SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Qupperneq 28

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Qupperneq 28
Ruslatunnur geta verið fínerís hæg- indastólar. H vernig væri að breyta gömlu gúmmíslöngunni í snyrti- buddu, ruslagámnum í sófa eða götótta ullarteppinu í tískupils og um leið auka verðmæti þessara gripa til muna? Uppvinnsla eða „upcycling“ eins og það kallast á ensku er eitt heitasta æðið í hönnunarheiminum í dag en afurðir sem hafa farið í gegn um uppvinnslu seljast eins og heitar lummur um þessar mundir. Uppvinnsla er ákveðin tegund endurvinnslu en í stað þess að brjóta hráefnið (þ.e. gömlu hlutina) niður í frumeindir áður en byggt er upp úr þeim að nýju eru þeir nýttir beint í sköpun nýrra hluta um leið og upprunanlegt útlit þeirra fær að njóta sín að einhverju eða mestu leyti. Þetta er mun ódýrara og umhverfisvænna því töluverð orka og pen- ingur fer í að bræða plast og málma, endurvinna pappír eða t.d. búa til garn eða ný efni úr gömlum flíkum, eins og hefðbundin endurvinnsla gengur m.a. út á. Raunar hefur uppvinnsla viðgengist í þriðja heims löndum í árarað- ir, þar sem umbúðir og gamall fatnaður er endurnýttur til hins ýtr- asta, en þar er hún fremur ástunduð af nauðsyn en í því skyni að hlífa umhverfinu. Skólar senda inn hráefnið Nú er uppvinnsla hins vegar að verða æ meira áberandi í hinum vest- ræna heimi sem helgast einmitt af auknum áhuga á umhverfisvænum vörum, sér í lagi þeim sem fást á sanngjörnu verði en eru engu að síður ábatasamar fyrir framleiðandann. Þannig hafa hugvitsamir hönnuðir töfrað fram allt frá skartgripum til húsgagna úr rusli með því t.d. að breyta rifnum söndulum í armbönd, ónýtum blöndurum í lampa og úreltum hjólabrettum í borðplötur. Reuters fréttastofan segir frá nokkrum slíkum framleiðendum, s.s. bandaríska fyrirtækinu TerraCycle sem sérhæfir sig í að nýta umbúðir í framleiðslu sína. Á heimasíðu fyrirtækisins má m.a. finna töskur, leikföng og pennaveski úr drykkjar- og kexumbúðum. Fyrirtækið greiðir skólum og ýmsum hópum minniháttar upphæð fyrir að senda sér umbúðirnar og á heimasíðunni má einnig skrá sig til þess verks. Fyrirtækið stofnaði Tom Szaky árið 2001 og í nýrri bók sinni, „Re- volution in a Bottle“, segist hann vera að vinna að því að útrýma hug- myndinni um úrgang með því að sanna að hægt sé að endurnota, end- urvinna eða uppvinna allt. „Við elskum áskorunina sem felst í því að horfa á hvers kyns úrgang og ímynda okkur eitthvað stórkostlegt sem gæti komið út úr honum,“ segir Szaky. „Okkar vörur eru bæði grænni og ódýrari.“ Þetta eru orð að sönnu – sé heimasíðan skoðuð aftur má sjá að ágætis skólataska úr Capri Sun ávaxtasafaumbúðum kostar um 13 dollara, eða rétt rúmar 1.600 krónur. Flugdreki úr umbúðum utan af Oreo-kexi kostar tæpa fjóra dollara, eða innan við 500 kall. Þess má geta að bókarkápan utan um bók Szakys er sérstaklega gerð til þess að hægt sé að skila henni inn til uppvinnslu. Diaz girt með brunaslöngu Fleiri fyrirtæki hafa vakið heilmikla athygli, s.s. breski framleiðandinn Elvis & Kresse Organization (E&KO) sem nýtir iðnaðarúrgang til að búa til nýjan lúxusvarning. Á heimasíðu þeirra má sjá mikið úrval glæsilegra belta og handtaska úr brunaslöngum. Þar er verðið öllu hærra en hjá TerraCycle; beltin kosta á bilinu 25 til 55 pund, eða um 5.000 til 11.000 krónur, enda er hönnunin eftirsótt af fræga fólkinu. Meðal þeirra sem hafa látið mynda sig með E&KO belti er leikkonan Cameron Diaz og hollenska hljómsveitin Moke. Þá framleiðir fyrirtækið einnig heimilisvörur, s.s. glasa- og diska- mottur úr brunaslöngunum sem og grófa kertastjaka úr vatnspípum. „Við vonumst til að geta breytt lúxus fylgihlutaiðnaðinum með góðu fordæmi,“ segir James Henrit einn af stofnendum E&KO en fyrirtækið horfir fyrst og fremst til þess að endurvinna gróft „hráefni“. Þá má ekki gleyma hönnunarbúðinni Gabarage sem staðsett er í Vín í Austurríki. Þar framleiða menn heilu húsgögnin úr tilfallandi dóti en einnig bjóða þeir viðskiptavinum sínum að róta í gegn um drasl á borð við notuð geisladiskahulstur, gamla tölvukubba og úreltar röngten- filmur til að velja sér hráefni í sína eigin, sérhönnuðu tösku. Upp- vinnsluteymi verslunarinnar sér svo um sköpunina. Ljósmynd/Sandra Krimshandl-Tauscher Ruslinu breytt í lúxusvöru „Uppvinnsla“ er nýjasta æðið í hönnunarheiminum þar sem gamalt drasl fær á sig nýjan svip og eykur verðgildi sitt til muna um leið Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Umbúðir utan af kart- öfluflögum eru litríkt og flott hráefni í t.d. tösku að mati TerraCycle Gamlar 8mm ræmur verða að loftljósi hjá Garbage. Gamlar möppur fá nýtt hlutverk sem fatastandur. Ónýtar bruna- slöngur eru fyrirtaks hrá- efni í háklassa handveski. Umferðarskilti getur hæglega breyst í lítið borð í meðförum Gab- arage. Snillingarnir hjá Gab- arage breyta aflóga fótbolta í blómapott. 28 25. október 2009

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.