku þjóðunum, sem eru 20% af íbúum jarðar.“ Auðugustu þjóðir heims bera því mesta ábyrgð á menguninni. Þegar þær lögðu grunninn að velferð sinni og velmegun gilti einu um umhverfismál og gróður- húsalofttegundir. Þróunarríkin vilja eðli- lega ekki að aðgerðir vegna synda auðugu ríkjanna verði dragbítur á þróun þeirra og ætla mörg þeirra ekki að skrifa undir nýjan samning nema þau fái fjárframlög til að aðstoða þau við að laga sig að nýjum aðstæðum. Því er spáð að 75% af aukinni orkuþörf í heiminum til 2030 verði í þró- unarríkjunum. Sérfræðinga greinir á um hvað það muni kosta, en ljóst er að upphæðirnar eru háar. Sumir segja að kostnaðurinn verði 100 milljarðar dollara á ári árið 2020, en því er jafnvel haldið fram að upphæðin verði þúsund milljarðar doll- ara. Iðnríkin hafa í raun samþykkt að þau þurfi að opna budduna og styrkja þróun- arríkin, en hvernig það verði gert og hver eigi að borga hvað er annað mál og hremmingar í fjármálalífi heimsins hafa ekki greitt fyrir lausnum. Mestrar aukningar á útblæstri gróður- húsalofttegunda er að vænta á Indlandi og í Kína. Kínverjar hafa látið að því liggja að þeir séu tilbúnir til að setja út- blæstri skorður án þess að skilgreina það nánar. Þótt mikið vanti upp á að Kínverj- ar hafi náð lífskjörum Vesturlanda eiga kínversk stjórnvöld digra sjóði og því hefur sú spurning vaknað hvort þeir eigi líka að borga. Pan Jiahua, framkvæmdastjóri Kín- versku félagsvísindaakademíunnar, sem situr í sérfræðinganefnd Kína um lofts- lagsbreytingar, sagði á blaðamannafundi á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn að Kín- verjar þyrftu að koma stöðugleika á losun áður en hafist yrði handa við að draga úr henni. Hann vísaði í valdatíð Maós for- manns þegar stökkið mikla framávið leiddi til hungursneyðar. „Við þurfum að reisa húsnæði og skapa ný störf,“ sagði hann. „Við þurfum ekki að endurtaka stökkið mikla framávið. Við þurfum að taka eitt skref í einu.“ Fátækt er aftur á móti mun meiri á Indlandi og Indverjar eru því mjög tregir til að samþykkja takmörk við útblæstri. Þeir líta á slík takmörk sem spennitreyju í þróunarmálum nema þeim berist drjúg aðstoð til að taka upp nýja tækni. Þrýstingurinn er ekki síst á Banda- ríkjamenn. Barack Obama Bandaríkja- forseti hefur talað fjálglega um umhverf- ismál, en hann hefur þó ekki tekið þá forustu í loftslagsmálum, sem margir vonuðust til að arftaki George Bush myndi gera. Þetta helgast meðal annars af því að Obama er tregur til að gefa fyr- irheit, sem kæmust ekki í gegnum þing- ið. Ef við hefðum 1000 jarðir … Breski fræðimaðurinn Nicholas Stern var á ráðstefnu Project Syndicate og sagði að rynni loftslagsfundurinn í Kaupmanna- höfn í desember út í sandinn væri það ekki eins og að fresta því að leggja veg eða reisa skóla: „Ef þetta tefst er hættan mun meiri, en við höfum grunninn til að ná samkomulagi.“ Stern sagði í skýrslu árið 2006 að 2°C hækkun á hitastigi myndi kosta 1% af þjóðaframleiðslu heimsins. Í nýlegri skýrslu frá Alþjóðabankanum kemur fram að kostnaðurinn vegna lofts- lagshlýnunar yrði mun meiri í hinum fá- tæku ríkjum heimsins. Kostnaðurinn yrði um 4% af þjóðarframleiðslu í Afríku og 5% á Indlandi. Það kemur því ekki á óvart að áhyggjur af hægagangi umræðna í aðdragandanum að fundinum í Kaup- mannahöfn skuli valda áhyggjum í þró- unarlöndunum. Hagfræðingurinn Joseph Stiglitz var meðal þátttakenda í ráðstefnu Project Syndicate. Hann var spurður um áreið- anleika vísindanna að baki fullyrðing- unum um hlýnun loftslags af manna- völdum og svaraði því til að hefði mannkynið yfir að ráða þúsund plán- etum á borð við jörðina væri einfalt að vera með tilraunastarfsemi. Þá væri hægt að halda uppteknum hætti og færi svo að ein pláneta yrði óbyggileg væri hægt að færa sig yfir á þá næstu. „En við höfum bara eina jörð, ekki þúsund, og eigum því ekki annars kost en að fara eftir viðvör- ununum,“ sagði Stiglitz. Loftslags- klúður í Kaup- mannahöfn? Í desember koma leiðtogar ríkja heims saman í Kaupmannahöfn til að gera nýjan loftslagssátt- mála, sem taka á við af Kyoto-sáttmálanum. Hægt hefur gengið að fá ríki heims til að leggja fram raunverulegar skuldbindingar, þótt ráða- menn tali fjálglega um þessi mál í ræðum. Karl Blöndal kbl@mbl.is Bandaríkin: Losa um sjö milljarða tonna af kolefni á ári í andrúmsloftið eða 20 tonn á mann. Takmark Bandaríkjamanna er að árið 2020 verði losun komin niður á það stig, sem hún var árið 1990. Það er 3-4% samdráttur. Evrópa: Í desember samþykktu aðildarríkin 27 í Evrópusambandinu að draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda um 20% fyrir árið 2020 miðað við útblástur 1990 og koma hlutfalli endurnýjanlegra orkugjafa af heildarnotkun í 20%. Suður-Ameríka: Brasilía skiptir máli í samningunum. Brasilíumenn segja að ríku löndin beri ábyrgðina á ástandinu og þurfi að axla þyngstu byrðarnar. Vilja að ríku löndin dragi úr losun um 40% árið 2020. Eru andvígir því að komið verði á kolefnisviðskiptum til að draga úr eyðingu skóga, en flest ríki heims virðast vera því fylgjandi. 40% Þáttur Kínverja og Bandaríkja- manna í heildarlosun kolefna í heiminum. 2°C Sú hækkun á hitastigi, sem vís- indamenn telja óhætt að eigi sér stað umfram meðalhita fyrir iðn- væðingu. Líkön vísindamanna benda til þess að hækki hitinn meira hefði það geigvænlegar af- leiðingar. 50% Samdrátturinn í losun koldíoxíðs sem sagt er að þurfi að eiga sér stað fyrir 2050 miðað við stöðuna sem var 1990 til að koma í veg fyr- ir að hitastigið hækki um 2°C.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.