SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Blaðsíða 24

SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Blaðsíða 24
24 8. nóvember 2009 H átíðarsalur Háskóla Íslands var nánast fullsetinn sl. þriðjudag, þegar dr. Sigrún Ólafsdóttir, lektor í fé- lagsfræði við Bostonháskóla, og dr. Jón Gunnar Bernburg, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands, kynntu niðurstöður al- þjóðlegrar rannsóknar á fordómum gagn- vart geðrænum vandamálum á ráðstefnu á vegum Hugarafls. Aðsóknin ein sýnir þann áhuga, sem er á þessum málaflokki. Á undanförnum áratug hafa orðið til nokkur grasrót- arsamtök, sem vinna að málefnum geð- sjúkra. Hugarafl er eitt þeirra. Það var því við hæfi, að Herdís Benediktsdóttir, einn af félagsmönnum í Hugarafli, sem hefur komið fram sem einörð baráttukona fyrir umbótum í málefnum geðsjúkra, setti ráðstefnuna. Nokkrir aðrir félagsmenn í Hugarafli fluttu örsögur úr heimi þeirra, sem eiga við geðraskanir að stríða, sem samtökin hafa safnað saman og halda áfram að safna saman. Þær sögur eiga heima í bók, sem mundi stuðla að því að draga úr fordómum, ef tekið er mið af þeim sögum, sem þarna voru sagðar. Frá- sögn dr. Steindórs J. Erlingssonar vís- indasagnfræðings af geðfræðsluverkefni Hugarafls í efri bekkjum grunnskóla og fyrstu bekkjum framhaldsskóla vakti sér- staka athygli og augljóst, að þar er um að ræða mikilvæga fræðslustarfsemi meðal barna og unglinga, sem líkleg er til að draga stórlega úr fordómum gagnvart geðsjúkum, þegar tímar líða. Stjórnvöld ættu að stuðla að því, að þessi þáttur í starfi Hugarafls verði aukinn verulega. Meginniðurstaðan í rannsóknum Sig- rúnar Ólafsdóttur og Jóns Gunnars Bern- burg er sú, að við Íslendingar stöndum nokkuð vel, þegar kemur að alþjóðlegum samanburði á fordómum í garð geðsjúkra en eftir sem áður eru fordómar hér veru- legir. Í umræðum á ráðstefnu Hugarafls kom reyndar fram sú skoðun, að þeir kynnu að vera meiri hér en rannsóknin gæfi til kynna. Ástæðan væri sú, að Ís- lendingar vissu, að það væri ekki við hæfi, að sýna fordóma á þessu sviði og svöruðu spurningum í samræmi við það. Einn af þeim, sem bentu á þetta, var Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra. Í könnun þeirra Sigrúnar og Jóns Gunnars kemur m.a. fram, að þriðjungur landsmanna telur, að fólk með þunglynd- iseinkenni eigi ekki að gegna opinberum embættum, og tæpur helmingur að hið sama eigi við um fólk með einkenni geðklofa. Til marks um það á hvers konar sandi þessi afstaða er byggð er ástæða til að benda á bók, sem út kom í Bretlandi fyrir rúmum tveimur áratugum eftir breska sálfræð- inginn Anthony Storr en bókin heitir Churchill’s Black dog, Kafka’s mice and other Phenomena of the Human Mind. Í bók þessari fjallar höfundur m.a. um ævi- langa baráttu Winstons Churchills við þunglyndi og færir rök að því, að einungis sá, sem kynnzt hafi þeirri botnlausu ör- væntingu, sem fylgi djúpu þunglyndi, hefði getað látið sér til hugar koma, þegar verst gekk í heimsstyrjöldinni síðari, að hægt væri að vinna sigur á Þjóðverjum. Annað dæmi um stjórnmálaleiðtoga, sem risið hefur jafn hátt í sögunni og Churchill en átti við þunglyndi að stríða, er Abraham Lincoln. Í sögu okkar sam- tíma er norski stjórnmálamaðurinn Kjell Magne Bondevik, sem var forsætisráð- herra Noregs á árunum 1997-2000 og 2001-2005, skýrasta dæmið um mann, sem átti við alvarlegt þunglyndi að stríða en gat engu að síður stjórnað landi. Það er frændum okkar Norðmönnum til ævar- andi sóma, að Kjell Magne Bondevik fór í leyfi frá störfum sem forsætisráðherra á meðan hann barðist við þunglyndi sitt og kom svo aftur og naut stuðnings þjóð- arinnar til þess. Hefðum við Íslendingar brugðizt við á sama hátt? Því miður verð ég að viðurkenna, að ég er ekki viss um það, og byggi þá skoðun á dæmi úr síðari tíma sögu okkar, þótt ekki verði farið nánar út í það hér. Þegar horft er til síðustu hálfrar aldar er ég ekki í vafa um, að dregið hefur úr for- dómum á Íslandi í garð fólks með geð- raskanir. Því fer hins vegar fjarri að við- unandi árangur hafi náðst. Það kom skýrt fram í frásögn Jónu Rutar Guðmunds- dóttur, verkefnisstjóra á velferðarsviði Reykjavíkurborgar, af Straumhvarfa- verkefninu, sem snýst um búsetuúrræði fyrir fólk með geðraskanir. Hún hefur staðið frammi fyrir þessari spurningu: Hefur þú leyfi til að flytja þetta fólk í ná- grenni við okkur? Það kom líka fram hjá Halldóru Ólafsdóttur, yfirlækni á geð- deild Landspítalans, sem benti á, að vinnumarkaðurinn væri óvinsamlegur fólki með geðraskanir. Rannsókn þeirra Sigrúnar Ólafsdóttur og Jóns Gunnars Bernburg getur lagt grundvöll að nýjum átökum á þessu sviði. Hið sama á við um rannsókn, sem Margrét Eiríksdóttir geð- hjúkrunarfræðingur kynnti á fundi í Geð- hjálp í fyrrakvöld, fimmtudagskvöld, en í umræðum um hana kom m.a. fram, að kvikmyndir ýti undir þá tilfinningu fólks, að tengsl séu á milli geðsjúkdóma og þá sérstaklega geðklofa (er ekki hægt að finna betra orð yfir þann sjúkdóm?) og ofbeldis. Héðinn Unnsteinsson, sérfræð- ingur í heilbrigðisráðuneyti, sem hefur barizt markvisst fyrir umbótum í þágu fólks með geðraskanir, benti réttilega á, að æskilegt væri að fá meiri samanburð við aðrar Norðurlandaþjóðir og tók Sig- rún Ólafsdóttir undir það. Baráttan gegn fordómum í garð geð- sjúkra verður að halda áfram. Sigur í þeirri baráttu er ein af forsendunum fyrir því, að þeir, sem verða fyrir áföllum vegna þessara sjúkdóma, nái bata. Við getum ekki sætt okkur við það, að fólk vilji ekki láta sjá sig meðal annars fólks vegna sjúkdóms eða að aðstandendur skammist sín fyrir sína nánustu vegna sjúkdóms þeirra. Um fordóma og hinn svarta hund Churchills … Af innlendum vettvangi… Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is U ppi varð fótur og fit á dagblaðinu Il Messag- gero í Rómaborg 8. nóvember 1973 þegar umslag sem innihélt hárlokk og hægra eyra af manneskju skreið inn um lúguna. Þegar betur var að gáð kom í ljós að hárið og eyrað heyrðu til ungum manni, John Paul Getty III, sem rænt hafði verið í Róm 10. júlí sama ár. Í bréfi sem fylgdi eyranu og hárlokknum stóð: „Þetta er eyrað á Paul. Fáum við ekki lausnargjald greitt innan tíu daga sendum við ykkur hitt eyrað. Hann mun með öðrum orðum koma í litlum bútum.“ Skömmu eftir að hinum sextán ára gamla Getty var rænt barst fjölskyldu hans orðsending frá mannræningj- unum þar sem þeir fóru fram á sautján milljón banda- ríkjadala lausnargjald. Fjölskyldan skellti skollaeyrum við beiðninni enda grunaði hana í fyrstu að drengurinn, sem þótti ódæll, væri með þessum hætti að reyna að svíkja fé út úr afa sínum, olíubaróninum J. Paul Getty. Hermt er að afinn hafi verið tregur að borga vegna þess að þá yrði hinum barnabörnum hans fjórtán einnig rænt og lausnargjalds krafist. J. Paul Getty lét son sinn endurgreiða sér lausn- argjaldið á 4% vöxtum. Fátt virðist hafa verið með þeim feðgum því sá eldri skrifaði son sinn að mestu út úr erfðaskránni áður en hann lést árið 1976. J. Paul Getty yngri dró sig í hlé frá olíubransanum og gerðist mann- vinur og bókasafnari í Bretlandi, þar sem hann var síðar aðlaður. Hann lést árið 2003. John Paul Getty III hefur átt erfitt uppdráttar eftir þessa miklu lífsreynslu. Hann ánetjaðist áfengi og lyfjum og árið 1981 tók hann of stóran skammt af lyfseð- ilsskyldum lyfjum með þeim afleiðingum að hann lam- aðist fyrir lífstíð og missti hér um bil sjónina. Hann er enn á lífi, búsettur á Írlandi. Getty III gekk að eiga ljósmyndarann og kvikmynda- gerðarkonuna Giselu Zacher og á með henni tvö börn. Annað þeirra er kvikmyndaleikarinn Balthazar Getty, sem fæddist árið 1975. Hann er þekktastur fyrir leik sinn í sjónvarpsseríunum Alias og Bræður og systur og fyrir það að vera ástmaður leikkonunnar Siennu Miller. Getty III og Zacher skildu. orri@mbl.is Fengu eyra sent í pósti Á þessum degi 8. nóvember 1973 John Paul Getty III skömmu eftir að hann var leystur úr prísundinni. Balthazar Getty J. Paul Getty, yngri Skömmu síðar sendu mannræningjarnir frá sér aðra lausnargjaldsorðsendingu en hún barst fjölskyldunni aldrei vegna póstverkfalls á Ítalíu. Orðsendingin sem ritstjórn Il Messaggero fékk í hendur var sú þriðja í röð- inni og nú var lausnargjaldið komið niður í 3,2 milljónir bandaríkjadala. Nú grátbáðu foreldrar Gettys III, J. Paul Getty yngri, sem um þær mundir var forstjóri Ítalíudeildar fjöl- skyldufyrirtækisins, og sundknattleiksdrottningin Gail Harris, sem voru skilin, gamla manninn um að endur- skoða afstöðu sína. Hann lét sig hafa það og tókst meira að segja að gera mannræningjunum gagntilboð sem þeir tóku, 2,8 milljónir bandaríkjadala. Hlekkjaður við staur í helli Rúmum mánuði síðar fannst John Paul Getty III á lífi á Suður-Ítalíu. Honum hafði verið haldið í helli, þar sem hann var hlekkjaður við staur. Mannræningjarnir náðust aldrei en talið er að þeir hafi tengst einum skæðustu glæpasamtökum Ítalíu, Ndrang- heta. J. Paul Getty John Paul Getty III
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.