SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Qupperneq 49

SunnudagsMogginn - 25.10.2009, Qupperneq 49
25.október 2009 49 Skák nýkominn frá miklum sigri í Kína, hætti við að tefla með Norð- mönnum en hann mun taka þátt í minningarmóti um Mikhail Tal sem hefst í Moskvu í byrjun nóv- ember. Almennt er álitið að nýr þjálfari Magnúsar sjálfur Garrí Kasparov hafi ráðlagt Magnúsi að hvíla sig fyrir þátttöku í Moskvu. Sigur Dags fylgir hér á eftir. Í flókinni og skemmtilegri bar- áttuskák missir hvítur tök á stöðunni og Degi tekst með nokkrum hnitmiðuðum leikjum að knýja fram sigur. Þegar hvítur féll á tíma eftir 38 leiki var staða hans sennilega töpuð. EM - Novi Sad 2009; 1. um- ferð: Viktor Laznicka – Dagur Arngrímsson Slavnesk vörn 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. e3 Bf5 5. Rc3e6 6. Rh4 Be4 7. f3 Bg6 8. Db3 Db6 9. Rxg6 hxg6 10. Bd2 Rbd7 11. Bd3 Be7 12. O-O g5 13. g3 Hd8 14. Hf2 Dxb3 15. axb3 a6 16. g4 O-O 17. Bf1 e5 18. h3 exd4 19. exd4 c5 20. He2 Bd6 21. Rxd5 Rxd5 22. cxd5 cxd4 23. Bxg5 f6 24. Bd2 Rc5 25. Ha3 Rd3 26. Ha2 Be5 27. b4 Bd6 28. b5 axb5 29. He4 Re5 30. Kg2 Hc8 31. b3 Ha8 32. Hxa8 Hxa8 33. Bxb5 Ha2 34. He2 d3 35. Hf2 Bc5 36. Be3 Ha5 37. Bxc5 Hxb5 38. b4 b6 (Sjá stöðumynd) - og hvítur féll á tíma. Hjörvar vann átta skákir í röð Hjörvar Steinn Grétarsson vann glæsilegan sigur í Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur sem lauk í síðustu viku. Hjörvar hlaut 8 vinninga af 9 mögulegum í A- riðli og gerði sér lítið fyrir og vann átta fyrstu skákir sínar en tapaði í lokaumferðinni fyrir Sig- urbirni Björnssyni. Hjörvar hækkar um tæp 40 stig fyrir frammistöðuna sem er reiknuð uppá 2587 elo-stig. Lenka Ptacnikova varð í 2. sæti með 6 ½ vinning en Ingvar Þ. Jóhann- esson þriðji með 6 vinninga. Sig- urður Daði Sigfússon varð efstur TR-inga í 4. – 5. sæti með 5 ½ vinning og hlýtur því nafnbótina Skákmeistari TR 2009. Í B-riðli sigraði Patrekur Maron Magn- ússon en Helgi Brynjarsson og Frímann Benediktsson komu næstir. Friðrik Þjálfi Stefánsson vann C-riðilinn og Örn Leó Jó- hannesson D-riðilinn. Helgi Ólafsson helol@simnet.is Wisvanathan Anand um heims- meistaratitilinn fari fram í Sofía í Búlgaríu í apríl nk. Nýr forsætis- ráðherra Búlgaríu, Boyko Bor- isov, hefur persónulega ábyrgst verðlaunafé sem nemur 2 millj- ónum evra. Íslenska liðið er ágætlega frambærilegt og fylgja því góðar óskir. Það vekur þó athygli að sigurvegararnir frá síðasta Reykjavíkurmóti þeir Hannes Hlífar Stefánsson og Héðinn Steingrímsson eru ekki í liðinu að þessu sinni. Vegna kostnaðar virðist Skáksambandið hafa gefið mótið frá sér en styrkir þó ís- lensku þátttakendurna að ein- hverju leyti. Þessi afstaða vekur ýmsar spurningar. Fyrir liggur að mótið er ein öflugasta flokka- keppni sem um getur og ætti að vera á verkefnaskrá SÍ. Önnur „ekki-þátttaka“ vekur mikla athygli. Magnús Carlsen, Íslendingar töpuðu 1 ½ : 2 ½ fyrir Tékkum á Evrópumóti landsliða sem hófst á fimmtudaginn í Novi Sad í Serbíu. Íslenska liðið sem er skipað þeim Jóni Viktor Gunn- arssyni, Degi Arngrímssyni, Birni Þorfinnssyni og Braga Þor- finnssyni er nr. 32 í styrk- leikaröðinni af 38 þátt- tökuþjóðum. Það bar helst til tíðinda að Dagur Arngrímsson vann stór- meistarann Viktor Laznicka, og Bragi Þorfinnsson gerði jafntefli við Robert Cvek. Jón Viktor tap- aði hinsvegar fyrir David Navara og Björn fyrir Vlastimil Babula. Tékkneska liðið er þrettánda í styrkleikaröðinni. Margir af sterkustu skák- mönnum heims taka þátt í Evr- ópumótinu t.a.m. Venselin Topalov sem er stigahæsti skák- maður heims. Á dögunum var gengið frá því að einvígi hans við Dagur vann – en naumt tap fyrir Tékkum LÁRÉTT 1. Fugl sem er ekki ataður í Norðurdakóta. (6) 3. Áfengi í herbúðum er af fínni sort. (8) 7. Sírena fær fleiri til að flækjast um plöntu. (8) 10. Mér heyrðist aðsjáli Pétur lenda í end- urskipulagningu. (8) 11. Stutt ferð eftir mal. (7) 13. Mannspartar í borg. (6) 15. Stjórnsöm en full af úrræðum. (6) 16. Þrjú dönsk fá andvara frá heimskustu. (7) 17. Óþekktur kemur um jólin með plöntuna. (7) 18. Sjá fyrirtæki bjóða upp á harpix. (8) 21. Lausri ók einhvern veginn ásamt ketti. (8) 23. Kaup eða kaup í leik? (8) 24. Leikfélagi sem er ekki til samkvæmt máls- hættinum. (10) 26. Þurrka út innyfli fjöldskyldumeðlimanna. (8) 27. Góðir félagar hvítrar kúlu? (10) 30. Svipaðir stafir finnast stundum á líkama okk- ar. (7) 32. Kusu hóp ósk með töfra orðum. (10) 33. Klukkan er kurfsleg hjá presti. (7) 34. Efnahagsþrengingar hjá frændum hunda verða miklar ógöngur. (10) LÓÐRÉTT 1. Kyn sem Dilli og óþekktur fá sem ljósgjafann. (10) 2. Ótrúlegur er á mörkum þess að vera falskur. (5) 4. Vant rómi og tortryggni. (9) 5. Varla þrengst. (7) 6. Slíkur ýr getur orðið ljóðrænn. (8) 8. Bytta las rósina einhvern veginn. (9) 9. Prósenta sem Einar fær fyrir að flækjast í tungumáli. (9) 12. Halda sýningu á peningum og láta í ljós. (7) 14. Epli bera óbreyttir Rómverjar. (8) 19. Ari með Per M. gubbar yfir tæki. (10) 20. Sá fyrsti fundinn af skapvondum. (8) 22. Fær kaup möglunarlaust en fjarlægir margt í staðinn. (8) 25. Jósef rak skrímsli í benduna. (8) 28. Sjálf í allegóríu. (3) 29. Málmur fer í hlekkinn (6) 31. Kjarkur Natríum nær að þurrkast upp. (5) VERÐLAUN eru veitt fyrir rétta lausn kross- gátunnar. Senda skal þátttökuseðilinn með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausninni í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðs- ins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frest- ur til að skila úrlausn krossgátu 24. októ- ber rennur út næsta föstudag. Nafn vinningshafans birtist laugardaginn 31. október. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 18. október sl. er Ásdís Viggósdóttir. Hún hlýt- ur í verðlaun bókina Rán eftir Álfrúnu Gunn- laugsdóttur. Forlagið gefur út. Krossgátuverðlaun

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.