SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Qupperneq 40

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Qupperneq 40
Gatan mín 40 25. október 2009 K ristín Jóhannesdóttir leikstjóri og Sigurður Pálsson skáld hafa búið í Mávahlíð undanfarin 22 ár. Þau segja ýmislegt hafa breyst síðan þau fluttu fyrst í götuna, t.d. séu Hlíðarnar orðnar meira miðsvæðis en þær voru áður. „Þá var miðborgin meiri miðborg,“ segir Sigurður og tekur sem dæmi að Leikfélag Reykjavíkur hafi verið í Iðnó, Morgunblaðið í Aðalstrætinu og Ríkisútvarpið við Skúlagötuna. Skömmu síðar breyttist það og Hlíðarnar þóttu meira miðsvæðis þegar Kringlan og Borgarleikhúsið voru opnuð, Morg- unblaðið flutti í Kringluna og RÚV í Efstaleitið. Aðspurð segja þau gróðurinn vera einn helsta kost göt- unnar, en hann vakti áhuga þeirra á hverfinu í upphafi, og að þar skuli vera kaupmaður á horninu, í Sunnubúðinni. „Svo það að göturnar skuli vera einstefnugötur hefur í för með sér að hverfið verður miklu rólegra,“ segir Kristín. „Maður hefur á tilfinningunni að maður sé í smábæ frekar en í stórborg og að maður sé óhultari. Svo er þetta líka mjög kosmópólít gata, Mávahlíðin, maður gengur stundum hér út og hittir Milan Kundera sem býður góðan daginn upp á frönsku.“ Sigurður útskýrir að Friðrik Rafnsson, sem þýðir verk Milans Kundera, búi í Mávahlíðinni og séu þeir miklir vinir. Kundera komi reglulega að heimsækja Friðrik og ræða þýðingarnar. „Þetta er mjög óvenjulegt því Milan Kundera er nú ekki á ferli hvar sem er,“ segir Krist- ín. „Sama hvar hann er í heiminum fer hann huldu höfði en hér gengur hann frjáls og það er enginn að áreita hann.“ ylfa@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Líkt og í litlum bæ                        Lán til íbúðakaupa Lán til endurbóta og viðbygginga Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka) Úrræði í greiðsluvanda

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.