SunnudagsMogginn - 08.11.2009, Qupperneq 33
8. nóvember 2009 33
byrjað að anda í kafi. Búrinu er ekki snúið við
fyrr en menn hafa náð valdi á aðstæðum og eru
orðnir algjörlega rólegir.
Önnur veltan er erfiðari. Þá halda menn á
súrefnisstykkinu og þurfa að setja það upp í sig
þegar þeir eru komnir á hvolf í vatnið. „Það er
hægara sagt en gert enda þarf að tæma lungað
áður en maður getur byrjað að anda eðlilega,“
segir Björn.
Þriðja veltan er erfiðust. Þá eru menn með
súrefnisstykkið í vasanum og þurfa að finna
það áður en þeir setja það upp í sig og byrja að
anda. „Þetta er mjög óþægilegt enda fyllist nef-
ið strax af vatni. Það er líka erfiðara að anda
með þessm litla kút þegar maður er á hvolfi en
við venjulega köfun,“ segir Björn.
Þrír kafarar eru tiltækir í lauginni fari eitt-
hvað úrskeiðis. Björn segir ekki óalgengt að
menn þurfi aðstoð, einkum í fyrstu atrennu.
„Það er mjög óþægileg tilfinning enda er ekki
hægt að stóla á kafara við raunverulegar að-
stæður.“
Gera ekkert í sjö sekúndur
Þegar menn eru lausir úr búrinu tekur þyrlu-
hermirinn við. Þar eru þrepin líka þrjú.
Byrjað er á því að dýfa herminum ofan í
vatnið án þess að hvolfa honum. Björn segir að
byrji þyrla að sökkva eftir nauðlendingu hafi
áhafnir skýr fyrirmæli um að setja aðra hönd á
hurð eða glugga og hina á beltissylgjuna. Síðan
eiga menn að bíða aðgerðalausir í sjö sekúndur
eða meðan þyrlan fyllist af vatni. Að því búnu
losa þeir höndina af beltinu, finna súrefn-
isstykkið, stinga því upp í sig og byrja að anda.
Súrefnið í stykkinu dugar í fimmtán sekúndur
til tvær mínútur eftir því hvað menn anda ört.
Það er því brýnt að vera í góðri þjálfun og
halda ró sinni. Á leiðinni upp mega menn ekki
gleyma að anda frá sér, annars er hætta á að
loftbólur komist í blóðið og leiði til kafaraveiki.
Þessi æfing er endurtekin fyrir þá sem ekki
ná að klára hana í fyrstu tilraun.
Eins og skyrtur í þvottavél
Annað þrep æfingarinnar felst í því að hvolfa
þyrlunni í 180 gráður í vatnið en miklar líkur
eru á því að þyrlum hvolfi lendi þær í sjó, þar
sem þyngdarpunkturinn er hár. „Þá förum við
eins að nema hvað þetta er miklu erfiðara þar
sem þyrlan er á hvolfi. Það er ótrúlegt hvað
maður getur ruglast við það. Veit hvorki hvað
snýr upp né niður og einföldustu hlutir verða
fáránlega flóknir,“ segir Björn.
Þriðja þrepið er keimlíkt öðru þrepinu nema
hvað herminum er hvolft í myrkri. Björn segir
menn ekki skylduga til að ljúka þeirri æfingu
en Gæslumenn hafi gert það að þessu sinni.
Einnig er boðið upp á aukaæfingu, þar sem
hluti áhafnarmeðlima stendur aftur í herm-
inum, en sú staða getur hæglega komið upp.
„Þetta er mjög erfið æfing. Þar sem menn eru
ekki bundnir kastast þeir til eins og skyrtur í
þvottavél þegar herminum er hvolft í vatnið,“
segir Björn.
Klári menn æfinguna skammlaust eru þeir
leystir út með sérstöku viðurkenningarskjali.
Spurður hvað gerist standist menn ekki prófið
verður fátt um svör hjá Birni enda hefur sú
staða ekki ennþá komið upp innan Gæslunnar.
„Það hefur enginn fallið ennþá og vonandi
kemur ekki til þess.“
Sigurður Ásgeirsson flugstjóri kominn á hvolf í búrinu góða. Áríðandi er að halda ró sinni.
Björn Brekkan Björnsson brýst út úr þyrluherminum. Einföldustu hlutir verða flóknir á hvolfi.
Kafarar hvolfa Þórarni Inga Ingasyni í laugina.
Þyrluhermirinn hjá fyrirtækinu Falck Nutec í Aberdeen er sannarlega mikil völundarsmíð.
Gæslumenn fá leiðbeiningar fyrir æfinguna.
„Þetta er mjög erfið æfing. Þar
sem menn eru ekki bundnir kast-
ast þeir til eins og skyrtur í
þvottavél þegar herminum er
hvolft í vatnið.“
Sóknarfæri | Atvinnusköpun | Skapandi greinar | Erlent samstarf | Tengslanet
verkefnasýning
NPP
Á sýningunni verða þau fjölbreyttu verkefni sem Ísland
tekur þátt í innan Norðurslóðaáætlunar kynnt. Verkefnin
eru m.a. á sviðum viðbragða við loftslagsbreytingum,
menningartengdrar ferðaþjónustu, heilsugæslu, fiskeldis,
verslunar, veiða, handverks, viðbragða við stórslysum,
almenningssamgangna, nýtingu trjáviðar, endurnýjanlegra
orkugjafa, öldrunarþjónustu, vegagerðar og skapandi
greina.
Norðurslóðaáætlun 2007-2013 er ein
af svæðaáætlunum Evrópusambandsins
og meginmarkmið hennar er að efla
atvinnu-, efnahags-, umhverfis- og
félagslega framþróun svæða og landa á
norðurslóðum með samstarfsverkefnum
yfir landamæri á milli einstaklinga,
fyrirtækja og stofnana.
Kynning á tækifærum, áherslum og árangri
Norðurslóðaáætlunar
Ráðhús Reykjavíkur
10. nóvember kl. 12:00 - 18:00
11. nóvember kl. 10:00 - 18:00
Sýningin er öllum opin
Fjölbreytt samstarfsverkefni
Norðurslóðaáætlunar 2007-2013