SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Síða 8

SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Síða 8
8 8. nóvember 2009 Vikuspegill Baldur Arnarson bladura@mbl.is Þ að var í maímánuði 1961 sem John F. Kennedy flutti innblásna ræðu á Banda- ríkjaþingi. Land hinna frjálsu og hug- prúðu skyldi komast á tunglið fyrir lok áratugarins, á undan erkióvininum, Sovét- ríkjunum. Geimferðakapphlaupið var hafið. Sex árum áður hafði ungur kínverskur mennta- maður, Qian Xuesen, flæmst úr Bandaríkjunum eftir nornaveiðar öldungadeildarþingmannsins Josephs McCarthys, náins vinar Kennedy-fjöl- skyldunnar, sem skömmu síðar féll í ónáð. Þetta er hér rifjað upp fyrir þá sök að Qian, sem kvaddi þennan heim í síðustu viku, var faðir kín- versku geimflaugaáætlunarinnar og einn áhrifa- mesti menntamaður í Kína á síðari hluta 20. aldar. Maðurinn sem fylgismenn McCarthys bendluðu að ósekju við kommúnisma varð, án þess að hafa stefnt að því, þjóðhetja í Kína Maós. Og ekki er hetjuljóminn minni í Kína Hu Jintaos, núverandi forseta, sem boðar veglega minningarathöfn. Eftirsóttir eiginleikar Þegar Qian hóf nám við hinn virta Tækniháskóla í Massachusetts (MIT) árið 1934, þá 23 ára, fór af stað atburðarás í Evrópu sem gerði menn með hans atgervi eftirsótta af herjum stórveldanna. Þýskaland nasismans lagði allt kapp á að þróa eldflaugar þar sem annar afburðasnjall ungur maður, Wernher von Braun, gegndi lykilhlut- verki, líkt og hann átti að gera síðar við þróun geimferðaáætlunar Bandaríkjanna (sjá ramma). Og ekki minnkaði þörfin fyrir slík heilabú þegar kjarnorkusprengjan, sem Qian kom að því að þróa í Manhattan-verkefninu bandaríska, skapaði nýtt ógnarjafnvægi í köldu stríði þar sem langdrægar flaugar rændu óttasleginn almenning svefni. Að loknu meistaranámi í Massachusetts flutti Qian sig vestur á bóginn og hóf nám við Tæknihá- skólann í Kaliforníu (Caltech), þar sem leiðbein- andi hans, vísindamaðurinn Theodore von Karm- an, hafði á orði að þar færi afburða stærðfræðingur sem hefði til að bera „óumdeilda snilligáfu“. Á árunum sem Qian gat sér nafns var ekki búið að stofna Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA). Rannsóknir hans voru því í þágu hersins sem naut góðs af framlagi hans til þeirrar tækni að nota eldflaugar í flugtaki flugvéla, í rannsóknum sem Karman fór fyrir. Þetta var við rannsókna- setur Caltech í Kaliforníu, þar sem Qian og félagar hans stofnuðu miðstöð í þotuhreyfilsrannsóknum. Miðstöðin, sem í daglegu tali er nefnd Jet Pro- pulsion Laboratory, rann inn í NASA þegar stofn- unin varð til í forsetatíð Eisenhowers 1958. Vissi of mikið Þremur árum áður fór Qian til Kína, eftir fimm ára stofufangelsi. Hann þótti búa yfir mikilvægum upplýsingum og því ekki talið óhætt að reka hann strax úr landi. Sagan segir að heim kominn hafi Qian leitað hefndar gegn þjóðinni sem sveik hann. Dan A. Kimball, næstráðandi í bandaríska sjó- hernum þegar Qian fór heim, komst svo að orði: „Þetta var það heimskulegasta sem þessi þjóð hefur gert. Hann var ekki kommúnisti frekar en ég og við neyddum hann til að fara.“ Qian var rúmfastur undir það síðasta. Hann kom aldrei aftur til Bandaríkjanna. Eldhuginn sem leitaði hefndar Fórnarlamb McCarthy-ismans kom Kínverjum í geiminn Kominn heim. Qian og Maó formaður á góðri stundu. Réttsælis frá vinstri: Hitler kunni að meta von Braun. Kín- verskt áróðursspjald veg- samar geimáætlunina. Qian. John F. Kennedy. Geimferja NASA flutt með flugi. Úr einni af tungllendingum NASA. „Á að kenna vísindamönnum um stríð? Einstein? Hann leitaði svara við grundvallarspurningum og formúla hans [E=MC2] var notuð til að smíða kjarnorkusprengju,“ spurði Wernher von Braun í grein í tíma- ritinu New Yorker 1955, árið sem Einstein dó. Þessi orð eru rifjuð upp í inngangi bókarinnar Dark Side of the Mo- on, sem fræðimaðurinn Wayne Bittle, kennari í skapandi skrifum við Johns Hopkins-háskóla, skrifaði og gaf út fyrr í ár. Spurningin er Bittle hugleikin en líkt og svo mörg fróðleiksfús börn í Bandaríkj- unum hlýddi hann á rödd sögumannsins von Braun í Disney-myndum um geiminn á miðjum sjötta áratugnum. Að sögn Bittle skiptast menn í tvo hópa, gagnrýnendur og aðdá- endur, þegar von Braun er annars vegar. Þjóðverjar hafi fyrir tíu árum hætt við að halda upp á 50 ára afmæli fyrsta vel heppnaða skotsins á V2-eldflauginni alræmdu, sem síðar var notuð til árása á Lundúnir þegar stríðið var tapað. Von Braun átti stóran þátt í þróun flaugar- innar, sem talið er að hafi kostað þúsundir mannslífa, en hún var smíðuð að hluta í þrælabúðunum Dora, þar sem talið er að 20.000 manns hafi ýmist dáið úr vosbúð og harðræði eða verið líflátnir af böðlum Þriðja ríkisins. Gagnrýnendur fullyrða að von Braun hafi vit- að af búðunum, en málsvörn hans er að hann hafi engu ráðið um þær. Bandaríkjastjórn kaus að strika yfir þessa fortíð snillingsins, enda naut hún góðs af mikilvægu framlagi hans til hönnunar á Saturn V- flauginni sem kom Apollo-geimferju tunglfaranna á áfangastað. Ekki sama Jón og Eldflauga-Jón Von Braun var áður í SS-sveitunum. Hér er hann á ferð með Heinrich Himmler. Sneri heim Eftir að von Braun og upp- gjafafélagar hans í liði nas- ista voru teknir höndum af bandamönnum í stríðslok yfir- heyrði Qian hann um eld- flaugaáætlun Þriðja ríkisins. Áratug síðar sneri Qian nauð- ugur viljugur heim til Kína, á sama tíma og frægð þýska eldflaugafræðingsins jókst ár frá ári vestanhafs. Nálgast má sýnishorn úr bókinni um ævi von Braun á netinu. Qian er jafnan talinn einn áhrifa- mesti, ef ekki áhrifamesti, braut- ryðjandi í þróun kínverskra eld- flauga- og geimrannsókna. Hann leiddi þannig þróun kín- verska hersins á langdrægum flaugum, ásamt því að leggja mik- ilvæga hönd á plóginn við þróun eftirlits- og veðurathugunarhnatta á braut um jörðu. Hann fylgdist svo stoltur með því frá sjúkrabeði þegar Yang Liwei fór fyrstur Kín- verja út í geiminn, þegar hann fór 14 hringi í kringum jörðina á spor- baug í Shenzhou V-geimfari. Kaldhæðnislegt er að geimfarið skuli kennt við sama tölustaf og Saturn V-eldflaugarnar sem urðu til að auka á orðstír von Braun fjórum áratugum áður. Qian hafði mikil áhrif á mótun kínverska stjórnkerfisins, meðal annars með því að koma því á að liðsforingjar sem fóru fyrir deildum innan kínverska hersins skyldu hafa meist- ara- eða doktorspróf frá háskóla. Vestur í Bandaríkjunum kom hann að þróun geimflaugarinnar X-20 Dyna-Soar, for- vera geimferjunnar Space Shuttle sem enn er í notkun. Lykilmaður í Kína Geimfarinn Yang Liwei

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.