SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Qupperneq 32
32 25. október 2009
H
ún er aðeins 29 ára og er samt komin í hóp
nánustu ráðgjafa Davids Cameron, leið-
toga breska Íhaldsflokksins sem flest
bendir til að muni sigra í þingkosning-
unum á næsta ári. Anna-Maren Ashford á að bæta
ímynd íhaldsmanna, tryggja að flokkurinn birtist al-
menningi eins og leiðtoginn kýs að hann geri, að Bretar
sjái framsækinn, kraftmikinn flokk sem vilji tryggja
velferðina en um leið sýna ábyrgðarkennd í fjármálum
og heiðra hefðirnar. Anna-Maren snertir taug í Íslend-
ingum, móðir hennar, Erla Kiernan, er íslensk og sjálf
er Anna-Maren með bæði breskt og íslenskt vegabréf.
„Hvað segir þú gott?“ segir Anna-Maren á kórréttri
íslensku og án hreims þegar blaðamaður hringir í hana.
Hún segist samt ekki tala málið nógu vel en hafi lært
heilmikið á þrem mánuðum í Háskólanum hér eftir að
hún lauk stúdentsprófi en auk þess komið oft hingað
til lands í skemmri heimsóknir. En hver er hún?
„Mamma átti íslenska móður en pabbi hennar var
enskur, Stanley Kiernan,“ segir Anna-Maren. „Hann
bjó á Íslandi mestalla ævina, var sendur þangað í seinni
heimsstyrjöld og kynntist þá ömmu minni, Maren
Níelsdóttur, sem ég heiti eftir. Afi, sem talaði alla tíð
íslensku með sterkum hreim, átti súkkulaðiverksmiðju
og var þekktur á Íslandi, hann kynnti Íslendingum
súkkulaðipáskaegg!
Mamma er úr sex barna hópi og alin upp í Reykjavík,
hún er arkitekt. Hún er núna sextug, fór 19 ára held ég
til Skotlands, alveg peningalaus en fékk strax styrk til
náms í arkitektúr við Edinborgarháskóla, grein sem
ekki var hægt að læra á Íslandi. Mamma er mjög metn-
aðarfull og ákveðin kona!
Hún fékk síðan vinnu í London og kynntist þar föður
mínum, Philip Ashford sem er skipulagsfræðingur.
Þau verja reyndar miklum tíma í Reykjavík vegna þess
að þau hafa keypt sér þar íbúð, fara þangað nokkrum
sinnum ári.
„Dálítil
togstreita
í mér“
Anna-Maren Ashford er
bresk-íslensk og er meðal
helstu ráðgjafa Davids
Cameron
Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is.
Anna-Maren Ashford:
„Rétt, við beitum ný-
stárlegum aðferðum og
hönnun en gildin eru
skýr. Þetta eru gildi
Íhaldsflokksins, þau
eru innihaldið í öllu
sem við gerum, hverjar
sem umbúðirnar eru
hverju sinni.“
Plaköt sem Anna-Maren hefur látið hanna. Hér er bent á að Verka-
mannaflokkurinn hafi hlaðið upp ríkisskuldum sem lendi síðar á börn-
unum. „Nef pabbans, augu mömmunnar, skuldir Gordons Browns.“
David Cameron hafði gegnt embætti leiðtoga breska
Íhaldsflokksins í hálft ár þegar hann árið 2006 réð
ungan ráðgjafa hjá markaðsfyrirtækinu Rainey Kelly
Campbell Roalfe/Y&R, Önnu-Maren Ashford, í nýja
stöðu ráðgjafa til að hressa upp á staðnaða ímynd
flokksins. Kannanir höfðu sýnt að kjósendur væru
ágætlega sáttir við stefnuna en litist illa á sjálfan
flokkinn.
Ekki var nóg að nýi leiðtoginn væri ungur, fleira
þurfti til. Anna-Maren hófst þegar handa, hún lét í
samráði við umdæmisfélög flokksins hanna nýtt
merki fyrir hann, mynd af eikartré. Gamla merkið var
frá tíma Thatcher á níunda áratugnum, kyndill sem
tákna átti frelsið. En eikin á að minna á umhverf-
isvernd, rætur og hefðir.
Anna-Maren hefur unnið mikið að skipulagningu
flokksþinga. Fullyrt er í breskum blöðum að hún hafi
jafnvel fengið suma staðnaða og rykfallna jakkafata-
kalla á þingunum til að hressa upp á útlitið, ganga um
með opið í hálsinn. Plakötin hennar þykja beinskeytt
og snjöll og hugtök eins og „félagsleg ábyrgð“ og „vel-
ferð“ eru ekki lengur einkaeign Verkamannaflokksins.
Og Cameron hlýddi ráðum ímyndarsérfræðinganna
og sýndi á sér mjúku hliðarnar. Hann hjólar í vinnuna
og leggur áherslu á einlægan áhuga sinn á umhverf-
ismálum og siðbót í stjórnmálum.
Valið á Önnu-Maren vakti verulega athygli fjölmiðla,
ekki síst að hún skyldi viðurkenna að hafa áður stutt
Verkamannaflokkinn. Ekki hinn dæmigerði, ungi
íhaldsmaður. „Það er einhver vægðarlaus kraftur í
henni,“ sagði gamall vinnufélagi, James Murphy, og
taldi að þessi eiginleiki gæti verið að hluta frá ís-
lenskri móður hennar.
Brown getur reynt að pakka tillögum sínum í fallegan gjafapappír en
í þeim er samt skattasprengja, segir á þessu plakati. Neðst er al-
menningur hvattur til að láta Brown ekki komast upp með þetta.
Rykið dustað af
Íhaldsflokknum