SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Síða 33
25.október 2009 33
Ég elska Ísland, landið leikur svo stórt hlutverk í
mínu lífi og ég hef mikil og góð tengsl við ættingja
mína þar. Það er slæmt að ég skuli ekki tala málið al-
mennilega en ef ég dveldi á Íslandi í eitt ár myndi ég
áreiðanlega ná þessu. Annars reyni ég að æfa mig eftir
mætti þegar ég fer í heimsókn til ykkar!
Ég ætla að giftast unnusta mínum á næsta ári, hann
er Skoti og heitir Jamie McCall. Við fáum íslenskan
prest sem heitir Sigurður Arnarson til að gifta okkur.“
Anna-Maren lauk námi í líffræði við Oxfordháskóla
en ákvað síðan að halda áfram að vinna við markaðs-
og kynningarstörf. „Ég hefði alveg eins getað lært
sagnfræði eða lagt stund á listir, hef alltaf litið á sjálfa
mig sem opna fyrir öllum greinum, hef viljað skapa en
einnig haft áhuga á vísindum og fræðum. Best er að
geta unnið með alls konar fólki og gert eitthvað sem
mér finnst skipta máli.“
Anna-Maren er minnt á Icesave og annað klúður.
Hún er bæði bresk og íslensk. Er stundum togstreita í
henni vegna þessara mála?
„Það er vissulega dálítil togstreita í mér. Mér finnst
gott að fólkið sem lagði peninga inn á Icesave skuli fá
endurgreitt en er mjög döpur yfir því að það var nauð-
synlegt að gera þetta með þeim hætti sem gert var. Ég
hafði auðvitað miklar áhyggjur af Íslandi í hruninu og
hugsaði svo mikið til allra þar, hafði áhyggjur af ætt-
ingjum mínum. Þetta var allt saman mjög vont.“
„Við skiptum ekki aðeins um leiðtoga“
En hvaða hlutverki gegnir hún hjá Íhaldsflokknum?
„Opinberi titillinn er yfirmaður miðlunar á vöru-
merkinu og þetta þýðir að ég hef umsjón með allri
hönnun. Við skiptum m.a. um flokksmerki en ég stýri
líka vali á öllum auglýsingum og kynningu, hvort sem
það er mynd eða myndskeið í sjónvarpi, herferð með
plakötum eða kynningarátak á netinu. Þetta er mjög
víðtækt, ég kem líka að samskiptum við fjölmiðla og í
rauninni öllum almannatengslum okkar. Þetta er þess
vegna mikilvægt starf og mjög spennandi líka. Við
skiptum ekki aðeins um leiðtoga heldur stokkuðum
upp flokksstarfið og allt viðmót Íhaldsflokksins og það
er frábært að geta komið að þessu sem fagmanneskja.
Ótrúlega gefandi og skapandi. Og enn mikilvægara er
að það skiptir svo miklu máli fyrir alla þjóðina hvernig
okkur tekst upp. Ég er því óskaplega ánægð í
vinnunni!“
Hún er spurð hvort hún reyni að fá frambjóðendur
og jafnvel gamla flokksþingsfulltrúa til að vera nú-
tímalegri í klæðaburði, hrista af sér gamalt íhaldsryk.
Anna-Maren hlær dátt og segir það aldrei koma til
greina, þannig afskipti yrðu mjög illa séð. Flokkurinn
sé með flesta félaga af öllum flokkum Bretlands og þeir
séu sjálf undirstaðan. Hún viðurkennir að meðalaldur
skráðra flokksfélaga sé hár (hann er rösklega 60 ár) en
það sé reyndin í öllum flokkum og auk þess sé ung-
liðahreyfingin mjög sterk og virk hjá íhaldsmönnum.
Stundum er sagt að spuni og yfirborðskennd aug-
lýsingamennska einkenni of mikið nútímastjórn-
málin, innihaldið ætti að vera aðalmálið. Leggur
Anna-Maren og hennar fólk of mikla áherslu á ímynd-
ina?
„Ég held að fólk verði að horfa á heildarmyndina.
Allt sem við gerum byggist á grunni sem er og mótar
sjálft innihaldið. Öll stefnumörkun sem við höfum
kynnt síðustu árin byggist á nútímalegri íhaldsstefnu.
Við höfum t.d. kynnt mikið af tillögum varðandi um-
hverfisvernd. Mitt starf felst í að koma þessum til-
lögum og hugmyndum á framfæri og minna um leið
fólk á grundvallargildi okkar. En við breyttum mörgu í
boðskapnum vegna þess að okkur fannst margt af því
gamla gefa kolranga mynd af okkur.
Plakötin okkar sýna vel hvað ég á við, þar er undir-
strikað hvað við viljum leggja áherslu á og þau eru ólík
öllu öðru sem beitt er í stjórnmálum núna. Við erum
að hampa nútímahugsun, framleiðni, krafti og sókn til
framtíðar af því að þetta er það sem við stöndum fyrir.
Þetta er oft einfaldur boðskapur og sagður á manna-
máli en grundvallargildi okkar fara ekki milli mála.
Rétt, við beitum nýstárlegum aðferðum og hönnun en
gildin eru skýr. Þetta eru gildi Íhaldsflokksins, þau eru
innihaldið í öllu sem við gerum, hverjar sem umbúð-
irnar eru hverju sinni.“
– Sum plakötin minna dálítið á gömul áróðursspjöld
frá Stalínstímanum. Voru þau fyrirmynd að stílnum?
„Ég held að það sé rétt ábending,“ svarar Anna-
Maren. „Það var margt sem hafði áhrif á okkur og við
skoðuðum gömul plaköt sósíalista sem voru mjög ein-
föld en áhrifamikil. Sum af okkar plakötum end-
urspegla þessa nálgun. En við höfum líka skoðað
vandlega snjallar og vinsælar myndir á bolum, teikn-
arar sem gera þessar myndir eru oft mjög góðir. Einn
þeirra heitir Mark Titchner, hann notar mjög bein-
skeyttar hugmyndir. Við notum því góðar tjáskipta-
hugmyndir af öllu tagi til að miðla okkar eigin boð-
skap.“
Guardian áfram eftirlætishelgarblaðið
– Foreldrar þínir kusu Verkamannaflokkinn og það
gerðir þú líka, eða hvað?
„Já, það er rétt, þau kusu alltaf Verkamannaflokk-
inn og urðu fyrir sjokki þegar ég snerist. En þau styðja
mig dyggilega og eru stolt af því sem ég er að gera, auk
þess veit ég að mamma var orðin mjög vonsvikin yfir
Verkamannaflokknum. Við sjáum til hvað þau gera.
Ég hafði aldrei velt fyrir mér að kjósa Íhaldsflokkinn
áður en David Cameron varð leiðtogi. Mér fannst
íhaldsmenn ekki höfða neitt til mín áður en hann tók
við en ef ég á að vera hreinskilin var ég ekki mjög póli-
tísk. Allir stjórnmálamenn fóru í taugarnar á mér þeg-
ar ég var yngri!
En ég hafði samt sterkar skoðanir á afmörkuðum
málefnum, umhverfismálum, mannréttindum og fleiri
slíkum. Cameron vakti áhuga minn og í fyrsta sinn
fannst mér ég hlusta á stjórnmálamann sem talaði af
skynsemi, hefði eitthvað raunverulegt fram að færa.
Og varð mjög hissa þegar ég skildi að ég var sammála
þeim gildum sem hann ræddi um. Ég snerist því mjög
skyndilega.“
– En lest enn vinstrablaðið Guardian eða hvað?
„Já, það er enn eftirlætishelgarblaðið mitt! Reyndar
er það ekki síst vegna þess að það fjallar svo mikið um
ferðalög og ég hef ferðast mikið um heiminn.“
– En hvað með framtíðina, ferðu kannski sjálf út í
stjórnmál?
„Ég er mjög hrifin af því sem ég er að gera núna og
nýt starfsins í botn. En hver veit?“
Allir stjórnmálamenn fóru í taug-
arnar á mér þegar ég var yngri!
Anna-Maren
með for-
eldrum sín-
um, Philip
Ashford og
Erlu Kiernan.
Hún á tvö
yngri systkin,
Peter og
Christinu.
David
Cameron og
eiginkonan,
Samantha
Cameron.