SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Síða 22

SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Síða 22
22 8. nóvember 2009 kannski verstur af þeim öllum. Gunnar Eyjólfsson er yndislegur maður. Hann sagði við mig: „Ég get ekkert hjálpað þér, þetta er allt í hausnum á þér. Þetta er andlegt.“ Með ár- unum hef ég náð nokkuð góðu valdi á staminu þótt það hái mér einstaka sinnum. Ekki er langt síðan ég var í boði og var að reyna að segja til nafns. Maðurinn sem ég stóð frammi fyrir sneri sér við og sagði við viðstadda: „Er eitthvað að honum?“ Ég varð svo reiður að ég þreif í öxlina á honum og hvæsti: „Það er allt í lagi með mig. Ég heiti Karl.“ Alltaf að gera betur Þú hefur starfað erlendis og unnið með heims- þekktum fyrirsætum eins og Kate Moss og Naomi Campbell. Hvernig náðirðu svona langt? „Það var fyrst og fremst metnaður og þrautseigja og svo auðvitað hæfileikar. Þegar ég lít til baka hugsa ég að ég hafi kannski haft meiri metnað en aðrir til að sanna mig og standa mig vel því mér fannst ég alltaf vera öðruvísi en fólk er flest. Þess vegna festist í mér þessi tilfinning að ekkert sem ég gerði væri nógu gott, ég þyrfti alltaf að gera aðeins betur. Þar liggur kannski grunnurinn að miklum baráttuvilja og metnaði. Nú er ég hinsvegar stadd- ur á þeim stað í lífinu að ég er sáttur við sjálfan mig og tilveru mína og þar af leiðandi í meira og betra jafnvægi. Það er nauðsynlegt að segja stundum við sjálfan sig: Þú ert búinn að standa þig vel. Ég finn að það léttir mér róðurinn að hugsa þannig. Maður verður að vera í endalausri baráttu við að vera sjálfum sér trúr. kannski segja að ég hafi upplifað mig sem klofinn persónuleika því ég lék mér með barbídúkkur um leið og ég heillaðist líka af öllu sem tengdist veiði- mennsku og byssum. Ég var veiðimaður í húð og hár og er það enn og fór oft á veiðar með pabba. Ég hef alltaf verið heillaður af öllu sem tengist kvenfólki. Ég er fæddur karlmaður og er mjög viss í minni karlmennsku. Ég hefði aldrei viljað fæðast kona svo það sé nú á hreinu!“ Var erfitt fyrir þig á sínum tíma að viðurkenna kynhneigð þína? „Já, mjög erfitt. En það er ákaflega einkennilegt að árið 2009 sé enn verið að tala um samkynhneigð nánast eins og furðulegt fyrirbæri. Ég þoli ekki þetta sífellda hommatal. Maður kemur á manna- mót og fólk vill endilega fara að ræða við mann um kynhneigð manns. Mér finnst það argasti dóna- skapur og afar þreytandi satt að segja. Hvað þá þegar grínistar falla í þá gryfju að finna ekkert á mann annað en kynhneigðina. Það finnst mér ódýr húmor. Það þykir óeðlilegt að ræða við gagnkyn- hneigt fólk um kynhneigð þess og það sama ætti að eiga við um samkynhneigða. Kynhneigð mín hefur aldrei aftrað mér í lífinu. Það hefur stamið hins vegar gert. Ég kom varla upp orði sem krakki og þá virtist fátt fjarlægara en að ég ætti eftir að koma fram í sjónvarpi og vera í við- tölum. Ég gat ekki einu sinni sagt hvað ég hét. Nafn mitt var frosið í heilanum á mér. Stamið var erfiður böggull að bera. Skítt með kynhneigðina. Ég byrjaði fjórtán ára hjá talkennara, yndislegri konu, sem kenndi mér mikið. Allir í fjölskyldu minni töluðu hratt og mikið en þarna var ég látinn tala rólega. Seinna fór ég á námskeið hjá Gunnari Eyjólfssyni. Þangað mættu fimmtán aðrir stam- arar. Við þurftum að standa upp og kynna okkur með nafni. Öllum stömurum finnst erfitt að segja hvað þeir heita og það fannst þessum líka. Þegar ég heyrði þetta fólk tala varð ég yfir mig hneykslaður á því að eiga að tilheyra þeirra hópi. Þegar kom að því að ég kynnti mig stóð ég upp og sagði hátt og skýrt. „Karl Berndsen heiti ég og það er ekkert að mér.“ Ég var að koma því rækilega til skila að ég ætti ekkert sameiginlegt með þeim. En ég var K arl hefur verið búsettur í London síð- ustu tólf ár og hefur starfað um allan heim við list sína og unnið með stór- stjörnum. Hann á enn heimili í London en flutti til Íslands seint á síðasta ári og stofnaði þá hárgreiðslustofuna og make up stúdíóið Beauty barinn. „Ég flutti heim þremur dögum fyrir kreppu og opnaði Beauty barinn. Ég ætlaði að vera með í góð- ærispartíinu en því var lokið þegar ég mætti á svæðið,“ segir Karl. Spurður um vinsældir Nýs út- lits segir hann: „Ég er mjög þakklátur fyrir þær viðtökur sem þátturinn hefur fengið. En það fylgir því mikil ábyrgð þegar fólk hlustar á mann og tek- ur mark á manni. Ábyrgðartilfinning mín vex stöðugt og verður sterkari vegna þess að ég sé miklar breytingar á manneskjum sem koma til mín í þáttinn. Þetta eru konur sem hafa oftast ekki haft löngun eða áhuga til að hugsa um sig og hafa oft verið uppteknar við að þjóna og hjálpa öðrum. Kona, sem maður ímyndaði sér að væri búin að leggja sjálfa sig til hliðar til að sinna öðrum, lifnar svo við og það kemur glampi í augun á henni þegar hún sér sjálfa sig í spegli eftir að ég hef gefið henni nýtt útlit. Þetta finnst mér afar gefandi og ábyrgð mín eykst við hverja áskorun. Ég er líka þannig gerður að ég vil sífellt vera að ögra sjálfum mér.“ Skiptir útlit miklu máli? „Útlit skiptir ekki öllu máli en það er mikilvægt að við gerum eitthvað fyrir litlu manneskjuna sem er þarna inni í sálarkirnunni. Þetta er eins og vökvun á blómum. Kaktusinn lifir reyndar allt af en af hverju ekki að gefa honum smánæringu og dúlla við hann? Um leið og manneskjan finnur neista innra með sér líður henni betur sem per- sónu. Ég hjálpa til við að tendra þennan neista.“ Þoli ekki hommatal Varstu strax sem barn listrænn og hrifinn af fötum og tísku? „Ég hafði gríðarlega mikið ímyndunarfl sem barn og það hefur ekkert minnkað eftir að ég varð fullorðinn. Heilinn er sífellt að störfum. Hugs- anlega hafði ég of mikla sýniþörf í æsku. Það má Viðtalið Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Viss í minni karl- mennsku Karl Berndsen, hárgreiðslu- og förð- unarmeistari, hefur slegið rækilega í gegn með þáttum sínum Nýtt útlit á Skjá einum þar sem hann miðlar þekkingu sinni, breytir útliti einstaklinga til hins betra og gefur þeim ráðleggingar. Eftir fjórtán ára flakk um heiminn vil ég eignast heimili og gjarnan elskhuga. Ég á reyndar heimili en ekki elskhuga. Ég myndi glaður eyða ævinni með ein- hverjum sem myndi kveikja lostann í mér á hverjum morgni. Ég er bara ekki viss um að þannig samband sé til.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.