SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Side 31
25.október 2009 31
bensíni þegar lent er á áfangastað og við
fórum aðeins fram yfir það. Hjá því varð
ekki komist.
Lendingin var eiginlega það sem við
þurftum að vanda okkur mest við því það
að lenda stélhjólsvél í sterkum hlið-
arvindi á brautina er ekki auðvelt. Það
gekk allt upp hjá okkur í þetta skiptið,
það er óþolandi að missa af mynd eftir
svona erfitt flug.
Þegar við vorum lentir var okkur tjáð
að það væri komið flugbann yfir svæðið
þar sem ísbjörninn var. Einungis yrði
leyft flug í sjö mílna fjarlægð og 5.000
feta hæð.
Verður Íslandssagan og atburðir á Ís-
landi myndaðir í framtíðinni á Google
Earth, sem er forrit sem sýnir myndir
teknar úr gervihnetti? Það þarf að vera
einhver glóra í því hvernig reglur eru
settar, saman getum við auðveldlega
skrásett söguna með skynsemi.
Það er hlutverk ljósmyndara og kvik-
myndatökumanna um allan heim að skrá
söguna í myndum. Það á við um atburði
sem þennan því allir vilja jú sjá myndir af
ísbirni sem kemur á land við Ísland.
Ég skil vel að það þarf að fara varlega
við svona aðstæður, en það var nú ekki
eins og hálf þjóðin færi í flug í 30 metra
vindi á sekúndu að skoða þennan ísbjörn.
Það hefur alltaf verið góð tilfinning að
ná myndum á vettvangi atburða við erfið
skilyrði þar sem reynir á menn. Morg-
unblaðið hefur alltaf farið vel með at-
burði á erfiðum stundum, það var okkar
uppeldi af góðum mönnum og verður
áfram.
Það var samt skrítið að vinna fyrir tvö
blöð, annars vegar Morgunblaðið og hins
vegar 24 stundir, sem á þessum tíma
vildu bæði myndirnar. Morgunblaðið
birti myndina í fimmdálki yfir forsíðuna
en 24 stundir vildu fá stóra tveggja dálka
mynd sem var tíu sentimetrar á kant. Ég
hafði ekki heyrt áður að eitthvað væri til
sem héti „stór tvídálkur“. Ég hef aldrei
skilið tilganginn í því að nota mynd í
dagblað þar sem lesandinn sér ekki hvað
er á myndinni.
Ég var líka viss um að hann færi ekki af stað, ég hafði gert
þetta áður á Grænlandi og farið í nokkra leiðangra með
ísbjarnarveiðimönnum út á hafísinn og lært inn á hegð-
unarmynstur dýranna. Ísbjörn er annars óútreiknanleg
skepna, sennilega með vitrustu og tignarlegustu dýrum
jarðarinnar og þarf að hafa allan vara á sér nálægt þeim.